Dagur - 29.05.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 29.MAÍ 1998 - 27
Tkgftr
LÍFIÐ í LANDINU
Ljósvaki frá Akureyri var eini stóðhesturinn í
Eyjafirði sem náði landsmótseinkunn.
Knapi Baldvin Ari Guðiaugsson.
Kynbótadómar
Eftir að dómum lauk í Gunnars-
holti skruppu menn norður í
land til að nota tímann áður en
dómar byrjuðu í Reykjavík. Þetta
var gert til þess að létta á aðal-
forskoðuninni.
Á Vindheimamelum komu 44
hross í dóm og þar af fengu 41
fullnaðardóm. í flokki stóðhesta
6 v. og eldri komu sex hestar í
dóm og fengu tveir þeirra ein-
kunn inn á landsmótið. Efstur
stóð Hugi 7 v. frá Hafsteinsstöð-
um með 8,13 fyrir sköpulag þar af 9
fyrir hófa og fyrir hæfileika 8,34 skeið-
laus þar af 9 fyrir tölt, brokk, vilja og
fegurð í reið. Hugi er undan Hrafni frá
Holtsmúla og Sýn Feykisdóttur frá Haf-
steinsstöðum. Aðaleinkunn Huga er
8,23. Annar varð Askur 8 v. frá Keldu-
dal sonur Þáttar frá Kirkjubæ og Nasar
frá Stokkhólma. Fyrir sköpulag fékk
Askur 8,0 og fyrir hæfileika 8,39; aðal-
einkunn 8,19 og hefur hækkað um
0.01. Þriðji hesturinn Skinfaxi 7 v. frá
Þóreyjarnúpi er fast við inntökumörkin
á Iandsmótið með 8,14 í aðaleinkunn
en mörkin eru 8,15. Aðrir hestar í þess-
um flokki voru mun Iakari.
Keilir frá Miðsitju með
1. verðlaun
Kjölur frá Hafsteinsstöðum undan Kjar-
val og Kylju frá Kjartansstöðum var
efstur í 5 v. flokknum með góða ein-
kunn fyrir sköpulag 8,15 allt jafnar ein-
kunnir en hæfileikarnir voru mun slak-
ari 7,41; aðaleinkunn 7,7. Smiður frá
Miðsitju sem er undan Otri og Kröflu
fékk dágóða einkunn fyrir sköpulag
7,95 en var ekki sýndur í reið. Hins
vegar var hálfbróðir hans Keilir sonur
Ófeigs frá Flugumýri og Kröflu frá Mið-
sitju með góðar einkunnir. Fyrir sköpu-
lag fær hann 8,28 þar af 9 fyrir bak og
lend og fyrir hæfileika 7,74: aðalein-
kunn 8,01. Þessi hestur er aðeins 4ra
vetra og lofar því góðu. Veiki punktur-
inn hjá honum er brokkið eins og
Spuna hálfbróður hans. Keilir var lang
efstur í sínum flokki. Næstur var Gyllir
frá Sauðárkróki sonur Hrafns frá Holts-
múla og Gnóttar frá Sauðárkróki 7,78
fyrir sköpulag og 7,47 fyrir hæfileika;
aðaleinkunn 7,62. Bragur frá Miðsitju
hlaut 8,15 fyrir sköpulag en var ekki
dæmdur í reið. Hann er undan Polka
frá Túnsbergi Náttfarasyni og Þotu frá
Tungufelli sem var dóttir Fáfnis frá
Laugarvatni.
Ein 6 v. og eldri iim á landsmót
Af hryssum 6 v. og eldri var efst Þröm 7
v. frá Hólum undan Viðari frá Viðvík og
Þrennu frá Hólum. Fyrir sköpulag fékk
hún 7,98 þar af 9 fyrir hófa og fyrir
hæfileika 8,20; aðaleinkunn 8,09. Hún
nær einkunn inn á landsmótið en ekki
þeirri aðaleinkunn sem hún fékk 5 v.
8,17 og munar þar mest um lækkun
fyrir hæfileika. Önnur varð Björk 7 v.
frá Hólum sem einnig er Viðarsdóttir
en móðirin er Birta frá Hólum. Birta
fékk 7,93 fyrir sköpulag þar af 9 fyrir
fótagerð og fyrir hæfileika 7,81; aðal-
einkunn 7,87. Hún nær ekki inn á
landsmót en hefur hækkað svolítið frá
síðasta dómi. Snælda frá Ytra-Skörðu-
gili 7 v. sem er dóttir Viðars og Snældu
frá Ytra-Skörðugili Sörladóttur fékk
mjög góðan hæfileikadóm 8,46
en byggingin er slök. Blæja frá
Hólum sem er Kolfinnsdóttir
fékk 9 fyrir tölt og 9 fyrir vilja.
Hún er klárhryssa með 7,76 í
aðaleinkunn. En það er sem
sagt bara ein hryssa í þessum
hópi sem náði einkunn inn á
landsmótið.
Kjarvalsdóttirin Þula frá
Gígjarhóli undan Spætu
Hrafnsdóttur frá Gígjarhóli varð
efst af 5 v. hryssum með 8,00
fyrir sköpulag og 8,01 fyrir hæfileika:
aðaleinkunn 8,01 og tryggði sér ferð á
Melgerðismela.
Eiirn stóðhestur á Akureyri náði
landsmótseinkuiin
Á Hlíðarholtsvelli á Akureyri komu 53
hross í dóm. Af stóðhestum 6 v og eldri
var Ljósvaki Kjarvalssonur frá Akureyri
efstur með 8,10 fyrir sköpulag og 8,34
fyrir hæfileika þar af 9 fyrir tölt; aðal-
einkunn 8,22 og hefur hækkað örlítið
fyrir sköpulag og hæfileika. Móðir hans
er Kvika frá Brún v/Akureyri. Enginn
hestur annar hlaut fullnaðardóm í þess-
um flokki.
Geisli frá Ási I sonur Vafa frá Kýr-
holti og Vöku frá Ási var efstur í 5 v.
flokknum með 7,65 fyrir sköpulag og
8,13 fyrir hæfileika; aðaleinkunn 7,89.
Góður reiðhestur en ekki nógu vel
byggður. Dósent frá Brún undan Heldi
frá Brún og Drottningu frá Brún fékk
7,88 fyrir sköpulag og 7,83 fyrir hæfi-
leika skeiðlaus; aðaleinkunn 7,85.
Hann lækkar örlítið í byggingu en tals-
vert fyrir hæfileika en hann fékk 4ra v.
8,11 fyrir hæfileika. I fyrra var hann
með 8,01 í aðaleinkunn.
I floldvi 4ra v. var efstur Þytur frá
Hóli II albróðir Gusts frá Hóli og fékk
hann 7,62 í aðaleinkunn. Ljósvaki er
því eini stóðhesturinn í þessari lotu sem
náði inn á landsmótið.
Af hryssunum 6 v. og eldri varð efst
Mánadís 6 v. frá Torfunesi dóttir Hjart-
ar frá Tjörn en móðirin er Ör frá Torfu-
nesi. Mánadís fékk fyrir sköpulag 8,18
þar af 9 fyrir háls og herðar og 9 fyrir
fótagerð. Fyrir hæfileika 7,97; aðalein-
kunn 8,07 og þar með farseðil á lands-
mótið. Brynja frá Stóra-Hofi 7 v. undan
Gáska frá Hofsstöðumfékk 7,95 fyrir
sköpulag og 8,00 fyrir hæfileika; aðal-
einkunn 7,98. Dúkka frá Akureyri und-
an Gassa frá Vorsabæ II og Skjónu frá
Akureyri fékk 7,68 fyrir sköpulag og
8,11 fyrir hæfileika skeiðlaus þar af 9
fyrir tölt og fegurð í reið; aðaleinkunn
7.89.
Tinna frá Akureyri dóttir Orra frá
Þúfu og Hreyfingar frá Húsey var eina
hryssan í þessum 5 v. flokki sem náði
einkunn inn á landsmótið. Fyrir sköpu-
lag fékk hún 8.00 og fyrir hæfileika
7,94: aðaleinkunn 7,97.
Tvær 4ra v. hryssur náðu einkunn á
landsmót. Drottning frá Efri-Rauðalæk
dóttir Hrafns frá Holtsmúla og Kviku
frá Brún fékk 8,25 fyrir sköpulag og
7,67 fyrir hæfileika skeiðlaus; aðalein-
kunn 7,96 og Þoka frá Akureyri dóttir
Gusts frá Hóli II og Kátínu frá Hömr-
um v/Akureyri fékk 7,70 fyrir sköpulag
og 8,03 fyrir hæfileika; aðaleinkunn
7,86.
HESTAR
Kári
Arnórsson
skrifar
Hljóðúrhonil...
SVOJMA
ER LIFID
H
Vigdís
Stefánsdóttir
skrifar
©
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
• Leið mig eigi í freistni. (Ég get svo auð-
veldlega fundið leiðina sjálfur)
• Taktu lífið ekki of alvarlega, það sleppur
enginn lifandi frá því hvort sem er.
• Hefði Guð ætlast til þess að ég gæti snert á
mér tærnar, myndi hann hafa sett þær á hnén.
Börn í aftursætum valda slysum, slys í aftursætum orsaka
börn.
Lífið á jörðunni er dýrt, en innifelur þó fría ferð í kring um
sólina.
Hraði lífsins veldur mér engum vandkvæðum, heldur hið
snögga stopp við fararlok.
Hvers vegna er það þannig, að þegar maður loksins hefur
öll spilin á hendinni, þá ákveða hinir að tefla...
Hugurinn er eins og fallhlíf, það er betra að hafa hann op-
inn.
Óbijótalegt leikfang er mjög hentugt til að skemma önnur
leikföng.
Peningar og aftnr peningar
H
Sæl Vigdís. Ég er dálítið reiður og mjög sár
vegna framkomu ættingja konu minnar. Þannig
er að fyrir nokkuð mörgum árum lánaði konan
mín þessum ættingja sínum talsvert fé, til þess
að viðkomandi gæti fest sér íbúð. Nú er málum
svo komið að \dð ætlum að stækka við okkur og vantar uppá,
en þessi ættingi segist ekki geta greitt lánið, þó svo að við sjá-
um ekki betur en að þar sé til nóg af peningum, bæði hann
og kona hans eru í vel launuðum störfum. Þetta lán var aldrei
skjalfest eða slíkt, en bæði vita allt um það. Nú er spurningin,
hvernig eigum við að bregðast við, því við sjáum ekki fram á
að geta keypt öðruvísi en að fá þessa peninga, sem konan mín
á með réttu.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Lesandi
Umferðin
„Nú er hvíta-
sunnuhelgi og
margir á ferð, þar
sem þessi helgi
hefur gjarnan ver-
ið fyrsta stóra
ferðaheígi ársins,“
sagði lesandi sem
hringdi. „Mig lang-
aði bara til að
hvetja fólk til að
aka varlega og
muna eftir því að
þó svo einhverjar
mínútur sparist við
að aka 20 km.
hraðar á klst. þá er
það ekki þess virði
að leggja líf sitt að
veði.“
Svo mörg voru
þau orð og um-
sjónarmaður tekur
heils hugar undir
þau, því allt of
mörg líf hafa tap-
ast í umferðinni.
Ég held að besta Ieiðin sé sú að konan þín skrifi viðkom-
andi bréf varðandi það að hún vilji fá þessa peninga
greidda og setji allar forsendur niður. Hvar og hvenær
lánið var tekið. Hversu hátt það var og hve mikið hefur
verið endurgreitt, ef nokkuð. Taki afrit af bréfinu og eftir
að svar hefur fengist við því, þá er hægt að halda áfram.
Með lögfræðiaðstoð ef viíl. Raunar væri ekki vitlaust að
hafa lögfræðing með í ráðum við bréfaskriftirnar strax í
upphafi. Til þess að hægt sé að fá málið á hreint, verður
að skjalfesta það einhvem tíma og eftir því sem lengri
tími líður, því erfiðara verður það. Þetta er ósköp leiðin-
legt, sérstaklega vegna þess að svona mál vilja eyðileggja
vináttu og ættartengsl.
ReyWaus hér eftir
Reyldausi dagurinn er á morgun og af því tilefni er uppplagt
að kynna nýjan valkost fyrir þá sem vilja losna við reykinn.
Þetta er nikotínfrír úði sem kallast STOP SMOKING (en
ekki hvað) og úðast hann undir tunguna og gefur gott bragð.
Úðinn er framleiddur í Noregi og hefur fengið samþykki
L\Tjaeftirlits ríkisins hérlendis. I úðanum eru eftirfarandi
efni:
1) PLANTAGO MAJOR; Dregur úr tóbakslöngun.
2) AVENA SATIVA; Léttir á fráhvarfseinkennum þegar
reykingum er hætt.
3) HCA. HYDROXY SÍTRÓNU-SÝRA: Dregur úr hungur-
tilfinningu.
Prófanir voru gerðar á Gjövik sjúkrahúsinu í Noregi á
STOP SMOKING á nokkrum námskeiðum í að hætta að
reykja, undir handleiðslu lækna, sálfræðinga og hjúkrunar-
fólks. Helmingur fólksins notaði STOP SMOKING úðann
samkvæmt leiðbeiningum eða uppundir 10 púst á dag undir
tunguna og hinn helmingurinn minni skammt. Þeir hópar
sem notuðu úðann í ráðlegum skömmtum voru með 67% ár-
angur þ.e.a.s. hættu að reykja eftir námskeiðið, en seinni
hópurinn sem notaði lítinn skammt náði aðeins 33% árangri.
Mjög áhugaverð niðurstaða fékkst varðandi minnkaða matar-
lyst eða 71% þátttakenda í könnuninni sögðu að matarlystin
hefði minnkað.
Hingað tii hafa hjálparefnin við það að venja sig af reyk-
ingum innihaldið nikótín sem vanabindandi efni, er j>ví hér
um nýjan valkost fyrir þá sem ætla sér lífið án reyks og síðast
en ekki síst þá sem vilja halda í við sig.