Dagur - 26.05.1998, Side 8
8 -I’RIÐJUDAGUR 2 6. MAÍ 1998
FRÉTTASKÝRING
Tímamót
Litlar breytingar urðu
á fylgi stjómmála-
flokkaima í kosning-
iiinim iiin helgina þeg-
ar á heildina er litið.
Sameiginlegum fram-
boðum vegnaði al-
mennt heldur illa en
sigur Reykjavíkurlist-
ans í borginni markar
tímamót.
Sigur Reykjavíkurlistans verður
að teljast stærstu tíðindi nýaf-
staðinna sveitarstjórnarkosn-
inga þótt hann hafi ekki komið
mjög á óvart þar sem kannanir
höfðu spáð þvf að listinn héldi
meirihlutanum. Afhroð Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði hefur
einnig vakið athygli en þegar á
heildina er litið verða litlar
breytingar á stöðu flokkanna.
Ef marka má viðbrögð for-
manna stjórnmálaflokkanna á
kosninganótt geta allir flokkar
vel við úrslitin unað. Sjálfstæð-
isflokkurinn vinnur víða stóra
sigra. Framsóknarflokkur tapar
sumsstaðar miklu fylgi, en bæt-
ir einnig verulega við sig á stöku
stað. Sameiginlegum framboð-
um gekk ekki mjög vel og hafa
víðast minna fylgi en félags-
hyggjuflokkarnir höfðu saman-
lagt í kosningunum 1994 en
unnu þó stóra og sæta sigra í
einstaka bæjum.
MiMðáfall
Osigurinn í borginni er greini-
lega mikið áfall fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn eins og sést hefur á
viðbrögðum forystumanna
hans. Borgin hefur verið höfuð-
vígi flokksins og mikilvæg upp-
eldisstöð því margir flokksmenn
hafa byijað sinn pólitíska feril í
nefndum Reykjavíkur eða öðr-
um störfum fyrir borgina. Þetta
er í fyrsta sinn sem félags-
hyggjuflokkarnir vinna í borg-
inni tvö kjörtímabil í röð og það
er greinilega beiskur bikar.
Víðast annars staðar á land-
Vísbending
Lestu blaðið og taktu þátt í leiknum!
550 oooo
V-X V-X Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal
inu geta sjálfstæðismenn hins
vegar verið mjög ánægðir með
útkomu flokksins. A landsvísu
er fylgi hans svipað og í kosn-
ingunum 1994. Það vekur ekki
síst athygli þar sem flokkurinn
er í ríkisstjórn en venjulega hef-
ur hann goldið þess í sveitar-
stjórnarkosningum. Nú vinnur
hann hins vegar víða stóra
sigra. Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig fylgi á öllu Suður-
landi nema í Reykjavík, Mos-
fellsbæ og Árborg en í síðar-
töldu sveitarfélögunum settu
Mosfellslistinn og Dizkólistinn
strik í reikninginn.
Framsóknarmaður í
Hafnarfirði
Framsóknarmenn bættu veru-
Iega við fylgi sitt í Kópavogi og
Hafnarfirði og kom nokkuð á
óvart, að minnsta kosti höfðu
kannanir ekki gefið það til
kynna. Flokkurinn bætti við sig
manni í Kópavogi og kom að
manni í Hafnarfirði sem ekki
hefur gerst í 16 ár.
Annars staðar á Suðurvestur-
landi stendur fylgi Framsóknar-
flokksins í stað nema hvað
hann tapar talsverðu fylgi í Þor-
lákshöfn og Árborg. Árborg er
reyndar nýtt sveitarfélag og
samanburður þH erfiður, en
Framsókn fær 9 prósentustiga
minna fylgi þar en flokkurinn
hafði á Selfossi og virðist unga
fólkið á Dizkólistanum hafa
höggvið djúp skörð í raðir fram-
sóknar- og sjálfstæðismanna.
Vilja ekki samfylkingu
syðra
Sunnlendingar virðast ekki yfir
sig spenntir fyrir sameiginleg-
um framboðum. Þau tapa alls-
staðar sunnan heiða nema í
Reykjavík og sumsstaðar mjög
stórt. Neslistinn á Seltjarnar-
nesi missti ellefu prósentustig
til Sigurgeirs Sigurðssonar bæj-
arstjóra og félaga á D-listanum.
Kópavogslistinn fékk nærri 10
prósentustiga minna fylgi á
laugardaginn en Alþýðuflokkur,
Alþýðubandalag og Kvennalisti
höfðu samanlagt 1994. Tapið
var líka stórt í Reykjanesbæ þar
sem sameiningin átti hvað
lengstan aðdraganda eða 8 pró-
sentustig og í Mosfellsbæ snéru
7% þeirra sem kosið höfðu fé-
lagshyggjuflokkana 1994 við
þeim bakinu í þetta sinn.
Stórsigur í SnæfeUsbæ
Gengi samfylkingarsinna var
mun betra á Vesturlandi. Borg-
arbyggðarlistinn fékk um 40%
atkvæða og krækti sér í hreinan
meirihluta í bæjarstjórn. Stykk-
ishólmslistinn fékk einnig mun
meira fylgi en Alþýðubandalag
og Alþýðuflokkur höfðu síðast
eða nærri 14 prósentustig. Á
Akranesi bættu samfylkingar-
menn aðeins við sig en þeir töp-
uðu í Snæfellsbæ.
Framsóknarflokkurinn tapar í
öllum bæjum á Vesturlandi
nema á Akranesi þar sem fylgið
er svipað og 1994. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapar talsverðu fylgi
á Akranesi og Stykkishólmi,
stendur í stað í Borgarbyggð en
gerir meira en að bæta þetta allt
upp með fádæma góðum sigri í
Snæfellsbæ. Þar hafði flokkur-
inn 36,5% 1994 en fékk nú um
60% og eru engin dæmi um
aðra eins fylgisaukningu í kosn-
ingunum á laugardaginn.
Risjótt gengi
Gengi flokkanna allra var held-
ur risjótt á Norðurlandi. Sjálf-
stæðisflokkurinn jók verulega
fylgi sitt í nýju sameinuðu sveit-
arfélagi í Skagafirði, ef borið er
saman við stöðu flokksins á
Sauðárkróki 1994. Flokkurinn
bætti einnig mjög við sig á
Siglufirði eða nærri 16 pró-
sentustigum. Hann jók fylgi sitt
um 14 prósentustig í Olafsfirði
og um nærri 12 prósentustig á
Akureyri. Hins vegar misstu
sjálfstæðismenn talsvert fylgi á
Húsavík, Blönduósi og í nýju
sameinuðu sveitarfélagi við ut-
anverðan Eyjafjörð.
Framsóknarmenn bættu við
sig í Skagafirði eins og sjálf-
stæðismenn og á Dalvík en biðu
herfílegan ósigur á Akureyri og
Húsavík. Á Akureyri missti
flokkurinn 2 bæjarfulltrúa og
fylgistapið var nærri 14 pró-
sentustig eða aðeins meira en
framboð Odds Halldórssonar,
fyrrverandi bæjarfulltrúa
flokksins, fékk.
Langstærstir
Sameiginlegt framboð hrósaði
sigri á Húsavík. Húsavíkurlist-
inn er Iangstærsta aflið í bæj-
arpólit-íkinni þar með rúmlega
51% fylgi og hreinan meiri-
hluta. Listinn fékk nærri 18
prósentustiga meira fylgi en Al-
þýðuflokkur og Alþýðubandalag
höfðu 1994. Sameiningarlist-
inn á Blönduósi bætti einnig
verulega við sig en í öðrum bæj-
um á Norðurlandi var sameigin-
legum framboðum heldur illa
teldð.
Akureyrarlistinn tapaði veru-
legum hluta þess fylgis sem fé-
lagshyggjuflokkarnir höfðu
áður haft eða 10 prósentustig-
um og sameiginlegum framboð-
um gékk illa í Skagafirði og á
Siglufirði.
Rauði bærinn
Vinstrimenn sönnuðu yfirburði
sína í sameinuðu sveitarfélagi
Neskaupstaðar, Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar með nærri 53%
fylgi og traustan meirihluta 7
bæjarfulltrúa. Alþýðubandalag-
ið hefur haft meirihluta á Nes-
kaupstað í áratugi og bærinn
stundum verið nefndur rauði
bærinn eða litla Moskva en
sameinað sveitarfélag á að heita
Austurríki fái íbúarnir ein-
hveiju um það ráðið.
Á Austur Héraði og Horna-
firði fengu sameiginleg framboð
nokkuð meira fylgi en félags-
hyggjuflokkarnir höfðu haft en
ekki voru það stórar sveiflur.
Sjálfstæðisflokkurinn vann enn
einn 18 prósentustiga sigurinn
á Seyðisfirði en tapaði lítillega á
Hornafirði og Austur Héraði og
niðurstaðan í Austurríki var
flokknum sár vonbrigði. Það á
einnig við um framsóknarmenn
í Austurríki, en flokkurinn tap-
aði einnig stórt á Seyðisfirði,
bætti umtalsvert við fylgi sitt á
Austur Héraði en stóð í stað á
Hornafirði.
Heldur aUtaf meiri-
hlutanum
Sjálfstæðisflokkurinn hélt
meirihlutanum í þeim 6 bæjum
þar sem hann hafði hreinan
ATVR
Akureyri
óskar að ráða sumarstarfsmenn til
afgreiðslu og lagerstarfa.
Æskilegur aldur 20-40 ára.
Upplýsingar veitir útsölustjóri á staðnum
(ekki í síma), miðvikudaginn 27.
maí frá kl. 10-15.
ÁTVR Akureyri.