Dagur - 07.03.1998, Side 1
Utvarpsmeiin
kl aga Bjom
Starfsmaimasamtök
RÚV og Blaðamanna-
félagið kvarta yfir
memitamálaráðu-
neytiuu til umboðs-
manns Alþingis
vegna ráðningar
framkvæmdastj óra
Útvarps.
Jón Asgeir Sigurðsson, formað-
ur Starfsmannasamtaka Ríkis-
útvarpsins, og Lúðvík Geirsson,
formaður Blaðamannafélags Is-
lands, sendu umboðsmanni Al-
þingis, Gauki Jörundssyni, í
gaer kvörtun á hendur mennta-
málaráðuneytinu. Þeir telja fyr-
ir hönd samtaka sinna að
framið hafi verið brot á jafn-
raeðisreglu í stjórnsýslulögum
eftir að staða framkvæmda-
stjóra hljóðvarps var auglýst.
Halldóra Ingvadóttir hlaut
starfið.
11. janúar sl. birtist blaða-
auglýsing frá menntamálaráðu-
neytinu þar sem starfið var aug-
Iýst. Þar segir: „Umsækjendur
skulu hafa lokið háskólanámi
auk þess að hafa reynslu af íjöl-
miðlun." Fjórar umsóknir bár-
ust um stöðuna, tveir umsækj-
enda höfðu lokið háskólaprófi,
þeir Freyr Þormóðsson og Mar-
grét Oddsdóttir, fyrrum dag-
skrárstjóri á Rás 1, en tveir
ekki, Halldóra og Sigurður G.
Tómasson. Ráðuneytið mat all-
ar umsóknir hæfar og sendi út-
varpsráði og útvarpsstjóra til
umsagnar.
18 einingar orðnar að há-
skólaprófi
Starfsmannasamtök RUV ósk-
uðu eftir skýringum á þessu og
staðfestir ráðuneytið með bréfi
sem Þórunn Hafstein skrif-
stofustjóri undirritar, að það sé
afstaða ráðuneytisins að ef vafi
leikur á hvernig túlka beri aug-
Iýsingu opinbers aðila, beri að
túlka umsækjendum í hag.
Ráðuneytið telur sér til máls-
bóta að „viðurhlutamikið sé að
útiloka einstakling frá því að
keppa um opinbera stöðu, ef
orðalag auglýsingar sé ekki af-
dráttarlaust". I samræmi við
Jón Ásgeir Sigurðsson: Þetta gengur
hreinlega ekki.
þessa afstöðu metur mennta-
málaráðuneytið próf úr sameig-
inlegu námskeiði Endurmennt-
unarstofnunar Háskóla Islands
og viðskiptadeildar Háskólans
(námi sem samsvarar 18 ein-
ingum á háskólastigi) þannig að
það uppfylli ofangreind skil-
yrði.
Margir útilokaðir
„Það er hreinlega rangt sem
menntamálaráðuneytið fullyrð-
ir, að orðalag í auglýsingunni sé
ekki afdráttalaust," segja starfs-
mannasamtök RUV og Blaða-
mannafélagið í kvörtun sinni og
benda á að aðeins um þriðjung-
ur félasgsmanna BI og SSR
uppfylli skilyrði um að hafa Iok-
ið háskólaprófi og hafi fjöldi
manns ekki sótt um starfið
vegna þessa. Samtökin telja
ennfremur að óleyfilegt sé að
rýmka afdráttarlaus, útilokandi
skilyrði eftir að umsóknarfrest-
ur rennur út. Ráðuneytið hafi
haft tvo kosti: að auglýsa aftur
með rýmkuðum skilyrðum eða
standa við bindandi skilyrði
auglýsingarinnar.
„Gengur ekki“
„Þetta mál snýst alls ekki um
útvarpið heldur menntamála-
ráðherra, röng vinnubrögð og
við tökum ekki afstöðu til ráðn-
ingarinnar sem slíkrar. Það var
stór hópur fólks útilokaður með
skilyrðum í auglýsingunni og
svona vinnubrögð hreinlega
ganga ekki,“ segir Jón Ásgeir
Sigurðsson. Ekki náðist í neinn
í ráðuneytinu sem vildi tjá sig
um málið. — BÞ
Þriðjungur
ökuinaima
með
farsíma
Farsímar eru komnir í 28,8% bif-
reiða í landinu og eru þá ekki
taldir með GSM símar sem bif-
reiðastjórar kunna að vera með í
bílum sínum. Fyrir 10 árum
voru aðeins tæp 7% bifreiða með
bílasíma.
Þetta kemur fram í svari dóms-
málaráðherra við fyrirspurn Guð-
rúnar Helgadóttur um notkun
farsíma í ökutækjum. Guðrún
spurði Iíka um slysaljölda sem
rekja mætti til símanotkunar í
bifreiðum. Dómsmálaráðherra
segir fá dæmi um að bifreiða-
stjórar viðurkenni að rekja megi
slys til þess að þeir hafi verið að
tala í síma. Starfshópi hefur ver-
ið falið að kanna hvort banna eigi
með Iögum notkun síma í akstri.
2420 einstaklingar hafa snúið sér til
Stígamóta.
Konimiun hef-
ur íjiilg.u)
431 einstaklingur Ieitaði til
Stígamóta í fyrra, þar af voru
215 einstaklingar að koma í
fyrsta skipti. Alls hafa 2420 ein-
staklingar leitað til Stígamóta í
fyrsta skipti frá stofnun samtak-
anna árið 1990 til ársloka 1997.
Ofbeldismennirnir, sem hafa
komið við sögu, eru 3848 tals-
ins.
Þolendur kynferðisofbeldis
eru í yfirgnæfandi meirihluta
konur en þó hefur körlum, sem
leita sér aðstoðar, fækkað örlítið
milli ára en konunum fjölgað. Af
215 einstaklingum sem voru að
koma til Stígamóta í fyrsta skipti
voru karlarnir átta árið 1997.
Þegar þolendur leita til Stíga-
móta eru langflestir þeirra á
aldrinum 20-29 ára, eða 29,3
prósent, en 19,1 prósent eru 30-
39 ára. Heldur færri, eða 15,8
prósent, eru 16-19 ára þegar
þeir leita sér hjálpar.
Langflestir, eða tæp 60 prós-
ent, leituðu til Stígamóta vegna
sifjaspells og afleiðinga þeirra og
næstflestir vegna nauðgana, eða
32,7 prósent.
Sjá bls. 24-25 í Ltfinu í land-
inu.
Tap á Söngva-
seiði?
Eftir breytingarnar á Samkomu-
húsinu, húsi Leikfélags Akureyr-
ar, verða sætin í salnum 40 færri
en var. Sætin eru færri en gert
var ráð fyrir í upphafi og er ljóst
að munurinn hefur töluverð
áhrif á tekjumöguleika félags-
ins.
Trausti Olafsson leikhússtjóri
segir að fræðilega geti nýjasta
leikverkið, Söngvaseiður, sem
frumsýndur var í gærkvöld, stað-
ið undir sér, en Iíkurnar verða að
teljast litlar á því, enda um
kostnaðarsama sýningu og
mannfreka að ræða.
- Sjá viðtal við leikinísstjóra í
Ltfinu í landinu.
I N v 11 s í m a n ú m e r I
46 0 2 5 0 0
r 77
'*-aa®8»«saa(aií&w«..: ... . . ...
OOð/UM i l' L; í I
Premium
miólarar
SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA
Skipagata 9 - Pósthólf 220 ■ 602 Akureyri
WILOI
Perfecta 6
Hringrnsnrdælur
SINDRI ^
-sterkur í verki
B0RGARTUfít'31 • SÍt.li 562 7222 • BREFASÍMI 562 1024