Dagur - 25.04.1998, Side 8
8- LAUGARDAGUR 2S. APRÍL 1998
ro^ftr
FRÉTTASKÝRING
Ottast ánrif Sauðkraddnga
Töluverðrar speirnu er
farið að gæta í Skaga-
fírði vegna kosning-
anna í vor, ekki síst
vegna þess að kosin
verður bæjarstjóm í
nýju sveitarfélagi sem
varð til við samein-
ingu Sauðárkróks og
10 af 11 hreppum í
Skagafirði.
Sameining Sauðárkróks og hrepp-
anna tíu setur óneitanlega mark
sitt á kosningarnar í vor og gerir
það m.a. að verkum að erfitt er að
spá um úrslit. Fimm listar buðu
fram á Króknum 1994, A, B, D, G
og K-listi óháðra borgara, en
kosningar hafa yfirleitt verið
óhlutbundnar í hreppunum, þ.e.
aðeins hefur komið fram einn
listi.
Nokkurrar tortryggni gætir
sums staðar í sveitahreppunum
gagnvart Sauðkrækingum og ótt-
ast sumir að Sauðárkrókur verði
strax í upphafi of ráðandi í hinu
nýju sveitarfélagi. Þrír listar hafa
verið lagðir fram; Skagaijarðar-
listinn, sem samanstendur af fólki
úr Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki,
Kvennalista og óháðum, Fram-
sóknarlistinn og listi sjálfstæðis-
manna.
Ljóst er að kosningarnar munu
snúast um sameininguna, skóla-
mál og kannski ekki síst atvinnu-
mál en ekki er búist við miklum
átökum þar sem áherslur fram-
boðanna þriggja virðast svipaðar.
Úrslit 1994 á Sauðárkróki
Alþýðuflokkur (A) 173 atkv.,
1 fulltr.
Framsóknarfl. (B) 486 atkv.,
2 fulltr
Sjálfstæðisfl. (D) 430 atku,
2 fulltr.
Alþýðubandalag (G) 327atkv.,
1 fulltr.
Óháðir borgarar (K) 170 atkv.,
1 fulltr.
Meirihlutasamstarf er með Ai-
þýðuflokki (A), Sjálfstæðis-
flokki (D) og Óháðum borgur-
um (K).
í hreppunum var óhlutbund-
in kosning.
Fjármálin erfið
Fjárhagsstaða hins nýja sveitarfé-
lags er nokkuð erfið. Skuldir þess
eru um 800 milljónir króna, sem
gæti sett mark sitt á umræðuna
fram að kjördegi. Mörgum kemur
spánskt fyrir sjónir að yfirstjórn
grunnskólanna á Sauðárkróki
skuli vera sameinuð skömmu fyr-
ir kosningar og telja að það hefði
átt að vera verkefni nýrrar sveitar-
stjórnar. Málið er þó ekki nýtt og
hefði átt að vera afgreitt fyrir all-
löngu en tengist þó að nokkru
þeirri staðreynd að báðir skóla-
stjórarnir sitja í núverandi bæjar-
stjórn og sátu því beggja vegna
borðsins. Kostnaður vegna ný-
byggingar skóla á Króknum gæti
numið allt að 300 milljónum
króna, en annars staðar í Skaga-
firði eru skólabyggingamál í góðu
Iagi.
Vilja nýsköpunarsjóð
Skagafjarðarlistinn leggur áherslu
á að hin raunverulega sameining
gangi snurðulaust fýrir sig og vill
móta stjórnkerfi hins nýja sveitar-
félags þannig að allflestir geti ver-
ið sáttir. Ingibjörg Hafstað, odd-
viti Iistans, segist ekki vera fylgj-
andi því að allir íbúar njóti hita-
veitu í nánustu framtíð. Hag-
kvæmni lagnar á afskekktustu bæi
hindri það, en nýlega hafi verið
stofnað byggðasamlag um hita-
veitu Sauðárkróks og Seyluhrepps
sem nýtist fleirum eftir samein-
ingu. Ný hola við Varmahlíð veki
þó bjartsýni að mikill meirihluti
íbúa muni njóta hitaveitu í nán-
ustu framtíð. Komi til jöfnunar
hítunarkostnaðar mun það ekki
hækka gjaldskrá hjá þeim sem
þegar hafi hitaveitu.
„Auðvitað er sú hætta fyrir
hendi að þjónustan verði ekki sú
sama í jaðarbyggðunum en við
viljum vinna að því að við samein-
inguna verði staðið þannig að því
að sú þjónusta sem er fyrir alla
íbúana standi undir því en sumt
verður kannski að setja „á hjól,“
segja efstu menn á Skagafjarðar-
lista, Ingibjörg Hafstað og Snorri
Styrkársson. „Leikskólaþjónusta
verður ekki boðin alls staðar. Það
er nærtækara að styðja við bakið á
dagmæðrum til sveita svo að þær
geti veitt betri þjónustu en al-
mennt gerist hjá dagmæðrum í
þéttbýli. Þá verður ekki þörf á því
að aka um langan veg með börn-
in.
Það er ekki verkefni sveitarfé-
laga að reka atvinnufyrirtæki
heldur styðja við þróun atvinnu-
lífsins, og hingað eru m.a. að
koma Náttúrustofa og þróunar-
svið Byggðastofnunar og við mun-
um stuðla að því að fleiri atvinnu-
tækifæri skapist í kjölfarið. Skaga-
fjörður er að verða mikill skóla-
bær með tilvist Hólaskóla og Fjöl-
brautarskólans og því fylgja mörg
Fjárhagsstaða hins nýja sveitarfélags er nokkuð erfið. Skuldir þess eru um 800 miiijónir króna, sem gæti sett mark sitt á umræðuna fram að kjördegi.
störf og möguleikar. Hér styðja
hinar dreifðu byggðir við þéttbýlið
og öfugt og það er nauðsynlegt til
þess að atvinnulífið byggi ekki allt
á fiski og öll fjöreggin séu í sömu
körfunni.
Sveitarfélögin eiga umtalsverð-
ar eignir í atvinnulífinu í formi
hlutabréfa og við erum fýlgjandi
því að stofnaður verði nýsköpun-
arsjóður um þá eign með stuðn-
ingi skagfirskra fyrirtækja og
stofnana auk opinberra aðila.
Með tilstilli hans væri hægt að
fjárfesta í nýjum atvinnurekstri.
Við stefnum að því að ná fjórum
fulltrúum í sveitarstjórn Skaga-
fjarðar, en um hugsanlegt meiri-
hlutasamstarf hefur alls ekkert
verið rætt. En við erum opin fyrir
báðum möguleikunum."
Fastmótað skipulag
Efsta sæti á lista Framsóknar-
flokksins skipar Herdís A. Sæ-
mundardóttir, leiðbeinandi og
bæjarfulltrúi á Sauðárkróki. Hún
segir að helst þurfi að taka á í at-
vinnumálum. Skagfirðingar hafi
búið við mikið atvinnuleysi og
fólksflótta og þörf sé á fleiri öflug-
um fyrirtækjum. Einnig séu enn
margir lausir endar í sameining-
unni og mikið verði örugglega
rætt um hvernig sveitarfélagi
kjósendur vilji búa í. Ekki megi
gleyma fjölskylduvænum gildum í
stefnumótuninni og menningar-
lífinu og halda verði við því orð-
spori sem fari af Skagfirðingum,
ekki síst í söng.
„Það er mjög aðkallandi að
finna grunnskólamálum fast
skipulag, aðallega á Sauðárkróki,
og það þarf að byggja við skólann
til þess að einsetning sé fram-
kvæmanleg,“ segir Herdís.
„Stjórnsýslan hér hefur verið
veik og það hefur ekki verið unn-
ið markvisst í atvinnuuppbygg-
ingu. Því viljum við framsóknar-
menn stofna hér íjárfestingafélag
með þátttöku sveitarfélagsins, op-
inberra sjóða, nýsköpunarsjóðs og
fyrirtækja. Þetta fyrirtæki mundi
taka þátt í stofnun fyrirtækja með
hlutabréfakaupum. Við viljum
einnig stuðla að stofnun Atvinnu-
þróunarfélags Skagafjarðar sem
hefði ráðgjafa á sínum snærum
því við teljum að Atvinnuþróunar-
félag Norðurlands vestra hafi ekki
skilað Skagfirðingum miklu. Það
eru vannj4tir möguleikar í land-
búnaðargeiranum, fiskeldi, ylrækt
og skógrækt en ekki síst hrossa-
rækt.
Margir kjósa nú í fyrsta skipti
eftir flokkslínum svo það er erfitt
að spá um úrslit. Eg tel þó raun-
hæft að við fáum íjóra fulltrúa
enda erum við með frambjóðend-
ur úr hverjum hreppi. Við konur
erum færri á listanum en við
erum í tveimur efstu sætunum,
og því er ég sátt við hlut kvenna.“
Skipan alviimumálaftillírúa
Efsti maður á Iista Sjálfstæðis-
flokks er sr. Gísli Gunnarsson í
Glaumbæ sem nú þjónar Sauðár-
króki um stundarsakir. Hann segir
að sjálfstæðismenn muni leggja
einna mesta áherslu á að fram-
fylgja þeim hugmyndum sem sam-
einingarnefndin hafi lagt fram
sem grundvöll fyrir hið nýja sveit-
arfélag. Atvinnumál munu síðan
skipa stærsta sessinn en ýmsir erf-
iðleikar hafa skapast, m.a. í fisk-
vinnslunni og fækkun starfa þar.
„Ef atvinnumálin eru ekki í
ásættanlegu standi þýðir ekkert að
ræða um önnur mál eins og skóla-
mál og félagsmál. Við viljum að
hér verði atvinnumálafulltrúi í
fullu starfi til að kynna möguleika
Skagaljarðar, laða að fólk og hrein-
lega finna fyrirtæki. Á því hefur
verið misbrestur og því hefur tími
bæjarstjóra um of farið í þau mál.
En við eigum að taka þátt í At-
vinnuþróunarfélagi Norðurlands
vestra og nýta þjónustu Byggða-
stofnunar," segir Gísli.
Hann segir sjálfstæðismenn alls
ekki ætla að lofa sömu þjónustu
um allan Skagafjörð enda viti fólk
sem búi til sveita eða á jaðarsvæð-
um að það fær ekki sömu þjónustu
og t.d. fólk á Sauðárkróki, en það
geti borið sig eftir henni. Það geri
vonandi allir sér grein fyrir.
„Það er markmið að koma hita-
veitu á þá bæi þar sem það er hag-
kvæmt og eins viljum við ræða við
Akrahrepp um sölu á heitu vatni.
Mér finnst líklegt að Akrahreppur
muni sameinast okkur, en ég mun
ekki þrýsta á um það.
Fjórði maður á okkar lista er í
baráttusætinu. Ætli framsókn fái
ekki Ijóra fulltrúa, jafnvel fimm,
og Skagafjarðarlistinn þá þrjá eða
bara tvo.“
Framsóknarflokkurinn
1. Herdís Sæmundsdóttir, Sauðárkróki.
2. Elínborg Hilmarsdóttír, Hofshreppi.
3. Stefán Guðmundsson, Sauðárkróki.
4. Sigurður Friðriksson, Lýtingsstaðahreppi.
5. Einar Gíslason, Sauðárkróki.
6. Ingimar Ingimarsson, Seyluhreppi.
7. Örn Þórarinsson, Fljótahreppi.
8. Þóra Björk Þórhallsdóttir, Sauðárkróki.
9. Hlín Bolladóttir, Hofsósi.
10. Bjöm Jónasson, Sauðárkróki.
11. Símon Traustason, Rípurhreppi.
Sjálfstæðisflokkuriim
1. Gfsli Gunnarsson, Glaumbæ.
2. Páll Kolbeinsson, Sauðárkróki.
3. Ásdís Gunnarsdóttir, Sauðárkróki.
4. Arni Egilsson, Hofsósi.
5. SigrúnAlda Sighvatsdóttir, Sauðárkróki.
6. Helgi Sigurðsson, Reynistað.
7. Brynjar Pálsson, Sauðárkróki.
8. Kristín Bjarnaóttir, Hofsósi.
9. Páll Ragnarsson, Sauðárkróki.
10. Lárus Dagur Pálsson, Varmahlíð.
11. Sólveig Jónasdóttir, Sauðárkróki.
Skagafj arðarlistinn
1. Ingibjörg Hafstað, Staðarhreppi.
2. Snorri Styrkársson, Sauðárkróki.
3. Pétur Valdemarsson, Sauðárkróki.
4. Anna Margrét Stefánsdóttir, Seyluhreppi.
5. Stefanía Hjördís Leifsdóttir, Fljótahreppi.
6. Jóhann Svavarsson, Sauðárkróki.
7. Helgi Thorarensen, Hólahreppi.
8. Hjalti Þórðarson, Hofshreppi. ,
9. Þórarinn Leifsson, Rípurhreppi.
10. Gréta Sjöfrí Guðmundsdóttir, Seyluhreppi.
11. Jón Helgi Amljótsson, Lýtingsstaðahreppi.
.mw?.«hýH uöjýuD
LAUGARDAGUR 2S. APRÍL 1 9 9 8'-9
% /
Spurning Dags:
Hver verda úrslit
kosninganna í
Skagafirði?
Jóhann Svavarsson,
Sauóárkróki:
„Það er erfitt að segja til um
það vegna þess að um nýtt
sveitarfélag er að ræða. Ætli tvö
framboðanna fái ekki Ijóra full-
trúa og það þriðja þrjá. Það
gæti munað litlu."
Hallur Sigurðsson, Sauöárkróki:
„Ætli Skagaíjarðarlistinn fái
ekki þrjá fulltrúa og hinir list-
arnir Ijóra fulltrúa hvor.“
Guðný Kjartansdóttir, Hofsósi:
„Hef alls ekki hugsað um þær
og ætla ekki að kjósa. Eg finn
ekkert almennilegt fólk á fram-
boðslistunum til þess. Eg hefði
viljað sjá einhvern frá Hofsósi
sem ætti möguleika á að kom-
ast í sveitarstjórnina. Það er
kannski enginn hér með viti,
allir svo linir.“
Jóhann Sigmarsson Hofsósi:
„Eg gæti trúað að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi hreinan meiri-
hluta, Skagaíjarðarlistinn Ijóra
og Framsóknarflokkurinn þá
einn.
www visir is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
UTBOÐ
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í byggingu og frágang
bryggju vegna nýrrar olíuhafnar í Örfirisey. Verkið nefnist: “Eyjargarður
- bygging bryggju."
Helstu verkþættir eru:
Niðurrekstur á stálþili m.t.h. stögun 300 m,
Steypumót 1.500 m2
Steinsteypa 850 m3
Fyllingar 25.000 m3
Malbik 3.500 m2
Verklok eru 1. september 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 20. maí 1998 kl. 14.00 á sama stað.
rvh 44/8
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: “Dælu-
stöð á Reykjum - breytingar á pípukerfi."
Um dælustöðina liggja tvær af helstu stofnæðum veitunnar. Breyta þarf
tengingum, setja upp nýja loka, skipta um eldri loka, mála og einangra
pípur. Pípuþvermál í eru frá DN100 - DN700 mm. Setja þarf upp stál-
grindargólf, u.þ.b. 51 m2.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá miðvikudeginum 29. apríl 1998,
gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 13. maí 1998 kl. 14.00 á sama stað.
hvr 45/8
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: Dælustöð
á Reykjum - breytingar á raflögnum.
Verkið felst í uppsetningu og breytingu á rafbúnaði fyrir fjóra 450 kW
dælumótora ásamt strengjalögnum og tengingum.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá miðvikudeginum 29. apríi 1998
gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 13. maí 1998 kl. 11.00 á sama stað.
hvr 46/8
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
endurgerð lóðar leikskólans Sunnuborgar.
Helstu magntölur:
Hellulagnir: 650 m2
Gróðurbeð: 220 m2
Malbik: 408 m2
Grasþakning: 520 m2
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opn-
un tilboða: fimmtudaginn 14. maí 1998 kl. 14.00 á sama stað.
bgd 47/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfar-
andi verk:
Grafarholt - Aðalræsi, 3. áfangi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: u.þ.b. 5.500 m3
Sprengingar: u.þ.b. 1.000 m3
Fyllingar: u.þ.b. 1.800 m3
Holræsi, 500 mm pípur: u.þ.b. 1.200 m
Vatnslögn, 600 mm pípur: u.þ.b. 580m
Skiladagur verksins er 15. nóvember 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 28. apríl 1998
gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 7. maí.1998 kl. 15.00 á sama stað.
gat 48/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í gerð
30 km hverfa í Híðum og Pingholtum ásamt úrbótum við göngu- og
hjólaleiðir víðs vegar um borgina. Verkið nefnist: “Ýmsar fram-
kvæmdir-l, 1998“.
Helstu magntölur eru:
Stein-og hellulagðir fletir: 2.400 m2
Steyptir fletir: 600 m2
Malbikaðir fletir: 600 m2
Grásteinskantur: 265 m
Síðasti skiladagur verksins er 1. október 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 28. apríl 1998,
gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 7 maí 1998 kl 14.00 á sama stað.
gat 49/8
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16