Dagur - 21.05.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 21.05.1998, Blaðsíða 2
22 — FIMMTVDAGVR 2 1. MAÍ 19 9 8 Dagptr LÍFIÐ í LANDINU ■ SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON Steingrímur 1 Sigfússon. Stal Össur hálendinu? Haraldur Sigurðsson skipulags- fræðingur í Mbl. 19. maí. Þj áningarsvipuriiiii Stjórnarsinnar hafa margir hverjir verið pirrað- ir út í stjórnarandstöðuna fyrir málaiengingar í ýmsum málum á Alþingi undanfarið. Guðni Agústsson var í forsetastóli einu sinni sem oft- ar í maraþonumræðunum og var kominn með þjáningarsvip þegar enn einn stjórnarand- stöðuþingmaður kom í pontu. Þá orti Kristín Halldórsdóttir í slitrustíl í orðastað Guðna: Á- er mikil þessi -þján þraut og andlega pína. Upp í pontu arkar bján- -i meö ræðu sina. Leysti niður um Pál Steingrímur J. Sigfússon sagði í umræðum um sveitarstjórnarfrumvarpið að Páll Pétursson frá Höllustöðum væri með allt niðrum sig í málinu. Þá orti séra Hjálmar Jónsson og sendi Steingrími: Andstæðingur frumvarps frægur feykti öllu í bál. Labbakútur litilþægur leysti niðurum Pál. Stílsnilld Steinólfur Lárusson, bóndi í Fagradal í Dala- sýslu, er mikill húmoristi og einstakur stflisti. Einu sinni skrifaði hann vini sínum Pétri Þor- steinssyni, sem þá var sýslumaður Dalasýslu bréf. Þar var hann að fara fram á að Pétur kannaði möguleikann á að fram færi rannsókn á því hvort ekki mætti nýta tijónukrabba sem mikið er af í Hvammsfirði. Grípum niður í bréfið þar sem Steinólfur lýsir skepnunni: „Hér framundan láðinu býr ein sérkennileg sjókind bæði djúpt og grunnt og virðist vera af stjarnfræðilegri stofnstærð en meðal stærð þessa kvikindi sem einstaklings er svipuð og eitt handsápustykki Savon de París en þó fram mjókkandi og endar í tijónu búkurinn... Sladdandi hljóð Þessu næst koma ýmsar lýsingar á dýrinu og einnig hve erfitt honum hafi reynst að aflífa það. Einna best hafi dugað að hella yfir það bensíni. Og síðan segir: „Bíður það þá örlaga sinna mjög stillilega en þegar því fer að eymast biðin, gefur það frá sér sladdandi hljóð sams- konar sladdandi hljóð mátti heyra í baðstofum hér áður fyrr einkum fyrripart nætur, þegar griðkonur feitar voru gnúðar sem ákafast til frygðar... Síðar mun ég birta fleiri perlur úr bréfínu. Úlafur Sigurðsson er áfangastjórí í Borgarholtsskóla. Skóli fyrir alla brautir. Þar má nefna nýja braut sem kölluð hefur verið fjöl- menntabraut, en hún er ætluð nemendum sem eru óráðnir um sitt framhaldsnám.11 í Borgarholtsskóla eru allarvenjulegar hóknámshrautir, náttúrfræðibraut, Styttri náinsbrautir ^ I skolanum hara veriö 1 uppbygg- félagsfræðibraut Og in8u rsl>'ttri starfsnámsbrautir, ° sem yfirleitt eru tveggja ára nám. gangi kerfisbreyting sem tengd er JflfHfihraUt Sem IxkW ^nnars vegar er þa<> félagsþjón- merkum samningi sem Fræðslu- ’ " ustubraut, sem veitir nemendum Borgarholtsskóli er nýr fram- haldsskóli í Borgarholtinu og fer þar fram Ijölbreytt nám, bæði í dagskóla og kvöldskóla. „Þessi skóli er bæði verknáms- og bóknámsskóli og nú eru um 20 brautir í honum,“ segir Ólafur Sigurðsson, áfangastjóri í Borg- arholtsskóla. „Baunar eru þær fleiri þetta skólaárið því það er í miðstöð Bílgreina gerði við ráðu- neytið á sínum tíma um nýskipan bílgreinanáms í Borgarholts- skóla. Þannig erum við með nemendur úr bæði gamla og nýja kerfinu í bílgreinum eins og er.“ Ný fjölmenntabraut „Er Borgarholtsskóli nánast ein- göngu fyrir þá sem vilja læra málmsmíði og bíl- greinar eins og stundum heyrist? „Nei, það er reginmisskilningur, því hér eru allar venjulegar bóknámsbrautir, náttúrfræði- braut, félagsfræðibraut og málabraut, sem Iýkur með stúdentsprófi," svarar Ólafur. „Reyndar er u.þ.b. helmingur nemenda í bílgreinum og málmiðngreinum en svo höfum við einnig fleiri með stúdentsprófi. SPJALL menntun og starfsþjálfun í ýms- um greinum félagsþjónsustu og svo verslunarbraut, sem á að vera nokkuð sambærileg verslunar- prófi. Af henni útskrifast verslun- arfræðingar og í vor eru einmitt fyrstu nemendur að útskrifast af þessum tveim brautum. Nú eru í skólanum tæplega 500 nemendur, en sá fjöldi kemur til með að aukast nokkuð og segist Ólafur helst búast við Qölgun á bóknámsbrautunum. „Svo erum við að undirbúa og skoða möguleika á nýjum brautum, bæði á bók- og starfsnámssviðum. Verkefnin eru mörg og stór og skólinn nýr, hér er því öflugt þróunarstarf, áhugasamt starfsfólk og geysilega góð stemmning," segir Ólafur að lokum. -vs ■ FRÁ DEGI TIL DAGS Eftirvæntingin er stækkunargler morgundagsins. (Höf. ók.) Þetta gerðist • 1983 var Asmundarsafn, safn Asmund- ar Sveinssonar við Sigtún í Reykjavík opnað formlega. • 1981 var Francois Mitterand kosinn forseti Frakklands. • 1979 varð Elton John fyrstur popp- stjarna til að koma fram í Sovétríkjun- um. • 1945 giftu þau sig, Lauren Bacall og Humphrey Bogard. • 1927 lenti Lindburgh í París eftir að hafa flogið sólóflug yfir Atlantshafið. Fædd þennaii dag • 1921 fæddist Andrey Sakharow, hinn sovéski. • 1917 fæddist Raymond Burr leikari, sá er lék lögmanninnn Perry Mason. • 1904 fæddist Robert Montgomery leik- ari. Hátíðisdagur Uppstigningardagur er í dag, en hann er á fimmtudag, fjörutíu dögum eftir páska og getur borið upp á 30. aprí til 4. júní. Hann er haldinn til minningar um himnaför Krists og á sér ekki forkristnar fyrirmyndir. Islenska nafnið er sennilega komið úr fornensku. Dagurinn var meðal mestu kirkjuhátíða að fornu en engar heimildir eru um helgigöngur hérlendis þennan dag eins og tíðkaðist í grannlönd- unum og ekki um aðra siði eða þjóðtrú tengda deginum. (Sagu daganna) Vísa dagsins Loftvarnarmerki var eitt sinn gefið á Ak- ureyri og flýði fólk í loftvarnarbyrgi og kjallara, en ekki gátu allir fengið sæti í einum kjallaranum vegna þrengsla. Karl- menn rýmdu sætin fyrir kvenfólkinu og var þá kveðin þessi vísa: Fljóðin efla eigin hag eftir gömlum vanda, og kunna enn það Uíalag, að láta okkur standa. Afmælisbam dagsins Andrei Sakharov, eðlisfræðingur og einn mikilvægasti andófsmaður Sovétríkjanna, fæddist 21. maí árið 1921. Hann er maðurinn sem bjó til fyrstu kjarnorkusprengju Sovét- ríkjanna. Hann er einnig maðurinn sem mótaði hugtökin glasnost og perestroika, sem Gorbatsjov tók síð- an upp eftir honum. Sakharov hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1975. Maður nokkur brá sér í skemmtiferð út fyrir sína heimabyggð og heimsótti þéttbýl- isstað nokkurn, ónefndan. A næturrölti sínu um miðbæinn rakst hann á mann sem honum þótti líklegur húmoristi. Akvað að segja honum brandara og spyr sem svo: „Hefurðu heyrt um Kínverjann sem borðaði svo hratt að hann þurfti prjóna- vél?“ Og ekki stóð á svari heimamannsins: „Nei - látt’ann vaða!“ Tölvan í dag Arabaheimurinn er fyrir nokkru síðan kominn á Internetið. Netfang dagsins er www.arab.net/welcome.html og þar er að finna upplýsingar um öll arabaríkin og allt mögulegt um menningu og þjóðfélög araba. Ein síðan er t.d. helguð arabískri matargerð, og önnur úlföldum. L

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.