Dagur - 29.04.1998, Side 11

Dagur - 29.04.1998, Side 11
ERLENDAR FRÉTTIR Refsiaðgerðirnar á írak hafa verið afar umdeildar, en lífsmáti þarlendra ráðamanna er í litlu samræmi við eymdina. Lifa í veHystmgum Öryggisráð Samein- uðu þjóðanua sam- þykkti í gær að refsi- aðgerðum á írák verði ekki aflátt um hríð. Á þeim átta árum sem liðin eru frá því refsiaðgerðir voru settar á Irak - þær hörðustu frá upphafi sem Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt - er talið að írakar hafi orðið af um 115 milljörðum doll- ara í tekjum af olíusölu. Það samsvarar rúmlega 8.000 millj- örðum króna. Leiðtogar Iraks halda því fram að matvælaskort, vannæringu og lát Ijölda fólks, ekki síst barna, megi rekja beint til þessara refsi- aðgerða. Vestrænir stjórnarer- indrekar og sérfræðingar í mál- efnum þessa heimshluta segja þó að margir aðrir þættir vegi einnig þungt, og má þar nefna vanhæfni stjórnvalda, kúgun al- mennings, mismunun þjóðernis- hópa - og svo gegndarlausa eyðslu Saddams Hussein, sem m.a. hefur látið byggja upp for- setasvæðin frægu sem fulltrúar Sameinuðu þjóðanna fengu fyrst aðgang að fyrir nokkrum vikum. Á forsetasvæðunum átta eru samtals um þúsund byggingar, og er mikið í þær lagt, að því er fulltrúar Sameinuðu þjóðanna segja. Innréttingar eru í dýrari kantinum, innfluttur marmari og íburðarmikil húsgögn. Umhverf- is þær eru líka miklir skrautgarð- ar þar sem engu hefur verið til sparað. Og fyrir allt þetta var greitt á því tímabili sem refsiað- gerðirnar hafa verið í gildi. Með lúxusþotu til New York Onnur dæmi um flottræfilshátt ráðamanna í Irak má nefna. Þeg- ar Tarik Aziz, aðstoðarforsætis- ráðherra, ferðaðist frá Bagdað til New York í nóvember síðastliðn- um til þess að kvarta hjá Orygg- isráði SÞ undan refsiaðgerðun- um, þá fór hann síðasta spölinn frá París með Concorde, dýrustu farþegaþotu heims, þar sem dekrað var við Aziz og aðstoðar- menn hans sjö í þjónustu, og fengu þeir sælkeramat og bestu vín sem í boði eru. Ferðin fram og til baka kostaði 8.453 dollara á mann, að sögn flugfélagsins Air France. Það gera rúmlega 600.000 krónur á mann. Saddam Hussein og nánustu samstarfsmenn hans hafa því greinilega ekki orðið fyrir barð- inu á refsiaðgerðunum í sama mæli og aðrir Iandsbúar. Samt hafa þeir notað sér erfiðleika al- mennings óspart til þess að hafa áhrif á álit umheimsins. Snúa refsingunni sér í hag Um svipað leyti og Aziz sat í Concorde vélinni á leiðinni til New York voru embættismenn í Bagdað til dæmis að sýna bandarískum og evrópskum blaðamönnum hvernig umhorfs væri á barnadeild eins sjúkra- hússins, sem ekki var víst fögur sjón, og sögðu að ástandið mætti rekja beint til refsiaðgerðanna. Þá studdu stjórnvöld mót- mælaaðgerðir sem vöktu tölu- verða athygli erlendis, þar sem fólk gekk lylktu liði með tómar barnalíkkistur um götur Bagdað til þess að minna á að dánartíðni barna undir fimm ára aldri hefur hækkað úr 7.000 upp í 57.000 á ári milli áranna 1989 og 1996. „Irak hefur með hreint snilld- arlegum hætti notað sér refsiað- gerðirnar sem útspil,“ sagði vest- rænn stjórnarerindreki sem er nýlega kominn frá Irak. „Stjórn- völd hafa í raun snúið refsing- unni sér í hag, því með henni afla þeir sér viðurkenningar að nýju og hún hjálpar jafnvel stjórninni að lifa lengur." Hvaða böm svelta? Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF, telur að meira en ein milljón barna yngri en fimm ára þjáist af langvarandi næringarskorti - en það er nærri þriðjungur allra barna á þeim aldri í Irak. Stjórnarerindrekar og starfsmenn hjálparstofnana eru þó farnir að spyrja nánar út í orsakir þessarar eymdar, sem börnin búa við. Mörg þeirra barna, sem dvelj- ast á sjúkrahúsum í Bagdað, eru frá héruðum Sjíta og Kúrda, sem ríkisstjórnin hefur að verulegu leyti lokað fyrir aðgangi að mat- vælum og lyfjum, að sögn stjórn- arerindreka. Matarskorturinn er einnig enn erfiðari viðfangs vegna óhag- kvæmra og afkastalítilla stjórnar- hátta. „Afkastageta kerfisins var vonlaus án þess að stríð kæmi til sögunnar,“ sagði einn stjórnarer- indrekanna í landinu. „Þegar stríð bætist við og þar að auki harðlyndi stjórnarinnar, þá er af- leiðingin dauð og deyjandi börn.“ - Los Angeles Times HEIMURINNI Vísbending Lögreglustt órinn segir af sér BELGIA - Flótti barnaníðingsins Dutroux í Belgíu hefur dregið nokkurn dilk á eftir sér. Bæði dómsmála- og innanríkisráðherrar landsins hafa sagt af sér og í gær tilkynnti Jean Luc Dehaene, forsæt- isráðherra, að yfirmaður belgísku lögreglunnar hygðist einnig segja af sér embætti. Jafnframt hvatti Dehaene aðra háttsetta embættismenn í lögreglunni og dómsmálaráðuneytinu til að segja af sér. Stjórnar- andstaðan hefur auk þess lagt fram vantrauststillögu á hendur stjóminni, en ekki þótti Iíklegt að hún verði til þess að stjórnin falli. Strangir foreldrar AUSTUBRIKI - Nærri 90% allra foreldra í Austurríki telja það ósköp eðlilega uppeldisaðferð að slá börn utanundir ef þau eru óþekk, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun. Þá telur tæpur þriðjungur þeirra að rétt sé að flengja þau af og til, og stundum jalnvel með bar- efli. Lestu blaðið og taktuþdtt í leiknum! 550 oooo Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 - 11 Kópavogsbær Gæsluvöllur Ný gæsluvöllur verður opnaður í maí við Lækjarsmára í Kópavogi. Tvær 60% stöður eru því lausar til umsóknar frá 1. maí nk. Um- sóknarfrestur er til 26. apríl. Launakjör samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Kópa- vogs. Nánari upplýsingar gefur daggæslufulltrúi Félagsmálastofnunar Kópavogs, sími 554 5700. w Einingarfélagar! Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar verður haldinn á Fosshótel KEA fimmtu- daginn 7. maí nk. kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. \ Ársreikningar liggja frammi á skrifstofum félagsins. Félagar fjölmennið - kaffiveitingar. Stjórnin. Orlofshús Frá og með mánudeginum 4. maí hefst útleiga á neðanskráðum orlofshúsum á vegum Sjómannafélags Eyjafjarðar. Húsin eru leigð viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsunum. Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið sumarhús leigð hjá félag- inu sl. þrjú ár hafa forgangsrétt til kl. 16.00 þann 11. maí nk. Húsin sem í boði eru, eru á eftirtöldum stöðum: lllugastöðum í Fnjóskadal og Hraunborgum í Grímsnesi. Einnig er félagið með samvinnu við Tjaldvagnaleigu Akureyrar í formi niðurgreiðslna til félagsmanna. Pantanir á tjaldvögnum eru gerðar í síma 897 3296. Einnig minnum við á íbúðirnar í Reykjavík, en leigan á þeim er með venjubundnum hætti allt árið. Sjómannafélag Eyjafjarðar, Skipagötu 14, sími 462 5088. Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Eyjafjarðarsveit 23. maí 1998 rennur út laugardaginn 2. maí 1998 kl. 12.00. Yfirkjör- stjórn tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 11.00- 12.00 á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Syðra-Laugalandi. Berist aðeins einn listi, framlengist framboðsfrestur til kl. 12, mánudaginn 4. maí 1998. Tekið skal fram að fjöldi meðmælenda með hverjum lista skal vera að lágmarki 20 og að hámarki 40. Syðra-Laugalandi 27. apríl 1998, yfirkjörstjórn Eyjafjarðarsveitar, Auður Eiríksdóttir, Emilía Baldursdóttir, Níels Helgason.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.