Dagur - 16.05.1998, Side 19

Dagur - 16.05.1998, Side 19
I LÍFIÐ í LANDINU »> o + \ tiV * * LAUGARDAGUR y '■ •> mi a 1 6. Mil/ 1998 - 35 Sigurðun Bogi Sævarsson skrifar Landogþjóð Margrét Þórhildur. Meðal sinnar þjóðar sem og íslendinga er Margrét Þórhildur Danadrottning sérdeilis vinsæl. Hvaða ár varþað sem hún kom í stna frægu opinberu heimsókn til landsins? - en afþví tilefni var farið í ýmsar samgöngufram- kvæmdir og má nefna Drottningarbraut á Akur- eyrí og Drottningarplan á Kambabrún. Skrýtna brúin. Hver er hin sérstæða bogabrú, sem hérsést á mynd, og varallt fram undir 1980 hiuti af hringveginum? Á Héraði. Hér á myndinni sést yfir Egilsstaði á Héraði, en spurt er hver séu þau fjögur sveitarfé- lög sem nú hafa sameinast Egilsstöðum i eitt sveitarfélag? Götumynd. Úr hvaða kaupstað iandsins er sú snotra götumynd sem hér má sjá? Hér sést á mynd önnur af tveimur björgunarþyrl- um Landhelgisgæslunnar á æfingafiugi. Hvaða skráningarstafi ber eldrí þyr/an og hverjir eru stafirnir á þeirrí er síðar kom? 1. Hve hár varð Svarfdælingurinn Jóhann risi? 2. Hvar á landinu er bærinn Viðborðssel? 3. Hverjir skipa efstu sæti listanna fjögurra sem eru boðnir fram í bæjarstjórnarkosn- ingunum á Akureyri? 4.Spurt er um tvo þingmenn, náfrændur, sem eiga sæti á þingi fyrir sitthvorn stjórn- arflokkanna og koma úr ólíkum kjördæm- um. Þeir eru systkinasynir; annar hefur helst kveðið sér hljóðs fyrir hagsmuni bænda en hinn fyrir sjávarútveg. Sá fyrr- nefndi er úr hópi sextán systkina, en bróðir þess síðarnefnda hefur um langt skeið ver- ið aðalskipstjóri á ferju, sem brátt hættir áætlunarsiglingum. Hverjir eru mennirnir? 5.Hver íslensku aldamótaskáldanna orti svo? „Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa, / sveit- irnar fyllast, akrar hylja móa. / Brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa / menningin vex í Iundi nýrri skóga.“? ó.Hann er þekktur skörungur, hvort heldur er þegar hann tekur til máls en ekki síður að ummáli. Hann er fæddur vestra en býr nú á Vilmundarstöðum í Borgarfirði. Hver er hann? 7. Milli hvaða tveggja jökla er Vonarskarð? 8. Hvar á landinu er Grunnafjörður? 9. Hvar á Iandinu er Hvítmaga? 10. Hver er minnsti jökull landsins? Svör: •SUlSpUBJ jjn?jof ijsuuiui la iQijjjfiSjog i "jO'Ol •sjnijofeuiiaij -J9S 8o sjiSiBsjnjjof ijjiui ij>jofsjBpiXj\[ iipun uBuuns igæASJBnaijB b§æi gB uin J3 jeSsasuiij So nuigæASJBuSunjL b bSui -|]3aSuB}J So BSuiQJJIJSJofjj IJI3JJB B jn -uuaj ui3s b mn iigæi jfiSaASJBuuy -nui -puBj b uinQojs jnuiiSAj b J3 eSeuijiAjj-g •jn -giou uibjjb So uinuBjefSSsjjBssueisjY BJJ 9JJ3A JIIJSIJ 9J5J3 JfiSocj puoij IJJSUIA e J3 So sjjfifjBisjY yYNI JtigJQljfiuunjo'g •Bpjofsjjaj -euSunj^ So -eujB^y ijjiui is gjejjsjEuoyyz, •umQjojj -JS3y\ B SUISOfSJOJJJBinjQSUIBJj jngeui -Suicj 'AJ ‘UOSJB^JpcI •<! JnjBJO J3 JBJJ3(J-9 •OAS IJIO UIOJSJRJJ SSUUBJJ'S •;puB[jnjs3/\ e BuuBuisigæjsjjBfg in^BuiSuicj ‘uosspunuiQno uofgnQ So ‘ipuBjjnQng e sojsjojjjbusjosuibjj ingeui -Suicj ‘uossjsoSy jugno Jiscj njs Bjjacj j/ muejsij-q iigisj uossiop -IjbH i^jaH -mPPO uinuuouiiBUjjps -uiBjj jijXj J3j uossuiofg qojjef ‘sui -sojsjojjsigæjsjjBfg bjsij ijæs ejsjo jiuijoa uossnijnf 109 uefjsiiyj ‘suBjsijjEJÁoin -ojY !Jæs Bjsja jedpjs uossnuSej,\i iioSsY'g •nisXsij3jBjjB>is -mjsnYJ íqjijbujoh J Ja iss3cj'£ •gæq e jbjjoui \?ý‘z S[JB Q-iba uueqpf-j 'dll'dl ns 80 gis-dl buiujbs isq jéuunjsæSsiSjaqpueq BjiÁcj upjg* •iqjijsiqÁos eij js uin jjnds J3 jaq ui3s puÁuinjoS ejjous 115* ^BqSuicjegBjsBjjBfH 80 jnjep -QijqS ‘JnddaiqBjjByy ‘BqSuicjfiqig nia ‘mnQojssjiSg jseuiames nu ejeq 80 mn jinds J3 jsq uias Sojsjjbjisas JnSofj nBcj* •iqjijjfiSiog 1 uiniqiBjiAH BjmeS J3 mn jinds J3 jaq mss uinig^ •spuejsj jij uqpsmiaq nSæij buis 1 moq SuiujjoiþeuBQ mas <ele>\ jba 9B9 * Fluguveiöar að suinri (6 7) Mundu heiiræðið: vertu í sambandi. Sam- bandi við fluguna. Andlega og líkamlega - þráðurinn milli þín og hennar er línan. Byrjendur (III) sig að taka hana upp í hönk, og er á leið Það eru ótrúlegustu hlutir sem maður hef- ur lært og tileinkað sér með harmkvælum sem fluguveiðimaður. Raunar svo margir, að maður er alveg hissa á því að maður skuli nokkurn tíman hafa átt ánægjustund við vatn eða á. Það er svo margt sem mað- ur þarf að brasa við og enginn man að kenna manni. Fluguveiðar eru ekkert sem maður hristir fram úr erminni. Ekki frekar en annað sem gott er í lífinu. I þessum byrjendapistlum mínum í tilefni vorkomu og veiða vil ég minnast á eitt og annað sem styttir mönnum leið gegnum brasið, í dýrðina. Hvað svo? Algengasta spurning byrjenda, sem loksins hafa lært að kasta og koma nú flugu út, er þessi: hvað svo? Góð spurning. Lítum á myndina sem fylgir þessum pistli. Rétthendur veiðimaður hefur lok- ið kasti, flugan er Ient, og nú berst hún með straumi eða er komin á fiskaslóð í vatni. Maður heldur um stöngina með hægri hönd. Undir vísifingur þeirrar handar Iigg- ur Iínan. Þennan fingur notar maður til að þrýsta línunni laust að handfanginu, UM LEIÐ og hún er dregin inn með vinstri. Strax og fiskurinn tekur getur maður brugðið við tökunni með því að þrýsta fingrinum þéttingsfastar að handfanginu, reist stöngina og tekið á honum með því að láta strekkjast á Iínunni. Þangað til fiskurinn tekur vinnur vinstri hönd. Með henni dregur maður línuna að sér, eða heldur við, eigi straumurinn að bera hana á reki. Þannig er maður „í sam- bandi“ eins og Stuðmenn myndu segja, og þannig er maður stuðmaður sjálfur. Er að veiða. Með þvd að draga svona inn finnur mað- ur strax minnsta ijátl við fluguna. Og fær alveg dúndur straum beint í taugakerfið þegar sá stóri tekur með látum. Litla fiska tekur maður inn bara með því að draga þá inn með vinstri og halda við á milli með vísifingri hægri handar. Taki fiskurinn á sprett, lætur maður lín- una bara renna út meðan hann sprengir sig. Stundum fer hann með allan Iínuslakann sem maður var með fyrir framan sig og meira til: þá syngur hjólið! Þá færðu fullnægingarstraum um þig alla/n. Maður tekur bara stóra fiska inn á hjólinu. Þá er barist um hvern millimetra og eins gott að taka ekki of fast á, vera ör- látur á að gefa honum slaka ef fiskurinn vill „hlaupa". Láta hjólið syngja hvað eftir annað! Algeng spuming Hvað gerir maður við línuna sem vill hrúgast niður fyrir framan mann við lapp- irnar þegar maður dregur hana inn með vinstri hönd, en ekki upp á hjólið? Góður punktur. Maður lætur hana bara liggja. An þess að stíga á hana. (Vinur minn missti risalax í Grímsá þegar lykkja vafðist um ökla.) Velur sér stað til að standa þar sem línan liggur til friðs í vatninu, tilbúin að renna út ef fiskur tekur, eða í næsta kasti. Snillingar taka hana til sín í hönk í vinstri hönd, samtímist því að þeir draga hana inri. Klaufar láta Iínuna leggjast í grjót, þar sem hún festist og eyðileggst. Stundum veiðir maður í straumvatni þar sem straumurinn vill hrifsa slakann og gera manni lífið leitt. Þá fer maður að æfa með að verða snillingur. Að bregða við íiski. Hvað gerir maður þegar hann loksins tek- ur? Jahá. Þetta er álíka flókin spurning og: er guð til? Já, er einfalda svarið, ja, fer nú eftir ýmsu er svarið, sem er efni í lærðar umræður milli fluguveiðimanna. Grunn- reglan er þessi: rauðvín með kjöti, hvítvín með fiski. Eða: þú bregður við silungi, þú lætur lax taka til sín slaka áður en þú fest- ir í honum. A silungsveiðum þar sem von er á miðlungs og smáum fiski er þetta reglan: um leið og þú finnur tök- una, eða grunar töku, þá þrýstir þú Iínunni fast að handfanginu með vísifingrinum góða, „læsir" lfunni, um leið og þú reisir stöngina. Þá strekkist á línunni og hann er á. Þú munt lenda í fiski þar sem þú finnur aðeins smá högg, og ekkert meir. Þá ertu of seinn að brega við. Þá getur þú reynt að kippa til þín með vinstri hönd, um leið og þú reisir stöngina. Þetta er grófari aðferð en hin, og venjulega sérðu þá fisk- inn taka góða skvettu á hinum endanum. Stundum sleppur hann. Þegar von er á harðsæknum urriða getur verið vafamál að bregða of hart við. Við þessar veiðar lærir maður smám sam- an að bregða við og sleppa lausu - samtím- is. Um leið og þú fínnur tökuna strekkir maður á línunni, til að festa, en sleppir al- veg samstundis til að fiskurinn fái nægan slaka til að djöflast um leið og hann fínn- ur festuna. Trúið mér: þetta verður partur af taugakerfinu. En þangað til... missir maður dýrmæta fiska. Um laxinn gilda flóknari fræði. Um það mál hafa verið skrifaðar bækur. Best er að vona að hann festi sig sjálfur. En stundum er maður ekki svo heppinn. Grunnreglan við laxveiðar er þessi: þegar flugan er komin á ferð í strauminum tekur veiði- maðurinn ca. faðm af línu í lausa hönk milli vinstri handar og hjólsins. Þar dingl- ar þessi hönk ftjáls. (Sjá litlu lykkjuna á myndinni, milli handar og hjóls - hún er höfð mun stærri við laxveiðar) Um leið og takan kemur (þú fínnur að línan stoppar, eða kippt er ólundarlega í) þá sleppir þú lausu. Kenningin er sú að þá snúi laxinn sér með fluguna og festi sjálfur í. Þegar þú finnur að línan er að byrja að renna út af hjólinu lyftir þú stönginni til að herða aðeins á. Setja fast. Þá ertu gjörsamlega búinn á taugum og ekkert nema æðri máttarvöld bjarga þér frá að hníga niður og drukkna. Ef heppnin er með ertu enn- þá með lax á þegar þú kemst til rænu. Algeng mistök silungsveiðimanna eru að bregða of hart við laxi og rífa fluguna út úr honum. Laxveiðimenn í silungi eru hins vegar alltof svifaseinir. En nú er kominn tími til að óska þér til hamingju. Þú ert ekki lengur bara með áhyggjur af því að koma flugunni út. Þú ert kominn með áhyggjur af því hvað þú eigir að gera þegar hann tekur. Hvílíkar framfarir! P.s. Þeir sem enn eru ekki búnir að drífa sig á kastnámskeið eiga möguleika fyrir norðan: Einar Long og félagar verða með námskeið á mánudag til miðvikudags í íþróttahölinni Akureyri, á hverju kvöldi kl. 20.30. Odýrasta hjálpin sem hægt er að fá, bæði fyrir byrjendur og lengra komna: 500 kr. 1

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.