Dagur - 25.04.1998, Blaðsíða 11

Dagur - 25.04.1998, Blaðsíða 11
LAUGARDAGVR 25. APRÍL 1998 - 11 l^ur ERLENDAR FRÉTTIR Síðustu ílagar Pols Pot Ógnvalduriim fyrrver- andi var einmana, hræddur og heilsu- veill síðustu dagana sem hann lifði. Pol Pot, harðstjórinn sem afrek- aði það helst í lífinu að myrða milljónir landa sinna, þjáðist af niðurgangi og átti erfitt um bæði andardrátt og gang vegna hjart- veiki sfðustu daga lífs síns. Hann fylgdist óttasleginn með því þeg- ar hermenn ríkisstjórnarinnar komu sífellt nær fylgsni hans í frumskóginum, heyrði í skot- vopnum þeirra og þurfti nokkrum sinnum að leita skjóls í gryfju rétt hjá tijákofanum sem hann og kona hans höfðust við í. 15. apríl síðastliðinn heyrði hann í útvarpinu að fyrrverandi félagar hans f Rauðu kmerunum ættu í samningaviðræðum um að / framselja hann til alþjóðlegs dómstóls þar sem fjallað yrði um ákærur á hendur honum vegna þjóðarmorðs. Rúmlega tveimur Idukkustundum síðar var hann látinn. Eiginkona hans og félagar segja dánarorsökina sennilega hafa verið hjartaáfall. „Við héldum að áfallið eftir að hafa heyrt þessar fréttir hafi orð- ið honum að bana,“ sagði Khem Nuon, yfirmaður herráðs Rauðu kmeranna, í viðtali við Nate Thayer, blaðamann frá Kambó- díu. Thayer átti einnig löng við- töl við eiginkonu Pols Pot, Muon, og sömuleiðis við hinn nýja leiðtoga Rauðu kmeranna, harðlínumanninn Ta Mok. Thayer var fyrsti fréttamaður- inn sem fékk að fara yfir Ianda- mærin fyrir rúmri viku síðan til þess að virða fyrir sér líkið af Pol Pot, og sagðist hafa skoðað líkið nákvæmlega og ekki fundið nein ummerki um að hann hafi dáið af mannavöldum. Rauðu kmerarnir leggja greini- lega mikla áherslu á að sannfæra umheiminn um að þeir hafi ekki ráðið hann af dögum, en lík Pols Pots var fljótlega brennt þannig að ekki var hægt að kryfja það til að komast að dánarorsökinni. Litaði hár sitt svart Frásagnir Thayers benda til þess að Pol Pot hafi verið mjög hræddur við að hermenn kam- bódísku stjórnarinnar hefðu hendur í hári sér. Hann leit á ráðamenn í Kambódiu sem strengjabrúður Víetnams, sem frá fornu fari hefur verið erki- óvinur Kambódíu. Ta Mok, hinn einfætti leiðtogi Rauðu kmeranna sem gengur undir nafninu „Slátrarinn", sagði við Thayer að Pol Pot hafi óttast dauðann mjög. „Hann tók lyfin sín alltaf. Hann vildi lifa. Hann vildi ekki deyja, en hann hafði tapað öllu og var gamall maður.“ 10. apríl síðastliðinn, fimm dögum áður en hann lést, mun hann hafa litað grátt hár sitt svart í því skyni að blekkja fyrr- verandi liðsmenn Rauðu kmer- anna sem höfðu gengið í lið með stjórnarhernum. -The Washington Post VísbencLing Lestu blaðid og taktuþátt íleiknum! 550 oooo þú grciðir ekkert umfram venjulegt símtal Qíjrr Viðtalstímar bæjarfulltrúa Viðtalstímar Bæjarfulltrúa Mánudaginn 27. apríl 1998 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Jakob Björnsson og Sigurður J. Sigurðsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símavið- tölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 462 1000. HEIMURINN Kirijenkó orðinn forsætisráðherra RUSSLAND - Boris Jeltsín, forseti Rússlands, skipaði í gær Sergei Kirijenkó i embætti forsætisráðherra. Ljóst er að nokkuð margir kommúnistar á rússneska þinginu hafa greitt Sergei Kirijenkó at- kvæði sitt í embættið, en tillaga Jeltsíns forseta þess efnis var sam- þykkt með góðum meirihluta þingmanna i þriðju atkvæðagreiðslu í gær. Atkvæðagreiðslan var leynileg, og hefur það væntanlega komið Kirijenkó í hag. Belgíska stjómin gagnrýnd BELGIA - Bæði dómsmálaráðherra og innanríkisráðherra belgísku stjórnarinnar sögðu af sér á fimmtudag eftir flótta barnaníðingsins Marc Dutroux úr fangelsi. Ríkisstjórnin hefur verið harðlega gagn- rýnd og stjórnarandstaðan krafist þess að hún segi af sér í heild. For- sætisráðherrann hafnar því þó, en lofar því að umbótum í réttarkerf- inu verði hraðað. Kæruíeysi lögreglunnar hefur verið kennt um að Dutroux tókst að flýja, en hann náðist aftur skömmu síðar. Aftökur vegna þjóðarmorðs fordæmdar RUANDA - Opinberar aftökur fóru fram í Rúanda í gær, og voru teknir af lífi 22 hútúar, bæði menn og konur, sem hlotið höfðu lífláts- dóm vegna fjöldamorða. Evrópusambandið fordæmdi aftökurnar harðlega, en bæði Evrópusambandið, Bandaríkin og Páfagarður höfðu áður farið fram á að aftökurnar yrðu ekki framkvæmdar. HÍH Slippstöðin hf Iðnnemar Slippstöðin hf. á Akureyri óskar að ráða iðnnema í stálsmíði, vélvirkjun og rennismíði frá og með 1. júní 1998. Upplýsingar veitir Ólafur Sverrisson í síma 460 7600 milli kl. 8.00 og 16.00. Umsóknum ásamt námsferilsblaði frá verknámsskóla skal senda til Slippstöðvarinnar hf., Hjalteyrargötu 20, 600 Akureyri. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 8. maí 1998. Slippstöðin hf. Auglýsing frá yfirkjörstjórn Reykjavíkur um framboðslista Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 23. maí 1998 rennur út laugardaginn 2. maí nk., kl. 12.00 á hádegi. Kosið er sameiginlega til borgar- stjórnar í Reykjavík og Kjalarneshreppi, sbr. lög nr. 17/1998 um sameiningu Kjalarneshrepps og Reykja- víkur í eitt sveitarfélag. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 10.00 til 12.00 í fundarsal borgarráðs í Ráðhúsi Reykja- víkur, Tjarnargötu 11. Á framboðslista skulu vera að lágmarki 15 nöfn fram- bjóðenda og eigi fleiri en 30. Framboðslistum fylgi yfir- lýsing þeirra, sem á listunum eru, að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listana. Hverjum lista skal fylgja skrifleg yfirlýsing 160 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 320. Þá skal fylgja tilkynning um hverjir séu umboðs- menn lista. Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á þvi hverjir í kjöri eru. Greina skal fullt nafn og kennitölu með- mælanda. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur Eiríkur Tómasson Guðríður Þorsteinsdóttir Jón Steinar Gunnlaugsson AKUREYRARBÆR Búsetu- og öldrunardeild Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun við Heilsugæslustöðina á Akureyri. Um er að ræða 50-80 % starf, sem felur í sér vitjanir í heimahús í umdæmi heilsugæslustöðvarinnar. Áhersla er lögð á mikla lipurð í mannlegum samskiptum. Laun skv. kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ak- ureyrarbæjar. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til sumarafleysinga. Skemmtileg og lifandi störf. Möguleikar á dagvinnu og/eða kvöld- vinnu. Laun skv. kjarasamningi Fél. Islenskra hjúkrunarfræðinga og Akureyrarbæjar eða Sjúkraliðafélags (slands/STAK við Launanefnd sveitarfélaga. Upplýsingar um störfin veitir deildarstjóri Rut Petersen í síma 460- 4600 og upplýsingar um kaup og kjör veitir starfsmannadeild í síma 462-1000. Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Akureyrarbæjar, Geisla- götu 9, á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 15. maí 1998.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.