Dagur - 23.04.1998, Side 12
12-FIMMTUDAaVR 2~3 . A PRÍ L 1^98'
ÍÞRÓTTIR
L A
Landssímadeildm
Efsta deitd knattspyrnunnar mun verða styrkt af Landssímanum næsta sumar og
mun heita Landssimadeiidin.
Guðni
hættir
meðKFÍ
Guðni Guðnason, þjálfari og
leikmaður KFI í körfuboltanum,
hefur ákveðið að hætta að þjálfa
og Ieika með liðinu. ísfirðingar
eru þegar farnir á stúfana að
leita að eftirmanni Guðna.
Guðni hefur náð mjög góðum
árangri með KFl. Liðið, sem lék
í íyrsta sinn í úrvalsdeildinni í
fyrra, komst í úrslitakeppnina í
ár og lék auk þess til úrslita um
Renault bikarinn við Grindvík-
inga. Islenskur körfubolti er fá-
tækari eftir að Guðni Guðnason
hefur lagt skóna á hilluna.
Eiríkur Önimdarson yfirgef-
ur ÍR
Samkvæmt heimildum Dags
ætlar Eiríkur Onundarson, leik-
stjórnandi ÍR-inga, sem féllu í
fyrstu deildina í vetur, ekki að
leika með liðinu næsta vetur.
Grindvíkingar hafa rætt við Ei-
rík um að hann leiki með bikar-
meisturunum næsta vetur en
hann mun ekki hafa áhuga fyrir
vist á þeim bænum.
Á blaðamannafundi í gær kynnti
Knattspyrnusamband Islands
nýjan samstarfsaðila til sögunn-
ar, Landssímann hf. Landssím-
inn er aðalstyrktaraðili efstu
deildarinnar og mun hún heita
Landssímadeildin í sumar. Fyrir-
tækið hefur einnig forkaupsrétt
að efstu deild keppnistímabilin
1999 og 2000. Landssíminn
greiðir 5 milljónir til liðanna í
deildinni sem skiptast á milli
þeirra þannig að efsta liðið fær
700 þúsund og Iiðin í neðstu
sætunum fá 450 þúsund. Guð-
mundur Björnsson metur verð-
mæti samningsins á um 7-8
milljónir.
Knattspyrnuhetjan Ásgeir Sig-
urvinsson verður talsmaður
Landssímadeildarinnar og auk
hans mun sérstakur starfsmaður
KSI vinna eingöngu að málefn-
um deildarinnar.
Sjónvarpsmálin
Það kom fram í Degi í gær að vafi
leikur á að fótboltinn verði sýnd-
ur á íslenskri sjónvarpsstöð í
sumar. I máli Guðmundar
Björnssonar kom fram að Lands-
Víðavangshlaup ÍR
Á nokkrum stöðum á landinu er
hefð fyrir því í hátíðahöldum
sumardagsins fyrsta, að hlaupin
séu víðavangshlaup. Þekktast
þessara hlaupa er víðavangs-
hlaup IR, en það er nú hlaupið í
83. sinn. Hlaupið hefst kl. 13:00
við Ráðhús Reykjavíkur og
hlaupin er 5 km leið umhverfis
tjörnina, sem er óbreytt frá síð-
símamenn gerðu ráð fyrir sjón-
varpssýningum á leikjum úr
Landssímadeildinni þegar þeir
sömdu við KSI. Eggert Magnús-
son sagði, aðspurður á fundin-
um, að það væri öruggt mál að
Landssímadeildin birtist á sjón-
varpsskjám Iandsmanna í sumar
asta ári. Hlaupið er í öllum
flokkum karla og kvenna.
Víðavangshlaup Hafnarfjarö
ar
I Hafnarfirði er löng hefð fyrir
víðavangshlaupi á sumardaginn
fyrsta og hafa hlaupin þar verið
gífurlega vinsæl. Að sögn Sigurð-
ar Haraldssonar, formanns fijáls-
íþróttadeildar FH, sem sér um
og annað hafi aldrei hvarflað að
sér. „Mér finnst ótrúlegt að Stöð
2 og Sýn geti borgað sanngjarnt
verð fyrir útlendan bolta en vilji
ekki borga sanngjarnt verð fyrir
íslenska boltann. Islensk knatt-
spyrna er gott sjónvarpsefni,"
sagði Eggert Magnússon. - GÞÖ
framkvæmd mótsins, tóku um
750 manns þátt í mótinu í fyrra
og von er á annarri eins þátttöku
í ár. „Hlaupið hjá okkur hefur
verið mjög vinsælt hjá ungu kyn-
slóðinni, en þeir eldri og reynd-
ari hlaupa frekar í IR-hlaupinu,“
sagði Sigurður.
Hlaupið hefst á Víðistaðatúni
kl. 13:00 og er hlaupið í öllum
aldursflokkum karla og kvenna.
Víðavangshlaup í dag
Karlakórinn Hreimur
heldur stórtónleika í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 26. apríl kl. 20.30.
Fjölbreytt söngskrá.
Einsöngur, tvísöngur og þrísöngur.
Stjórnandi
Robert Faulkner,
undirleikari Juliet Faulkner.
Hreimur
AKUREYRARBÆR
Viötalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 27. apríl 1998 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Jakob Björnsson og Sigurður J. Sigurðsson til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því
sem aðstæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Risaboð Man. Utd. í Del Piero
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Manchester United hefði
boðið Juventus 18 milljónir sterlingspunda fyrir sóknarmanninn
Allessandro Del Piero. Þó fréttin af tilboði enska Iiðsins kunni að
vera rétt, er óvíst hvort Tórinóliðið samþykkir tilboðið, því í síðustu
viku verðmat félagið Del Piero á 25 milljónir punda. Þá er heldur
ekki útilokað að Del Piero, sem á átján mánuði eftir af samningi sín-
um við Juventus, framlengi samning sinn við félagið.
Tollkvótar vegna innflutnings á blómum
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu verðlagningu og
sölu á búvörum sbr. breytingu með lögum nr. 87/1995 og með vísan til
reglugerðar dags. 21. apríl 1998, er hér með auglýst eftir umsóknum
um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning:
Vara Tollnúmer: 0602.9093 Tímabil Vörumagn kg. Verðtollur % Magntollur kr./kg.
Aðrar pottaplöntur til og með 1 m á hæð 0603.1009 01.05-30.09.98 2.200 30 0
Annars (afskorin blóm) 01.05-30.09.98 3.300 30 0
Skriflegar umsóknir skulu sendar bréfleiðis eða með símbréfi til land-
búnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, og skulu hafa
borist fyrir kl. 15.00 þriðjudaginn 28. apríl 1998.
Landbúnaðarráðuneytinu, 22. aprfl 1998.
Bragi heim í
Haukahreiðrið
Haukamaðurinn Bragi Magnús-
son, sem leikið hefur firnavel
með Skallagrími undanfarin
keppnistímabil, hefur í hyggju
að snúa heim á leið fyrir næsta
keppnistímabil. Bragi hefur
stundað nám á Bifröst undan-
farna vetur og Iýkur því í vor.
Það er ekki vafi á að Bragi
mun styrkja Haukaliðið veru-
lega fari svo að hann gangi til
liðs við þá á ný. Hann hefur ver-
ið sterkasti leikmaður Skall-
anna þau ár sem hann hefur
leikið með þeim.
Þjálfar Jón Amar
Haukana?
Eftir því sem Dagur kemst næst
mun Einar Einarsson ekki
þjálfa Haukana aftur á næsta
ári. Engar viðræður hafa átt sér
stað milli Einars og Haukanna
enn sem komið er og það telja
menn merki um áhugaleysi beg-
gja aðila. Jón Arnar Ingvarsson,
sem Iék i Belgíu seinni hluta
vetrar, hefur verið nefndur til
sögunnar sem næsti þjálfari
Hafnaríjarðarliðsins. Jón Arnar
hefur verið einn besti
körfuknattleiksmaður Iandsins
um langt skeið og því happ-
drættisvinningur fyrir Haukana
snúi hann á heimaslóð aftur.
Hermann Hauks-
son á lausu
Fyrrum fyrirliði silfurliðs KR,
Hermann Hauksson, er kominn
heim eftir að hafa leikið körfu-
bolta í Belgíu undanfarna mán-
uði. Er Dagur hitti Hermann á
dögunum sagði hann allt óráðið
um framtíðina eins og málin
stæðu í dag. „Eg er bara á milli
liða þessa dagana," sagði Her-
mann. Að öllum Iíkindum mun
Hermann þó leika erlendis á
næsta vetri enda stóð hann sig
mjög vel með liði sínu í Belgíu
eftir að hann gekk til liðs við
það.
ERLENT
Chelsea vHl fá
Casiraghi
Forráðamenn Chelsea hafa
mikinn áhuga á að krækja í Pi-
erluigi Casiraghi, sóknarmann
Lazio. Talið er að Lundúnaliðið
sé tilbúið til að reiða fram þrjár
og hálfa milljón punda fyrir
leikmanninn sem er 29 ára
gamall. Hann mun væntanlega
taka stöðu Mark Hughes sem
líklega fer frá Chelsea í sumar.
Síuiakerfið þoldi
ekki álagið
Aðstandendur Heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu sem
háð verður í Frakklandi í sumar,
urðu fyrir fyrsta skipulagsáfall-
inu þegar opnað var fyrir sölu á
miðum í keppnina. Knatt-
spyrnuáhugamenn um víða ver-
öld tóku vel við sér og talið er að
um tíu milljónir símhringinga
hafi borist í morgunsárið. Það
var meira en símakerfið þoldi og
símasambandslaust var við
söluaðilana fram eftir morgni.