Dagur - 29.04.1998, Side 7

Dagur - 29.04.1998, Side 7
 MIDVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 - 7 ÞJÓÐMÁL Róiim af fyrirhyggj u á veiðislóð tækifæraima BRYNJÓLF- URINGVARS- SON LÆKNIR A FSA SKR/FAR Til að byrja með ætla ég að lýsa yfir fullum stuðningi mínum við allt það merkilega starf, sem unnið er daglega hjá Islenskri erfðagreiningu á Lynghálsinum. Þarna vinnur hörkuduglegt starfsfólk af mikilli elju og sam- viskusemi með hugvit og þekk- ingu að leiðarljósi undir forystu kjarkmikils atorkumanns, sem vílar ekki fyrir sér að taka verk- efnin með áhlaupi. Eg er hrifinn af áræði hans og fyrirmyndar- meðferð á móðurmálinu. Það er enn í mér tilhlökkun yfir sam- starfsverkefninu, sem ég er aðili að og hefur nú verið í undirbún- ingi í tæp 2 ár. Af minni hálfu verður samt ekkert af samstarfi nema staðið verði að málum af heiðarleika og hreinskiptni og ís- lenskar leikreglur í heiðri hafðar frá upphafi bæði fyrir norðan og sunnan. Brellur geta komið manni í koll. Ættfræðiáhugi Islendingar eiga sennilega heimsmet í ættfræðiáhuga. Óvíða erlendis sést annað eins magn af prentuðu máli um ættir og ættrakningu. Utlendingar skilja ekkert í þessu og verða stundum toginleitir og skipta jafnvel um umræðuefni þegar sagt er frá þessari sérstöðu Is- lendinga. A hinn bóginn takast þeir sumir á loft af hrifningu, þegar maður útskýrir fyrir þeim stuðla og höfuðstafi. Þetta fékk mig til að hugsa dæmið upp á nýtt, þangað til ég fór að nálgast þá niðurstöðu, að kannske væri þessi fræðigrein líkari venjulegri hnýsni um persónuhagi annarra en raunverulegum vísindum. Samt ætla ég einn góðan veður- „Þarna vinnur hörkuduglegt starfsfólk af mikilli elju og samviskusemi með hugvit og þekkingu að leiðarljósi undir forystu kjark- mikils atorkumanns, sem vílar ekki fyrir sér að taka verkefnin með áhlaupi, “ segir Brynjólfur Ingvarsson læknir m.a. I grein sinni um fyrirtækið íslenska erfðagreiningu. dag að fá mér ættfræðiforrit. Gnmdvallarraimsóknir Læknisfræðilegar erfðarann- sóknir eru grundvallarrannsókn- ir. Vísindavinna, sem uppfyllir mjög strangar kröfur um aðferð- ir og vinnubrögð. í sem allra stystu máli má segja, að þær gangi út á samspil sjúkdóms- greininga, ættrakningar og Iík- indareiknings. Slíkar rannsóknir á sviði geðlækninga hafa verið framkvæmdar hér á landi sl. 15 ár og niðurstöður hingað til vekja ekki bjartsýni um tilkomu nýrra geðlyfja á næstunni. Al- menningur veit, að þetta er að- eins hluti af þrotlausri leit vís- indamanna um allan heim að margvíslegum sjúkdómsorsok- um. Sem betur fer, er alltaf ver- ið að ráða einhveijar gátur og kennslubækur í sjúkdómafræð- um frá upphafi og fram á okkar daga hafa stöðugt verið að taka stórfelldum breytingum eftir því sem þekkingin eykst. Hlutdeild erfða sem sjúkdómsorsakar er af einhveijum ástæðum sérstaklega áleitin spurning um þessar mundir, og ráðgátur geðsjúk- dómanna heilla vísindamenn okkar ekkert sfður en aðrar. Fjár- magnseigendur gera vitanlega út á þessi mið eins og önnur. Það er ekkert bogið við það í sjálfu sér, en menn verða samt að kunna og virða ákveðnar reglur, því að annars getum við lent í við- skiptagildrum eða hafnað í Iög- málum frumskógarins, og þar er alltaf á reiki margur óhreinn andinn eins og löng sambúðar- saga vísinda og viðskiptaheims kennir okkur. Samt er engin ástæða fyrir okkur að missa kjarkinn núna né leggja árar í bát. Við skulum róa af kappi og fyrirhyggju á veiðislóð tækifær- anna, þegar gefur. Veiðieðlið er enn ríkt í Islendingum, og okkur ber að hagnýta það þjóðinni allri til góðs. Aðrar þjóðir kunna sitt af hverju og sumt betur en við, m.a. að versla, og því þarf að viðhafa ýtrustu gát. Heims- markaður er ekkert grín og við gætum einmitt núna verið að fá enn einn smjörþefinn af því. Út- lendir Islandsbersar eru líka til í fjöldamörgum útgáfum og þeir virðast ekki skilja merkingu orðs- ins ábyrgð. Gagnagnumur Fréttir og fjölmiðlar hafa tekið af mér ómakið og fjallað um flest það sem ég ætlaði að segja í þessari blaðagrein. Almenn um- ræða er hafin og það er aðalat- riðið. Aðeins örfá lokaorð um gagnagrunn: Það vefst fyrir einstaka manni að skilja til fulls, hvað orðið gagnagrunnur þýðir, og þó að það sé gott og lýsandi og fái all- an minn stuðning sem íslensku- vinar, þá er til skilningsauka betra að nota annað orð yfir hug- takið í þessari umQöllun. Við skulum kalla þetta upplýsinga- banka, sem nú eru starfræktir á hverju sjúkrahúsi og hverri heilsugæslustöð fyrir sig eftir ströngum reglum. Abyrgð hvers „bankastjóra" er mikil, og starf hans verður nú flóknara og vandasamara með hverri tækni- byltingunni, en upplýsingarnar eru fyrst og fremst trúnaðarmál sjúklinga, sem geta átt framtíð- arheill sína undir því, að þær séu verndaðar með öllum hugsanleg- um ráðum. Þetta er kjarni máls- ins. Það hefði hins vegar orðið stórslys að samþykkja gagna- grunnsfrumvarpið óbreytt. Til útskýringar má líkja þessu við það, að allir sparisjóðir og bank- ar landsins yrðu með lögum sameinaðir í einn risastóran rík- isbanka, þar sem vinnsluferlin og flæðilínumar yrðu skipulagð- ar eftir pöntun eða séróskum eins viðskiptavinar, sem einnig væri höfundur gangvirkisins, og hann þyrfti svo að fá forgang að bankanum til einkaafnota í 12 ár upp í hönnunarkostnað! Það má sjá í þessu hagræðingu, sparnað og fækkun stöðugilda og reikna sig sveittan upp í háar fjárhæðir, sem gætu sparast. En kannske um leið einhverja þá umfangs- mestu ríkisvæðingu viðkvæm- ustu einkamála, sem um getur í sögu þjóðanna, a.m.k. „vestan- tjalds"? Eg bið alþingismenn enn og aftur að fara varlega. Allir bera ábyrgð, sem að þessu koma, en endanleg ábyrgð hvílir á Alþingi. Að viima með íbúuniun en ekki gegn hagsmunum þeirra KRISTJAN ÞÍJRJULIUS- SON ODDVITI SJALFSTÆÐIS- FLOKKS I BÆJARSTJÓRN- ARKOSNINGUNUM A AKUREYRI SKRIFAR Grundvallaratriði í störfum kjör- inna fulltrúa í sveitarstjórnum er að þeir hafi ætíð ríkt í huga í hvers umboði þeir vinna. Sveitar- félag er samfélag fólks og sveitar- stjórnin er tæki til að gera því samfélagi kleift að starfa með það að markmiði að íbúunum Iíði þar vel. Andmæli íbúa virt að vettugi Undanfarnar vikur hefur skipu- lagsnefnd og starfsfólk Skipu- Iagsdeildar Akureyrarbæjar kynnt íbúum afrakstur mikillar og góðr- ar vinnu við endurskoðun aðal- skipulags bæjarins. I þeirri tillögu sem kynnt hefur verið er enn að finna hugmynd að tveimur ak- brautum í Lundarhverfi. Báðar eru brautirnar afar umdeildar í hugum þeirra sem byggja hverfið. Upplýst er að allt frá því að hug- myndir um lagningu Dalsbrautar og „Mjólkursamlagsvegar" komu fyrst fram árið 1973, hafa íbúar hverfisins mótmælt þeim harð- lega. Þrátt fyrir það eru sömu eða svipaðar hugmyndir enn á teikni- borði bæjaryfirvalda og kjörnir Svona gera meim ekki. Taka á fullt til- lit til eindreginna óska íbúa hverfisins og færa svonefndan „Mjólkursamlags- veg“ til vesturs, sam- kvæmt tillðgu íbú- anna. fulltrúar hafa jafnvel leyft sér að svara andmælum íbúanna með útúrsnúningum. Svona gera menn ekki Svona gera menn ekki. Taka á fullt tillit til eindreginna óska íbúa hverfisins og færa svonefnd- an „Mjó 1 ku rsamIagsveg“ til vest- urs, samkvæmt tillögu íbúanna. Ennfremur hnfga afar sterk rök í þá átt að falla eigi frá hugmynd- um um lagningu Dalsbrautar, sérstaklega þess hluta hennar sem leggja á sunnan Þingvalla- strætis. Formaður skipulags- nefndar hefur upplýst að það verði ekki fyrr en Iangt er Iiðið á næstu öld að þörf verði fyrir „samgöngubótina" Dalsbraut, sem m.a. klýfur skólahverfið í tvennt. Jafnframt var gefið í skyn að ein af grunnforsendunum íyr- ir útreikningi á hávaðamengun við þessar umdeildu götur er sú að hámarkshraði Fíatbifreiðar formannsins er ekki nema 50 km/klst! Samferða íbúunum! D-listinn vill að „Mjólkursam- Iagsvegurinn" verði færður vestar og að fallið verði frá legu Dals- brautar í gegnum Lundarhverfið. Kjörnir fulltrúar og embættis- menn eiga að vera samferða íbú- um bæjarins í máli sem þessu. Kerfið á að vinna með íbúunum að lausn mála en ekki gegn hags- munum þeirra.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.