Dagur - 23.04.1998, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 23.APSÍL 1998 - 3
FRÉTTIR
Tíimdi hluti aldraðra
telst til hátekjiunaima
Greiðslur úr Hfeyrissjóðum skipta sköpum um fjárráð aimennra ellilifeyrisþega. Á stöplarit-
inu sést að þau 10% aldraðra sem lægstar tekjur hafa fá nær eingöngu greiðslur frá Trygg-
ingastofnun. Þau 10% tekjuhæstu eru með venrlegar fjármagnstekjur og greiðslur frá IIf-
eyrissjóðum
Tíimdi hluti ellilíf-
eyrisþega er með 2-4
siimum hærri tekjur
en allir hinir, en inn-
an við 3% eru á
„strípuðnm“ bótum
Tryggingastofnunar.
Tíundi hluti íslenskra ellilífeyris-
þega sker sig algerlega úr þeirra
hópi með fjórðunginn af heildar-
tekjum allra ellilífeyrisþega í
landinu. Meðaltekjur þessa hóps
voru yfir 2,5 milljónir 1996 - um
tvöfalt hærri en næst launahæsti
tíundi hlutinn og rúmlega fjór-
um sinnum hærri en sá tíundi
hlutinn sem lægstar tekjur hafði.
Þessi hátekjuhópur var jafnaðar-
lega með rfflega 100 þús. kr. at-
vinnutekjur á mánuði og yfir 40
þús. kr. í fjármagnstekjur, auk
hærri tekna úr lífeyrissjóði en
nokkur annar hópur, ríflega 60
þúsund kr. Meðaltekjur hinna
90% voru frá 600 til 1.350 þús-
und. Upphæð greiðslna úr lífeyr-
issjóðum skipti þar sköpum. Á
„strípuðum" almannatrygginga-
bótum voru einungis 2,7% ellilíf-
eyrisþega. Um 87% ellilífeyris-
þega áttu fasteign 1996, fleiri en
1991.
Ein bestu lífeyrisréttindi í
OECD
Upplýsingar þessar koma fram í
nýrri skýrslu um stöðu eldri
borgara hérlendis og í öðrum
löndum OECD sem forsætisráð-
herra hefur lagt fram á Alþingi.
Hlutfall lífeyris (almannatrygg-
inga og Iögbundinna lífeyris-
sjóða) af meðallaunum verka-
fólks er hér á landi með því
hæsta sem þekkist, eða 93% en
59% að meðaltali innan OECD.
I Danmörku, enskumælandi
löndum, Þýskalandi og Japan er
þetta hlutfall t.d. milli 50 og
60%. Hér er um að ræða mat á
því hvaða lífeyri maður með full
réttindi í lífeyriskerfum land-
anna á í vændum eftir að hafa
unnið alla tíð á meðallaunum.
Engir vinnuglaðari
Hærri útgjöld vegna elli- og ör-
orkulífeyrisþega á Norðurlönd-
um skýrast af því að þar eru líf-
eyrisþegar miklu hærra hlutfall.
Atvinnuþátttaka fólks yfir 55 ára
aldri er h'ka miklu meiri hér en
annars staðar. Víða eru aðeins
fáir í vinnu eftir 65 ára aldur.
Sextíu og sjö ára eftirlaunaaldur
finnst aðeins á Islandi, Dan-
mörku og Noregi. I helmingi
OECD-landanna er hann 65 ár,
en í mörgum þeirra er verið að
hækka hann.
Hvergi fleiri á stofnunum
Islendingar lifa líka flestum
þjóðum lengur, rúmlega 78 ár að
meðaltali á árunum 1990-95.
Aðeins í Sviss og Austurríki varð
fólk eldra, en talið er að Kanada
og Svíþjóð fari líka fram úr okk-
ur. Um 10% ellilífeyrisþega eru
skráð til langdvalar á stofnun,
sem er langt um hærra hlutfall
en gerist (5-6%) meðal ná-
grannaþjóða í Evrópu, annarra
en Hollendinga.
Hlutfall landsmanna 65 ára og
eldri er aðeins rúm 11% hér á
Iandi og finnst hvergi lægra
nema á Irlandi. Meðaltal
OECD-landanna er 14% ogyfir
17% Svía eru eldri en þetta. Arið
2030 er reiknað með að nær
20% Islendinga verði 65 ára og
eldri, en þjóðin verði þó samt ein
sú allra yngsta í samtökunum.
Afleiðingin er miklu meiri út-
gjöld á sviði lífeyris*' og heilbrigð-
ismála og 10-20% minni þjóðar-
tekjur um miðja næstu öld,
þ.e.a.s. ef ekki kemur til stórauk-
in framleiðni. - HEI
Fjárhagsvandi Fórðungssjúkrahússins á
Akureyri var ræddur utan dagskrár á Al-
þingi i gær.
Vandi FSA
leystur
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð-
isráðherra, segir að fjárhags-
vandi Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri verði leystur með við-
bótarijárveitingu.
Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður hóf umræðu utan-
dagskrár á Alþingi í gær um
þann mikla Ijárhagsvanda sem
Fjórðungssjúkrahúsið glímir \áð
og þá neyðaráætlun sem tekin
hefur verið upp þess vegna.
Steingrímur benti á að sá 300
milljóna króna pottur sem fjár-
veitinganefnd Alþingis hefði
samþykkt fyrir jól til aðstoðar
sjúkrahúsunum úti á landi stæði
enn óhreyfður. Hann spurði
heilbrigðisráðherra hvernig ætl-
unin væri að leysa vanda FSA.
Ingibjörg sagði að vissulega væri
fjárhagsvandi fyrir hendi hjá
sjúkrahúsunum en FSA fengi
viðbótaríjárframlag til að mæta
rekstrarvanda síðasta árs og til
rekstursins á þessu ári.
-S.DÓR
Þrír höfunclar fengu
bamahókaverölaunin
Þorgerður Jörundsdóttir, Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn fengu barnabókaverðlaun
Fæðsluráðs Reykjavíkur í ár. mynd: hilmar
Systkinin Sigrún og Þórarinn
Eldjárn fengu barnabókaverð-
laun fræðsluráðs Reykjavíkur
sem afhent voru í gær. Verðlaun-
in fengu þau fyrir bókina Hala-
stjarna sem Þórarinn samdi en
Sigrún myndskreytti. 42 bækur
bárust dómnefndinni og 40 þýð-
ingar á barnabókum. Þorgerður
S. Jörundsdóttir hlaut þýðingar-
verðlaun fræðsluráðs fyrir þýð-
ingu á bókinni Ævintýri nálfanna
Flóttanum, eftir Terry
Pratchett.
Hagskiuna best
Félag bókasafnsfræðinga til-
kynnti í gær um val á fræðslubók
ársins 1997 og er það „Hag-
skinna. Sögulegar hagtölur um
ísland", sem Hagstofan gaf út í
fyrra. Guðmundur Jónasson og
Magnús S. Magnússon ritstýrðu
henni. I hópi fræðibóka fyrir
börn þótti engin frumsamin ís-
lensk bók standast þær kröfur
sem til slíkra bóka verði að gera
og því var engin tilnefnd þetta
árið. Reyndar hefur bókasafns-
fræðingum aðeins einu sinni tek-
ist að velja fræðibók ársins fyrir
börn, en það var bókin „Blómin
okkar,“ eftir Stefán Aðalsteins-
son sem kom út 1992.
Vamarliðsmaður dæmdur fyrir
nauðguu
Héraðsdómur dæmdi bandarískan hermann í gær í sex mánaða fang-
elsi fyrir að nauðga íslenskri konu. Þar af eru þrír mánuðir skilorðs-
bundnir. Atburðurinn átti sér stað um miðjan desember í fyrra. Kon-
an og maðurinn fóru saman í samkvæmi þar sem hún sofnaði áfeng-
issvefni og var hann dæmdur fyrir að misnota sér ástand hennar.
Landlæknir að hætta
Olafur Olafsson landlæknir lætur af embætti á
þessu ári fyrir aldurssakir en hann verður sjötugur í
nóvember. Eftir því sem næst verður komist verður
staða hans auglýst laus til umsóknar um helgina.
Olafur Olafsson hefur verið landlæknir í 26 ár eða
frá 1972.
Fengu milljónatugi fyrir
ekhi neitt
Skagstrendingur hf. á Skagaströnd, sem fékk 75 milljónir króna
vegna úreldingar á frystihúsi, hefur brotið samkomulag um að nota
húsið ekki undir undir fiskvinnslu eftir úreldinguna, samkvæmt Við-
skiptablaðinu. Húsið hafði ekki verið í notkun sem eiginlegt frystihús
um árabil en Þróunarsjóður sjávarútvegsins úrelti það engu að síður.
Spá 2% laimaskriði
Um 2% Iaunaskrið í stað 1,5% og
hækkanir á markaðsverði hús-
næðis umfram almennt verðlag
er meðal þess sem Seðlabankinn
gengur út frá í verðbólguspá
sinni í apríl, sem er heldur lægri
en í janúar. Á móti því er áætlað
að landsmenn hafi hraðari hend-
ur og auki framleiðni um 3% á
árinu og að innflutningsverð
verði óbreytt í erlendri mynt á
þessu ári. Nú er spáð 2,1% verð-
bólgu frá upphafi til loka þessa
árs, en 2,3% verðbólgu milli
meðaltals áranna 1997 og 1998.
Vísitala neysluverðs hækkaði
helmingi minna (0,4%) milli síð-
asta ársfjórðungs 1987 og fyrsta
íjórðungs þessa árs en Seðla-
bankinn spáði í janúar. Þykir
bankamönnum það athyglivert
að innlendar vörur, aðrar en bú-
vörur og grænmeti, hafa næstum
ekkert hækkað síðan í desember.
Hækkun vísitölunnar stafi fyrst
og fremst af hækkun íbúðaverðs
og húsaleigu. -HEI
Fá lairn
í átta
mánuði
Fyrrverandi
bankastjórar
Landsbankans
fá full laun í 8
mánuði, þótt
þeir hafi sjálfir
sagt af sér. Stöð 2 greindi frá þessu í gær. Samkvæmt fréttinni var í
samningum við bankastjórana þrjá, sem gerðir voru eftir að bankan-
um var breytt í hlutafélag, kveðið á um 8 mánaða uppsagnarfrest.