Dagur - 23.04.1998, Síða 9
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 - 9
tefna í brennidepli
Hverju spáirþú um
niðurstöður kosning-
anna á Húsavík?
myndir fái að blómstra og fram-
tak einstaklinga fái að njóta sín.
Við munum vinna áfram í anda
síðustu íjárhagsáætlunar meiri-
hlutans þar sem uppbygging og
framsýni er einkennandi um leið
og lögð er áhersla á ráðdeild og
heilbrigt stjórnarfar,“ segir Dag-
björt.
Sundlaug
Aðspurð um ágreining framboð-
anna minnir Dagbjört á að minni-
hlutinn í bæjarstjórn greiddi at-
kvæði á móti fjárhagsáætluninni
fyrir árið 1998. „Þar var gert ráð
fyrir 23 milljóna framlagi til
sundlaugarbyggingar, tæplega 20
milljónir eru áætlaðar í byggingu
Borgarhólsskóla og til gatnagerð-
arframkvæmda er áætlað að verja
43 milljónum króna. Ennfremur
er lagt til í fjárhagsáætluninni að
verja 23 milljónum til að leita að
heitu vatni á Hveravöllum til að
tryggja framtíðarnýtingu orku-
auðlinda okkar. Um þessi mál
verður kosið 23. maí n.k.,“ segir
Dagbjört Þorvarðardóttir.
Kosið uin atvinuustefnu
Kristján Asgeirsson, 65 ára bæj-
arfulltrúi er oddviti Húsavíkur-
lista. Hann segir að kosið verði
um atvinnustefnu. „Það verður
kosið um það hvort menn vilja
búa við þá atvinnustefnu sem hér
hefur verið rekin undanfarna 15
mánuði af Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki sem skapað
hefur upplausn og óöryggi, eða
hvort menn vilja búa við öryggi í
atvinnumálum sem Húsavíkur-
lisitnn vill tryggja og vinna að.
Allt mannlíf á Húsavík byggir á
traustu atvinnulífi og góðum
horfum á því sviði í nánustu
framtíð. Ovissan sem fylgt hefur
atvinnustefnu síðustu mánaða
hefur farið illa með fólk,“ segir
Kristján.
Atvinnustefnan
„Agreiningsefnin felast í atvinnu-
stefnunni,“ segir Kristján að-
spurður um hvar helsti ágrein-
ingurinn milli framboðanna liggi.
„Vilja menn virkilega búa við og
þurfa að þola óvissuna sem
stefna D- og B-lista hefur skap-
að? Eða kjósa menn frekar öryggi
og framtíð sem felur í sér mikla
möguleika?“ spyr Kristján.
„Húsvíkingar skilja ekki hvers
vegna fólkið má ekki eiga það
sem það hefur byggt upp, fær
ekki að njóta þess öryggis sem
það hefur skapað sér með eigin
vinnu, njóta eldanna sem það
hefur sjálft kveikt og hlúð að,“
segir Kristján Ágeirsson.
Gunnar Valdimarsson:
Eg álít að Húsavíkurlistinn
fái 6, Framsókn 2 og Sjálf-
stæðismenn 1.
Albert Amarson:
Húsavíkurlistinn nær hrein-
um meirihluta, fær 5 menn
kjörna, hinir fá 2 hvor.
Einar Jónasson:
Húsavíkurlistinn vinnur
mann af Framsókn, þetta
verður 5-2-2.
Víðir Pétursson:
Þetta verður óbreytt ffá síð-
ustu kosningum. Húsavíkur-
listinn fær þá 4 sem A- og G-
Iisti höfðu, Framsókn og Sjálf-
stæðið halda sínum sætum.
Einu stormasamasta kjörtímabili á Húsavík er að Ijúka. Miklar breytingar hafa orðið á listum frá síðustu kosningum.
Hvað segja oddvitamir?
Dagur ræddi við efstu menn á
framboðslistunum þremur á
Húsavík og lagði fyrir þá spurn-
ingar um helstu baráttumál og
áhersluatriði listanna fyrir kosn-
ingar.
Áðalsteinn Skarphéðinsson, 54
ára húsasmíðameistari, B-lista
segir að atvinnumálin muni skipa
öndvegi. „Við munum fylgja eftir
þeirri áætlun sem liggur fyrir um
borun eftir heitu vatni á Hvera-
völlum og lagningu á nýrri að-
veituæð til bæjarins. Við viljum
nýtingu á þeirri orku sem felst í
yfirhita á vatninu til atvinnuupp-
byggingar.
Við viljum efla þau fyrirtæki
sem fyrir eru á Húsavík og laða til
okkar ný fyrirtæki sem nýta yfir-
hita vatnsins. Jafnframt er inni í
okkar mynd hugsanleg nýting yf-
irhitans til raforkuframleiðslu.
Við munum fylgja eftir þeim
framkvæmdum sem nú eru í
gangi við höfnina og berjast fyrir
þeim áætlunum sem nú eru uppi
um ytri höfnina," segir hann.
GrasvöUur
Aðalsteinn telur hins vegar að
helstu ágreiningsmál núverandi
bæjarstjórnar hafði verið samein-
ing Höfða, Ishafs og Fiskiðju-
samlags. „Þeirri sameiningu er
lokið," segir hann.
„Bæjarfulltrúar Húsavíkurlist-
ans greiddu atkvæði gegn fjár-
hagsáætlun 1998. Þeir vildu
Iækka fjárveitingu til borunar á
Hveravöllum úr 22 milljónum í 3
milljónir og vildu fella niður 70
milljóna lántöku til dýpkunar
hafnarinnar og þar með strika út
þær framkvæmdir. Þarna greinir
okkur á við Húsavíkurlistann.
Ennfremur höfum við ákveðið að
framkvæmdir við grasvöll verði á
næsta ári. Þar gæti orðið ágrein-
ingur um tímasetningu.
Þá fannst mér frambjóðendur
Sjálfstæðisflokks ekki vera mál-
efnalegir i fréttabréfi sínu á dög-
unum. Eg vona að þeir verði mál-
efnalegri í kosningabaráttunni,"
segir Aðal-
steinn Skarp-
héðinsson.
Orku- og
veitiunál
Oddviti D-
listans er
Dagbjört Þyri
Þorxarðar-
dóttir, 40 ára
hjúkrunarfor-
stjóri. Hún
segir helsta
baráttumál
sitt vera að
gera Húsavík að enn betri bæ.
„Við munum leggja áherslu á at-
vinnumálin og þá sérstaklega ein-
beita okkur að orku- og veitumál-
unum. Við teljum að þar leynist
mörg tækifæri til uppbyggingar í
atvinnumálum með því að leiða
atvinnustefnuna á nýjar brautir
og nýta þau tækifæri sem þessi
auðlind okkar, heita vatnið, gef-
ur,“ segir Dagbjört.
Hún segir að sjálfstæðismenn
muni einnig leggja mikla áherslu
á hafnarmálin en dýpkun og
stækkun hafnarinnar hafi þar
forgang. Sameining sveitarfélaga
í Þingeyjarsýslunum er baráttu-
mál, enda sé það forsenda fý'rir
vexti og framgangi sýslnanna, og
þar með Húsavíkur, að menn
standi sameinaðir.
„Fræðslumálin eru ofarlega á
blaði hjá okkur í baráttunni fyrir
bættum þæ.
Við munum
leggja áher-
slu á innra
starf skólans,
aukningu á
kennslu-
stundaijölda
allra aldurs-
hópa og taka
upp svokallað
ferðakerfi í
fjórum náms-
greinum á
unglingastigi.
Styðja þarf
við Framhaldsskólann á HúsaHk.
Við munum vinna að því að
heimavist Framhaldsskólans verð
stækkuð og endurbætt.
Sjálfstæðisfólk á Húsavík gerir
kröfur til þess að ferskar hug-
Úrsllt 1994
atkv. fulltr.
Alþýðuflokkur 209 1
Framsóknarflokkur 494 3
Sjálfstæðisttokkur 340 2
Alþýðubandalag 420 3
Meirihluti Framsóknarflokks (B)
og Alþýðubandalags (G) sprakk
og Framsókn myndaði nýjan með
Sjálfstæðisflokki (D).
ossvogsstoðin ehf
Pföntusalan í Fossvogi
Vid opnum 2. maí
Nú er tækifæri að leita tilboða
-gerum tilboð í öll ræktunarverkefni, stór og smá!!!
Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
. .asíða okkar sparar þér tíma og vinnu.
Par finnur þú:
• ítarlegan plöntulista
• Fréttir og nýjungar
• Upplýsingar um tilboð
• og margt fleira.
Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítalann), s 564 1777
Leiðbeiningar-ráðgjöf-þjónusta fyrir þig