Dagur - 23.04.1998, Síða 6

Dagur - 23.04.1998, Síða 6
6 FIMMTUUDAGVR 23.APRÍL 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjaid m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Simbréf auglýsingadeildar: Símar auglýsingadeildar: Netfang auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.680 KR. Á MÁNUÐi 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir omar@dagur.is 460 617HAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Kraftur í bókaútgáfit I fyrsta lagi Bókin lifir enn góðu lífi þrátt fyrir mikla sókn tölvunnar, Nets- ins og sjónvarpsmiðlanna hin síðari ár. Þeim fer kannski fækk- andi sem ná að lenda í svo innilegu sambandi við hið ritaða orð að þeim vitrist „yfirþyrmandi eðli og inntak" bókanna, svo vitnað sé í ummæli Ijóðskáldsins Þorsteins frá Hamri í tilefni dags bókarinnar. Það breytir ekki því að meðal verulegs hluta þjóðarinnar skiptir bókin enn svo miklu máli að hún er nánast daglegur vinur. 1 öðru lagi Nýtt tölulegt yfirlit um íslenska bókaútgáfu síðustu þijátíu árin staðfestir sterka stöðu bókarinnar meðal Islendinga. Þar kemur fram að þrátt fyrir nokkrar sveiflur milli ára er sífellt verið að gefa út fleiri bækur með hveiju árinu sem líður. A þessu langa tímabili voru gefnar út um þrjátíu og fimm þús- und bækur, eða nokkuð á tólfta hundraðið á ári að meðaltali. Tala síðustu ára hefur verið mun hærri en þetta meðaltal. Til dæmis voru meira en sextán hundruð rit gefin út árið 1995. Þetta segir okkur að bókin er enn gífurlega vinsæll miðill á Is- landi. t þriðja lagi Um þriðjungur þeirra bóka sem gefnar hafa verið út síðustu þrjá áratugina, eða ríflega tíu þúsund bækur, eru bókmenntir af ýmsu tagi. Þótt mikið sé þar um þýdd verk virðast íslenskir rithöfundar hafa haldið sínum hlut ágætlega. Þannig birtast árlega 50-60 ný íslensk skáldrit og hátt í hundrað frumsamd- ar ljóðabækur. Það er fyrst og fremst í verkum af því tagi sem lesendur finna „ögrandi nánd“ við manninn sjálfan - „kröm hans og kvöl, gleði og gaman, hugsjónir, hamingjuleit og trú,“ svo enn sé vitnað í Þorstein frá Hamri. Það skiptir sköpum fyr- ir framtíð íslenskrar menningar að áfram verði kraftur í útgáfu slíkra bókmennta innlendra höfunda. Elías Snæland Jónsson. 90 nianiia iiiisskilniiigur Frumvarpið umdeilda, um stjórnsýslu á miðhálendinu, er sagt eiga að fara í gegnum þingið í vor, en í staðinn verði hugsanlega gerðar einhverjar beytingar á skipulagslögum til að koma til móts við uppreisn- arseggina í Framsóknarflokkn- um undir forustu Siyjar Frið- leifsdóttur. Hins vegar er Ijóst að það eru margir sem hafa áhyggjur af málinu og vilja ekki að það sé keyrt í gegn nú á þessu þingi. Stjórnsýslumálið minni því á gagnagrunnsfrum- varpið sem heilbrigðisstéttir hafa Iagst gegn að verði sam- þykkt á þessu þingi þar sem það þurfi frekari umræðu við. I gagnagrunnsmálinu bafa ríkisstjórnarflokk- arnir aðeins hikað sem er í rauninni stórmerki- legt vegna þess að Davíð Oddsson vill augljóslega helst af öllu rusla mál- inu í gegn. Kári slyngux Það er eðlilegt, því Davíð var heiðursgestur við undirskrift- ina undir stóra lyfjasamninginn í Perlunni í vetur og ef ekkert verður úr samþykkt frumvarps- ins nú gæti samningurinn verið í voða. Þetta sýnir hve snjall og framsýnn skipuleggjandi Kári Stefánsson var þegar hann gerði sjálfan Davfð hluta af þessu mikla samningsmáli. En engu að síður eru vöflur á mönnum og Garri kann aðeins eitt ráð handa Davíð í þessari stöðu. Ætli Davíð að kveða nið- ur efasemdirnar og hikið í eitt skipti fyrir öll, verður hann að taka sér Valgerði Sverrisdóttur til fyrirmyndar, því Valgerður hefur nú sýnt og sannað í há- lendismálinu, að hún kann tök- in á þessu. vL í Degi í gær svarar Valgerður Sverrisdóttir þingflokksformað- ur framsóknar 90 þjóðkunnum íslendingum, fólki úr öllum flokkum og þjóðfélagshópum sem er þó umfram allt valin- kunrT gáfumenni og annálað drengskaparfólk. Gervinýru Þessi hópur undirritaði áskor- un til Alþingis og ríkisstjórnar um að lögfesta ekki frumvarp- ið um stjórnsýslu á hálendinu núna. Þingflokksformaðurinn segir réttilega að góð samstaða sé milli stjórnarflokkanna um að afgreiða málið. Síðan segir hún um 90 menningana, að þar misskilnings. „Menn átta sig ekki á að þessi lög- gjöf tekur ekki á öllu er varðar hálendið," segir Valgerður. Það er í þessu snilldarsvari sem lærdómurinn fyrir Davíð Iiggur: andstaðan við málið er bara misskiln- ingur. Hér er á ferðinni risavaxinn 90 manna misskilningur - „risagervinýru" eins og Megas söng um árið. Þó Davíð sé ekki hógvær maður er hann kannski eitthvað banginn við að segja að heilbrigðisstétt- irnar á íslandi skilji bara ekki gagnagrunnsmálið og þetta sé allt helber misskilningur hjá þeim. En ef Valgerður kemst upp með að segja að 90 þjóð- kunn gáfumenni skilji ekki há- lendismálið, þá getur Davíð nú ekki verið minni maður. Miðað við 9.000 heilbrigðisstarfs- menn, hefur hann nú mögu- leika á að slá fram „risavöxnum 9.000 manna misskilningi". Það yrðu þá „risagervinýru með vasa!“ - og Davíð yrði áfram lang flottastur! GARRI. gæti Valgerður Sverrisdóttir. JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar í dag fögnum við á fyrsta degi sumars. Sumarið er sem sé kom- ið. Sú hefð hefur skapast að helga hin ýmsu ár háleitum bar- áttumálum og göfugum málefn- um. Þannig höfum við haft ár trésins, ár fatlaðra, ár þorsksins, ár hafsins, ár ársins og svo fram- vegis á leiðinni í aldanna skaut- ið. Hversvegna eyrnamerkjum við ekki hverja árstíð fyrir sig einhverjum góðum málum? Og liggur ekki beint við, með hlið- sjón af undangengnum atburð- um f stjórnsýslunni, bármála- heiminum og trúmálum, að helga sumarið sem nú fer í hönd almennri siðbót og siðvæðingu? Guðinn Gunnars Bankastjórar hafa nýverið gengið á undan með góðu fordæmi og lagt sinn skerf til siðvæðingar með því að segja af sér. Og er Gleðilegt siðbótarsimiar hugsanlega hápunktur á þeirra ferli og merkasta framlag þeirra til samfélagsins á langri starfs- ævi. Og heilagur Gunnar í Krossin- um hlakkar yfir Iágum meðal- aldri homma og vís- ar á syndina, synd- ugir uppskeri eins og þeir sái, logandi eyðnisverð hins góða og umburðarlynda guðs sem Gunnar trúir á, heggur homma og annan og alla þá sem ekki gana á Gunnars og guðs vegum. Er ósk- andi að Gunnar og fjölskylda hans fái ekki eyðnismit í gegnum blóðgjöf eða aðrar ásættanlegar Ieiðir, því hverju myndi goðið þá hafa reiðst? Prestar og portkonur Og nú er komið að öðrum þjóð- félagsþegnum. Við þurfum að taka upp siðbótargunnfána Gunnars og bankastjóranna og hefja hann hátt til lofts. Látum siðvæðinguna hrísl- ast um æðar þjóðár- líkamans þannig að hrollur fari um spill- ingarveirur í öllum skúmaskotum blá- æðanna. Sendum sýslu- menn og aðra opin- bera starfsmenn sem mæta of seint í vinnuna að mati stimpilldukku út á öll hin ömurlegustu krummaskuð landsins þar sem kjaftur hæfir skel. Stingum um- svifalaust inn stjórnmálamönn- um sem bijóta lög á sýslumönn- um og öðrum opinberum starfs- mönnum sem mæta of seint í vinnuna. Hengjum hórkarla í prestastétt á Austurvelli. Spyrðum ofsatrú- armenn og portkonur saman í ævilangt hjónaband. Lækkum Iaun hyskinna sjómanna. Svipt- um samviskulausa gróðapunga í hópi útgerðarmanna illa fengn- um kvóta. Rekum kennara sem ekki ná Singapúr árangri í stærð- fræðikennslu. Rassskellum nem- endur sem ekki geta lagt saman tvo og tvo með viðunandi ár- angri. Látum orð standa og undir- skriftir gilda. Oxlum siðferðilega ábyrgð á því siðbótarsumri sem í hönd fer. Gleðilegt sumar. ro^ir Hvað erþér minnisstæð- astfrá liðnum vetri? Guðrún Pétursdóttir forstöðumaðursjávarútvegsstofnuiiar HÍ og í 9. sæti áframljoðslista Sjálf- stæðisflokitsins í Reykjavílt. „Af tíðindum utan úr heimi kemur sam- komulagið á Ir- landi fyrst upp í hugann, sem maður þorir varla að tala um því það er svo brothætt. Af innlendum vett- vangi blöskrar mér Landsbanka- málið og hvernig á því er haldið. Þar er margt óafgreitt sem ætti að koma upp á yfirborðið ef fjöl- miðlar væru fijálsir og vakandi fyrir ábyrgð sinni. Persónulega verður mér minnisstæðust mál- efnavinnan fyrir borgarstjórnar- kosningarnar - og sú gleðilega breyting sem fylgir því að heimil- ið á von á barnabömum, einu hér heima og hinu í Skotlandi." Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leQútona. „Mér er afar minnisstæð samvinnan með rússneska leik- stjóranum Al- exei Borodin, sem kom hingað til þess að setja upp Feður og syni í Bogarleikhúsinu, en þar fór ég með hlutverk Fenetsjku. Þessi vetur verður mér minnis- stæður fyrir það hve mikið ég hef verið að vinna og nú hlakka ég mest til þess að þurfa ekki að vinna svona mikið í næstu fram- tíð. Sakir þessarar miklu vinnu hef ég Iítið fylgst með því sem hefur verið að gerast í þjóðmál- unum og læt þau liggja hér milli hluta.“ Guðmuudur Guunarsson formaður Rajrðnaðarsambands ís- lands. „Þegar við rót- burstuðum rík- isstjórnina í líf- eyrissmálum þegar lög um þau efni fóru í gegnum þingið rétt fyrir jól. Síðan er það yf- irstandandi hreinsun í sukki nú- verandi valdhafa sem vonandi verður sem víðtækust. Stjórn- málamenn hafa skotið á okkur í verkalýðshreyfingunni varðandi óstjórn, samanber það sem þeir sögðu um lífeyrissjóðina í fyrra. En það hefur komið á daginn að þau mál voru í góðu lagi, meðan stjórnmálamenn sjálfir standa upp að öxlum í sukki." ÓlafurÞórðarson framltvæmdastjóri Þtísund þjala. „Bankastjóra- málið er næst okkur í tíma og fyrir þeirra hluta sakir er það mér minnisstætt. Síðan rís það hátt að hafa átt þátt í því að koma vini mínum Helga Péturs- syni í 7. sæti Reykjavíkurlistans og þar með hugsanlega inn í borgarstjórn.'1

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.