Dagur - 01.05.1998, Qupperneq 4
20 - FÖSTUDAGUR l.MAÍ 1998
Leikfélag
Akureyrar
Söngvaseiður
The Sound of Music
eftir Ricliard Rodgcrs og Oscar
Hammerstein II,
sýn. föst. 1. maí kl. 20.30
UPPSELT
sýn. laug. 2. inaí kl. 20.30
UPPSELT
sýn. sunnud. 3. maí kl. 16.00
laus sæti
sýn. föst. 8. maí kl. 20.30
laus sæti
sýn. laug. 9. maí kl. 20.30
UPPSELT
sýn. sun. 10. maí kl. 16.00
sýn. föst. 15. inaí kl. 20.30
sýn. laug. 16. maí kl. 20.30
UPPSELT
sýn. miö. 20. maí kl. 20.30
sýn. fimm. 21. maí kl. 20.30
sýn. laug. 23. maí kl. 20.30
sýn. suim. 24. maf kl. 20.30
Síðustu sýniiigar
„Saltið er gott. en ef saltið missir selt-
una. með hverju viljið þér þá krydda
það? llafið salt í sjálfum yður, og hald-
ið frið yðar á milli. “ 9. 50.
Markúsar-
guðspjall
Einleikur Aóalsteiiis Bergdal.
á Renniverkstæðinu.
Lýsing: Ingvar Bjönisson.
Leikmynd: Manfred Lcmke.
Leikstjóm: Trausti Ólafsson.
sýn. fimmt. 7. maí kl. 20.30
sýn. fimmt. 14. maí kl. 20.30
sýn. sunn. 17. maí kl. 17.00
síðustu sýningar á Akureyri
í BústaóaMrkju í Reykjavík
31.maikl. 20.30
ogl.júníkl. 20.30
Gjafakort á Markúsarguðspjall
tilvalin fermingargjöf
Landsbanki íslands veitir
handhöfum gull-debetkorla
25% afslátt.
Miðasalan cropin þriðjud.nninilud.
kl. 13 17, föstud.-sunnud.
fram aö sýnlngu.
Símsvari allan sólarhringinn.
Munið pakkaferðiniar.
Stmi 462 1400
cr styrktaraðih Lcikféiags Akurcyrar
MENNINGARLtFIÐ í LANDINU
bóka 1
Elias Snæland
Jónsson
ritstjóri
HILLAN
Hetjaán
höfundar
Brennu-Njálssaga hefur Iöngum
verið Islendingum kær. Þótt
væntanlega sé af sú tíð að al-
þýðumenn geti mælt heilu kafl-
ana af munni fram í kaffitímum,
vekur sagan enn forvitni og
áhuga auk þess sem hún er sem
fyrr flaggskip íslenskra bók-
mennta. Nægir að minna á mikla
aðsókn að námskeiðum, þar sem
Njála er krufin til mergjar, tíðar
endurútgáfur hin síðari ár og sí-
kvikar deilur um einstök atvik og
persónur sögunnar. Að ólgeymdri
leitinni endalausu að hinum eina
sanna höfundi.
„Jafnvel vísindamenn hefur
hún gert að börnum," segir Einar
Olafur Sveinsson í riti sínu „Á
Njálsbúð" um áhrif Njálu á Is-
lendinga. Það eru orð að sönnu.
Fornsögurnar hafa almennt haft
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
Grandavegur 7
- Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson
og Sigríður M. Guðmundsd.
í kvöld föd. nokkur sæti laus -
Id. 9/5 - Id. 16/5 næstsíðasta
sýning - sud. 24/5 síðasta sýn-
ing.
Óskastjarnan
eftir Birgi Sigurðsson
8. sýn. sud. 3/5 örfá sæti laus
- 9. sýn. sud. 10/5 örfá sæti
laus - 10. sýn. fid. 14/5 nokkur
sæti laus - 11. sýn. Id. 23/5 -
12. sýn. mvd. 27/5.
Fiðlarinn á þakinu-
Boch/Stein/Harnick
Á morgun Id. - föd. 8/5 - föd.
29/5.
Ath. aðeins fimm sýningar eftir.
Meiri gauragangur
Ólafur Haukur Símonarson
Fid. 7/5 - föd. 15/5 næstsíðas-
ta sýning - fid. 28/5 síðasta
sýning.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.00
Poppkorn - Ben Elton
Sud. 3/5 - sud. 10/5 - föd.
15/5 - sud. 17/5.
Ath. sýningin er
ekki við hæfi barna.
Litla sviðið kl. 20.30
Gamansami harm-
leikurinn
- Eve Bonfanti og
Yves Hundstad.
[ kvöld föd. uppselt - sud. 3/5
uppselt - Id. 9/5 uppselt - sud.
10/5 uppselt - fid. 14/5
uppselt - Id. 16/5 uppselt.
Miðasalan er opin mánud.-
þriðjud. 13-18, miðvikud.-sun-
nud. 13-20. Símapantanir frá
kl. 10 virka daga.
gífurleg áhrif á hugarheim og
gjörðir landans, eins og gjörla má
lesa um í „Hetjan og höfundur-
inn“ - nýrri bráðskemmtilegri
bók eftir Jón Karl Helgason.
Segja má að hér fari hann í fót-
spor Matthíasar Jóhannessen
sem greindi áhrif sögunnar á ís-
lenskar bókmenntir í „Njála í ís-
lenzkum skáldskap." Svið Jóns
Karls er hins vegar víðtækara:
bók hans er eiginlega úttekt á
Njálu í íslensku þjóðlífi, einkum
á þessari öld. Þar koma margar
persónur og leikendur við sögu,
þótt tvær „hetjur" ráði einkum
ríkjum; sagan sjálf og skáld þess-
arar aldar á íslandi, Halldór Kilj-
an Laxness.
Hatrömm átök
Jón Karl rekur ítarlega í bók sinni
hvernig afstaða fræðimanna til
Njálu og annarra fornsagna hef-
ur breyst í tímans rás. Átökin
hafa gjarnan verið á milli þeirra
sem töldu sögurnar sannan vitn-
isburð um forna frægð og hinna
sem litu fyrst og fremst á til
dæmis Njálu sem glæsilegt bók-
menntaverk.
En hann fjallar líka skilmerki-
lega um afstöðu almennings til
Islendingasagna, riQar upp sér-
kennilegt framlag spíritista til
málsins og gefur skemmtilega
innsýn í þær hatrömmu pólitísku
deilur sem urðu á fyrri hluta ald-
arinnar um hver mætti gefa forn-
sögurnar út og hvernig. Þar tók-
ust andstæðar stjórnmálafylking-
ar í reynd á um hver „ætti“ bók-
menntaarfinn. I því drama, sem
Jón Karl færir hér í leikritsform,
fóru fjandvinirnir Halldór Kiljan
Laxness og Jónas Jónsson frá
Hriflu með aðalhlutverkin.
Eitt eftirminnilegasta og umdeiidasta
atvikið í Njáissögu: Hallgerður hús-
freyja á Hlíðarenda launar Gunnari
manni sínum kinnhestinn.
Hver er höfunduriim?
Eins og fram kemur í nafni bókar-
innar veltir Jón Karl mjög fyrir sér
breyttum hlutverkum hetjunnar
og höfundarins í tímans rás. Þar
vekur margt til umhugsunar.
íslendingasögur eru fyrst og
fremst óður til mikilla hetja sem
drápu mann og annan, aðallega
sjálfum sér til heiðurs. Höfundar
sagnanna létu hins vegar hvergi
nafna sinna getið.
Á síðari tímum hafa margir
orðið til að ýta hetjunni af stalli,
jafnvel sjálfum Gunnari á Hlíð-
arenda. Samtimis hefur höfund-
urinn í vaxandi mæli fengið
hetjuhlutverk í samfélaginu -
samanber Nóbelsskáldið.
Jón Karl lýsir því yfir á einum
stað að í fermingarveislum svari
hann því gjarnan til að Einar
Olafur Sveinsson sé höfundur
Njálu. Sú fræðilega útgáfa á sög-
unni sem Einar annaðist á sjötta
áratugnum hafi í raun þjónað
hlutverki frumtexta Njálssögu
allar götur síðan (bls. 220). Þann
texta er einfaldlega ekki að finna
í einu handriti frá fyrri öldum.
Slík viðhorf fullnægja að sjálf-
sögðu ekki þeim sem leita að
höfundi Njálu, enda fela þau í
reynd í sér þá skoðun að það sé
enginn einn höfundur Njálu til:
þeir séu margir og hafi átt við
söguna á ýmsum tímum.
Þrátt fyrir líkurnar á að þetta
sé rétt er það von margra að við
ritun Njálu hafi einn snillingur
ráðið mestu. Einhver einn maður
hafi búið til úr eldri heimildum
þetta snilldarverk á sama hátt og
ýmsir snjallir höfundar þessarar
aldar hafa samið sögulegar skáld-
sögur upp úr margvíslegum rit-
uðum heimildum.
Slíkar pælingar breyta hins
vegar engu um mikilfengleika
verksins. Njálssaga er sjálf mesta
hetja íslenskrar bókmenntasögu
og þarf engan höfund til.
Hátíðarhöld
verkalýðsfélaganna
á Akureyri
1. maí 1998
13.30 Safnast saman við Alþýðuhúsið.
14.00 Lagt upp í kröfugöngu undir leik Lúðrasveitar Akureyrar.
Hátíðardagskrá í Alþýðuhúsinu að lokinni kröfugöngu.
Ávarp 1. maí nefndar: Guðmundur Ómar Guðmundsson form. FBE.
Aðalræða dagsins: Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ.
Ávarp: Jóna Steinbergsdóttir formaður FVSA.
Fjölbreytt skemmtidagskrá:
Gunnar TVyggvason og Herdís Ármannsdóttir.
Kórfélagar úr Tónlistarskóla Akureyrar.
Stúlknatríó úr MA tekur lagið
og verður með atriði fyrir börnin.
Kaffiveitingar í tilefni dagsins
1. maí merki og pennar verða seldir í tilefni dagsins
Dansleikur verður haldinn um kvöldið frá kl. 22.00 til 03.00
Frænka hreppstjórans sér um fjöriö,
Aðgangur ókeypis.
STARFSMANNAFÉLAG
AKUREYRARBÆJAR
NOHOORLANOS
VYÆW
VEHKSTIORAFÉXAG
AKUREYRAR OG
NAGRENNIS