Dagur - 07.02.1998, Page 7

Dagur - 07.02.1998, Page 7
LAUGARDAGUR 7.FEBRÚAR 1998 - 7 Xfc^MT RITSTJÓRNARSPJALL M aummapi íslendingar þurfa ekki stjórnar- skrá. Það er reynsla af stjórnar- skrá í Nígeríu; þar er mikil póli- tísk spilling. Islendingar þurfa ekki heldur lög um fjármál stjórnmálaflokka. Svoleiðis lög eru til á Italíu, og þar er mikil spilling í fjármálum stjórnmála- flokka. Þeir sem eru á móti því að stjórnmálaflokkar þurfi að gera grein fyrir fjárreiðum sínum fara alltaf að tala um Italíu. í hremsMlni sagt Það er mikilvægt fyrir lýðræðið í landinu að fjármál stjórnmál- anna séu heilbrigð. Eru þau það? Nei. Tökum dæmi sem sjaldan er minnst á. Foringjar íslenskra stjórnmálaflokka eru oft per- sónulega í ábyrgðum fyrir skuldir flokka sinna. Með hús og eignir að væði. Frambjóðendur og nán- ustu stuðningsmenn eru oft „skyldaðir" til að skrifa upp á kosningaskuldir. Þetta hefur þótt sjálfsögð fórnfýsi, hollusta við málsstað eða bara eðlileg „tfund“ fyrir að gegna launuðum störfum sem „flokkurinn hefur komið fólki í“. Þetta er óeðlilegt. Um þetta er sjaldan talað opinberlega vegna þess að það er slæmt af- spurnar fyrir viðkomandi stjórn- málamann að hann sé ijárhags- Iega hætt kominn vegna flokks- skulda. Með heimili að veði. Við þurfum sjálfstæða stjórnmála- menn, ekki skuldaþræla. Og sama röksemd á við stjórnmála- flokka. Forsetamál Sú krafa kom fram í forsetakosn- ingunum síðast að frambjóðend- ur gerðu grein fyrir (járöflun og kostnaði við baráttuna. Allir frambjóðendurnir lofuðu að gera það. Við það stóðu þeir, nema einn. Hann situr á Bessastöðum. Ekki skal efast um að staðið verði við fyrirheit um uppgjör. Skuldir framboðsins eru sagðar einhvers staðar á bilinu 15-20 milljónir. Er gott til þess að vita að svo mik- ið fé sé útistandandi hjá fram- boðsnefnd forseta? Nei, því skuldirnar setja forseta í tor- tryggilega stöðu. Þarf þó ekkert tortryggilegt að eiga sér stað. A þetta er minnst vegna þess að í undanfara dýrustu forseta- kosninga sögunnar var mikið um íjármál frambjóðenda rætt. Al- menningi líkaði eldd sú tilhugsun að fjársterkir „keyptu“ sér for- seta. Þá líkaði hvorlu fjölmiðlum né almenningi að frambjóðendur væru háðir gefendum sínum eft- irá. Hvort sem frambjóðandinn kæmist á Bessastaði eða sæti áfram í Hæstarétti. Hættan við kosningaskuldir er sú að sá sem gegni embætti, skuldum vafinn, freistist til að nota áhrif þess um- svif til að bjarga sjálfum sér úr klemmunni. Einstaklingur eða flokkur. Við eigum að haga málum svo, með opinberum framlögum, reglum um fjáröflun og sam- komulagi um útgjöld að ekki fari hér allt í ítalska vitleysu. Ráðherrar Báðherrar í ríkisstjórn og for- menn í nefndum sveitarstjórna eiga auðveldara en forseti með að hygla fjárstuðningsmönnum eða handhöfum skuldabréfa. Þess vegna er óeðilegt að þeir eða flokkarnir séu hluti af neð- anjarðarhagkerfi. Flokkarnir eru hvorki framtals- skyldir né skattskyldir. Látum vera þótt þeir borgi ekki skatt, en hvers vegna ekki framtalsskyldir? Þeir þiggja framlög frá hinu op- inbera, og gegnum þá strejona miklar fjárhæðir í formi styrkja frá einstaklingum og fyrirtækj- um. Þessir styrkir eru að hluta skattfrjálsir. Hættan á hags- munaárekstrum er svo augljós að ekki þarf að ræða hana. Samt er henni drepið á dreif í erg og gríð - samanber nýlegan Kastljóssþátt í sjónvarpi. Framkvæmdastjórar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks töldu enga ástæðu til að tortryggja flokkana á neinn hátt. Svar okkar er: jæja. Við skulum þá bara koma þessum málum á hreint, formlega og löglega. Hvers vegna gildir framtalsskylda um allt sem nöfnum tjáir að nefna í samfélaginu - nema þá sem mest hafa völd og HELST gætu lent í hagsmunaárekstrum? Eftirtektarverður imiriur Stjórnmálafræðingar og aðrir há- skólamenn hafa eindregið beint þeim tilmælum til handhafa hins pólitíska valds að koma fjárreið- um sínum á hreint. Þeir benda á fordæmi í nálega öllum ríkjum sem okkur standa nærri. And- mælendur grípa alltaf til Italíu, því þar séu strangar reglur en spilling samt mest. Með sömu rökum getum við lagst gegn því að hér sé lögregla, því á Italíu starfi öflug lögregla, en þar séu skipulagðir glæpir miklir. Hvert er samhengið? Þessi rökleysa er ekki neinum manni bjóðandi. Af svipuðum toga er sú rök- Ieysa að setning reglna um fjár- reiður stjórnmála muni grafa undan góðum siðum. (Siðum, sem reyndar er ekki víst að séu til.) Ekki megi setja reglur því þá fari menn að finna leiðir til að komast hjá þeim. Jafn -satt og þetta kann að vera í einstöku til- fellum, þá er þetta engin megin- röksemd. I Bandaríkjunum eru framlög til frambjóðenda bundin hámarki og þau birtingarskyld. Jafnframt hafa menn fundið smugur: alls kyns hagsmunahóp- ar sem ekki eru skilgreindir sem flokkar eða frambjóðendur hafa komið sér upp sjóðum til að berj- ast á vettvangi stjórnmálanna. Kostirnir váð reglurnar eru samt augljósir: frjárhagstengsl gefenda og þiggjenda eru ljós. Þau eru LIKA Ijós þegar menn finna smugur hjá tilgangi laganna, eins Hvers vegna gildir framtalsskylda um aUt sem nöfnum tjáir að nefna í samfélag- inu - nema þá sem mest hafa völd og HELST gætn lent í hagsmunaárekstrum? og þegar Rifflavinafélagið lýsir yfir stuðningi við frambjóðanda með auglýsingum, eða beinum fjárframlögum. Margt af því sem úrskeiðis fer í sambandi stjórn- mála og peninga í Bandaríkjun- um er ekki vegna reglnanna, heldur vegna þess að menn hafa ekki fengist til að útfæra þær skynsamlega. Reglurnar skilgreina „Iágmarks siðferði"; finni menn lagakróka hjá þeim standa þeir eigi að síð- ur sýnilegir: Löglegt, en siðlaust athæfi, fer á vogarskálar kjós- enda. Sveitarstjómarpólitik I raun gildir alveg sama röksemd í sveitarstjórnarpólitík og í lands- málum. Tökum dæmi af höfuð- borginni - en þar stefnir í óvenju harðan slag í vor milli a.m.k. tveggja andstæðra fylkinga. Mið- að við forsetakosningarnar er alls ekki fráleitt að ímynda sér að verði stjórnlaus barátta í Reykja- vík geti herkostnaðurinn farið upp í 100 milljónir. Það væri í fyrsta lagi hryllileg sóun á fjár- munum, því hin lýðræðislegu og málefnalegu skoðanakipti þurfa alls ekki svo mikið fé. Verði sama öfugþróun í vor og hefur átt sér stað í undanförnum kosningum til þings og Bessastaða má búast við fáránlegum útgjöldum. Hvaðan koma þeir peningar? Setjum sem svo að kostnaður verði einhvers staðar á bilinu 40- 100 milljónir. Þeir peningar koma ekki úr opinberum sjóðum - nema Sjálfstæðisflokkurinn sjái af heildarframlögum flokksins af fjárlögum til borgarmálaflokks- ins. Reynsla framboða er ekki sú að almennir stuðningsmenn leggi mikið af mörkum. Þá eru eftir framlög fyrirtækja. Getur einhver mótmælt því að kosn- ingabaráttan verði að stórum hluta fjármöguð af sníkjum til fyrirtækja? Og þó einhver mót- mælti því, þá væri það einskis vert - því fjárreiður framboðanna eru neðanjarðar en ekki opinber- ar. Fyrirtækj askattur Bein framlög fyrirtækja til kosn- ingasjóða eru ávísun á grun- semdir um hagsmunatengsl eða brenglað lýðræði. I fyrsta lagi að fyrirtækin „fái eitthvað“ í staðinn samkv’æmt gömlu góðu reglunni: „æ sér gjöf til gjalda". 1 öðru lagi að stjórnmálaflokkum sé mis- munað og „samkeppnisstaða“ þeirra skekkt. I þriðja lagi að óeðlileg persónuleg tengsl geti myndast og það haft áhrif á stöðuveitingar, meðferð mála, metorð í opinberu lífi og fleira í þeim dúr. Allt þetta er með réttu eitur í beinum almennings. Þetta kerfi er sem betur fer að láta á sjá. Stjórnmálamenn hafa æ minni tækifæri tif að deila gögnum og gæðum til vildarvina undir borðið. Samt er það mögu- legt. Þá eru stærstu fyrirtækin í vaxandi mæli almenningshluta- félög. Eðlilegt er að hluthafar fylgist gjörla með gjöfum til stjórnmálaflokka, þótt erfitt kunni að vera að fá nákvæmlega sundurliðað á aðalfundi hvað heyrir undir t.d. „menningar- starfsemi". Er það auglýsinga- kostnaður frambjóðanda? Þá er siðferði í viðskiptum vonandi að aukast svo að stjórnendur hygli ekki einum flokki á kostnað ann- ars. Eigi að síður leiðir þetta allt að einni niðurstöðu: það er vit- laust kerfi að gera stjórnmálin í landinu og framboðslista háða framlögum fyrirtækja. Ein helsta mótbára þeirra sem vilja viðhalda núverandi skipan er sú að flokk- arnir verði að vera sjálfstæðir gagnvart ríkinu. En hvað með sjálfstæði þeirra? Pröngsýni Frumvarp Jóhönnu Sigurðardótt- ur og Ossurar Skarphéðinssonar um þetta efni fer ekki í gegn, nefnd sem á að leggja fram tillög- ur kemur ekki saman og sendir ekkert frá sér. Það er furðuleg þröngsýni, sem meðal annars má kenna fjöl- miðlum um, að vilja ekki fjár- magna lýðræðið. Stjórnmálasam- tök þurfa fé. Þessir dökkklæddu menn með skjalatöskur flolck- anna sem ganga á milli og rukka í leynum eru framverðir lýðræðis á lslandi. Þessi aðferð er ítölsk. Þetta er mafíufyrirkomulag. Stjórnmál kosta fé, það er staðreynd. Við getum haldið okk- ur við sikileysku aðferðina eða tekið upp vestræna lýðræðis- hætti. Við þurfum opinber fram- lög til stjórnmálastarfs, og eins og nýleg uppákoma á Alþingi sýnir verða að gilda um þau mál gagnsæjar og skynsamlegar regl- ur. Við þurfum siðlegar reglur um aðra fjármögnun stjórnmála- starfs, svo hugsanlegir hags- munaárekstrar verði ekki einu sinni hugsanlegir, og altjent skil- greindir siðlausir. Og við þurfum samkomulag þeirra sem axla ábyrgð á opinbéru fé eftir kosn- ingar, um hegða sér skikkanlega í undanfara kosninga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.