Dagur - 25.04.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 25.04.1998, Blaðsíða 5
 LAVGARDAGU S 2Sv APRÍL 1998 - *S FRÉTTIR Hótaði að reka Jóhann Ársælsson boðaði til blaðamannafundar I gær eftir að hafa sagt sig úr bankaráði Landsbankans. Jóhann Ársælsson sagði sig úr bankaráði Landsbankans í gær. Hann sakar viðskipta- ráðherra um vald- níðslu og segir hann hafa hótað að reka sig. „Með afsögn minni vil ég mót- mæla því valdi sem viðskiptaráð- herra hefur verið falið yfir Landsbankanum og hvernig hann beitir því. Eg vona að al- þingismenn skoði vandlega sína ábyrgð á sameiginlegum eigum okkar í hlutafélögum sem þeir hafa gert ráðherrum ldeift að nota sem skiptimynt í flokkspóli- tískum kaupskap sín í milli,“ seg- ir m.a. í greinargerð Jóhanns Ar- sælssonar, sem í gær sagði af sér sem bankaráðsmaður í Lands- bankanum. Jóhann sagði á blaðamanna- fundi í gær, að Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra hefði hótað sér brottrekstri á fundi með bankaráði Landsbankans ef hann færi ekki að vilja hans og samþykkti ráðningu Halldórs Kristjánssonar. Tilbúiim í breytingar „Ráðherra hótaði að reka mig úr bankaráðinu vegna þess að ég hafði verið með ýmsar yfirlýsing- ar og athugasemdir við það hvernig staðið hefði verið að því að ráða bankastjóra. Hann sagði það óheppilegt að menn væru með slíkar yfirlýsingar á gatna- mótum. Hann gat þess líka að hann væri tilbúinn að gera breyt- ingar á bankaráðinu til að trygg- ja samstöðu, þannig að ég vissi svo sem að hverjum hótuninni var beint. Eg sagði honum að ég væri enginn húskarl ráðherrans og færi frekar úr bankaráðinu en að taka mark á svona skilaboð- um. Þá snéri ráðherra við blað- inu og sagði þetta ekki hafa ver- ið hótun," sagði Jóhann Haldiö leyndu íyrir okkur Jóhann sagði að enda þótt end- urskoðendur reikninga bankans hefðu oft gert athugasemdir við laxveiðar og lúxus bankastjór- anna hefðu þær aldrei komið inn á borð bankaráðs. Allar aðrar at- hugasemdir hefðu hins vegar komist í gegn. Hann segist hafa vitað af því að bankinn notaði hluta af risnu sinni til að kaupa laxveiðileyfi. I umræðum um málið í bankaráðinu hafi banka- stjórarnir haldið því fram að far- ið væri í þessar ferðir með mikil- væga viðskiptavini, oftast útlend- inga, og allar hefðu þær við- skiptalegan tilgang. „Eg tel mig því hafa verið mlg blekktan, þegar það liggur nú fyrir, að mati Ríkisendurskoðun- ar að ýmsar af þessum ferðum voru einungis til skemmtunar fyrir bankastjóra og vini þeirra," segir Jóhann. Vandlega athugað mál Jóhann sagði að fólk segi sem svo að bankaráðið hafi brugðist skyldu sinni með því að stöðva ekki sukkið. En þegar því sé sagt að bankaráðið hafi verið leynt upplýsingum segi það að banka- ráðsmenn séu aular. M.a. þess vegna hafi hann ákveðið að segja af sér. „Þessi ákvörðun mín um af- sögn úr bankaráðinu er tekin að vandlega athuguðu máli. Eg tel að við þær aðstæður sem nú hafa skapast sé heppilegra fyrir Landsbankann að annar taki við starfi mínu í bankanum,“ sagði Jóhann. Hann vildi ekkert um það segja hvort aðrir bankaráðsmenn ættu að fylgja fordæmi hans. Hann svaraði því til aðspurður um laxveiðar að hann hefði ákaf- lega gaman af þeim „Eg hef hins vegar aldrei farið í laxveiðar á kostnað annarra. Eg hef alltaf greitt mín veiðileyfi sjálfur," sagði Jóhann Ársælsson. -S.DÓR Anna Margrét Guðmundsdóttir. Situr áfram í bankaráðinu Anna Margrét Guðmundsdóttir, sem sæti á í bankaráði Lands- bankans, sendi frá sér tilkynn- ingu í gær um að hún ætli að sitja áfram í bankaráði Lands- bankans. Undanfarna daga hafa verið uppi sögusagnir um að hún ætlaði að segja af sér eins og Jó- hann Ársælsson. Anna Margrét segir í tilkynn- ingu sinni að hún hafi vissulega hugleitt að segja af sér en komist að þeirri niðurstöðu að sitja áfram. Hún segist ekki kannast við að hafa orðið neitt á í störf- um sínum í bankaráðinu. Hins vegar hafi þeim atriðum sem urðu til þess að bankastjórarnir þrír sögðu af sér verið haldið leyndum fyrir bankaráðinu. „Við þessar aðstæður lít ég svo á að ég myndi hlaupast undan ábyrgð með því að segja af mér,“ segir Anna Margrét Guðmunds- dóttir í yfirlýsingu sinni. -S.DÓR Minnisvarði reistux að Hnjóti Ríkisstjórnin ákvað í gær að setja 2,5 milljónir í að reisa minnisvarða að Hnjóti í Örygshöfn til minningar um afrek íslenskra björgunar- manna. Ágreiningur hefur verið uppi milli Egils Ólafssonar safnvarð- ar að Hnjóti og bæjaryfirvalda í Vesturbyggð um staðsetningu minn- isvarðans, en bæjaryfirvöld vildu hafa varðann á Patreksfirði og ákváðu að reisa hann þar. Verður eftir sem áður reistur minnisvarði á Patreksfirði en Bjarni Jónsson listmálari hefur gert uppdrátt að minn- isvarðanum sem verður að Hnjóti og mun hann einnig smíða hann. Skíðaskól/nn í Kerlingarfjöllum verður óstarfhæfur i sumar vegna snjóleysis. Böðvar skilaði greinargerð Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, hefur skilað Ragnari H. Hall greinargerð með skýringum frá embættinu vegna rannsóknar- innar á afdrifum Ijögurra kílóa af fíkniefnum úr geymslum fíkniefna- lögreglunnar. Áður hafði hann skilað bráðabirgðaskýrslu og Iýst því yfir á Rás 2 að magn óútskýrðra efna væri að minnka verulega. Ragnar Hall, settur rfkislögreglustjóri í málinu, segir í samtali við Dag að hann stefni að því að klára rannsókn málsins í næstu viku. Þá hefur dómsmálaráðuneytið enn til skoðunar afdrif 2.700 sektarmála hjá embættinu. - Fþg NevðarkaU úr Kerlmgarfí öHum Hvammsmörk - nýtt útivistarsvæði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri gróðursetti í gærdag fyrstu trjáplöntuna í landi Veitustofnana Reykjavákur í Hvammsvík f Hvalfirði. Þar með var tekið formlega í notkun nýtt skógræktarsvæði fyrir íbúa Reykjavíkur og heitir það Hvammsmörk. Á Heiðmörk er rými til skógræktar til þurrðar gengið, en á hinu nýja skógræktarsvæði verða landnema- spildur sem hægt verður að fá úthlutað. Svæðið sem hér um ræðir er 100 hektarar að stærð. Að upp- græðsluverkefninu við Hvalljörð standa Veitustofn- anir og Skógræktarfélag Reykjavíkur. Hitaveitan legg- ur 3 milljónir króna í sumar í gerð skjólbelta, stíga- gerð og merkingar á landnemaspildum. Á staðnum eru vinsælt veiðivatn og golfvöllur. - JBP Ákvörðiui frestað Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að fresta ákvörðunartöku um að helja hrefnuveiðar í sumar. Bæði er að Þorsteinn Pálssonar sjávar- útvegsráðherra var ekki á ríkisstjórnarfundinum vegna anna erlendis og svo hitt að ríkisstjórnin er beitt ofurþrýstingi hagsmunaaðila að leyfa ekki hrefnuveiðar í sumar. Það eru íslensku fisksölufyrirtækin í Bandaríkjunum sem leggjast hvað harðast gegn hrefnuveiðunum sem og þeir sem standa fyrir hvalaskoðunarferðum hér við (and. I | - s.dór Hlýindiii valda því að forráðameim skíða- svæðisins í Kerlingar- fjöUum neyðast til að aflýsa öUum nám- skeiðum í sumar. Jök- iillinn aldrei verið minni. Engar líkur eru á að Skíðaskól- inn í Kerlingarfjöllum verði starf- ræktur í sumar vegna snjóleysis. Á ferðaskrifstofu fengust þær upplýsingar að búið væri að af- lýsa öllum námskeiðum og er þungt hljóð í rekstraraðilum. Leitað er nýrra leiða til að virkja svæðið fyrir útivist í sumar. Erfiður fjárhagur Einar Þorsteinsson, formaður hlutafélagsins Fannborgar sem sér um reksturinn í Kerlingar- fjöllum, segir að ástandið sé hörmulegt. „Þetta er hið versta mál í alla staði. Við urðum illa úti í fyrra þegar við urðum snjólaus- ir um verslunarmannahelgi og það hafði mjög alvarleg áhrif á reksturinn. Núna er svo Iítill snjór að við treystum okkur ekki til að selja í námskeið, enda gæti það þýtt að við myndum svíkja viðskiptavininn. Fjárhagsstaðan er mjög erfið, en við verðum að krossa fingur og vonast til að fólk muni koma í sumar og njóta fjallamennskunnar þótt skíðin verði ekki í aðalhlutverki.“ JökuHinn aldrei ininni Eftir sem áður verður boðið upp á aðstöðuna í skálanum í sumar og á stjórn Fannborgar nú í þreif- ingum við Skíðasambandið og fleiri áhugasama aðila til að fólk geti komið i KerlingaríjöII. Einar hefur fylgst með svæðinu svo áratugum skiptir og hann minn- ist þessi ekki að jökullinn hafi verið minni en í fyrra og hlýindin í vetur valdi því að vafamál sé hvort snjórinn dugi út júlí. Þegar best lét fóru um 2000 manns í Kerlingarfjöll að sumarlagi og stóð þá vertíðin yfir frá Iokum júní og fram í september. NeyðarkaU „Aðsóknin hefur minnkað að undanförnu og við erum í lífróðri að viðhalda þessari há- lendisperlu. Það er ljóst að nýjar áherslur verða að koma til. Menn hafa meira og minna sinnt þess- um störfum í sjálfboðavinnu en \ið vonumst eftir liðsinni góðra manna," segir Einar. Valdimar Ornólfsson var frum- kvöðull í nýtingu skíðasvæðisins í Kerlingarfjöllum en breytingar urðu í rekstrinum fyrir tveimur árum. BÞ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.