Dagur - 04.03.1998, Qupperneq 11

Dagur - 04.03.1998, Qupperneq 11
MIDVIKUDAGUR 4. MARS 1998 - 27 T>nptr„ LÍFID í LANDINU Flosi Eiríksson, efsti maðurá Kópavogslistan- um, sameinuð- um listaA-flokk- anna, Kvenna- lista og óflokks- bundinna. Hann erfæddurog uppalinn íKópa- vogi og stúdent fráMK. Flosi Eiríksson hefur lengi verið virkur í Alþýðubandalaginu. Hann leiðir nú Kópavogslistann, sam- einaðan iista vinstri aflanna og óbundinna i Kópavogi. Siðbótístjóm- sýslunni Flosi Eiríksson er ungur húsa- smiður og stúdent úr MK. Hann hefur um árabil verið virkur í stjórnmálum og var meðal ann- ars framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins um l 'A árs tímabil, þegar hann var rétt liðlega tví- tugur. Hann er ógiftur og barn- laus, fæddur og uppalinn í Kópavogi. „Þetta er ekki kosningabanda- lag, heldur fyrst og fremst félag um bæjarmálefni í Kópavogi. Það sem einkennir listann er það að á honum er mikið af nýju fólki og ungu og á honum er einstaklingsaðild, ekki það að menn séu flokksbundnir," segir FIosi Eiríksson. Allt of miMð iim lokuð útboð „Það fer í taugarnar á okkur hvernig staðið er að ýmsum framkvæmdum hér £ bænum, það er til að mynda allt of mikið um lokuð útboð og yfirstjórn bæjarins í litlum tengslum við bæjarbúa," segir Flosi. „En efst á lista hjá okkur er fjöl- skyldupólitík í víðum skilningi, „Hér vantar skóla og leikskóla, það eru eng- ar almenningssam- göngurogfólk kemst ekki heim til sín vegna skurða sem liggja um allt, “ segirFlosi. Þess vegna býðurKópavogs- listinnfram. að búa vel að hag fjölskyldunnar. Skólamálin standa þar uppúr, bæði grunnskólinn og leikskól- inn og við viljum láta búa vel að hvoru tveggja. Svo er Kópavogur eitt skuldsettasta sveitarfélag landsins og brýn nauðsyn að vinda ofan af því og ná utan um stjórnsýsluna.11 Mikil uppbygging I Kópavogi hefur verið geysimik- il uppbygging að undanförnu og ný hverfi rísa þar hratt. Vegna þessa hefur íbúafjöldinn aukist mikið. Hvað finnst Flosa um þau mál? „Hér er gott að búa,“ segir hann, „fínar Ióðir og gott Iand sem Iiggur miðsvæðis á höfuð- borgarsvæðinu og okkur finnst auðvitað gott til þess að vita hversu margir vilja búa hér. En hvernig við eigum að halda uppi þjónustu við allt þetta fólk, það veldur okkur satt að segja dálitl- um áhyggjum. Þeir sem nú stýra bænum virðast ekki vera mjög hrjáðir af slíkum hugsunum, en ég er að vinna í nýju hverfunum við uppslátt og hér er allt ófrá- gengið. Hér vantar skóla og Ieik- skóla, það eru engar almenn- ingssamgöngur og fólk kemst ekki heim til sín vegna skurða sem liggja um allt. Það er auð- vitað argasti dónaskapur að selja fólki lóðir og svo fylgir þeim engin þjónusta. En þegar við höfum bent á þetta, þá erum við kallaðir úrtölumenn," bætir hann við. „Þessu viljum við breyta meðal annars.“ -VS N17ARISLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR Guðlaugur fer íbúðavUlt Um þann mæta mann Guðlaug heitinn Þorvaldsson ríkissátta- jsemjara eru til nokkrar þjóðsög- ur - og spunnust þær einna helst af þeim sökum að hann var ekki einasta prófessor við Háskóla Islands heldur Ifka í hinni orðsins merkingu, það er svolítið utan við sig á köflum. Til að mynda segir frá því í bók- inni Nærmyndum, sem blaða- menn Helgarpóstsins sendu frá pér árið 1983, að Guðlaugur hafi verið með Ijölskyldu sinni á leið í veislu í fjölbýlishús í Reykjavík og á leiðinni upp stig- ann í íbúðina hafi hann orðið viðskila og snúið til baka aftur út í bíl. Síðan segir í Nærmynd- um: „Hann þurfti að læsa bílnum eða eitthvað- þessháttar. Svo gengur hann inn, upp stigann og opnar hurðina að íbúðinni. Hann þekkti húsráðendur vel, hann tók af sér yfirhöfnina í mestu makindum og setti hana í fatahengið. Svo gekk hann til stofu. Þá hrökk hann í kút, því í stofunni sátu ókunn hjón. Guð- laugur hafði farið íbúðavillt. Hjónunum brá ekki síður en honum, en eftir venjulegar af- sakanir og því sem svona að- stæðum fylgir, fór Guðlaugur upp á næstu hæð fýrir ofan, þar sem fólkið var farið að undrast um hann. Varð talsverð kæti þegar fólkið heyrði sögu hans og ekki minnkaði hún þegar í Ijós kom að eiginmaðurinn á neðri hæðinni var sjómaður sem að- eins nokkrum klukklutímum áður hafði komið í land eftir hálfsmánaðarútivist." Lhnsjón: Sigurður Bogi Sævarsson. SMÁTTOGSTÓRT Bjönn Þorláhsson skrifar Árni Johnsen. Áhrifagjamir fréttameim Kostulegt er að fylgjast með hve Ijölmiðlamenn eru áhrifagjamir íslenskumenn. Orðið deiluaðili hefur riðið röftum um nokkurra ára skeið, ís- lenskulærðum besservisserum til nokkurs ama, en fyrir skömmu brá svo við að einn fréttamaður tók sig til, lagði niður „deiluað- ila“og fór að kalla þá deilendur eins og Gísli Jónsson mennta- skólakennari hefur mælt með árum saman. Aðrir fréttamenn tóku sér þetta strax til fyrirmyndar og nú tala allir um deilendur. Sá er þetta ritar er mjög ánægður með breytinguna, en þó skal varpað fram þeirri spurningu hvort fréttamönnum sé treystandi til að taka hlutlaust á málum samfélagsins ef ekki þarf nema einn kollega til að breyta tungumáli heillar stéttar. Er ístaðan eitthvað rýr? Ámi og tónverkin Árni Johnsen þingmaður „í kartöflugarðinum heiiiimaaa" upplýsti á dögunum að ný hljómsveitarsvíta væri í smíð- um hjá kappanum. Fyrir hef- ur hann gert Stórhöfðasvítuna sem flutt var í fyrra á Stór- höfða í Vestmannaeyjum. Um það tónverk sagði Árni nýver- ið í viðtalsþættinum „Á elleftu stundu" að Sinfónuhljómsveit Islands hefði verið lengur að æfa verkið en gert hefði verið ráð fyrir. Sennilega vegna þess að svítan hefði verið flóknari en menn hefðu átt von á. Gár- ungarnir aftur á móti, telja að sú hafi ástæðan ekki verið, heldur frekar sú að það hafi tekið hljómsveitina extra yfirlegu og blóð svita og tár að koma tón- smíðinni í viðunandi horf. Hæfileikar þingmannsins í músíkinni hafa nefnilega alltaf verið umdeildir. Miimimáttar- kennd Akureyringa Fyrir síðustu helgi gekk sú saga fjöllum hærra að ráðning útibússtjóra Landsbankans á Akureyri, Eiríks S. Jóhanns- sonar, hefði verið að undirlagi bankans, þar sem KEA væri komið á gjörgæslu Ijárhags- lega. Ekkert nýtt er að sam- særiskenningar blómstri þegar hrókeringar í toppstöðum fara fram, en stjórnarmönnum Kaupfélagsins mun ekki hafa verið skemmt vegna umræð- unnar. Mun einn þeirra hafa varpað því fram að þessi kenn- ing væri dæmi um króníska minnimáttarkennd Akureyringa. Þeir tryðu því einfaldlega ekki eftir að hafa fylgst með hnignun atvinnulífsins og erfliðleikum fyrirtækja á siðustu áratugum, að svona skref væri stigið af heil- brigðum ástæðum. Forboðnir ávextir Glöggir vínáhugamenn hafa tekið eftir nýrri vöru í hillum ÁTVR, nefnilega kokkteilberjum í krukkum. Finnst sumum skjóta skökku við að sjá þann varning, innan um rauðvínið og vodkað, en ástæðan er sú að berin liggja í nokkurra prósenta sterkum sykurlegi. Andstæðingar ríkiseinokunar á útsölu áfengis, benda á að það sé hlægilegt að ekki sé hægt að kaupa blessuð berin í Bónusi eða Hagkaupi, heldur þurfi einkennisklædda ríkisemb- ættismenn til að vega og meta hvort kaupandinn hafi aldur til að kaupa berin, ef ske kynni að hann ætlaði að éta þau sér til vímu! Eiríkur S. Jóhannsson. /ov*

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.