Dagur - 01.05.1998, Blaðsíða 2
1
£ ro u t \ i
2 - FÖSTUDAGUR 1
n n t \ í t J ’a
MAÍ 1998
FRÉTTIR
rD^tr
Nýja bíó á Akureyri gæti komist aftur í gagnid sem kvikmyndahús med haustinu. mynd: bús
Aftur samkeppni í bíó-
meimingu Akureyrar
Nokkrir aðilar hafa keypt
Nýja bíó og hyggjast opna
í haust. Tugir milljóna
króna í upphyggingu.
Hlutafélag stofiaað.
Nokkrir fjárfestar í Reykjavík og á Ak-
ureyri hafa keypt Nýja bíó á Akureyri.
Að sögn Odds Thorarensen, fráfarandi
eiganda, hefur húsið verið til sölu allt
frá því að það skemmdist i bruna í
september árið 1996. Lengst af þjón-
aði það hlutverki kvikmyndahúss en til
skamms tíma var Nýja bíó rekið sem
skemmtistaður og diskótek. Eftir brun-
ann hefur verið horft til Nýja bíós sem
hugsanlegs tónlistar- eða leikhúss fyrir
Akureyrarbæ en ekki verður af því úr
þessu.
Bíó og ráðstefnux
Húsið var auglýst fyrir 18 milljónir
króna en ekki fékkst uppgefið hvert
endanlegt verð var. Einn kaupend-
anna, upplýsti í gær að tilgangurinn
með kaupunum væri að nýta húsið
sem kvikmynda- og ráðstefnuhús.
Hann sagðist telja góðan markað fyrir
annað bíó á Akureyri, þar sem fyrir er
Borgarbíó. Ekki síst ef menn litu til
fjölda biósala í Reykjavík. Langt er um
liðið síðan tvö bíó voru rekin á Akur-
eyri.
Nýrra fjárfesta óskað
Haukur Grettisson og Davíð Gunnars-
son Frostrásarmenn á Akureyri munu
vera frumkvöðlar að kaupunum, en
með þeim í þessum viðskiptum eru þrír
aðilar úr Reykjavík, sem allir eru kunn-
ir úr viðskiptalífinu. Þeir hafa hins veg-
ar ekki staðið í kvikmyndahúsarekstri
fyrr. Að sögn eins þeirra mun nú verða
stofnað hlutafélag um reksturinn og
eru áhugasamir velkomnir í þann pott.
Sögufrægt hús
Ljóst er að mikið fé eða tugi milljóna
þarf til að koma húsinu í horf. Eigend-
urnir sögðust í gær vera bjartsýnir á að
það tækist fyrir haustið en bentu á að
kaupin væru ekki aðeins gerð með
gróða í huga. Þeim væri annt um að
þetta fornfræga hús stæði ekki lengur í
niðurníðslu. Nýja bíó stendur við Ráð-
hústorgið og var reist árið 1929. — Bh
Miklar sögur ganga af hóp-
ferð sem knattspyrnuá-
hugamenn fóru í til Ítalíu
á vegum íslenska útvarps-
félagsins. Heil flugvél var
tekin á leigu og haldið til
Milanó, en þegar þangað
kom var allt í steik. likki
bætti úr skák að fararstjór-
amir kunnu ekkert í
ítölsku. Leit út fyrir að ferðalangamir fengju
hvorki að komast á æfingu hjá stórliðunum né
skoða söfn þeirra. Þá kom starfsmaður keppi-
nautarins, Magnús Einarsson á Rás 2, til hjálp-
ar, en hann var í ferðinni og talar góða ítölsku.
En fáu var hægt að redda á staðnum þvl að heim-
sóknir til félaga eins og AC Milan og Inter þurfa
góðan undirbúning. Mörgmn þótti skondið að
sjá starfsmann tónlistardeildar Ríkisútvarpsins
bjarga því sem bjargað varð í Milanóferð ís-
lenska útvarpsfélagsins og túlka og liðsinna
hópnuin - þar með talið fararstjórunum!
Kostim útvarps- og sjón-
varpsefnis þykir keyra úr
hófi frain, ckki síst þegar
sjálft Ríkisútvarpið á í
hlut. Um þetta var rætt í
Heita pottinum í blaðinu
í gærdag. í sundlaugar
pottunum í gærmorgun var bætt við þessar
fregnir. Á Rás 2 Ríkisútvarpsins er þáttur um
tölvuleiki, „Leikur ehm“ fluttur skemmtilega og
áheyrilega af sérfræðingi á sunnudöguin. En
hvemig er svo í pottinn búið? Jú, Skífan kostar
þáttinn, - en þetta fyrirtæki Jóns Ólafssonar
fjölmiðlarisa, er einmitt stærsti innflytjandi
tölvuleikja í Iandi hér. Þáttastjórinn er verslun-
arstjóri Skífunnar, Ólafur Þór Jóelsson. Innflytj-
andi Nintendo leikjanna mun ekki hress.........
Magnús Einarsson.
V
Reykjavík
,°5 Sun Mán Þri Mið mm
Akureyri
Sun Mán Þri Mið
S3 SV3 SV4 VNV2 NNA4
SV3 SSV3 SV3 NNA3
SV3 SSV4 S4 NV2 N4
SSV4 SSV3 SV4 N4
Stykkishólmur
9 Sun Mán Þri Mið mm C Sun Mán Þri Mid mm
Egilsstaðir
S3 SV4 SV4 N3 NNAS
SSV4 SSVS SV3 NNA5
Bolungarvík
S2 SV2 SV3 SSV2 N3
SSV3 SA1 SV4 NV2
Kirkjubæjarklaustur
°C Sun Mán Þri Mið m™
151 ----- ----1-15
.5 mm'iM.
SV4 SV4 SSV2 NNA4 NNA5
SSV3 S5 VNV2 NNA5
VSV2 VSV3 SV4 VSV3 NA2
VSV3 VSV3 VSV3 VNV2
Blönduós
Stórhöfði
%SV3 SV2 S2 NNV1 NNA2
SSV3 SSV4 SV3 NNA4
SSV4 VSV6 SV6 VSV5 NNA4
VSV4 SV5 VSV5 NV3
Línuritin sýna
íjögurra daga
veðurhorfur á
hveijum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Vestan gola eða
kaldi, smá skúrir
um vestanvert
landið, annars
skýjað að mestu
en úrkomulítið.
Hiti 2 til 10 stig,
hlýjast sunnan-
lands.
Færð á vegum
Á VestQörðum eru hálkublettir á Dynjandisheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Á leið-
inni í Árneshrepp er þæfingur og aðeins fært jeppum. A Hellisheiði eystri er snjó-
þekja og einnig á leiðinni um Vatnsskarð til Borgarfjarðar eystri. Þæfingur er á
Mjóafjarðarheiði. Að öðru leyti er góð færð á landinu. Öxulþungatakmarkanir eru
víða á vestan- og norðanverðu landinu vegna aurbleytu.