Dagur - 16.05.1998, Síða 4
1
*i - ave 1 . i .01 i ií 'itna;. -11 r, .1
20 - LAUGARDAGUR 16. MAI 1998
Leikfélag
Akureyrar
Söngvaseiður
The Sound of Music
eftir Ricliard Rodgers og Oscar
Hammerstcin II,
sýn. laug. lö.maíkl. 20.30
UPPSELT
sýn. mió. 20. maí kl. 20.30
sýn. fimm. 21. mai kl. 20.30
sýn. laug. 23. maí kl. 20.30
sýn. smm. 24. maí kl. 20.30
Allra síðustu
sýningar
»Saltið er gott, en ef saltið missir selt-
una, með hverju viljið þér þá krydda
það? llafið salt í sjálfum yður, og hald-
ið frið yðar á milli." 9. 50.
Markúsar-
guðspjall
Einleikur Aðalsteins Bergdal.
á Renniverkstæöinu.
Lýsing: Ingvar Bjömsson.
Iæikmynd: Manfrcd Lemkc.
Leikstjóm: Trausti Ólafsson.
sýn. sunn. 17. maíkl. 17.00
síðustu sýningar á Akureyri
í Bústaöakirkju í Reykjavlk
31. maíkl. 20.00
og 1. júníkl. 20.00
Gjafakort á MarkúsarguðspjaU
tilvalin fermingargjöf
Lmdsbanki íslands veitir
handhöfum gull-dcbctkorta
25% afslátt.
Miðasalan er opin þriðjud.-linuntud.
kl. 13-17, föstud.-sunnud.
frani aö sýningu.
Súnsvari allan sólarhringinn.
Muniö pakkaferöirnar.
Sínii 462 1400
er styrktaraöili Leikfélaes Akureyrar
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
Tteptr
bókaB s
Elias Snæland
Jónsson
ritstjóri
Salman Rushdie, sem enn á yfir
höfði sér dauðadóm, fatwa,
íranskra heittrúarmanna, er nú
allt í einu orðinn aðalpersónan í
Iykilróman sem kunnur breskur
rithöfundur, David Caute, hefur
samið og gefið út. Bókin hefur
víða fengið mjög góða dóma
gagnrýnenda, en einnig vakið
umræður í fjölmiðlum um
hræðslu bókaútgefenda í Bret-
landi við að móðga Rushdie.
Þeir neituðu nefnilega hver af
öðrum að gefa söguna út.
Bókin nefnist „Fatima’s Scarf’
og var Ioks gefin út af Totter-
down Books - fyrirtæki sem höf-
undurinn stofnaði sjálfur í þeim
tilgangi. Aður hafði hann sent
handritið til 20-30 útgefenda í
Bretlandi, en enginn þeirra vildi
standa að útgáfu sögunnar. Eftir
HILLAN
■11
ím
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
Grandavegur 7
- Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson
og Sigríður M. Guðmundsd.
i kvöld Id. næst síðasta sýning
- sud. 24/5 síðasta sýning.
Óskastjarnan
eftir Birgi Sigurðsson
11. sýn. Id. 23/5 örfá sæti
laus - 12. sýn. mvd. 27/5
nokkur sæti laus.
Fiðlarinn á þakinu-
Boch/Stein/Harnick
Föd. 29/5.
Ath. aðeins þrjár sýningar eftir.
Meiri gauragangur
Ólafur Haukur Símonarson
Fid. 28/5 síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.00
Poppkorn - Ben Elton
Á morgun nokkur sæti laus-
föd. 22/5 - Id. 23/5 - fid. 28/5.
Ath. sýningin er
ekki við hæfi barna.
Litla sviðið kl. 20.30
Gamansami harm-
leikurinn
- Eve Bonfanti og
Yves Hundstad.
í kvöld Id. uppselt - föd. 22/5
uppselt - Id. 23/5 laus sæti -
fid. 28/5 uppselt.
Ósóttar pantanir seldar dagle-
ga.
Miðasalan er opin mánud,-
þriðjud. 13-18, miðvikud.-sun-
nud. 13-20. Símapantanir frá
kl. 10 virka daga.
Rushdie sem
sögupersóna
átján mánaða þjark ákvað hann
að gera það sjálfur. „Þetta er
besta skáldsagan mín,“ sagði
hann í blaðaviðtali, „og ég ætla
ekki að láta þá grafa hana.“
Caute hefur sagt útgefendur
hugleysingja og gert sumum
þeirra það til háðungar að birta
opinberlega höfnunarbréf
þeirra. Þar fara þeir gjarnan Iof-
samlegum orðum um söguna, og
spara ekki lýsingarorðin, en
hafna hins vegar útgáfunni á
ýmsum forsendum - meðal ann-
ars þeim að þeir vilji ekki móðga
Rushdie.
Skrimsli
David Caute er kunnur höfund-
ur í Bretlandi; hefur bæði skrif-
að skáldsögur og fræðirit um
sagnfræðileg efni.
„Fatima’s Scarf’ er um 600
blaðsíður að stærð og gerist
meðal annars í ensku borginni
„Buddersford" í Yorkshire. Þar
reiðast múslimar mjög nýrri
skáldsögu eftir Gamal nokkurn
Rahman - „The Devil: An
Interview” - vegna þess að hún
hafi að geyma ummæli sem þeir
telja móðgun við trú sína. Þeir
brenna bókina opinberlega.
Skömmu síðar leggja íranir
„fatwa" á höfundinni. Allt er
þetta í samræmi við gang mála
hjá Rushdie árið 1989.
Skáldsagnahöfundurinn um-
deildi í sögunni, Rahman, er
ekki beinlínis aðlaðandi persóna.
Hann er að vísu snillingur á sína
vísu (hóf til dæmis að skrifa dag-
bók á ensku og arabísku þriggja
Salman Rushdie: aðalpersónan í„Fatima's Scarf."
ára að aldri), en er eins konar
skrímsli í útliti og sem höfundur.
Ymsir gagnrýnendur telja þessa
mannlýsingu merkilegt afrek;
sumir þeirra hafa jafnvel lagt til
að sagan verði tilefnd til Booker-
verðlaunanna.
Miðnætuibömin
Rushdie fékk reyndar önnur
slæm tíðindi á dögunum. Breska
sjónvarpið BBC hefur neyðst til
að hætta við gerð framhalds-
myndaþátta eftir hinni marglof-
uðu sögu „Midnight’s Chiidren”
(Miðnæturbörnin) sem fyrst
gerði Rushdie frægan sem rit-
höfund, en sumir álíta hana
bestu bresku skáldsögu síðustu
áratuga. Sagan fjallar um þær
gífurlegu þjóðlífshræringar sem
urðu á Indlandi
þegar landið fékk
sjálfstæði skömmu
eftir lok síðari
heimsstyrjaldarinn-
ar og var skipt í tvö
rfki - Indland og
Pakistan - en sú
fæðing var afar
blóðug.
Kvikmyndun sög-
unnar fyrir sjónvarp
átti að verða stærsta
verkefni BBC á því
sviði á árinu, enda
um mjög víðfeðma
sögu að ræða. Fyrir
lá samþykkt stjórn-
valda á Sri Lanka
um upptökur þar í
Iandi, fyrstu sviðs-
myndirnar voru til-
búnar og BBC var að leita að
leikurum í hlutverkin fjölmörgu.
Þá kom skyndilega tilkynning frá
ríkisstjórn eyjunnar þar sem
tökuleyfi voru afturkölluð.
Ástæðan var pólitískur þrýsting-
ur frá múslimum.
Rushdie hafði Iagt milda vinnu
í handrit myndaflokksins og var
því að vonum afar vonsvikinn.
„Ég hef unnið að þessu verkefni
af krafti í 15 mánuði,“ sagði
hann í viðtali. „Á þeim tíma
hefði ég getað lokið við nýja
skáldsögu, en nú eru enn 10
mánuðir í hana.“
Gerð myndaflokksins hefur
verið frestað um óákveðinn tíma.
Sumir telja reyndar að kvik-
myndunin sé úr sögunni.
Ósýnilegi hrmgmlrm
Viktoríct erdóttir
Charlie Chaplin, sem
erlöngu orðinn ódauð-
legurfyrir kvikmyndir
sínar og grátbroslega
túlkun á mannlífinu.
Viktoría Chaplin er fædd í St.
Monica í Californiu - dóttir
Charlie Chaplin og Oona
O'NeiIl, dóttur skáldsins Eu-
gene O'Neill. Hún hefur greini-
lega erft ástina á sviðinu frá föð-
ur sínum, sem alla tíð var að
leika fyrir fólk og nýtur hún þess
að vera í sviðsljósinu.
Viktoría kom fram í upphafs-
atriði myndarinnar Lime-
Iight/Sviðsljós árið 1952, en fað-
ir hennar var höfundur, leikstjóri
og aðalleikari þeirrar myndar.
Fjölskyldan flutti til Sviss og
Viktoria lærði tónlist og dans.
Hún hitti og varð ástfangin af
Jean-Baptiste Thierée sem hún
svo giftist og þau eignuðust sam-
an 3 sirkusa!
jean-Babtiste er margreyndur
leikari og hefur Ieikið öll helstu
aðalhlutverk Ieikbókmenntanna
auk þess sem hann hefur leikið í
kvikmyndum - t.d. Trúðum Fell-
inis.
Á Listahátíð mun sirkus þeirra
Viktoria Chapiin með manni sínum Jean-Babtiste Thierée.
hjóna, „Le Cercle Invisible” eða
„Osýnilegi hringurinn” verða
sýndur í Þjóðleikhúsinu og má
búast við mikilli aðsókn að sýn-
ingunni.
Þessi sýning er afrakstur af 25
ára þróun á loftfimleikum, töfra-
brögðum og sirkus og er listfengi
þeirra hjóna og Ieikni slík að
áhorfendur trúa vart eigin aug-
um.
I sirkusum nota þau dúfur,
kanínur og endur (allt eðal ís-
Ienskir fulltrúar) í sýningu sinni
og í farangrinum er margt skrít-
ið, ýmsar tegundir hjóla, ótelj-
andi búningar, beinagrindur o.fl.
o.fl.
Þessi sýning hefur verið kölluð
nokkurs konar íhugun - eða til-
brigði við sirkus - fremur en
hefðbundinn sirkus og þau
leggja höfuðáherslu á að
skemmta fólki. Viktoría velur
alla tónlist með sýningunni, en
hún er afar fjölbreytt.
Argentínskur tangó, búlgarskur
brúðkaupsmars og barokktónlist
svo fátt eitt sé nefnt. — vs