Dagur - 21.05.1998, Síða 4
-FÍMMTUDÁGUR Íl. M'A[Í 19 9 8
Dagúr
LÍFIÐ í LANDINV
Búseta í Grafarvogi jafn-
gildir refsivist að sumra
áliti en er þetta svona
slæmt? Nei, aldeilis ekki.
Grafarvogurinn er hinn
ágætasti til búsetu og þar
býr frábært fólk upp til
hópa.
Stundum mætti halda
að íbúar Grafarvogs til-
hejrðu sérstökum þjóð-
flokki:
„Gövöð, og kemstu þá
nokkurn tíma heim til
þín? Er þetta ekki svakalega langt í
burtu?“ og aðrar slíkar spurningar dynja á
manni og maður er í hreinustu vandræð-
um með að hemja brosvöðvana. Jú, ég
kemst heim á hverjum degi, stundum
meira að segja tvisvar á dag ef ég er hepp-
in og svakalega Iangt frá hveiju? Það
gleymist nefnilega stundum að nafli al-
heimsins er ekki á neinum einum stað,
Hann helgast af því hvert þú þarft að fara
hverju sinni og hvernig þjónustan er í ná-
grenni við þig.
Hún er bara frn í Grafarvogi,
takkfyrir.
Eg hef búið í Grafarvoginum í tæp þrjú
ár, tók ákvörðun um að flytja af Kjalar-
nesi mest vegna sívaxandi bílaútgerðar
Ijölskyldunnar, en hún stefndi orðið í dá-
góðan flota.
Þegar maður flytur af stað þar sem
ótakmarkað útsýni er til allra átta, vind-
urinn blæs frjálslega (stundum mjög
frjálslega) og hefur þar að auki kynnst
þeim lúxus að búa í einbýlishúsi með
stórri lóð, þá er úr vöndu að ráða. ÖII hús
sem komu til greina fyrir sex manna fjöl-
skyldu reyndust heldur dýr, sérstaklega
þegar það var haft í huga að fasteignin
sem flutt var úr, var óseld.
Þá var ekki um annað að ræða en að
byggja og af því að Kópavogur og Hafnar-
fjörður hafa ekki komist inn á kortið hjá
mér sem vænlegur búsetukostur þurfti að
leita eftir byggingarlóð í Reykjavík.
Það var svo sem enginn skortur á þeim,
frekar spurning um hvaða hverfi í Grafar-
vogi skyldi velja. Allt nýbyggingarhverfið
var heldur óhrjálegt og upprifið og leit
ekki beinlínis út fyrir að verða nokkurn
tfma byggilegt. En Ióð fengum við í Borg-
arholti, Ióð sem var meðfram valin vegna
þess að ekkert átti að byggja í vesturátt,
þar var óhindrað útsýni. Fyrir neðan hús-
ið var gert ráð fyrir göngustíg og vel sást
til Esjunnar og upp í Mosfellsveit. Sem
sagt, útsýniskröfunum fullnægt.
Vegurinu merkilegi
Við fluttum svo inn í húsið um miðjan
nóvember, þá önnur fjölskyldan sem
flutti í hverfið. Það var dálítið eins og að
vera einn í heiminum. Engin götuljós,
ekkert hús sýnilegt á þrjár hliðar og ann-
að eftir því. Reyndar engir veggir inni í
húsinu heldur og ekki laust við að maður
sakni þeirra daga að hafa bara tjöld fýrir
baðherbergisveggi og geta setið í baði og
spjallað við gesti og gangandi. Svona bað-
stofumenning, kammó og kósí.
Gottí
Grafar-
vogi
Svo kom VEGURINN. Vegurinn sem
Iiggur niður að eiðinu sem tengir Geld-
inganes við land og fer nú hringinn í kring
um hverfið. Það var eins og við manninn
mælt, daginn eftir að hann kom hófst um-
ferð sem síðan hefur verið nokkuð stöðug
og jöfn. Hvernig fréttist af þessum vegi og
hvað allir þessir bílar vildu þarna niðureft-
ir var okkur ekki Ijóst og er raunar ekki
enn, því það var nefnilega ekki nokkur
skapaður hlutur þar. Hvorki framhald á
veginum, né nokkurt hús.
En umferðin um þennan veg hefur
haldið áfram æ síðan og gaman að fylgj-
ast með fólki sem er á leið út í Geldinga-
nes, í fjöruferð eða bara að aka, ganga
eða hlaupa þarna um.
Byggingar og fótbolti
Hverfið hefur byggst hratt upp, því er
ekki að neita. Fyrir ofan mig er kominn
veggur af blokkum og þeim fylgja börn.
Mikið af börnum sem leika sér áhyggju-
laust daginn út og daginn inn og langt
fram á kvöld eins og íslenskra barna er
siður á vorin og sumrin. Það er alveg frá-
bært að fylgjast með kofabygginum og
öðrum byggingum barnanna, hvernig
þeim tekst að gera móann og hamrana
fyrir ofan hverfið að ævintýralandi og sjá
þau skoppa niður í Qöru til að kanna allt
það merkilega sem þar er.
Lengi vel var dálítið langt í verslun fyrir
okkur í Borgarholtinu. Það er nú reyndar
ekki rétt, það var ekkert langt, en fyrir þá
sem eru orðnir spilltir af því að hafa stór-
markað á örðu hverju götuhorni, er langt
að aka 3 kílómetra í búð. En Jóhannes í
Bónus bjargaði því og nýjustu frengir
herma að Hagkaup ætli sér að opna heila
kringlu uppi á hæðinni, með tilheyrandi
bíói og afþreyingarstöðum. Þar með er
séð fyrir því að hægt sé að koma hýrunni
bæði fljótt og vel fyrir kattarnef.
Gullmbrú, sívinsælt umræðuefni
En hvernig er að búa í Iandemahverfi,
langar leiðir frá miðbænum? Jú, við bíð-
um eftir sundabrautinni, þessari sem á að
létta á umferðinni og gera okkur fært að
komast á svipstundu í miðbæinn. Ennþá
eru ekki komnir skólar allsstaðar, en þeim
fer Ijölgandi og ekki að sjá að ungviðið
bíði verulegan skaða af því að fara í skóla-
bíl tvisvar á dag, heldur virðist það ef eitt-
hvað er, þjappa þeim ágætlega saman.
Umferðin um Gullinbrú er sívinsælt
umræðuefni, en af einhverjum ástæðum
er það svo, að þegar boðað er til funda
um hana, þá mæta alveg voðalega fáir.
Sjálfstæðismenn mæta jú alltaf og svo
ýmist borgarstjórinn eða Guðrún Agústs-
dóttir sem segja okkur að þetta sé allt að
koma, en hinn almenni borgari viriðist
ekki mjög áhugasamaur, af hvaða ástæð-
um sem það nú er.
Auðvitað er það svolítið pirrandi að
bíða í Iangri röð bíla á morgnana og
stundum á kvöldin, en eiginlega er þetta
hvorki verra né betra en umferðin um
Miklubrautina eða Seljabrautina eða...
Eitt hefur gott hefur þó skapast af
þessari umferðarmenningu allri saman og
það er samheldni íbúanna, sem hvar og
hvenær sem er geta tekið umferðanmálin
sem umræðuefni, til að tengja inn á
næsta íbúa, alveg gulltryggt!
UMBUÐA-
LAUST
Ertu alltaf fastur í
umferöinni á
Gullinbrú?
Umferðin um Gullinbrú er stundum
þung og hæg á morgnana og kvöldin og
það fer í taugarnar á sumum. En hún
þarf ekkert að fara í taugarnar á fólki,
bara að gera eins og hér segir.
1. Leggðu af stað 10 mín. fyrr en venju-
Iega þó það kosti að þú verðir að
vakna aðeins fyrr. Farðu bara fyrr í
rúmið, þú vakir hvort sem er allt of
lengi frameftir.
2. Leggðu af stað 10 mín. seinna en
venjulega þá ætti versta umferðin að
vera búin og þú kemur svona
nokkurn veginn á sama tíma samt.
3. Farðu í strætó. Hann kemst að vísu
ekkert hraðar en hinir bílarnir, en ef
nógu margir fara í strætó, þá er
Umferðin um
Gullinbrú er
stundum þung.
minni umferð og hann kemst hraðar.
4. Æfðu þig í að syngja einhver góð lög
á Ieiðinni.
5. Ljúktu við verkefnin sem þú áttir eft-
ir.
6. Æfðu hugleiðslu á meðan þú bíður.
7. Lestu góða bók, það er mesta furða
hvað maður kemst yfir.
8. Fáðu þér vinnu í Grafarvogi, þá
þarftu bara að fara innan hverfis og
getur gengið í vinnuna.
9. Fáðu þér næturvinnu, þá ertu að fara
inn í hverfið á morgnana og út úr því
á kvöldin. Engin umferð!