Dagur - 05.05.1998, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR S. MAÍ 19 9 8 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Sani Abacha hershöfðingi, yfirmaður herstjórnarinnar í Nígeriu. Mörgum finnst hann hafa gengið of langt með þvi að tryggja
sér forsetaembætti landsins eftir að herstjórnin iætur af vöidum síðar á árinu.
Abadta storkar
örlögimuin
Fréttaskýrendur telja
allar likur á því að
stutt sé í blóðug átök
í Nígeríu.
I október á þessu ári á borgaraleg
stjórn að taka við völdum af her-
stjórninni sem stjórnað hefur
Nígeríu, fjölmennasta ríki Afr-
íku, undanfarin ár.
Tvær síðustu helgar hafa þó
ekki boðað góð tíðindi fyrir þá
sem vonast til þess að komist
verði hjá alvarlegum átökum í
tengslum við stjórnarskiptin.
Þann 25. apríl hunsaði stór
hluti Nígeríubúa kosningar sem
áttu að veita Sani Abacha hers-
höfðingja stuðning til þess að
vera áfram við völd eftir stjórnar-
skiptin. Þess í stað sýndu lands-
menn ótvírætt fram á óvinsældir
Abacha með dræmri kosninga-
þátttöku. Og nú um helgina létu
sömuleiðis fáir sjá sig í friðsam-
legum mótmælaaðgerðum, sem
baráttuhópar fyrir lýðræði boð-
uðu til í því skyni að neyða
Abacha til þess að láta af völd-
um.
Lítið varð úr friðsamlegum
fjöldamótmælum. Þess í stað
brutust út óeirðir í Ibadan, næst
stærstu borg Nígeríu, og lágu sjö
manns í valnum að þeim lokn-
um. Svo virðist sem Ieiðtogar
stjórnarandstöðunnar njóti álíka
lítillar virðingar meðal Nígeríu-
búa og Abacha hershöfðingi.
Efaahagurinn í rúst
Abacha heldur völdum sínum
með því að beita af fullri hörku
bæði her og lögreglu. Enginn
trúverðugur stjórnarandstöðu-
hópur hefur skotið upp kollin-
um. Og efnahagur landsins er á
hraðri niðurleið vegna orku-
skorts. Fréttaskýrendur, bæði
innlendir sem erlendir, segja að
þetta valdi því að allt stefni í
blóðugar óeirðir sem gætu grafið
undan stöðugleika og aukið enn
frekar á fátækt víða í nágranna-
ríkjum Nígeríu.
Spennan jókst verulega í síð-
asta mánuði þegar aðstoðar-
mönnum Abachas tókst að koma
því svo fyrir að hann yrði eini
frambjóðandinn til forsetaemb-
ættis í borgaralegri stjórn sem
meiningin er að taki við af her-
stjórninni í október. Þar með
voru að engu gerðar vonir Níger-
íubúa um friðsamlega stjórn-
málabaráttu í Iandinu, og telja
fréttaskýrendur að með því hafi
Abacha aukið verulega hættuna
á því að til ofbeldis verði gripið.
Svartar liorfor
„Það sem Nígería þarf á að halda
eru bænir, fullt af bænum. Við
erum komin á það stig núna,“
sagði Stephen Olugbemi, prófess-
or í stjómmálafræði við háskólann
í Lagos, höfuðborg Nígeríu.
Fréttaskýrendum ber þó ekki
saman um hve Iangt eða skammt
sé í að Nígería steypist fram af
brúninni. Ríkisstjórnin hefur boð-
að til kosninga þann 1. ágúst til
þess að fá staðfestingu á áfram-
haldandi setu Abachas í embætti
þjóðarleiðtoga. „Eg er ekki viss
um að okkur takist einu sinni að
halda það út fram í ágúst,“ sagði
einn stjórnarerindreki sem dvelst í
Nígeríu. Allt verði Iogandi í of-
beldi áður en hægt verði að halda
þær kosningar.
„Fg hef miklar áhyggjur," sagði
annar sendiherra, en bætti því þó
við að ómögulegt sé að segja
hversu lengi stjórnin geti haldið í
horfinu áður en allt springur.
SpiUingin verri en nokkru
sinni
Abacha hrifsaði til sín völdin fyr-
ir rúmlega fjórum árum, og
versnandi efnahagur er farinn að
reyna verulega á taugarnar í Níg-
eríubúum. Spilling hefur alltaf
verið viðloðandi í Nfgeríu, en er
nú verri en nokkru sinni. Þótt
Nígería hafi yfir að ráða miklum
auðlindum - fullt af olíu og góðu
ræktarlandi - þá er ástandið
þannig að landsbúar geta hvorki
aflað sér nægilega mikils af mat-
vælum né eldsneyti til eigin
þarfa.
Fjölmargar verksmiðjur og fyr-
irtæki hafa hætt starfsemi. Vest-
rænn hagfræðingur gat sér til um
að atvinnuleysi í landinu gæti
verið milli 25 til 30 prósent. I
höfuðborginni, Lagos, má sjá at-
vinnulausa Nígeríubúa grípa til
nánast hvaða ráða sem er til þess
að sjá sér farborða - þeir setja
upp heilu veitingahúsin, viðgerð-
arverkstæðin, barnaheimilin og
rakarastofurnar á gangstéttar-
brúninni. Margir halda því fram
að þessi slítandi barátta fyrir Iífs-
ríðurværi sé ein ástæðan fyrir því
hversu seinir Iandsbúar hafa ver-
ið til þess að andæfa ríkisstjórn-
inni sem þeir eru andvígir.
En undir niðri ólga alls konar
hagsmunaárekstrar í Nígeríu,
sem flestir hveijir snúast á einn
eða annan hátt um völd eða pen-
inga, og verða æ oftar kveikjan að
blóðugum átökum líkt og gerðist
á föstudaginn í Ibadan.
Enda þótt myndast hafi í Níg-
eríu nokkuð sterk hefð fyrir borg-
aralegu samfélagi og menntastétt
sé vaxandi þá er enginn leiðtogi
til staðar sem hefur nægilega
breiðan stuðning til þess að veita
Abacha mótvægi.
Ut um allt land er algengt að
til átaka komi milli nágranna-
hópa út af landadeilum eða
stjórn sveitarfélaga. Stuðnings-
menn Abacha segja að hann sé
eini maðurinn sem hefur nægan
styrk til þess að halda aftur af
slíkum átökum.
Einn stjórnarerindreki segir
hættu á að smærri átök af þessu
tagi geti breiðst út og hrundið af
stað valdaráni háttsettra yngri yf-
irmanna i hernum, sem ekki hafa
enn fengið sinn hlut í valdaspill-
ingunni sem gert hefur eldri her-
foringjana að auðugum mönn-
um.
Umdeilt upphaf mynthaudalagsms
EVRÓPUSAMBANDIÐ - Jose Maria Gil-Robles, Troseti Evrópu-
þingsins, sagði það vera slæma byijun á myntbandalaginu að samið
hafi verið um að fyrsti bankastjóri nýja seðlabankans, Hollendingur-
inn Wim Duisenberg, láti af störfum eftir fjögur ár til þess að hleypa
Jean-CIaude Trichet, núverandi seðlabankastjóra Frakldands, að. En
um helgina var samþykkt að 11 ríki taki þátt í myntbandalaginu til að
byrja með. Seðlabankinn tekur til starfa þann 1. júlí nk. og nýja
myntin, evróið, hefur göngu sína um næstu áramót. I stofnsáttmála
myntbandalagsins er skýrt tekið fram að seðlabankastjórinn eigi að
sitja í átta ár án undantekninga.
Friðarviðræður í London
BRETLAND - Jasser Arafat, forseti
Palestínumanna, og Benjamín Netanja-
hu, forseti Israels, voru í London í gær
þar sem þeir áttu - hvor í sínu lagi - fund
með Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Fyrr um daginn
hittu þeir - einnig hvor í sínu Iagi - Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, að
máli. Viðræðurnar voru haldnar að boði
Tony Blairs í því skyni að reyna að
hleypa nýju blóði í friðarferlið. Ekki var
þó búist við miklum árangri af fundun-
um, enda eru Israelsmenn nýbúnir að
hafna tillögum Bandaríkjamanna um
brottflutning frá frekari Iandsvæðum á
Vesturbakkanum.
Bensínþurrð í Danmörku
DANMÖRK - Ekki náðist samkomulag í verkfallsdeilunni í Dan-
mörku um helgina, en samningaviðræður halda samt áfram þótt ekki
hafi verið að heyra neinn sáttatón í fulltrúum vinnuveitenda né laun-
þega. Bensín var nánast á þrotum í gær og í dag, þriðjudag, verður
meirihluta verslana í landinu lokað vegna verkbanns atvinnurekenda
ef ekki verður búið að ná samkomulagi. Hugsanlegt var einnig talið
að ríkisstjórnin gripi inn í deiluna og setti Iög sem binda enda á verk-
fallið.
Sprengja faunst í Belfast
NORÐUR-IRLAND - Lögreglan í Belfast fann í gærmorgun
sprengju og var hún gerð óvirk áður en hún sprakk. Hafði sprengj-
unni verið komið fyrir nærri þeirri Ieið sem hlauparar í Belfast-mara-
þonhlaupinu áttu að fara síðar um daginn. Næsta nágrenni var iok-
að um brfð meðan gengið var úr skugga um að ekki væru fleiri
sprengjur.
Námuverkamenn í verkfalli
ÚKRAÍNA - Námuverkamenn í Úkraínu eru komnir í verkfall og
liggur öll starfsemi í 30 námum um land allt niðri. Þeir hafa mátt
bíða í tíu mánuði eftir þ\'í að fá greidd launin sín, en ríkisstjórnin
hefur árum saman reynt að halda halla á ríkissjóði niðri með því að
draga Iaunagreiðslur.
Sýslumaðurinn á Ákureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri,
s. 462 6900.
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Ak-
ureyri, sem hér segir á eftirfarandi
eignum:
Gránufélagsgata 46, hl. 01-01-02, Ak-
ureyri, þingl. eig. Ketill Guðmundsson,
gerðarbeiðandi Fjárfestingarbanki at-
vinnul. hf., föstudaginn 8. maí 1998 kl.
10.00.
Hafnarstræti 86, íb. 01-02-01, Akur-
eyri, þingl. eig. Guðmundur Ármann
Sigurjónsson og Hildur María Hans-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður
ríkisins, föstudaginn 8. maí 1998 kl.
10.00.
Hólar, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Njáll
Kristjánsson og Halla Svanlaugsdóttir,
gerðarbeiðendur Eyjafjarðarsveit og
Stofnlánadeild landbúnaðarins, föstu-
daginn 8. maí 1998 kl. 10.00.
Móasíða 1, verslun I, Akureyri, þingl.
eig. Leikráð ehf., gerðarbeiðendur
Bílanaust hf., Landsbanki íslands,
Sýslumaðurinn á Akureyri og Vátrygg-
ingafélag íslands hf., föstudaginn 8.
maí 1998 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
4. maí 1998.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Vísbending
Lestu blaðið ogtaktuþdtt íleiknum!
550 oooo
Þú grciðir cklert umfram venjulegt símtal
- The Washington Post