Dagur - 25.04.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 25.04.1998, Blaðsíða 4
74 - ÍAÚbÁÁb'AGUR 25.' :Á,PRÍÉ lbbb <r FRÉTTIR Stjórn listamannalauna Til umsækjenda um starfslaun listamanna árið 1998. Hér með eru þeir umsækjendur um starfs- laun listamanna sem ekki hafa sótt fylgi- gögn með umsóknum, svo sem handrit, bækur eða myndir, minntir á að sækja þarf fylgigögnin fyrir 1. maí nk. í menntmála- ráðuneytið. Hafi gögnin ekki verið sótt fyr- ir þann tíma verða þau send umsækjanda á hans kostnað. Reykjavík, 22. apríl 1998. Stjórn listamannalauna. Kennarar Lausar eru til umsóknar kennarastöður við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Kennslugreinar: Raungreinar, heimilisfræði, smíðar og byrjendakennsla eða almenn kennsla á miðstigi. Hrafnagilsskóli er 12 km innan Akureyrar. Þar eru 170 nemendur í 1.-10. bekk. Nánari upplýsingar gefur Anna Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 463 1137 vs. og 463 1127 hs. Umsóknarfrestur er til 18. maí 1998. Útför bróður okkar SIGMARS JÓNSSONAR sem lést 16. apríl fer fram frá Höfðakapellu á Akureyri, mánudaginn 27. apríl kl. 13.30. Stefán Þór Jónsson, Arnheiður Jónsdóttir, Jón EyþórJónsson, Þorgerður Jónsdóttir, Þóra Hildur Jónsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar HELGI HINRIK SCHIÖTH sem lóst 18. þessa mánaðar, verður kvadd- ur í Akureyrarkirkju 28. apríl kl. 13.30. Sigríður Schiöth, Reynir H. Schiöth, Margrét A. Schiöth, Valgerður G. Schiöth og fjölskyldur. Frá útifundi í nóvember þar sem gjaldskrárbreytingunum var mótmæit. Nú hefur komið í Ijós að hækkunin byggði ekki á raun- verulegum talnalegum forsendum. Póstur og sími byggði alnilli Rýr skýrsla Ríkisend- urskoðunar segir m.a. að yfirmenn Pósts og síma hafi ekki haft talnalegar forsendur til að ákvarða gjald- skrárhreytingamar í nóvember sl. I skýrslu Ríkisendurskoðunar um Póst og síma hf. kemur m.a. fram að gjaldskrárbreytingarnar umdeildu í nóvember hafi verið ákveðnar án talnalegra for- sendna. Þá segir að samgöngu- ráðherra hafi með breytingunum um síðustu áramót ekkert stjórn- vald gagnvart Landssímanum hf., þótti hann geti haft úrslita- áhrif á hluthafafundum á meðan hann er handhafi eina hluta- bréfsins. Einnig kemur fram að skylda fyrirtækisins til að veita ráðuneyti og Alþingi upplýsingar hefur minnkað til rauna. Við breytingarnar á fyrirtæk- inu var yfirvinna yfirmanna færð inn í grunnlaun þeirra og þeir fengið bifreiðar til afnota. Ríkis- endurskoðun telur að á sama tíma og mikill tími yfirmanna hefur farið í undirbúning hluta- félagsvæðingarinnar og skipting- ar fyrirtækisins þá hafi „fljótt á Iitið“ skort á að stefna væri mót- uð í málefnum fyrirtækisins til nógu langs tíma af hálfu eigenda þess, þ.e. ríkissjóðs. Þá er fjallað um gjaldskrár- 'oreytingarnar tvær í nóvember sl., þar sem inngrip þurfti til að draga úr hækkun gjaídskrár fyrir símanotkun. Niðurstaða Ríkis- endurskoðunar um gjaldskrár- breytingarnar er að stjórnendur Pósts og síma hafi engar talna- legar forsendur haft í höndunum til þessara gjaldskrárbreytinga og að við þær hefði „þurft að liggja fyrir mat á verðteygni eftirspurn- ar í einstökum þjónustuþáttum símans og áætlun um notkun á næstu misserum, s.s. með tilliti til þróunar í gagnaflutningum í gegnum notendalínur vegna Internetsins o.fl.“ - fþg Akademía í svefnherbergjum Vinnuaðstaða margra fræðimanna er hetdur bágborin. Reykjavíkur Akademían sem stofnuð var í fyrra ætlar að reyna að bæta úr þvf og hefur m.a. falast eftir fjárhags- styrk frá Reykjavikurborg. ReykjavOmr Akademí- an er regnhlífarsam- tök sjálfstætt starf- aiidi fræðimanna sem enn sem komið er vantar húsnæði til að stunda sín fræði. „Hugsunin með þessu var fyrst og fremst að koma fólki undir þak. Það er margt fólk eins og ég sem er að skrifa öll mín fræði hérna í svefnherberginu heima hjá mér,“ segir Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur og varaformaður Reykjavíkur Aka- demíunnar. Engin vinnuaðstaða Þarna er um að ræða samtök sjálfstætt starfandi fræðimanna, en stofnfundur Akademíunnar var í fyrra. Frá þeim tíma hafa um 150 manns haft samband við forsvarsmenn Akademíunnar en mjög mikið er af frambærilegu og vel menntuðu fólki sem á hvergi höfði sínu að halla til að geta stundað sína fræði- mennsku. Þetta fólk hefur enga vinnuaðstöðu nema þá heima hjá sér. I þessum hópi eru flestir úr hug- og félagsvísindum en minna úr hópi raunvísinda. Talið er að fólkið mundi ná miklum ár- angri ef það væri saman undir sama þaki, enda er Akademían hugsuð sem regnhlífarsamtök. Fyrirmyndin er m.a. sótt til Bandaríkjanna í það sem nefnt hefur verið „Think Tank“, eða „hugsanageymu r. “ Borgin jákvæð Fyrir skömmu fóru tveir stjórn- armenn Akademíunnar á fund Atvinnu- og ferðamálanefndar Reykjavíkur til að falast eftir rúmlega einnar milljóna króna styrk. Vel var tekið í málaleitan Akademíunnar en niðurstaða liggur ekki formlega fyrir. Ætlun- in er að nota styrkinn til að geta ráðið starfsmann í hálft starf í einhvern tíma. Verksvið hans væri m.a. að finna húsnæði fyrir Akademíuna og vinna að öðrum skipulagsmálum. Hugmyndin er að fá stórt húsnæði þar sem fólk mundi kannski fá 15 fermetra skrifstofupláss. -GRH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.