Dagur - 21.05.1998, Síða 5

Dagur - 21.05.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 2 1.MAÍ 199 8 - 2S Thyur: LÍFIÐ í LANDINU bréfleiðis, málið skýrt fvrir þeim og for- eldrum boðin aðstoð. „Þó meginmarkmið Miðgarðs sé að halda utan um félagslega þætti í hverf- inu,“ segir Regína kímin, „þá stoppar ekki síminn hér vegna fyrirspurna um skipu- lags- og vegamál, sem greinilega höfða mjög sterkt til fólks.“ Karlar í minnihluta I Miðgarði starfa nú ] 5 manns og segir Regína eftirspurn eftir þjónustu mjög milda. Regína Ásvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðgarðs. „Fagþekking starfsmanna er gríðarmikil þegar allt er talið, en í Miðgarði starfa: Sálfræðingar, félagsráðgjafar, kennari, leikskólakennarar, iðjuþjálfi, hjúkrunar- fræðingur, tómstundaráðgjafi, lögregla og svo auðvitað framkvæmdastjóri, sem jafn- framt er félagsráðgjafi," segir hún. „Sumir starfsmanna hér hafa tvenns- konar menntun og þykir okkur það gott vegna þess að eftir því sem þekkingin innandyra er fjölbreyttari, því betra," seg- ir Regína. Langflestir starfsmanna Mið- garðs eru konur, en aðeins þrír karlmenn starfa við miðstöðina. „Það má ekki gleyma honum Skúla húsverði,11 segir Regína, og þar með eru karlarnir orðnir fjórir. „Þetta er ekki vegna þess að við viljum ekki karla," bætir hún við, „heldur eru þessi störf að mestu leyti þess eðlis af einhverjum ástæðum að konur hafa valist til þeirra frekar en karlar." Regína segist að lokum vera afar ánægð í starfinu og segir miðstöðina hafa farið vel af stað og eiga eftir að eflast enn með tímanum. -VS Miðstöðin Miðgarður, sem opnuð var 13. dag septem- bermánaðar 1997, hefur á þeim stutta tíma erhún hef- urstarfað, sannaðgildi sitt fyriríbúa hverfisins. Miðgarður er til húsa á efri hæð verslun- armiðstöðvarinnar við Langarima, í vina- legu rými, sem Regína Asvaldsdóttir, framkvæmdastjóri, segir þegar vera sprungið utan af starfseminni. Samstarf við lögreglu „Meginmarkmið okkar eru þrjú,“ segir Regfna. „I fyrsta lagi að veita íbúum hverfisins sérfræðiþjónustu á þverfagleg- um grunni, en inni í því felst m.a. öll fé- lagsþjónusta, sálfræðiþjónusta í skólun- um, ráðgjöf til leikskóla, eftirlit með dag- mæðrum, aðstoð við tómstundastörf og með því tenging við ITR. I öðru lagi að stuðla að íbúalýðræði og stuðla að því að íbúum séu kynnt hvað þeir geta haft áhrif á sjálfir. Ibúarnir eiga tvo fulltrúa í hverfisnefnd Grafarvogs sem er stjórnarnefnd Miðgarðs. Og ekki má gleyma Grafarvogsráðinu, en í því eru fulltrúar frá öllum stofnunum og félögum í Grafarvogi og eru það nú um 50 manns. í þriðja lagi að auka samvinnu á milli ríkisstofnana og Miðgarðs. Þar hefur okk- ur gengið best hvað varðar lögreglu, en við höfum nú starfandi fulltrúa úr for- varnardeild lögreglunnar hér í húsinu.“ Regína segir samstarf Iögreglunnar og Miðgarðs hafa skapað ný og skemmtileg vinnubrögð og viðhorf. Nú sé það orðin regla að hafi lögregla afskipti af barni eða unglingi innan lögráðaaldurs, þá sé haft samband við foreldra símleiðis eða Miðgarður - nafli alheimsins í Grafarvogi Ánægður með tómstundastarflð Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra er einn þeirra sem fluttu hvað fyrstir í Grafarvoginn. „Eg kann ákaflega vel við mig hér í Grafarvogi, hér er gott að búa,“ segir hann. „Við byggðum okkur hér parhús fyrir 10 árum og höfum síð- an smám saman verið að koma okkur fyrir, innrétta, fegra lóðina og svo fram- vegis. Eg er líka afar ánægður með það kröftuga og Ijölbreytta íþrótta-, æsku- lýðs- og kirkjustarf sem hér fer fram og tel það raunar einn lykilþátt þess fagra mannlífs sem hér blómstrar." Finnur Ingólfsson er hæstánægður með tómstundastarfið í Grafarvoginum. Fín sundlaug „Ég og fjölskylda mín höfum búið í Rimahverfinu í rúm tvö ár,“ segir Hákon Óli Guð- mundsson. „Mér finnst mjög gott að búa hér, hverfið er rólegt og barnvænt. Uppbygg- ing skóla og íþróítamála er til fyrirmyndar að mínu mati, íþróttasvæðið og sundlaugin eru hvorutveggja mjög góð.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.