Dagur - 30.07.1998, Blaðsíða 3

Dagur - 30.07.1998, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 30.JÚLÍ 1 9 9 8 - 19 Th&pr. LÍFIÐ í LANDINU Hlaupa heim og segja frá Gabríela Sigurðardóttir sáifræðingur segir mikilvægt að fullorðnir haldi ró sinni þegar barn segir frá því að maður hafi sýnt kynfæri sín. Foreldmreiga að brýna fyrírbömum sínum að sýna sem minnst við- brögð efókunnugir karlmenn sýna kyn- færí sín. Þau eiga að hlaupa beintheim og segjafullorðnum frá því sem gerðist. Óvenjumörg tilfelli hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu þar sem karlmenn hafa verið að sýna börnum kyn- færi sín á almannafæri. Gabríela Sigurðardóttir, sálfræðingur hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, segir mikilvægt að foreldrar eða aðrir fullorðnir bregðist við á ró- legan hátt og ræði við barnið þegar slíkt tilvik kemur upp. Nauðsynlegt sé að fá nákvæma Iýsingu á því sem gerðist, stað- setningu atburðarins og upplýs- ingar um það hvað barnið hafi verið að gera áður en maðurinn kom, hvernig barnið hafi sjálft brugðist við og hvað maðurinn hafi gert svo. Þessar upplýsingar verði að fá á rólegan hátt. Að sjálfsögðu eigi svo að láta lögreglu vita. Skýr skilaboðtil barnsins „Það þarf að ræða við barnið og segja því að það sé gjörsamlega óviðeigandi að ókunnugur mað- ur sé að sýna kynfæri sín. Barn- ið veit kannski ekkert endilega hvernig það á að bregðast við og hvað það á að gera með þessa reynslu. Barnið þarf að fá skýr skilaboð um að þetta sé eitthvað sem það eigi ekki að þurfa að lenda í. Atburður á borð við þennan vekur yfirleitt hræðslu og undrun hjá barninu og það þarf að róa barnið, segja því að maður geti alltaf átt von á því að lenda í ýmsu,“ segir Gabríela. Flestar rannsóknir benda til þess að karlmenn, sem sýna kynfæri sín á almannafæri, séu hættulausir, hneigist ekki til of- beldis eða árása. Þeir komi yfir- leitt ekki aftur á sama stað og elti yfirleitt ekki börnin eða ráð- ist á þau. Gabríela segir að oft- ast sé það tilviljanakennt hvaða barn lendir í þessu. Þetta þurfi að útskýra fyrir barninu til að það haldi ekki að atburðurinn sé bundinn við einhvern tiltekinn stað og að þetta gerist aftur ef það fari á sama stað að gera það sama og það var að gera þegar maðurinn kom og sýndi sig. Ef sama barn lendir í þessu aftur og aftur á sama stað þá þurfa fullorðnir að fylgjast með og kalla á lögregluna þegar at- burðurinn á sér stað, ekki að reyna að grípa inn í sjálfir. Vilja viðbrögð „Það má kenna börnum að veija sig fyrir svona atburðum, að sýna sem minnst viðbrögð og hlaupa heim, komast í örugga höfn. Ekki standa og sýna hræðsluviðbrögð eða ráðast á manninn. Það eru ekki rétt við- brögð,“ undirstrikar hún. „Barn- ið á frekar að fara heim og segja einhverjum fullorðnum frá.“ Gabríela segir að þeir sem sýna kynfæri sín á almannafæri séu yf- irleitt menn sem eigi í erfiðleik- um með að nálgast konur og tengjast þeim á samfélagslega við- urkenndan hátt. Þeir hafi þó sína drauma, þrár og þarfir fyrir ná- lægð og ást og verði því að finna einhveija aðra leið til að öðlast þetta. Þeir fái fullnægingu út úr því að sýna sig á almannafæri og upplifa viðbrögð fómarlambsins; undrun, hræðslu eða fát. Og þá eru börnin auðveld bráð. -GHS Bömin verði send heim Áslaug Þórarinsdóttir, Þórunn Bergsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir eru í foreldrahópi Vímulausrar æsku. Þær hvetja foreldra til að bera saman bækur sínar og segja nei þegar börn undir lögaldri viija fá að fara á útihátíð. mynd: e.ól. Vímuefnigeta valdið varanlegum skaða. Ein pillageturvaldið heilaskaða, jafnvel dauða. Hvað viljafor- eldrarum verslunar- mannahelgina? Vilja þeirsenda unglingana sína á útihátíð - og taka sénsinn?Eða segja nei. „Ég upplifði tvær hliðar á þessu máli. Ég fór sem unglingur á útihátíð, var ekki sjálf undir áhrifum en sá hvernig fólkið í kring hegðaði sér. Ég var hálf- hrædd við þetta ástand. Seinna vann ég í sjúkratjaldi og þá sá ég ógeðið. Ég sá blindfulla móður með fimm ára barn klukkan fimm að morgni. Barnið var ekk- ert farið að sofa og var að tína flöskur. Mamma hans sagði bara: þetta bjargar sér. Þá fór maður að spyrja: til hvers er þetta? Er eitthvað fallegt við þetta? Er eitthvað gaman við þetta?,“ segir Þórunn Bergsdótt- ir. Foreldrar standi sanian Aslaug Þórarinsdóttir, Þórunn Bergsdóttir og Þórdís Sigurðar- dóttir eru í foreldrahópi Vímu- lausrar æsku og vinna að for- varnarstarfi meðal foreldra og unglinga ásamt 20 öðrum for- eldrum. Þær hafa meðal annars verið að senda lesendabréf á fjölmiðlana og hvetja foreldra til að standa saman, hafa samband sín á milli og vera á varðbergi, kynna sér aðstæður á útihátíð- um, hvort um Ijölskylduhátíð eða sukkhátíð er að ræða, hvort eitthvert aldurstakmark er, hvernig löggæslan er, hvort læknisaðstoð og Stígamót eru á staðnum. Allt getur þetta skipt máli þegar unglingurinn biður um að fá að fara á útihátíð. Allar hafa þær þrjár reynslu af vímuefnaneyslu unglinga. Ein þeirra hefur reynslu af því að barnið hennar var að vinna úti á landi eitt sumarið. Það fór á úti- hátíð, var þar tekið með vímu- efni og komst á sakaskrá í fram- haldi af þ\í. Þessi móðir var heppin. En því miður skila sér ekki öll börn heil heim og endar þessi harmleikur oft með geð- veiki eða dauða. Þessi mál hafa því komið foreldrum á hreyfingu síðustu vikur því að um verslun- armannahelgina getur allt gerst. Kaupa ekki vin fyrir börnin „Það er eitt og annað sem hefur gerst um verslunarmannahelgi og maður þekkir fólk sem hefur lent í ýmsu, veit um stúlkur sem hafa orðið fyrir nauðgun, sem þær hafa aldrei getað taiað um vegna þess að þær voru dauða- drukknar. Þær sitja eftir með sektina sjálfar. Við vitum um börn sem hafa byrjað að fikta við fíkniefni um verslunar- mannahelgi. Þau eru ekki komin heim enn. Vímuefnaneyslan og markaðssetning þeirra virðist vera mikil um þessa helgi,“ segja þær og benda á að mótshaldarar eigi að framfylgja landslögum og senda börn undir lögaldri bein- ustu leið heim aftur. Börn geti nefnilega stolist á útihátíð. „Við hvetjum foreldra til að segja nei við börn undir lögaldri, senda þau ekki ein á útihátíð og hjálpa börnunum að skilja að „nei“ þýðir að við elskum þau og viljum vernda þau. Einnig hvetj- um við foreldra til að kaupa ekki vín fyrir börn undir lögaldri. Það sem við kaupum er oft hrein viðbót við það sem þau eru búin að útvega sér sjálf,“ bæta þær við að lokum. -GHS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.