Dagur - 01.05.1998, Qupperneq 13
F Ö S TU D AGU R 1 . MAÍ 19 9 8 - 29
1,25 dl þurrt sérrí
1 Á tsk. óreganó
salt og pipar
tómatur, sneiddur
125 g fetaostur, mulinn
30 g smjör
Blandið kjöti saman við olíuna,
hvítlauk, sítrónusafa, lauk,
sérríi, óreganó, salti og pipar.
Penslið 4 arkir af álpappfr með
olíu og skiptið kjörblöndunni á
arkirnar, setjið tómatsneið ofan
á kjötið í hverjum pakka, ostinn
á tómatinn og stráið svo ögn af
óreganó yfir, setjið smjörklípur
efst. Brjótið pappírinn vandlega
saman því ekkert má leka út.
Bakið við 200°C hita í eina klst.
Berið fram með brauði og salati.
Linda Barbara Björnsson er eiginkona
Jakobs Björnssonar bæjarstjóra sem
jafnframt er efsti maður á lista Fram-
sóknarflokksins.
Jurtakryddað
lambalæri
2 -2Á kg lambalæri
1 tsk. salt
2 tsk. provencekryddblanda
1 -2 dl rauðvín
fylling:
1 búnt af steinselju
1 tsk. óreganó
1 tsk. provencekryddblanda
2 hvítlauksrif
1 tsk. salt
'A tsk. svartur pipar
Lærið er úrbeinað, fitan hreins-
uð og fyllingin hrærð saman.
Hún fer síðan ofan á kjötið, sem
vafið er saman og bundið
þannig að hún sé inni í hálf-
gerðri rúllu. Kjötið er kryddað
að utan, sett í 175°C heitan ofn
í um 50 mín. Rauðvíni ausið
yfir annað slagið. Látið bíða í 15
mín. áður en rúllan er skorin.
Soðið af kjötinu er síðan notað í
sósuna.
Með lærinu er gott að hafa
soðnar gulrætur, mýktan lauk og
soðnar kartöflur sem eru skorn-
ar í skífur. Þetta er allt steikt
létt á pönnu í smjöri og kryddað
með salti og pipar. Látið malla
aðeins undir Ioki áður en það er
borið fram.
Súkkulaðikaka með
möndlubotni
botn:
300 g kransakökumassi
4 egg
súkkulaðimús:
Á dl kakó
1 dl sykur
2 tsk. vanillusykur
250 g kotasæla
1 'á dl rjómi
Á dl ristaðar möndluflögur
sykur
Kransakökumassinn er rifinn
niður í matvinnsluvél, eggin sett
saman við hann og allt hrært vel
saman. Smjörpappír er klipptur
í kökuform, massinn settur í
formið og bakaður á 175°C hita
í um 30 mín.
Þegar fyllingin er gerð eru
möndluflögurnar ristaðar á
pönnu. Kotasæla er sett í mat-
vinnsluvél, kakói, sykri og
vanillusykri blandað saman við
og allt hrært vel. Þá er rjóminn
hrærður og settur varlega út í
kotasælublönduna.
Botninn er kældur vel áður
en súkkulaðimúsin fer ofan á
hann og möndluflögum stráð
yfir.
77
hvað er Bill Gates
iainh
eigmiega rmur
hur?
U
www.fjolnet.is/svarid
Smelltu þér á netiö
islan
islandia
internet
Einstaklingsþjónusta
11 1 §U II 9 1111 9
hreinsum lóðina
s m
l\iú er vetur úr bæ og ruslið úr görðunum á að fara sömu leið.
Tökum höndum saman með hækkandi sól og fegrum lóðirnar
okkar fyrir sumarið.
Eins og undanfarin ár leggjum við okkar af mörkum og
verðum með sérstaka hreinsunardaga frá laugardeginum
2. maí til sunnudagsins 10. maí. Þessa daga fara
borgarstarfsmenn um hverfin og hirðafulla ruslapoka.
Pokar verða afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra.
Þeim sem þurfa að losa sig við annað en garðaúrgang er bent á
endurvinnslustöðvar Sorpu.
Atak í §öfnun
Spilliefna
Sumartími endurvinnslustöðva Sorpu hefst laugardaginn 2.
Þá er opið þar alla daga frá kl. 12:30 til 21:00.
Endurvinnslustöðvarnar í Reykjavík eru á fjórum stöðum:
Við Ánanaust gegnt Mýrargötu.
Við Sævarhöfða gegnt malbikunarstöðinni.
Við Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Við Jafnasel í Breiðholti.
mai.
Látum ekki spilliefni safnast saman í heimahúsum, geymslum
eða á lóðum. Notum nú tækifærið, gerum hreint fyrir okkar
dyrum og komum hættulegum efnum í öruggar hendur.
Borgaryfirvöld, í samvinnu við spilliefnanefnd, standa fyrir
móttöku spilliefna laugardagana 2. og 9. maí á eftirtöldum
stöðum:
Skeljungur v/Birkimel og Hraunbæ.
Olís v/Álfabakka, Gullinbrú, Álfheima og
Sæbraut/Kleppsveg.
Esso v/Stóragerði.
Endurvinnslustöðvar Sorpu.
Skorað er á forráðamenn fyrirtækja að taka til á lóðum sínum.
Fyrir stóra og fyrirferðarmikla hluti er bent á Geymslusvæðið
í Hafnarfirði, sem hreinsunardeild gatnamálastjóra leigir út.
Við tökum pokann þinn
Verum samtaka í söfnun spilliefna.
Sýnun*
viiSfií*nHÍ í veH°
Borgarstjórinn í Reykjavík
-hreinsunardeild gatnamálastjóra
E. Backman Auglýsingastofa