Dagur - 25.04.1998, Qupperneq 1
Er að hlaupast
undan ábyrgð
FiinniT Ingólfsson
viðskiptarádherra og
Halldór Ásgrímsson
utanríMsráðherra
gagnrýna háðir harð-
lega úrsögn Jóhanns
Ásælssonar nr banka-
ráði Landshanka og
segja hann hlaupa frá
áhyrgð.
Ég hef áður lýst því yfir að ég hef
haft fulla trú og traust á banka-
ráðinu. Hins vegar geri ég mér
grein fyrir að það er erfitt fyrir
bankaráðsmennina að taka á
þessu viðkvæma og erfiða máli
sem kemur upp í bankanum. I
það þarf sterk bein og Jóhann
kýs að axla ekki þá ábyrgð sem
því er samfara," sagði Finnur
Ingólfsson viðskiptaráðherra í
samtali við Dag í gær þegar af-
sögn Jóhanns Arsælssonar úr
bankaráði Landsbankans var
borin undir hann.
Engar hótanir
Finnur þvertekur fyrir að hann
hafi hótað bankaráðsmönnum
að reka þá ef þeir féllust ekki á
að ráða Halldór Kristjánsson
sem bankastjóra, en það kemur
m.a. fram í viðtali við Jóhann hér
í blaðinu í dag. „Það voru engar
hótanir af minni hálfu,“ segir
Finnur Ingólfsson. Hins vegar
undirstrikar hann að hann hafi
Iagt ríka áherslu á það á fundi
með bankaráðinu að Halldór
yrði ráðinn. „Ég lagði raunar
mjög þunga áherslu á að banka-
ráðið stæði einhuga að slfkri
ráðningu vegna þess hve bank-
inn væri í erfiðri stöðu, sem það
og gerði. Það var auðvitað
bankaráðið sem tók ákvörðun
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra.
um ráðninguna en ekki ég,“
sagði Finnur í gær. Hann sagði
að allt tal um hótanir í þessu
sambandi væri einfaldlega mikil
oftúlkun á því sem hann sagði.
Varðandi þau ummæli Jó-
hanns Asælssonar að hann hafi
ætíð verið á móti því að ráðnir
yrðu 3 bankastjórar sagðist Finn-
ur hafa í september í fyrra rætt
við alla bankaráðsmennina þá-
verandi áður en hann valdi nýtt
bankaráð. Þá hafi hann kynnt
mönnum það sjónarmið sitt að
hann teldi eðlilegt upp á samfell-
una í bankarekstrinum við form-
breytinguna að áfram yrðu þrír
bankastjórar. Jóhann hafi ekki
hreyft neinum mótmælum þá og
hann hafi sest í bankaráðið og
greitt því atkvæði að bankastjór-
arnir yrðu ráðnir áfram. „Hann
mun síðan hafa flutt um það til-
lögu í bankaráðinu síðar að að-
eins yrði einn bankastjóri starf-
andi við bankann. Og í því ljósi
er það sérkennilegt að nú þegar
einn bankastjóri er við bankann -
þó það hafi ekki verið að hans
ósk sérstaklega - þá segir hann
allt í einu af sér. Hættir þegar
hans vonir og óskir hafa verið
uppfýlltar," segir Finnur.
- bg/s.dór
Sjá einnig bls. 5
Ingóog
Esrafynr
dóm
Ákæra lögreglustjóraembættisins
í Reykjavík gegn Esra Péturssyni
lækni og Ingólfi Margeirssyni rit-
höfundi var tekin til aðalmeð-
ferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær, en þeir eru báðir ákærðir
fyrir brot á lögum um friðhelgi
einkalífsins og Esra fyrir brot á
læknalögum. Myndin sýnir
Ingólf og Esra mæta í dómsal
201 og stóð málflutningurinn
lengi yfir. Meðal þeirra sem
teknir voru í skýrslutöku hjá
dómurunum var Jóhanna Jónas-
dóttir læknir, eiginkona Ingólfs,
sem aðspurð fagnaði ályktun frá
stjórn Rithöfundasambands Is-
lands. „Það er stuðningur í þess-
ari ályktun, sérstaklega í þeirri
ábendingu að hið opinbera eigi
ekki að standa í svona málum.
Þetta á auðvitað að vera einka-
mál. Mér finnst Rithöfundasam-
bandið taka öllu betur á málinu
en Læknafélagið, sem vísaði
Esra úr félaginu," segir Jóhanna.
Frá Sundlaug Akureyrar.
Meðvitund-
arlaus í
sundlaug
Sex ára drengur fannst meovit-
undarlaus í sundlaug Akureyrar
á þriðja tímanum í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu
er ekki vitað um tildrög slyssins
og er málið í rannsókn.
Drengurinn var fluttur á gjör-
gæsludeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri og að sögn
læknis er honum haldið sofandi
og óljóst um afleiðingar slyssins.
tJA tapar á
sjómanna-
verMalli
Sjómannaverkfallið hafði veru-
leg og neikvæð áhrif á rekstur
Utgerðarfélags Akureyringa.
Veltutap er um 100 milljónir
króna í landvinnslunni og um
40 milljónir króna hjá frystitog-
urunum eða samtals 140 millj-
ónir króna.
I frétt frá fyrirtækinu kemur
fram að mikið óhagræði varð í
landvinnslunni vegna þeirra
tveggja vinnslustöðvana sem
urðu vegna verkfallsins sem
kom til viðbótar því framlegðar-
tapi sem varð vegna minni veltu.
KA leikiir
um 5. sæti
KA sigraði sænska liðið Drott,
29-27, í norrænu meistara-
keppninni í handbolta í Gauta-
borg í gær. KA menn munu því
Ieika um 5. sætið í keppninni,
en ekki var ljóst þegar blaðið fór
í prentun hverjir andstæðingar
þeirra verða. KA tapaði fyrir
norska liðinu Runar, 34-29, í
fyrsta leik sínum í keppninni á
fimmtudag.
g*
HringrásardæSur
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUUrrr^SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024
I