Dagur - 01.05.1998, Page 7

Dagur - 01.05.1998, Page 7
FÖSTVDAGUR T. MAt 1'9V 8 - 23 Fórnarbakkar í vegkantinum. Venjulegur sjoppueigandi leitar eftir samstillingu alls sem er með því að gleðja guðina. Matur Athafnamaður í sveitinni hefur sett upp litla þjónustumiðstöð þar sem fegðurðin er mest. Við akrana standa ekki ósnotur smá- hýsi sem hann leigir, en þar sem vegurinn hlykkjast, er veitinga- staður með verönd þar sem er eitthvert feg- ursta útsýni á jörð. Allt er fullkomið, alveg eins og beint frá skaparanum eins og hann hefði viljað hafa það ef hann væri póst- kortasali. Hrís- grjónastallar, smátjarnir, blómskrúð, pálmar við sjónarrönd, gaukar sem gala, veifur sem hjala við vind sem Iætur allt bærast und- urhægt. Svo kemur silfur- regn af himni: gróðr- arskúr sem ekki sést í sólinni en birtist sem þétt glitrandi net í forsælu trjánna. Froskur dirf- ist að ropa, en hann á þetta land líka. Hér ber þjónninn brosmildi fram steikt kjöt á teini, grjón og kjúkling í karrísósu og bjór og ís og ávexti og biður um - kannski sex hundruð krónur. Kaffí inni- falið meðan næsti skúr gekk yfír. Nudd Regnpollar gufa fljótt upp af malbikinu. Ubud heitir smábær- inn sem hefur umlukið næstu listamannaþorp og skartar einna mestu aðdráttarafli þeirra staða sem saman mynda „hjarta Bali“. Skrftið: þetta fólk sem byggir smáeyju á hinu hlýja og gjöfula Indlandshafi er meira fyrir fjöll- in. Eldspúandi fjöllin inn til Iandsins. Öll rúm snúa höfða- laginu til eldfjallsins helga. Þar býr sköpunarkrafturinn. Hér í fjalllendinu og aðliggjandi hæð- um nær menningarlífið hámarki meðan strandbæirnir eru sódómur og gómorrur ferða- þjónustu. I Ubud er höll á horn- inu hjá stóra markaðnum og við aðalgötuna fínir veitingastaðir sem bjóða sætabrauð og reykta önd við Iótustjörn - eða hvað- eina - en í hallargarðinum eru hinir sérstæðu balísku dansar iðkaðir á kvöldin við undirleik ásláttarsveita. Dansmeyjarnar á glitbúningum leika átök góðs og ills og hver handarhreyfing er þrungin merkingu eins og hjá skurðlækni, liðamótalausar Iendar sveiflast og hálsinn eins og slanga - en skemmtilegast að horfa á kotroskinn svipinn meyj- anna undir gylltum kórónum meðan þær blimskakka augum í takt við dansinn - allt eftir sett- um reglum sem aldavenja hefur slípað í form. Síðdegis er þorpið frekar latt eftir 34 stiga hita í hádeginu, en þó ekki svo að ekki megi særa Hard Rock Bali: það eina sem er hart á Bali? Og það eina sem er Ijótt á Bali? Hundarnir, þessi heldur vörð um heimiHs-búddann. fram nuddkonur og sveina til að bera olíur á skrokka gönguhrólfa og taka auma vöðva föstum tök- um áður en slakað er á í eim- baði. A meðan nær undirbún- ingur kvöldmáltíðar heima hjá Ketut gestgjafa hámarki. Hann byrjaði í gær að undirbúa hlað- borðsveislu á baiíska vísu fyrir ferðamenn. I morgun þeg- ar hanarnir hófu upp raust var hann á fullu með konu sinni að blanda kryddin tólf í hinar ýmsu kássur, og síðdegis var hann búinn að grafa önd í bananahýði til að reykja við logandi kol. Þegar skyggir koma forvitnir ferðalangar sem lesið hafa um þessa viku- legu veislu, þeir setjast að langborði og borga 350 krónur á mann með- an Ketut út- skýrir rétt- ina. I.ífið er eilíft Hér er eng- inn dauði. Aðeins eilíf hringrás. Þegar fólk deyr skiptir miklu að halda veg- lega bálför og gleðjast yfir því að sá sem manni þykir vænt um skuli hafa losað sig við þetta hulstur um sálina sem líkaminn er. Presturinn heldur athöfn þar sem andi hins framliðna er sett- ur í kókoshnetu og hún borin með virðingu í fjölskylduhofið. Hringrásin er eilif. Börnin koma til að njóta ástar og umhyggju þvíþeirra er að sjá þeim öldnu farborða siðar, og gera bálförina virðulega svo sá sem deyr fái sameinast öndum forfeðranna i heimilishofinu. Þar eru andar allra forfeðra Ketuts gestgjafa nú. Páskadags- máltíðin hefst. Önd, svínafita, kjöt á teini, kartöflur í olíu, egg, grænmeti, gijón. Guðalíkneskin í íjöskylduhofinu eru runnin saman við myrkrið. Sem er fullt af friði - og forfeðrum. Bali er barnaeyjan. Allt snýst um börnin og undarlegt hve þau eru prúð og frjá/s- leg og laus við arg, þras og læti. Og brosið erfa þau... Lifsbaráttan hefur sinn gang i uppvaski hjá lítilli testofu og bóndinn gengur til akra með sigð i hönd. „Engar vélar, “ sagði hann. i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.