Dagur - 19.05.1998, Side 7
PRIDJUDAGUR 19.MAÍ 1998 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
að skoða málverkasýningu Errós
gæða aðrir gestir sér á veitingum
utan dyra. Þegar þeim er hleypt
inn er þeim í byrjun einungis
leyft að skoða sýninguna á neðri
hæðinni. Kóngafólkið og Co. er
á efri hæðinni og verðir standa
við tröppur til að aftra því að al-
þýðumenn villist þangað. Eft-
ir nokkra bið þrammar hin kon-
unglega hersing niður tröppurn-
ar. Hinrik prins er í hrókasam-
ræðum við Erró. I háttum minn-
ir prinsinn allnokkuð á Jack
Nicholson, er dálítið búralegur
en grallaraiegur um leið og
sennilega ágætlega skemmtileg-
ur. Erró er nautnaleg gerð af
karlmanni með síkvik augu sem
láta fátt framhjá sér fara. Hann
er einmitt sú tegund af karl-
manni sem opnar sýningu á
verkum sínum undir heitinu
„Konur“. Persóna hans sýnist
mun áhugaverðari en myndir
hans sem að mestum hluta eru
farnar að minna á iðnaðarfram-
leiðslu. Forseti og drottning
ganga úr húsi og næst á dagskrá
er opnun á sýningu á kirkju-
munum Danadrottningar í Þjóð-
minjasafninu. Þangað ber mér
að halda en þegar hér er komið
sögu er ég þegar tekin að þreyt-
ast á því að elta drottninguna.
Deilt á Alþingi
A leið upp á Þjóðminjasafn
ákveð ég að koma við í Alþingis-
húsinu til að senda Ossuri vini
mfnum Skarphéðinssyni fingur-
koss. Þegar þangað er komið er
engu líkara en ég hafi villst inn
á kosningamiðstöð R-Iistans því
Mörður Árnason er á þingpöll-
um og frammi á gangi er Einar
Karl Haraldsson í farsímanum.
Eg kem ekki auga á Össur en
Davíð Odddsson situr í sæti
sínu með forsætisráðherralegum
ólundarsvip, enda er hin
málglaða stjórnarandstaða í ham
þennan dag. Það er Svavar
Gestsson sem á orðið og horfir
ábúðarmikill á Davíð um Ieið og
hann sakar hann um aðför að
Iýðræðinu með því að vilja koma
í veg fyrir að Jóhanna Sigurðar-
dóttir fái að flytja sínar tfu tíma
málalengingaræður yfir þreytt-
Mannfjöldinn hafði beðið með óþreyju eftir drottningu, eiginmanni hennar og forsetahjónunum. Þeim var vel tekið,
með lófaklappi og fánaveifingum.
Drottningin og Hinrik prins gáfu sér dágóðan tíma til að skoða sýningu Errós í Hafnarhúsinu og Erró og
Gunnar Kvaran veittu leiðsögn.
um þingheimi og jafn þreyttri
þjóð.
Davíð hefur meiri umburðar-
Iyndi gagnvart málflutningi
Svavars en ég, því hann situr
kyrr í sæti sfnu og bregður ekki
svip meðan ég stend upp til að
fara um leið og ég tauta: ,/E,
Svavar minn, af hverju ertu að
verja þessa vitleysu?“
Þegar ég nokkrum mínútum
síðar geng inn í Þjóðminjasafnið
eru fyrstu manneskjur sem ég sé
Guðrún Ágústsdóttir og Ástríður
Thorarensen.
„Mennirnir ykkar eru að
hnakkrífast í Alþingishúsinu,
segi ég.
„Eina ferðina enn!“ segir Guð-
rún, lítur á Ástríði og segir:
,/Etli það sé ekki þess vegna
sem við erum svo góðar vinkon-
ur.“
Enn sem fyrr kemst enginn
áleiðis vegna kóngafólksins sem
er inni í lokuðum sýningarsaln-
um. Loks opnast dyr og fyrir-
fólkið kemur fram. Þá gefst um
leið besta tækifærið til að \irða
Danadrottningu og mann henn-
ar fyrir sér. Drottningin virðist
bæði væn og vingjarnleg kona og
prinsinn er enn sem fyrr í Jack
Nicholson hamnum.
Drottningarvakt lýkur
„Einfalt og flott, sterk symból og
enginn vaðall," segir kunningja-
kona mín ein, afkastamikil
hannyrðakona, um sýningu
drottningar. Sýningin er heim-
sóknar \drði eins og þeir fjöl-
mörgu gestir sem standa í bið-
röð við miðasöluna virðast sann-
færðir um. Þegar ég held burt
frá Þjóðminjasafninu í lok
vinnudags er ég ekki svo miklu
fróðari en áður um hagi Dana-
drottningar. En hitt veit ég að
það er svo mikið vesen í kring-
um kóngafólk að ég hef ekki sér-
legan áhuga á að fylgja því eftir
meir en orðið er. Við þá iðju er
maður aldrei annað en hornkerl-
ing.
Viltu verða rfk/ur...
... og auðga líf þitt með því að kynnast nýrri menningu?
Loreida skiptinemi frá Venezúela ásamt systrum sínum og fósturforeldrum
Björku Kristinsdóttur og Didrik Ólafssyni íjúní 1997.
í lok ágúst eru væntanlegir 42 erlendir skiptinemar til íslands.
Hefur þú áhuga á að opna heimili þitt fyrir ungu fólki í 5 eða 10 mánuði?
Aljóða fræðsla og samskipti
Laugavegur 26,101 Reykjavfk
skrifstofa AFS sfmi 552 5450.
Heimasíða http://www.itn.is/afs
Nánari upplýsingar um hlutverk fósturfjölskyldu:
Akureyri Margrét Dóra sími 461 1118
Húsavik Unnur sími 464 1059
Dalvík Ásta sími 466 1187
Sauðárkrókur Ásdís / Debbie sími 453 5285
Stykkishólmur Unnur sími 438 1041
Reykjavík Skrifstofa AFS sími 552 5450