Dagur - 01.05.1998, Blaðsíða 10
10 - FÖSTUDAGUfí 1. MAÍ 199 8
rD^tr
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
HILMARS S. EINARSSONAR
Sólbakka
Bakkafirði.
Þórhalla Jónasdóttir,
Steinar Hilmarsson,
Hilmar Þór Hilmarsson,
tengdadætur og barnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu
HALLDÓRU S. JÓNSDÓTTUR
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
áður til heimilis að
Dalsgerði 3f, Akureyri.
Rannveig Helga Karlsdóttir, Þormóður Helgason,
Einar Karlsson, Sigurjóna Sigurjónsdóttir,
Heiöa Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar, fóstri,
sonur, bróðir, mágur, tengdafaðir, tengda-
sonur og afi
BERGSVEINN AUÐUNSSON
skólastjóri
lést á heimili sínu að Vesturhúsum 14, Rvík
þann 28. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 6. maí kl.
13.30.
Sigríður Ólöf Þóra Sigurðardóttir,
Ingibjörg Bergsveinsdóttir, Hörður Bjarnason,
Auðunn Bergsveinsson,
Jón Ósmann,
Ágúst Ingi Davíðsson,
Inglbjörg Þorbergsdóttir, Auðunn Bergsveinsson,
Guðjón Atli Auðunsson, Jórunn Sigurjónsdóttir,
Haraldur Auðunsson, Sigurbjörg Guttormsdóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Agnes Harðardóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
YNGVI ÖRN AXELSSON
frá Ási,
lést þann 24. apríl á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útför-
in fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 4. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna.
Margrét Nikulásdóttir,
Smári Steingrímsson, Claire Crocott,
Þorvaldur Yngvason, Elínborg Sigvaldadóttir,
Axel J. Yngvason, Birna Snorradóttir,
Kristinn S. Yngvason,
Auður G. Yngvadóttir, Helgi H. Schiöth,
Ásgeir Yngvason, Hildur Óladóttir,
afabörn og langafabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
VILHELM ÞÓRARINSSON,
Svarfaðarbraut 1,
Dalvík,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 24.
apríl, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju mánudaginn 4.
maí kl. 13.30.
Inga Benediktsdóttir,
börn, tengdabörn og sonarsynir.
ÞJÓÐMÁL
Sterkari saman
Ávarp 1. maínefndar
verkalýðsfélaganna á
Akureyri 1998.
I dag 1. maí á hátíðs- og baráttu-
degi verkalýðshreyfingarinnar
komum við saman til að líta yfir
farinn veg. Hveiju hefur barátta
undanfarinna ára skilað okkur?
Við horfum einnig fram á veginn
og veltum fyrir okkur hver næstu
verkefni okkar verða.
Fyrir ári síðan vorum við með
nýjan kjarasamning í höndunum.
Með honum voru vonir bundnar
við aukin kaupmátt og bættan
hag. Jafnvel var talað um að
kaupmáttur gæti aukist um á
annan tug prósenta á samnings-
tímanum. Við spurðum. Gengur
þetta eftir? Svar okkar í dag er já,
en. En af því að kökunni er enn-
þá ójafnt skipt. Þrátt fyrir að
kaupmáttur sé með því hæsta
sem hann hefur verið á þessum
áratug búum við enn við órétt.
Ef tölur og hlutfallstölur eru
skoðaðar er hægt að tala um góð-
æri á Islandi. Landsframleiðsla
jókst um 4,5% á síðasta ári spá
fyrir 1998 er 3,5% aukning. Verð-
bólga er lág. Vextir með þvf Iægs-
ta sem þeir hafa verið. Flest fyrir-
tæki að skila hagnaði í rekstri. Er
þá ekki allt í góðu gengi? Nei það
er það ekki.
Misrétti og spilling
Við búum enn við mikið misrétti
í launamálum. Við höfum séð eitt
dæmi um spillingu sem viðgengst
í íslensku þjófélagi undanfarnar
vikur.
A þessu ári eru 15 ár frá því að
verðbætur voru reiknaðar á Iaun.
Þá voru gefin fyrirheit um að
þegar verðlag hefði náð stöðug-
Frá kröfugöngu verkalýðsfélaganna á
Akureyri.
leika og hann haldist um
nokkurn tíma, mundi verðtrygg-
ing afnumin af lánum. Við þau
fyrirheit hefur enn ekki verið
staðið nema að Iitlu leyti.
Aratugum saman hafa samtök
launafólks krafist strangara
skattaeftirlits. Nokkuð hefur
miðað en þrátt fyrir ágætt starf
Skattrannsóknarstjóra ríkisins og
starfsmanna hans er enn mikið
starf óunnið í eltingaleiknum við
skattsvikara. Samtök launafólks
fordæma harðlega alla svokallaða
„svarta atvinnustarfsemi".
Enn eru húsnæðislán verð-
tryggð þrátt fyrir að verðbólga
hafi verið Iítil undanfarandi 5 ár.
Ekkert þeirra ríkja sem við mið-
um okkur gjarnan við hefur verð-
tryggingu á húsnæðislánum. Nú
er orðið meir en tímabært að
verðtrygging verði afnumin af
húsnæðislánum.
Stjórnvöld hafa ekki staðið við
gefin loforð um að ráðast gegna
atvinnuleysi og stuðla að fjölgun
starfa.
Velferðarkerfið
Heilbrigðis- og velferðarkerfið á
enn undir högg að sækja. Stöðugt
er verið að auka niðurskurð á
þjónustu við sjúka og aldraða.
Samvera foreldra og barna er
besta forvörnin gegn fíkniefna-
neyslu ungs fólks. I ljósi vaxandi
fíkniefnaneyslu er nauðsynlegt
að búa betur að fjölskyldulífi.
Það verður best gert með því að
gera fjölskyldum kleift að lifa
mannsæmandi lífi af dagvinnu-
tekjum. Samtök Iaunafólks hafa
alla tíð gert kröfu til mannsæm-
andi launa fyrir 8 stunda vinnu-
dag. Við skulum vera minnug
þess að alltaf þegar verkalýðs-
hreyfingin er ásökuðu um óbil-
gjarnar kaupkröfur er launafólk
að gera kröfur um mannsæmandi
laun fyrir dagvinnu. Einmitt þá
er verkalýðshreyfingin að gera
kröfu til betra fjölskyldulífs.
Einmitt þá er launafólk að gera
kröfu til meiri samveru foreldra
og barna. Einmitt þá eru atvinnu-
rekendur helsta hindrunin fyrir
betra fjölskyldulífi Iaunafólks.
Samtök launafólks ganga nú
fram undir kjörorðinu: Sterkari
saman. A þessari öld hefur sam-
staða launafólks skilað veruleg-
um árangri við uppbyggingu vel-
ferðarþjóðfélagsins. Þeirri bar-
áttu lýkur aldrei. I umróti sam-
tímans eru sterk öfl að verki sem
vilja feiga þá hugsun sem velferð-
arkerfið er reist á. Þess vegna er
mikilvægt að Iaunafólk standi
vörð og snúi bökum saman í sam-
eiginlegum hagsmunamálum.
Félagar! Stöndum saman. Verj-
um réttindi okkar.
Gegn laimamisrétti
Ávarp fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganua í
Hafnarfirði og Starfs-
manuafélags Hafnar-
fjarðar 1. maí 1998.
Við gerð síðustu kjarasamninga
veturinn 1997 Iögðu verkalýðsfé-
Iögin í Hafnarfirði mikla áherslu
á að hækka Iægstu launataxtana
umfram önnur laun og draga
þannig úr því mikla launamis-
rétti sem ríkir í landinu. Með
samningi við atvinnurekendur,
sem undirritaður var það sama
ár, töldu félögin sig hafa náð að
stærstum hluta fyrrgreindu
markmiði. Stjórnvöld og at-
vinnurekendur lýstu því ítrekað
yfir að lengra yrði ekki gengið,
því fyrirtækin og þjóðarbúið
þyldu ekki meir launahækkanir
en gert væri ráð fyrir í samningn-
um og það sama ætti við um laun
allra annarra hópa Iaunafólks í
l'andinu.
Þessi orð reyndust hjóm eitt.
Stjórnvöld og atvinnurekendur
hirtu ekki um að standa við orð
sín eftir að samið hafði verið við
láglaunafólk heldur sömdu við
önnur stéttarfélög sem á eftir
komu um verulega mikið meiri
Iaunahækkanir. Láglaunafólk
innan ASI fékk að meðaltali um
15% kauphækkun í sinn hlut en
mörg stéttarfélög sem sömdu
síðar fengu verulega meiri hækk-
anir fyrir sitt fólk eða allt upp
undir 30%.
I stað þess að stfga skref fram
á við í átt til Iauna- og Iífskjara-
jöfnunar í landinu situr fólkið
sem vinnur á lægstu töxtunum
eftir og má nú þola meira launa-
misrétti en nokkru sinni fyrr.
Viðhorf stjórnvalda til kjara-
samninga sjómanna hljóta að
vekja upp spurningar um hvort
Iýðræði og frjáls samningsréttur
ríki í Iandinu. Itrekað verða sjó-
menn að sætta sig við að stjórn-
völd og Alþingi grípi inn í kjara-
viðræður þeirra við útgerðar-
menn með lagasetningu. Engin
önnur stétt manna hér á landi
hefur jafnoft og þeir orðið fýrir
því að löggjafinn svipti þá frjáls-
um samningsrétti sínum. Við
vörum Alþingi og stjórnvöld við
svona vinnubrögðum. Þau eru
ólýðræðisleg og gerð til að hygla
útgerðarmönnum á kostnað sjó-
mannastéttarinnar.
Sátt verður ekki á íslenskum
vinnumarkaði meðan Alþingi fót-
um treður frjálsan samningsrétt
stéttarfélaga og friður mun ekki
rfkja meðan atvinnurekendur og
ríkisstjórn hlunnfara viljandi þá
sem Iægstu Iaunin hafa og auka
sífellt Iaunamisréttið í landinu.
Verkalýðsfélögin krefjast þess:
- að stjórnvöld virði frjálsan
samningsrétt launafólks
- að næg atvinna verði fyrir alla
- að fiskvinnslufólk búi við sama
atvinnuöryggi og aðrir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
HÓLMSTEINN S. JÓHANNESSON,
Þorleifsstöðum,
Skagafirði,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 22.
apríl sl., verður jarðsunginn frá Miklabæjarkirkju laugardaginn
2. maí, kl. 14.
Gunnfríður Björnsdóttir,
Inga Björk Hólmsteinsdóttir, Guðmundur Matthíasson,
Margrét Björg Hólmsteinsdóttir, Óskar Halldórsson,
Sigríður Birna Hólmsteinsdóttir, Halldór Helgi Halldórsson,
Þorleifur Benedikt Hólmsteinsson, Jónína Lára Stefánsdóttir,
Hólmfríður Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.