Dagur - 18.03.1998, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1998 - 11
ERLENDAR FRETTIR
Sömu mælikverðar
gildi um all a
GUÐSTEINN
BJARNASON
skrifar
Mannréttindasamtökin Amnesty
International láta ekki aðeins til
sín taka mannréttindabrot í fjar-
lægum heimsálfum, heldur
beina þau einnig athygli sinni að
pyntingum og illri meðferð á
fólki sem enn viðgengst víða í
Evrópu. „Eg held að það komi
mörgum oft mjög á óvart að Am-
nesty International hafi enn
áhyggjur af mannréttindabrot-
um, ekki bara í ríkjum Mið- og
Austur-Evrópu, heldur Iíka í
Vesturevrópuríkjum,“ segir Brian
Philips, sem er yfirmaður Evr-
ópudeildar Amnesty
International í höfuðstöðvum
samtakanna í London.
„Vitanlega er ekki nærri jafn
mikið um mannréttindabrot af
þessu tagi í löndum á borð við
Italíu, Frakkland eða Bretland,
svo eitthvað sé nefnt. En samt
eru dæmi um mannréttindabrot,
einkum þá illa meðferð sem fólk
sætir af hálfu lögreglunnar. Iðu-
lega er Iíka óeðlilega stórt hlut-
fall þeirra sem verða fyrir mann-
réttindabrotum af þessu tagi úr
röðum minnihlutahópa, innflytj-
enda eða þeirra sem sótt hafa
um hæli sem flóttamenn, til
dæmis í Iöndum eins og Þýska-
landi.“
Norðuilöndin eru ckki stikk-
frí
í síðustu ársskýrslu Amnesty
International komst Danmörk á
blað fyrir mannréttindabrot,
þannig að jafnvel Norðurlöndin
eru ekki Iaus við slíkt framferði.
„Nú þetta árið höfum við bent á
mannréttindabrot í Svíþjóð. Það
gerðist jafnvel að maður Iést í
varðhaldi, talið er að hann hafi
lifað af illa meðferð af hálfu lög-
reglunnar en lést svo skömmu
síðar. Þetta kemur augljóslega
róti á huga okkar,“ segir Philips,
sem staddur var hér á landi í vik-
unni. „Venjulega getum við þó
reitt okkur á skjót viðbrögð af
hálfu stjórnvalda ef Amnesty
International birtir upplýsingar
sínar um mannréttindabrot í
löndum á borð við Norðurlönd-
in. Málið er rannsakað og reynt
að koma í veg fyrir að slíkt end-
urtaki sig.“
Náum aldrei lokapunkti
Hann segist þó telja að það skip-
ti í raun ekki máli hversu langt
þróunin er komin í hveiju samfé-
lagi, „það er aldrei hægt að reiða
sig á mannréttindi. Það er ekki
þannig að þegar þjóðfélag kemst
loks á visst stig í þróuninni þurfi
fólk aldrei að hafa áhyggjur af
þessum hlutum framar. Eg held
að þetta sýni bara að við verðum
stöðugt að endurnýja mannrétt-
indahugsjón okkar, efla vitund
um mannréttindi meðal lögregl-
unnar, meðal stjórnvalda og ekki
síst meðal alls almennings.
Þannig að þótt það sé miklu
minna um þess konar framferði
á Norðurlöndunum þá er mikil-
vægt að við höldum vöku okkar."
Brian Philips hefur ferðast víða tii að kynna málstað Amnesty International.
Philips sagði að hlutverk Am-
nesty International sé ekki að
bera saman ólík ríki og segja að
eitt ríki sé betra en annað. „Við
Iítum á hvert land fyrir sig og
metum frammistöðu þess með
tilliti til þeirra mannréttinda sem
það hefur sjálft fallist á að virða.
Við erum ekki að reyna að troða
neinu upp á þessi ríki sem þau
hafa ekki þegar undirritað. Og
það er mjög mikilvægt að fólk í
öðrum heimshlutum, eins og
Asíu, Suður-Ameríku og Afríku,
sjái að við beitum sömu mæli-
kvörðunum af jafn miklum
strangleika á Svíþjóð eða Þýska-
land eða Italíu eins og á Búrúndí
eða Pakistan eða Argentínu."
Öryggismál og mannréttindi
I mið- og austuhluta Evrópu eru
svo auðvitað lönd þar sem mann-
réttindabrot eiga sér stað ekki
bara stöku sinnum, heldur er
„ástandið í raun kerfisbundið",
segir Philips. „Ekki síst í Rúss-
landi þar sem pyntingar og ill
meðferð eru sérstaklega að-
kallandi mál. Einnig í Tyrklandi
er ill meðferð af hálfu lögregl-
unnar og pyntingar mjög út-
breiddar. Líka má nefna önnur
lönd, eins og Rúmeníu, þar sem
nokkuð miklar líkur eru á því að
fólk verði fyrir pyntingum eða
illri meðferð ef það lendir í
höndum Iögreglunnar á annað
borð.“
Brian Philips átti fund með ís-
lenskum stjórnmálamönnum á
mánudag, þar sem einkum var
rætt um hlutverk Evrópuráðsins
og Oryggis- og samvinnustofnun
Evrópu (ÖSE) f mannréttinda-
málum. ÖSE hefur einkum ör-
yggismál á sinni könnu, en að
mati Philips er sérstaklega mikil-
vægt að ekki verði gerður skýr
greinarmunur á mannréttindum
og öryggismálum.
í Kosovo kemur fátt á óvart
„Astandið í Kosovo núna er ein-
mitt skýrt dæmi um það þegar
öryggismál og mannréttindi eiga
samleið,“ segir Philips. „Am-
nesty International hefur árum
saman verið að segja að hvað eft-
ir annað hafi mannréttindi verið
brotin á albönsku þjóðinni í
Kosovo og að mörgu Ieyti kemur
það alls ekki á óvart að nú brjót-
ist fram óánægja og ofbeldi í
stórum stíl, þar sem allt of lítið
hefur verið gert til þess að reyna
að bæta ástandið. Mannréttindi
hafa ekki verið virt. Og okkur er
mjög í mun að koma því til skila
að ekki þýði að gera neina pólit-
íska samninga til lausnar á
ástandinu nema mannréttinda-
þátturinn í þeim verði mjög
stór.“
Amnesty International vill að
nú þegar fari alþjóðleg rann-
sóknarnefnd til þeirra héraða í
Kosovo sem Iokað hefur verið af
til þess að reyna að komast til
botns í því sem gerðist. „Ef þetta
voru aðeins Iögregluaðgerðir
eins og serbnesku stjórnvöldin í
Kosovo halda fram, þá ættu þau
ekki að hafa neitt að óttast þótt
alþjóðlegum hópi verði hleypt
þangað inn,“ sagði Brian Philips
að lokum.
HEIMURINN
Cook tekiu irndir kröfirr Arafats
ISRAEL - Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands,
átti í gær fund með Jasser Arafat, forseta Palestínu-
manna. Að fundinum loknum tók Cook undir kröf-
ur Palestínumanna um að Israelsmenn hætti að byg-
gja á landnemabyggðum Gyðinga á Vesturbakkanum
og Gasasvæðinu. Öhjákvæmilegt sé að hætta þess-
um nýbyggingum ef friðarviðræðurnar eiga að geta
komist af stað að nýju, sagði Cook. Bretar gegna nú
formennsku í framkvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, og Arafat sagðist sannfærður um að full alvara
byggi á bak við afstöðu Cooks og Evrópusambands-
Jasser Arafat.
Johaimes Rau veröi forseti
ÞYSKALAND - Þýski Sósíaldemókrataflokkurinn hyggst, ef hann fer
með sigur af hólmi í næstu þingkosningum, leggja til að Johannes
Rau verði næsti forseti Þýskalands. Tveir helstu leiðtogar flokksins,
Oscar Lafontaine og Gerhard Schröder kanslaraefni komu sér saman
um þetta, og höfðu þá báðir rætt við Rau áður. Johannes Rau hefur
verið einn helsti leiðtogi flokksins um árabil, en sagði af sér embætti
forsætisráðherra í Nordrhein-Westfalen á mánudagskvöld.
Firndi frestaö vegna veiMnda Jeltsíns
RÚSSLAND - Boris Jeltsín, forseti Rússlands, hefur frestað mikil-
vægum fundi Ieiðtoga Samveldis sjálfstæðra ríkja, sem átti að fara
fram á fimmtudag. Þá frestaði hann einnig fundi með leiðtogum
Hvíta-Rússlands, Kasakstans og Kirgisíu, sem fyTÍrhugaður var í dag,
miðvikudag. Astæðan eru veikindi Jeltsíns, en hann dvelst nú á
heilsuhæli skammt fyrir utan Moskvu.
Fairn finmi milljónir á götu
HOLLAND - 67 ára maður í Amsterdam varð heldur betur undrandi
þegar hann fann 150.000 hollensk gyllini, eða rúmlega fimm milljón-
ir íslenskra króna, á götunni. Maðurinn hélt rakleiðis til lögreglunn-
ar með fundinn, en bíður nú spenntur eftir því hvort réttur eigandi
gefur sig fram. Ef það gerist ekki innan eins árs þá telst finnandi fés-
ins eigandi þess.
NORÐURLOND
Uffe lætur af formennsku
DANMÖRK - Uffe Ellemann-Jensen tilkynnti í gær að hann hyggð-
ist láta af embætti flokksleiðtoga Venstre. I þingkosningunum sem
fram fóru í Danmörku í sfðustu viku tókst borgaraflokkunum ekki að
ná nægilegum atkvæðastyrk til að mynda ríkisstjórn, en fullvíst er
talið að Ellemann-Jensen hefði orðið forsætisráðherra í þeirri stjórn.
Hann ætlar þó að gegna formennsku flokksins áfram þangað til 18.
apríl, en þá verður haldið aukaflokksþing Venstre.
Tveimur norskum stjómarerindrek-
um vísað frá Rússlandi
RÚSSLAND - Rússar ætla að reka tvo norska stjórnarerindreka úr
landi vegna þess að Norðmenn hafa rekið tvo rússneska stjórnarer-
indreka úr landi og sagt að ekki væri óskað eftir því að þrír aðrir
Rússar dveldust Iengur í Noregi. Rússarnir fimm hafa að sögn
norskra stjórnvalda stundað njósnir og reynt að fá Norðmenn til liðs
við sig.
Smásagnasamkeppni
Smásagnasamkeppni Dags og Menor stendur yfir.
Öllum heimil þátttaka. Vegleg bókaverðlaun.
Skilafrestur er til 15. april n k.
Handrit merkt “Smásagnasamkeppni“
skilist til Dags, Strandgötu 31, Akureyri
eða Þverholti 14, Reykjavik.
Vinsamlega sendið ekki frumrit.