Dagur - 01.05.1998, Side 9
8 - FÖSTUDAGUR 1 . MAÍ 19 9 8
FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1998 - 9
Til sölu
1. Jörðin Gilsfjarðarmúli, Reykhólahreppi,
Austur-Barðastrandarsýslu, jörðin er án
framleiðsluréttar.
2. Gróðrarstöðin, Laufskógar 18, Hveragerði.
Nánari upplýsingar hjá Lánasjóði landbúnaðarins
í síma 525 6430.
Atkvæðagreiðsla utan
kjörfundar
vegna sveitarstjórnakosninga 23. maí 1998 flyst í Fjölbrautaskól-
ann við Ármúla næstkomandi mánudag 4. maí og verður opið þar
alla daga frá kl. 10.00-12.00, 14.00-18.00 og frá 20.00-22.00.
Sími sýslumanns á kjörstaðnum er 588 6607, opinn á sama tíma.
Vinsamlegast athugið að hringja ekki í síma Fjölbrautaskólans.
Sérstakir kjörstaðir verða opnaðir í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi
þann 11. maí og verður nánari tilhögun auglýst síðar.
Kjósendum er bent á að þeir þurfa að gera grein fyrir sér með því
að framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Úthlutun úr forvarnasjóði
Sjóðurinn starfar á grundvelli 8. gr. laga um gjald af áfengi, nr. 96 frá ár-
inu 1995, en þar segir m.a.:
„Af innheimtu gjalds skv. 3. gr. skal 1 % renna í Forvarnasjóð.
Tilgangur sjóðsins skal vera að stuðla að forvörnum gegn
áfengis- og fíkniefnaneyslu. Styrki skal veita úr sjóðnum til
forvarnarstarfa á verkefnagrundvelli."
Bent skal á að verkefni sem stuðla að framgangi stefnu ríkisstjórnarinnar í
áfengis- og fíkniefnamálum, sem samþykkt var hinn 3. desember 1996,
njóta forgangs og einnig að samkvæmt reglugerð um forvarnasjóð skal
sjóðurinn sérstaklega leggja áherslu á að styrkja verkefni sem snúa að
ungmennum og áfengis- og vímuefnavörnum.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið stuðning til áfanga-
heimila.
Árið 1997 ákvað stjórn Forvarnasjóðs að forgangsverkefni til næstu tveg-
gja ára verði:
- Að koma í veg fyrir neyslu barna og unglinga á áfengi og öðrum
vímuefnum og vinna gegn þeim vandamálum sem af neyslunni hljót-
ast.
- Að vinna gegn ofurölvun og vandamálum sem henni tengjast.
Tekið skal fram að verkefni geta hlotið styrk þó þau falli ekki undir for-
gang þann sem að ofan greinir, t.d. verkefni vegna rannsókna, fræðslu og
samkomuhalds.
í umsókn um styrki til verkefna skal greina svo skýrt sem kostur er a.m.k.
eftirfarandi atriði:
- Almenna lýsingu.
- Markmið.
- Framkvæmdaáætlun.
- Hverjir vinni að verkefninu.
- Lýsing á hlutaðeigandi félagsskap.
- Hvernig samstarfi er háttað við aðra aðila.
- ítarleg lýsing á markhópi og vandamálum þeim sem bregðast skal við.
- Með hvaða hætti árangur verður mældur.
- Hvort og þá hvernig verkefnið falli að forgangi þeim sem að ofan grein-
ir.
Að jafnaði skal eigin fjármögnun framkvæmdaaðila og/eða fjármögnun
annars staðar frá nema a.m.k. 60% heildarkostnaðar við framkvæmd
verkefnis.
Styrkir skulu almennt veittir félögum og samtökum en einstaklingar koma
einungis til greina varðandi styrki til rannsóknarverkefna.
Nánari upplýsingar, reglugerð um sjóðinn og vinnureglur sjóðsstjórnar, lig-
gja frammi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,
Reykajvík.
Umsóknarfrestur er til 19. maí 1998.
Umsóknum skal skilað skriflega, merktum:
Forvarnasjóður,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
X^MT_
FRETTASKYRING
Óvissa um nýjan memhluta
SOFFÍA.
SIGUKÐAR
DÓTTIR
Fylgi framboðaima
þriggja sem bjóða
fram í Árborg - nýju
sameinuðu sveitarfé-
lagi á Suðurlandi - er
talið vera nokkuð
jafnt en meiri óvissa
ríkir um hverjir muni
mynda meirihluta að
kosningum loknum.
Flestir spá að Árborgarlistinn,
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk-
ur fái 3 fulltrúa, en meiri spenn-
ingur er um hveijir muni mynda
nýjan meirihluta.
Árborg er nýtt sveitarfélag sem
kosið verður til í fyrsta skipti nú £
vor og mun sveitarfélagið sjálft
verða formlega til um leið og ný
sveitarstjórn tekur völd. í Árborg
eru Selfoss, Sandvíkurhreppur,
Eyrarbakki og Stokkseyri. Selfoss
er Iang stærsta sveitarfélagið og
því ræður pólitíska landslagið þar
mestu um niðurstöðuna í heild.
Ekki hörð harátta
Á Selfossi voru B, D og K listi og
eiga þeir 3 fulltrúa hver. Á
Stokkseyri var svipuð uppstilling,
en á Eyrarbakka voru ekki eins
skýrar flokkslínur á bak við
listana, nema D-listann. I Sand-
víkurhreppi var óhlutbundin
kosning og hefur verið svo mjög
lengi.
Nú verða kosnir 9 fulltrúar í
sveitarstjórn og eru það jafn
margir og voru í Selfossbæ ein-
um. Því eru nú margir að hætta
setu í sveitarstjómum og virðast
allir hverfa þaðan sjálfviljugir og
hefur ekki orðið hörð opinber
barátta um sæti.
Árborgarlistinn er boðinn fram
af sömu öflum og stóðu að K-
Iistanum. Á Stokkseyri er K-listi í
hreinum meirihluta, en kjósend-
ur hans duga ekki einir til að Á-
Iistinn geti náð inn 4. manni.
Erfitt að spá
Framsóknarflokkurinn bauð ekki
fram á Eyrarbakka síðast, en
fylgjendur hans voru á sambræð-
ingslistum. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur boðið fram í öllum þéttbýl-
isstöðunum svo hann þarf ekki að
velkjast í vafa um hvaða fylgi
hann hafi haft. Allir efstu menn
eru nú sitjandi sveitarstjórnar-
menn.
Allir listarnir keppast auðvitað
við að bæta við sig manni og þótt
fylgjendur þeirra séu bjartsýnir
um það, gengur mönnum ver að
spá um hvor hinna missi mann.
Þá lýsa þeir því allir yfir að þeir
gangi óbundnir til þessara kosn-
inga varðandi nýtt meirihluta-
samstarf.
Ekki hráðahirgðalausnir
Kristján Einarsson, bæjarfulltrúi
á Selfossi, er efsti maður á B-lista
Framsóknarflokksins í Árborg
eins og síðast.
- Hverju spáir þú um úrslit kosn-
inganna?
„Eg býst við að B-listinn fái
fjóra núna, en þori ekki að spá
um það hvor hinna listanna missi
mann, vonandi báðir. Þetta verða
spennandi kosningar. B-listinn
vann einn mann síðast og hefur
góðan byr nú. Framsóknarmenn á
Selfossi hafa verið með mjög öfl-
ugt starf. Hér hafa 25-30 manns
komið á mánaðarlega bæjarmála-
fundi fyrir hvern bæjarstjórnar-
fund, allt kjörtímabilið, meðan
slíkt starf hefur ekki verið hjá hin-
um.
- Hverju heldurðu að sameining
sveitarfélaganna breyti um styrk-
leikahlutföll listanna?
„Það eru búin að vera alls kon-
ar samkrull á Eyrarbakka og
Stokkseyri og erfitt að spá um
hvernig það skilar sér á þessa
Iista.“
Engau hroka
- Hvemig heldur þú að til takist að
ná sveitarfélaginu saman í eina
einingu?
„Það tekur sinn tíma og þarf að
fara mjög gætilega. Selfyssingar
þurfa að stíga á rófuna á sér og
gæta þess að vera ekki með hroka.
Hafa þarf þjónustuskrifstofur við
ströndina sem sinni öllum þjón-
ustusviðum. Þegar fram líða
stundir getur þetta breyst eftir því
sem fólkinu fjölgar. Næstu 4 ár
þarf að leggja sig fram um að ná
fram þeirri hugsun að við séum
sameinuð. Það er meginmark-
mið.“
- Hverjar eru helstu fram-
kvæmdir sem B-listinn leggur
áherslu á?
„Það eru menntamálin. Mér líst
vel á nýja menntastefnu með
þarfir nemandans í fyrirrúmi.
Reyna á líka að fá fleiri brautir í
Fjölbrautaskólann.“
Stefna á 4. mann
Ingunn Guðmundsdóttir, bæjar-
fulltrúi á Selfossi, er efsti maður
á D-lista Sjálfstæðisflokksins í Ár-
borg. Hún var í þriðja sæti síðast.
/ Árborg, sem er sveitarfélag sem varð til við sameiningu Selfoss, Sandvíkurhrepps, Eyrarbakka og Stokkseyrar, ríkir meiri spenna um
hverjir muni mynda meirihluta, en um úrsiit kosninganna sjáifra.
Efsti maður listans þá gefur ekki
kost á sér nú og Ingunn sigraði í
prófkjöri innan flokks síns.
- Hverju spáirðu um úrslit kosn-
inganna?
„Sjálfstæðisflokkurinn stefnir á
að ná 4. raanninum inn. Omögu-
legt er að sjá fyrir frá hvorum
hinna hann kemur. Víð höfum
sterka einstaklinga, allir 4 efstu
eru reyndir úr sveitarstjórnum og
góð þekking er á öllum mála-
flokkum hjá 6 efstu. Kyriningin er
rétt að hefjast,"
Hefð fyrir D
- Hefur pólitíska landslagið
breyst?
„Kannski er ekki mikil breyting
á pólitfskri samsetningu. Það er
hefð fyrir D-listum á öllum stöð-
um. Við göngum beint að því
starfi sem fyrir var á svæðunum."
Vantar dvalarheimili
- Hverjar verða helstu fram-
kvæmdir nýs kjörtímabils?
„Helstu framkvæmdir verða í
skóla og Ieikskóla, umhverfismál-
um og fráveitumálum á öllu
svæðinu og ódýrum frístunda-
möguleikum t.d. með reiðleiðum
og útivistarsvæðum. Fjárhagsstað-
an kemur til með að vera sterk
áfram. Sveitarstjórnir eru smám
saman að átta sig á hvaða kostir
fylgja yfirtöku grunnskóla og
möguleika sem þeim fylgja. Mark-
vissara starf verður með nýju
stofnuðu embætti og móta þarf
heildar skólastefnu. Persónulegt
áhugamál mitt er að stuðla að því
að stofna dvalarheimili aldraðra á
Selfossi. Það vantar.“
Óljóst landslag
Sigríður Ólafsdóttir; bæjarfulltrúi
á Selfossi, er efst á Á-lista, Árborg-
arlistanum. Hún skipaði síðast
þriðja sæti á K-lista.
- Hverju spáirðu um úrslit kosn-
inganna?
„Það er óljóst landslag í pólitík-
inni, eftir stækkunina. Við róum
að því öllum árum að halda þrem-
ur og stefna á fjóra, alls ekki færri
en 3. K-Iistar á Stokkseyri og Sel-
fossi voru svipaðir og stuðnings-
menn þeirra virðast styðja vel við
Árborgarli s tann. “
Vel stödd
- Hverju breytir stækkunin fyrir
áherslur frambjóðenda?
„Áherslurnar eru skóli, menntun
og íjölskylda í fyrirrúm. Það á ekki-
að flytja allt á Selfoss, heldur að
gera byggðirnar allar sterkari. Það
tekur tíma að fá fólk til að upplifa
sig sem íbúa sama sveitarfélags.
Við erum félagshyggjuflokkur og
jafnrétti í verki mun koma fram
gagnvart öllum íbúunum jafnt, því
við erum samkvæm sjálfum okkur.
Annars leggjum við áherslu á öll
velferðarmál, ungra fjölskyldna
sem aldraðra. Góð uppeldisskil-
yrði, leikskólar og skóladagvist
eru nauðsynleg til að gera ungum
mæðrum kleift að komast út á
vinnumarkað og greiða þarf niður
þjónustu dagmæðra fyrir börn
undir 18 mánaða aldri. Tóm-
stundaaðstaða verði góð á ódýran
hátt, hjóla-, göngu- og reiðleiðir."
- Hvernig er fjárhagsstaðan og
næstu framkvæmdir?
„Þegar saman eru metnar eignir
og skuldir erum við vel stödd. Að-
halds þarf að gæta, sérstaklega því
að skuldir munu koma við bygg-
ingu skóla og leikskóla. Byggja
þarf nýjan grunnskóla á Selfossi og
leikskóla á Eyrarbakka."
Árborgarlistinn
1. Sigríður Ólafsdóttir, bæjarfulltrúi.
2. Margrét Ingþórsdóttir, bankamaður.
3. Torfi Áskelsson, verkstjóri.
4. Guðjón Sigurjónsson, lögfræðingur.
5. Jóhann Páll Helgason, fangavörður.
6. Guðrún Vignisdóttir, hjúkrunarfræðingur.
7. Guðmundur Lárusson, - Sigríður
form. landssamb. kúabænda. Ólafsdóttir,
8. Ásmundur Sverrir Pálsson, atvinnuráðgjafi. bæjarfulltrúi.
9. Hansína Stefánsdóttir, form. Versl.mannafél. Amessýslu.
10. Ragnheiður Þórarinsdóttir, vaktmaður.
Framsóknarflokkurinn
1. Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri.
2. María Ingibjörg Hauksdóttir, bóndi.
3. Þorvaldur Guðmundsson, kennari.
4. Nanna Bára Maríasdóttir, leiðb.
5. Björn Harðarson, bóndi.
6. Kristinn S. Ásmundsson, rafvirki.
7. Guðjóna Björk Sigurðardóttir, Iögregluþjónn. Kristján
8. Víglundur Guðmundsson, rafvirki. Einarsson,
9. Björg Elísabet Ægisdóttir, fangavörður. slökkviliðsstjóri.
10. Iialldór Gunnarsson, rafeindavirki.
Sjálfstæðisflokkurinn
1. Ingunn Guðmundsdóttir, bankamaður.
2. Björn Gíslason, rakarameistari.
3. Samúel Smári Hreggviðsson, byggingatæknifr.
4. Sigrún Anný Jónasdóttir, gæðastjóri.
5. Sigurður Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri.
6. Jón Sigurðsson, deildarstjóri.
7. Guðrún Erla Gísladóttir, íþróttakennari.
8. Magnús Hlynur Hreiðarsson,
end urmenntunarstj.
9. Þorsteinn Garðar Þorsteinsson, kennari.
10. Þórhallur Ólafsson, aðstoðarmaður dómsm.ráðh.
Ingunn
Guðmundsdóttir,
bankamaður.
Urslit 1994
atkv. fulltr.
Framsóknarflokkur 809 3
Sjálfstæðisflokkur 778 3
Oháðir horgarar 676 3
Meirihlutasamstarf er með Sjálf-
stæðisflokki (D) og Óháðum
borgurum (K).
Stokkseyri - úrslit 1994
atkv. fulltr.
Framsóknarfl. 59 I
Sjálfstæðisllokkur 91 2
Stokkseyrarlistinn 141 4
Eyrarbakki - úrslit 1994
atkv. fulltr.
Sjálfstæðisflokkur 113 2
Lýöræðissinnar 62 I
Ahugamenn um
sveitarsljórnarmál 193 4
1 Sandvíkurhreppi var
óhluthundin kosning.
I leimild: Sveitastjórnarmanntal
Sambands ísl.sveitarfél.
Hverju spáirðu
um kosningamar í
Árborg?
Kristinn Harðarson.
Nýi listinn nær í 4, tekur
einn af B. Sameiningin dreg-
ur vonandi úr hreppapólitík,
það þarf að draga úr návígi
til að auðveldara sé að taka á
sumum málum.
Unnur Jónasdóttir.
Það er spurning hvort af-
staða þeirra fyrir sunnan
breytir einhverjum hlutföll-
um. Líklega verður staðan
óbreytt. Eg er ekki búin að
gera upp hug minn og á eft-
ir að sjá hvaða fólk er í fram-
boði, það ræður valinu.
Sæmundur Ingólfsson.
Eg held að þetta verði svipuð
hlutföll, þrír af hverjum
lista. Á-listamaðurinn er Iík-
lega tæpastur, en ég veit ekki
hvor hinna myndi fella hann
ef til kæmi.
Guðbjörg Bjamadóttir.
Þetta er allt mjög óljóst, en
fyrst þú vilt fá spá: Eg held
að B-listinn bæti við sig á
kostnað D-listans og að
næsti meirihluti verði B og
líklega Á frekar en D.
AKUREYRARBÆR
Halló kennari!
Akureyrarbær leitar að áhugasömum og
metnaðarfullum kennurum í eftirtaldar
stöður skólaárið 1998-1999:
Oddeyrarskóli er einsetinn grunnskóli með 130 nemendur 1 1 .-7. bekk.
Næstu árin verða einnig unglingadeildir í skólanum og að hausti munu
nemendur 8. bekkjar hefja nám við skólann.
Oddeyrarskóla vantar kennara i:
Bekkjarkennslu á miðstigi og raungreinakennslu í 8. bekk.
Stuðnings- og sérkennslu.
íþróttakennslu.
Handmenntakennslu (hlutastarl - smíðar).
Upplýsingar um starfið gefa skólastjórnendur í síma 462-4999.
Síðuskóli er tvísetinn skóli þ.e. tvær bekkjardeildir eru eftir hádegi.
í skólanum eru 600 nemendur 1 1.-10. bekk og eru tvær til þrjár
hliðstæður í hverjum árgangi.
Síðuskóla vantar kennara í:
Almenna bekkjarkennslu í 1 .-5. bekk.
1 stöðu smíðakennslu, 1 stöðu handmenntakennslu,
1 stöðu myndmenntakennslu, 1 stöðu tónmenntakennslu
og hálfa stöðu heimilisfræðikennslu.
1,5 stöðu sérkennslu.
Islenskukennslu og raungreinakennslu í 8.-10. bekk.
Einnig vantar þroskaþjálfa í heila stöðu og námsráðgjafa í hálfa stöðu.
Upplýsingar hjá skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra í síma 462-2588.
I Síðuskóla vantar einnig forstöðumann skólavistunar í 65% stöðu. Upplýsingar
um stöðuna veitir Kristín Kolbeinsdóttir forstöðumaður skólavistunar í símum
462-2588 eða 461-3473.
Brekkuskóli er einsetinn skóli með 700 nemendum í 1.-10. bekk.
Brekkuskóla vantar kennara í:
Almenna bekkjarkennslu í 1. - 10. bekk, (kennslugreinar m.a. stærðfræði,
íslenska og samfélagsgreinar í 8.-10. bekk).
1 stöðu í tölvukennslu (ritvinnslu og tölvufræði) og umsjón með tölvum.
2.5 stöður handmenntakennslu (hannyrðir og smíðar) í 1.-10. bekk.
1.5 stöðu tónmenntakennslu 1 .-7. bekk og forskóla tónlistar í
1. og 2. bekk.
1,5 stöðu heimilisfræðikennslu í 1 .-9. bekk.
1 stöðu í myndmenntakennslu í 5.-10. bekk.
3 stöður sérkennslu (kennarar með framhaldsmenntun í
sérkennslufræðum).
Upplýsingar veita: Sveinbjörn Markús skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjórarnir, Birgir eða Magnús, í síma 462-4241.
Glerárskóli er einsetinn skóli með 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Glerárskóla vantar kennara í:
Almenna bekkjarkennslu.
1 stöðu smíðakennslu, 1 stöðu handmenntakennslu (sauma)
og hálfa stöðu tónmenntakennslu.
1 stöðu íslenskukennslu 1 8.-10. bekk.
2 stöður sérkennslu.
1 stöðu heimilisfræðikennslu (forföll v/ barnsburðarleyfis
í september til febrúar).
Einnig vantar þroskaþjálfa í 3 stöður.
Upplýsingar hjá skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í síma 461-2666.
Giljaskóli er skóli í mótun í nýju húsnæði. Næstkomandi skólaár verður kennt
í 1.-5. bekk og í sérdeild. Nemendafjöldi er um 150. Óskað er eftir metnaðar-
fullu starfsfólki sem vill taka þátt í uppbyggingarstarfi 1 skóla fyrir alla.
Giljaskóla vantar kennara í:
Almenna bekkjarkennslu í 1. bekk.
Stuðningskennslu í bekk.
Einnig bókasafnskennara í hálfa stöðu.
Upplýsingar gefa skólastjórnendur í síma 462-4820.
Lundarskóli er einsetinn skóli með um 350 nemendur í 1.-7. bekk
en mun á næstu árum fjölga í u.þ.b. 480 nemendur þar sem bætast
við 8., 9. og 10. bekkur. Sérstaklega er því auglýst eftir kennurum sem
áhuga hafa á að taka þátt í þessari breytingu.
Á næsta skólaári verður hugað sérstaklega að tungumálum, raungreinum og
tölvukennslu.
Lundarskóla vantar kennara í:
Almenna kennslu í 4.-8. bekk.
2 stöður sérkennslu.
2 stöður handmenntakennslu (saumar og smíðar),
hálfa stöðu heimilisfræðikennslu og hálfa stöðu tónmenntakennslu.
Upplýsingar gefa skólastjórar í síma 462-4888.
Einnig veitir starfsmannadeild Akureyrarbæjar
upplýsingar í síma 462 1000.
Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar, Geislagötu 9 á
eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 22. maí 1998.
Starfsmannastjóri.