Dagur - 07.07.1998, Qupperneq 7
ÞRIDJU DAGUR 7. JÚLÍ 19 9 8 - 23
I
LÍFIÐ t LANDINU
Goslokahátíð Vestmannaeyinga fór fram jafnt innan- sem utandyra um
helgina og þótti takast frábærlega.
Eyjamenn
finna sjálfa sig
Núeru
fimm ár
síðan eldgosinu í
Heimaey lauJt og í til-
efni afþví héldu Vest-
mannaeyingar miJda
goslokahátíð um síð-
ustuhelgi.
Boðið var upp á fjölda skemmtiat-
riða á hátíðinni og var þá engin
grein undanskilin. Tónlistin var
ómæld, myndlistin flæddi um alla
veggi og bókmenntirnar fengu
sína útrás í textum sem sungnir
voru fram á rauðanótt hvert
kvöld. „Kannski þurfti gos til þess
að Vestmannaeyingar fyndu sjálfa
sig tuttugu og fimm árum síðar,"
sagði einn viðmælenda. Það má
að vissu leyti taka undir þessi orð.
Þegar Eyjamenn hitta sjálfa sig
kemst ekkert annað að en það
sem innst inni slær: „O yndislega
eyjan mín!“
Spámaður í siimi Heimaey
Hátíðarhöldin fóru fram jafnt
utan sem innan dyra og má ekki
gleyma þætti Andrésar Sigurvins-
sonar sem sá um framkvæmd og
að stórum hluta skipulagningu
hátíðarinnar ásamt þeim Arnari
Sigurmundssyni, Guðjóni Hjör-
leifssyni og Ragnari Óskarssyni
sem skipuðu sérstaka gosloka-
nefnd. Andrés virkjaði ungt fólk
til að skreyta bæinn og skipulagði
mikla skrúðgöngu í karnivalstíl
með ungu fólki á öllum aldri.
Þrátt fyrir rigningu og dumbung
sem var á föstudeginum, lét fólk
það ekki á sig fá, heldur íjöl-
tuttugu og
?IRT ÁN
ABYRGÐAR
Allt fyrir
heilsima
I San Fransisco vann klúbbur
þeirra sem vilja nýta marijúana
í læknisfræðilegum tilgangi sig-
ur þegar dómari neitaði fylk-
issaksóknaranum um leyfi til
þess að láta loka klúbbnum.
Klúbbmeðlimir fögnuðu með
því að borða 24 poka af kart-
öfiuflögum, heilan kassa af
súkkulaðikexi og drekka allt
gosið úr ísskápnum.
mennti í gönguna sem endaði á
Stakkótúni þar sem Guðjón Hjör-
leifsson bæjarstjóri setti hátíðina.
Seinna á föstudagskvöldið hitti
ég þann ágæta mann sem spáði
að Vestmannaeyingar myndu
flykkjast út á götur bæjarins og
njóta þess sem í boði væri af
margföldum krafti. Það hefur ver-
ið sagt að enginn sé spámaður í
sínu föðurlandi, en óhætt að
segja að Guðjón sé spámaður í
sinni Heimaey, enda blómstraði
mannlífið á götum bæjarins langt
fram undir sunnudagsmorgun og
allan sunnudaginn. Veðrið hélt
líka áfram að leika við hvurn sinn
fingur og óhætt að segja að ef átt-
hagaástin á systur yfirleitt þá sé
það blikið sem skíii úr augum
þeirra sem vita hvað það er að
eiga stað í hjarta sínu að úthella
og deila með sínu fólki.
Á popphátíð í leit að spena
Það var minnst hér að framan á
Þjóðhátíð vegna þess að ýmsir sáu
ástæðu til að bera saman þessa
goslokahátíð og Þjóðhátíðina.
Fólk sagði: „Þetta er eins og á
Þjóðhátíð.“ Ég sagði: „Fortíðin
blasir við og hefur alltaf gert, en
þið Vestmannaeyingar hafið ráfað
um eins og blindir kettlingar á
popphátið í leit að spena sem ekki
er til á þeim vettvangi. Hérna
mitt í bænum þar sem slagæðin
er getur enginn velkst í vafa um
það hver og hvaðan Vestmannaey-
ingar eru sprottnir og það sýnir
sig í viðmóti fólks og hvernig
stemmningin er í kringum þá for-
tíð sem nú hefur kviknað til lífs-
ins á ný í gömlum króm og fisk-
verkunarhúsum. Ég er ekki að
gera lítið úr Þjóðhátíð, en ég hlæ
að flónsku ykkar varðandi hana
þegar aðalmálið virðist vera að
gera hana að allsherjar húmbúkki
um verslunarmannahelgi og í
hroka ykkar að vilja ekki kannast
við 17. júní. Maður líttu þér
nær.“
Vestmannaeyingar eru kunnir
fyrir það að vera hver og einn
með sína skoðun í hverju máli.
Þess vegna læt ég það stundum
flakka sem rök fyrir því hversu
samhentir þeir eru þegar upp er
staðið. Vissulega er þetta mótsögn
en samt sem áður ákveðin
tihneiging, ekki bara hjá Vest-
mannaeyingum, heldur og öllu
fólki sem veit hvað það er að
þurfa að berjast fyrir tilveru sinni.
Þegar hremmingin kemur, eins og
í gosinu fyrir tuttugu og fimm
árum, þá á hver maður sinn stað í
hjarta náungans og það var þessi
staður sem opnaðist á goslokahá-
tíðinni um síðustu helgi.
i
i
i
Hjon + 3 born
(td. 8-11 og 14 ára]
fram og til baka
9/
e/yof/itr /t/.
Vestmannaeyjum
Sími 481-2800 • Fax 481-2991
Þakrennur og
niðurföll
Þjónusta um land allt.
RVDAB^
Hágæða sænskt
þakrennukerfi úr
plastisol húðuðu stáli.
Til í svörtu, hvítu,
rauðu og brúnu.
Öll blikk- og járnsmíði.
Þakkantar - þaktúður - þakstál - loftræstingar.
BLIKKSMIÐJA GYLFA EHF.
Bíldshöfða 18 - 112 Reykjavík - Sími 567 4222.
Mjög áferðarfallegt
auðvelt í uppsetning
Gott verð
20%
afsláttur
10 ára ábyrgð
!