Dagur - 09.04.1998, Page 13
FIMMTUDAGUR 9.APRÍL 1998 - 29
LÍFIÐ t LANDINU
Nætur-
póstur
Bréfsem erpóstlagtáÞórshöfn að morgni mánu-
dags erkomið í hendurviðtakanda á höfuðborg-
arsvæðinu á þriðjudagsmorgni. BréfAustfirð-
ings til Vestfirðings er sólarhríng lengur eftir
þjóðvegakerfinu.
Við upphaf ferðar á Akureyri. Bílstjóri póstbíisins úr Þingeyjarsýslum handlangar póstinn yfir Ipóstbíiinn til Reykjavíkur. myndir: gg.
Póstflutningar
landsmanna hafa
verið að taka
miklum breyting-
um á síðustu
misserum, póst-
pokarnir sem
áður biðu eftir
því að það gæfi
til flugs fara nú
ekki lengur um
Ioftin blá með flugvélum heldur
með flutningabílum sem ekki
taka annan flutning en póstinn.
Þessi breyting á póstþjónustu
hefur bætt hana til muna, en
jafnframt sett flugsamgöngur við
afskekktustu byggðir landsins í
hættu.
En hugsið ykkur bara, ef hún
Jóna setur bréf í póst á Þórshöfn
fyrir hádegi á mánudag er það
komið til hans Jóns í Kópavogi
fyrir hádegi á þriðjudag. Bréf frá
afskekktum stöðum sem áður
tók þijá til fjóra daga að koma á
leiðarenda, t.d. til höfuðborgar-
innar eða annars staðar er nú
komið í hendur viðtakanda dag-
inn eftir.
Blaðamaður tók sér nýlega
far með póstbílnum til að kynn-
ast þessari þjónustu af eigin
raun.
Klukkan 18.28
Benz-póstbíllinn rann hratt frá
pósthúsinu á Akureyri, Skaga-
Við síðasta áfangann, pósthúsið á Akra-
nesi. Sigurður bílstjóri, sporléttur sem
fyrr, á „fullri ferð" út um pósthúsdyrnar.
Klukkan farin að ganga tvö.
fjörður er framundan en nokkur
snjór þegar komið er í
Bakkaselsbrekku. Til Sauðár-
króks er komið 19.50, þar eng-
inn á ferli enda fréttir að byija í
sjónvarpinu. Það er töluvert af
pósti til Reykjavíkur, Sauðkræk-
ingar greinilega ekki pennalatir
menn þennan fimmtudag frem-
ur en Siglfirðingar, en póstur
þaðan kom fyrr um daginn og
fer þangað í fyrramálið. Það tek-
ur 20 mínútur að aka í Varma-
hlíð en Sigurður segir á leið um
Skagafjörðinn að hann telji það
rangt að merkja póstbílana sér-
staldega, engir bíði þeirra eins
og áætlunarbílanna. Oþarfi sé
að auglýsa fyrir þá sem kannski
vilji komast í póstinn með ólög-
legum hætti. Póstrán hafa átt
sér stað á Islandi og verðmæti
póstsins auðvitað eitthvað þó
ekki sé um peningasendingar.
Komið til Blönduóss klukkan
21.04.
Klukkaii 21.16
Við höldum af stað út í víðáttur
Húnavatnssýslu, myrkur og
skafrenningur grúfir sig yfir. A
Hvammstanga var hægt að kom-
ast á salerni, eina salernið á
pósthúsi sem hægt var að kom-
ast á alla nóttina, annars staðar
verður að pissa úti í ískuldan-
um. Komið í Staðarskála 22.30
og ákveðið að nærast lítils háttar
enda enn hálftími til stefnumóts
á Brú í Hrútafirði við póstbíllinn
frá Isafirði. Með ljóshraða eru
útbúnir hamborgarar með öllu
„a la Staðarskáli'1 en úr svip
stúlkunnar mátti lesa, „hvað er
þetta, hefur fjölgað í áhöfn póst-
bílsins?“, en einskis er spurt.
Þarna er sérstakt þjóðfélag, bíl-
stjórar af öllum stærðum, gerð-
um og aldri, þeir segja sögur af
færð, þeim varningi sem þeir
eru að flytja, og bílum. Þessi
sérstaka en ómissandi þjóðfé-
lagsstétt borðar fljótaskrifta-
hraðsteikur og drekkur kaffi
með kökubita í eftirmat, allt á
miklum hraða.
Klukkaii 23.03
Fyrsta stefnumótið við annan
póstbíl á þessu næturgölti er við
póstbílinn á ísafirði fyrir framan
pósthúsið á Brú. Póstinum frá
Vestfirðingum til Reykjavíkinga,
eða kannski bara suður f Borgar-
nes, er snarlega komið fyrir í
réttri grind, ekkert fum. Annars
tafðist bílinn frá ísafirði vegna
þess að djúpbáturinn Fagranes
kom við í Æðey á leið að bryggj-
unni á Melgerðareyri þar sem
áhöfnin skrapp í Iand til þess að
bjarga belju sem hafði fallið nið-
ur f haughús. Já, það eru mörg
aukaverkin sem falla til í dreif-
býlinu. Á bakaleiðinni ætlaði
bílstjóri Ísafjarðarpóstbílsins að
koma við hjá Rögnu á Laugar-
bóli í ísafjarðardjúpi með nokkr-
ar básamottur.
Við vorum einir með draug-
um á Holtavörðuheiðinni en efst
í Norðurárdal mættum við póst-
bílnum úr Reykjavík á leið til
Akureyrar með viðkomu á sömu
pósthúsum. Það er Iiðinn hálf-
tími af nýjum degi þegar komið
er í Borgarnes. Það var tekið að
hvessa sem við (eða réttara sagt
póstbíllinn) varð áþreifanlega
var við undir Hafnarljalli og
sums staðar í Hvalfirði þegar
stefnan var tekin á Akranes.
Þangað var komið klukkan
01.05.
Eg hef sjaldan horft á knatt-
spyrnuleik á Akranesi við önnur
veðurskilyrði en þau að \indar
blási eða regn steypist úr lofti.
Þessa nótt var nístingskaldur
strengur á Akranesi. Við Gróðr-
arstöðina Mógilsá á Kjalarnesi
mætum við sjálfum Mogganum
á leið norður. Stoppað er, skipst
á upplýsingum um ferð og þegið
lesmál í staðinn, nýkomið úr
prentun.
Klukkan 02.25
Á Suðurlandsbrautinni skammt
frá pósthúsinu hefur lögreglan
stöðvað ökuþór sem hefur kitlað
pinnan heldur ógætilega og fær
væntanlega að „launum" ein-
hverja punkta. Sigurður bakkar
póstbílnum af fagmennsku til
losunar á pósthúsinu við Ármúl-
ann (Suðurlandsbrautarmegin),
grindurnar renna inn, syfjaðir
starfsmenn taka við þeim, tæma
þær og byrja að flokka, undrandi
á því að þessi handtök séu
myndefni. Pósturinn sem þarf
að fara austur um íjall, jafnvel
alia leið til Austljarða, er þá til-
búinn í bítið, einnig sá póstur
sem fer til viðtakenda á höfuð-
borgarsvæðinu. Bíllinn frá Egils-
stöðum kemur skömmu síðar, og
póstur t.d. frá Eskifirði til Húsa-
víkur Ieggur af stað kvöldið eftir.
Klukkan u.þ.b. 03.30
Blaðamaður kemst á áfangastað,
syfjaður, þar sem uppbúið rúm
bíður hans. Sigurði póstbílstjóra
finnst þessi næturakstur
skemmtilegur og þægilegur
vinnutími og segist fljótur að
snúa sólarhringnum við og sofa
á daginn. Bílstjórar póstbílanna
tala töluvert saman í síma með-
an þeir renna með póstinn um
þjóðvegakerfið að næturlagi. Þó
var minna um símaspjall þessa
nótt þar sem blaðamaður hélt
einum þeirra uppi á snakki og
þáði kók. Það er fámennur hóp-
ur manna sem vinnur að því að
koma ómissandi sendibréfum
ásamt gluggaumslögum og fleiru
milli pósthúsa um allt land með-
an þorri landslýðs svífur um á
Ijósrauðum skýjum drauma-
landsins.
Veðrið varansi napurt þegar komið var á Hvammstanga. Pósthúsið þar skartaði þeim
augljósu yfirburðum að bjóða upp á salerni. Hér vippar Sigurður Gunnsteinsson bílstjóri
sér inn í hlýjuna í bílnum og stefnan tekin á Hrútafjörð.
ÉuerfaÉun
00
ui
í ár veitir Norðurlandaráð umhverfisverölaun sín í fjórða
skipti. Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum og
veröa veitt einkafyrirtæki eða opinberri stofnun, hópi
eöa einstaklingi sem sýnt hefur eftirtektarvert ffumkvæði
á sviöi náttúru- og umhverfisverndar. Aö þessu sinni
verða verðlaunin veitt fyrir afgerandi framtak sem
miölar þekkingu á ástandi umhverfisins eða viðhorfúm
til þess. Ekki er einungis miöað við prent- eöa
myndmiðla og er öllum heimil þátttaka.
Tilgangur verðlaunanna er aö þeina augum manna
aö náttúru- og umhverfismálum á Norðurlöndunum.
Viðfangsefnið er að þessu sinni:
Miðlun þekkingar eða viðhorfa um ástand
og verðmæti náttúru og umhverfis ásamt
þeirri ógnun sem þar steðjar að.
Öllum er heimilt að koma með tillögur um verð-
launahafa. Tillögum skal fylgja rökstudd verkefnislýsing
ásamt upplýsingum um hver vinnur eða hefur unnið
verkið. Verkefnið verður aö standast kröfur um sér-
fræöiþekkingu og hafa gildi fyrir breiða hópa á a.m.k.
einu Norðurlandanna. Verkefnislýsingin má ekki vera
lengri en tvær A4 blaðsfður.
Verðlaunahafinn verður valinn af dómnefnd sem í sitja fulltrúar
allra Noröurlandanna ásamt fulltrúum sjálfstjórnarsvæöanna
Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Tillagan verður að hafa borist eigi síðar en föstudaginn 29.
maí 1998 til:
Nordisk Rád
Den Danske Delegation
Christiansborg, 1240 Kpbenhavn K
Sími 0045 33 37 59 58, fax 0045 33 37 59 64