Dagur - 29.04.1998, Page 10

Dagur - 29.04.1998, Page 10
10 -MIÐVIKUDAGUR 29. APRlL 1998 SD^jpr ÞJÓÐMÁL Einsetmiig leikskóla )RÐ LEIKSKÓLAKENNARI OG LEKTOR ILEIKSKÓLA- FRÆÐUM VIÐ HÁSKÓL- ANN A AKUREYRI SKRIFAR Mikil og þörf umræða hefur átt sér stað um einsetningu grunn- skóla hin síðari ár. Mörg og gild rök hníga í þá átt að einsetinn grunnskóli sé það sem koma skal. Minna hefur horið á umræðu um einsetningu leikskóla. Sú um- ræða hlýtur þó að verða meiri og meiri. Hvað er einsetning? Ein- setning er að á vinnutíma skóla sé einn umgangur barna sem notar skólahúsnæðið. Margir þekkja úr grunnskólanum þegar fleiri en einn bekkur notar sömu kennslu- stofu fyrir og eftir hádegi. I flest- um leikskólanum er þessu örlítið öðruvísi háttað. Þar koma böm að morgni frá því um hálf átta til níu hálf tíu, síðan er byrjað að sækja börn um tólf og eitt, tvö og svo framvegis. Samtímis koma önnur börn í leikskólann klukkan tólf og eitt. Þau börn sem eru sex tíma eða lengur í Ieikskólanum skipta því um hluta Ieikfélaganna um miðjan dag. Stórir bamahópar í leikskólum A meðal leikskóladeild fyrir 3 til 6 ára börn í Reykjavík svo tekið sé AKUREYRI Háskólinn á Akureyri Auglýsing um innritun nýnema Heilbrigðisdeild: Hjúkrunarfræði Iðjuþjáifun Kennaradeild: Grunnskólakennaranám Leikskólakennaranám Viðbótarnám til B.Ed. gráðu fyrir Leikskólakennara Rekstrardeild: Rekstrarfræði Iðnrekstrarfræði Framhaldsnám í gæðastjórnun Tölvu- og upplýsingatækni Ferðaþjónusta Sjávarútvegsdeild: Sjávarútvegsfræði Matvælaframleiðsla Reglulegri innritun nýnema lýkur 1. júní nk. Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Ef próf- um er ekki lokið skal senda skírteini um leið og þau liggja fyrir. Við innritun ber að greiða staðfestingargjald, kr. 6.000,- sem er óaft- urkræft fyrir þá nemendur sem veitt er skólavist. Bent er á að auðveldast er að leggja þessa upphæð inn á ávísanareikning Há- skólans á Akureyri, í Landsbanka íslands, reikningsnúmer 0162- 26-610 og láta kvittun fyrir greiðslunni fylgja umsókn. Gjalddagi eftirstöðva skrásetningargjalds er 1. ágúst. Skilyrði fyrir innritun í háskólann er stúdentspróf eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. í framhaldsnám í gæðastjórnun gilda þó sérstök inntökuskilyrði um B.Sc. gráðu í rekstrarfræði eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. Á fyrsta ári í heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjöldatakmörkunum verði beitt. Ath: Nýtt námsframboð haustið 1998 Kennaradeild: Viðbótarnám til B.Ed. gráðu fyrir leikskólakennara. Rekstrardeild: 90 eininga B.Sc. nám í tölvu- og upplýsingatækni. 90 eininga B.Sc. nám í ferðaþjónustu. Umsóknarfrestur um húsnæði á vegum Fólagsstofnunar stúd- enta á Akureyri er til 20. júní 1998. Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu há- skólans að Sólborg, 600 Akureyri, sími 463 0900, frá klukkan 8.00 til 16.00. Upplýsingar um húsnæði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri veitir Jónas Steingrímsson í síma 894 0787 og 463 0968. Háskólinn á Akureyri. dæmi eru 22 börn samtímis en hluta af deginum þ.e. á milli 12 og 2 geta verið allt að 32 börn. Það er algengt að heyra kenn- ara ræða um hversu erfitt er fyrir börn að flytjast úr litlum átta barna hóp í Ieikskóla í stóra bekkjardeildir í grunnskóla. I þessari umræðu gleymist gjarnan að börnin eru að koma úr fjöl- mennum barnahópum. Það heyr- ist ennfremur að í Ieikskólanum sé einn starfsmaður með átta börn meðan að kennari er með mun stærri hóp. Það gleymist líka að þegar reiknað er út hversu mörg börn eru á starfsmann í Ieikskóla er verið að reikna út frá öllu starfsfólki sem annast börnin frá átta að morgni til klukkan fimm. Inn í þessum tíma eru líka kaffitímar viðkomandi starfs- manna. Böm eru því sjaldnast í átta barna hópum með starfs- manni. A sama tfma búa mörg börn við það að um miðjan dag fara leikfélagar og jafnvel starfs- menn heim og nýir koma í stað- inn, margir hafa h'kt þessum dagsparti við brautarstöðvar á annatímum. I leikskólanum er allt á fullu frá því að hann opnar, þar til að hann Iokar á kvöldin. A það hefur verið bent að hentugast er fyrir börnin að dagurinn Iíði hægt út. Nýting lexkskólarýma Nýting á hveiju leikskólarými er yfir 100%. Algengt er í Reykjavík t.d. að barn sem kaupir heilsdags- rými í leikskóla nýti það í 8,5 til 9 tíma. Foreldrar vinna flestir 8 tíma vinnu og þurfa síðan tíma til að komast á milli staða. „ Á sama tíma búa mörg börn við það að um miðjan dag fara ieikféiagar og jafnvel starfsmenn heim og nýjir koma i staðinn, margir hafa líkt þessum dagsparti við brautarstödvar á annatímum" segir Kristín m.a. ígrein sinni Ennfremur var sú stefha mótuð fyrir nokkrum árum að nýta hvert rými þannig að á móti 6 tíma barni fyrir hádegi kom 4 tíma barn eftir hádegi. Eg tel að það hafi á sínum tíma verið skynsam- leg og rétt ákvörðun. Hún gaf fleiri hörnum aðgang að leikskól- um og braut niður þá félagslegu múra sem ríkt höfðu innan leik- skólanna. Með mikilli og glæsi- Iegri uppbyggingu leikskóla er komin tími til að staldra við og skoða málið. Með einsetningu grunnskólans hafa orðið miklar breytingar t.d. varðandi vinnu- tíma foreldra. Nú er tímabært að leikskólinn fylgi í kjölfarið. Það verði farið að ræða opinskátt um einsetningu leikskóla sem raun- hæft markmið sem stefna beri að á t.d. fjórum árum. Álag 1 leikskóliun Tíð mannskipti þar sem alltaf er verið að þjálfa nýtt starfsfólk er bæði dýrt fyrir rekstraraðila og álag á börn og fullorðna í Ieikskól- anum. Kostnaður vegna veikinda getur h'ka orðið óhóflegur og er forvitnilegt fyrir sveitarstjórnar- fólk að velta fyrir sér hversu mik- ið af rekstarfé fer til þess. Það er alkunna, að undanfarin ár hafa víða verið tíð mannaskipti í leik- skólum, veikindi á meðal starfs- fólks hafa líka verið mikil. Margir leikskólastjórar hafa velt fyrir sér orsök þessa. Hennar er ekki bara að leita í lágum Iaun- um þó svo þau vegi auðvitað líka. Starfsaðstæður og Iíðan starfs- fólks skiptir mildu máli. Starfs- fólk leikskóla kvartar margt hvert undan milklu álagi í starfi. Ein leið til að draga úr álagi, auka gæði leikskóla og tryggja ánægð börn og fullorðana er einsetning. Það er von mín að þeir sem nú eru i framboði til sveitarstjórna íhugi þessa leið og leggi drög að henni í málefnaskrám. Hvað er framimdan í skólamálum? ELSA B. FMÐFINNS- DOTTIR ÍEKTOR Starfsfólk og nemendur Lundar- skóla og Oddeyrarskóla standa nú frammi fyrir miklum breytingum í starfi skólanna. Skólaárið 1998- 1999 hefst kennsla í 8. bekk í þessum skólum. Ibúar Oddeyrar hafa nokkra reynslu af unglinga- deildum en um algjöra nýjung er hins vegar að ræða í Lundar- hverfi. Eðlilega er nokkur óvissa meðal starfsmanna skólans og foreldra í hverfinu um hvernig til muni takast. Skólanefnd Akureyr- ar hefur með skipun starfshópa í skólunum sunnan Glerár reynt að vinna sem best að undirbúningi málsins f samvinnu við skóla- stjórnendur, kennara og foreldra. Kennsla sérgreina Sá þáttur sem einna helst virðist skapa óvissu er möguleiki þessara skóla til sérgreinakennslu á ung- lingastigi. Ótti er við að kennarar fáist ekki til að kenna sína sér- grein í tveggja hliðstæðu skóla eins og Luridarskóla, svo ekki sé talað um Oddeyrarskólann þar sem áætlanir gera einungis ráð fyrir einni bekkjardeild í hveijum árgangi. Því hefur jafnvel verið haldið fram að menntaðir sér- greinakennarar verði „neyddir" til að taka að sér kennslu yngri barna til að fylla kennsluskyldu sína. Eg tel fráleitt að svo verði, en bendi á þá leið að sérgreina- kennarar kenni við fleiri en einn skóla, enda eru kennarar ráðnir við grunnskóla Akureyrar en ekki einn ákveðinn skóla. Heimaskóli hvers kennara yrði sá skóli þar sem mestur hluti kennslunnar fer fram. Stundatöflur efstu bekkja viðkomandi skóla þyrfti að vinna í mikilli samvinnu svo vinnutími og aðstæður sérgreinakennaranna yrðu viðunandi. A meðan ekki eru sérbúnar stofur, t.d. í eðlisfræði og tölvunotkun, í hveijum skóla verður nauðsynlegt að nemendur sæki þá tíma f aðra skóla. Slíkt fyrirkomulag yrði einungis tfma- bundið hér á Akureyri eða á með- an á byggingaframkvæmdum stendur við áðurnefnda skóla, en eins og fram hefur komið leggur skólanefnd til að viðbygging við Lundarskóla verði tekin í notkun haustið 1999 og við Oddeyrar- skóla eigi síðan en árið 2001. Kennsla valgreina Hvað valgreinarnar áhrærir þá býður tilkoma hverfisskólanna upp á möguleika á ákveðinni sér- hæfingu skólanna. Eg tel það vera ögrandi verkefni fyrir hvern skóla að skapa sér sérstöðu í framboði valgreina, þannig að þar sé boðið upp á það besta í ákveðinni grein/greinum og nemendur 9. og 10. bekkja annarra skóla geti sótt þangað valgreinatíma. Með því móti stæðu nemendum til boða fleiri valmöguleikar, meiri sér- fræðiþekking og betri aðstaða í hverri grein, en hver og einn skóli getur boðið upp á. I kynningarriti menntamálaráðherra „Enn betri skóli. Þeirra réttur - okkar skylda“ er einmitt rík áhersla lögð á að auka þurfí val nemenda þannig að hver og einn geti lagt eigin áherslur í námi miðað við áhuga- svið og framtíðaráform. Að lokum I nýútkomnu riti Kennarasam- bands íslands þar sem skóla- stefna sambandsins 1997-2000 er kynnt, er lögð áhersla á að stærð skóla skuli við það miðuð að þeir verði aldrei stærri en svo að tvær bekkjardeildir séu í ár- gangi. Lundarskóli er því í kjör- stærð ef miðað er við skólastefnu KI. Á þeim tímamótum sem Lundarskóli og Oddeyrarskóli standa nú á, er án efa mikilvæg- ast að skólastjórnendur, kennarar og foreldrar skólabamanna takist sameiginlega og af jákvæðni á við það verkefni sem framundan er. Því má heldur ekki gleyma að uppbygging unglingadeilda þess- ara skóla er þriggja ára þróunar- verkefni. Eg hvet því til þess að í stað þess að einblína á hugsanleg vandamál leggist þessir aðilar á eitt að finna Iausnir. Aðeins þan- nig er hægt að tryggja gott skóla- starf í þessum skólum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.