Dagur - 30.07.1998, Blaðsíða 12
Sneið til þín!
Ef þú borðar ekki nóg af
grænmeti, þá er þetta
sneið til þín. Fáðu þér
bita og brostu hringinn.
Þegar íslenska grænmetið kemur í bæinn í byrjun sumars
virkar það eins og vítamínsprauta í kroppinn á landanum eftir
langan og dimman veturinn.
Nýjar rannsóknir benda þó til þess að hollusta grænmetis hafi
ekki aðeins með vítamín og steinefni að gera, heldur fái þeir
sem borða mikið af grænmeti, siður ýmsa alvarlega sjúkdóma
svo sem ýmsartegundir krabbameins og hjartasjúkdóma.
Gallinn er sá að við borðum ekki nógu mikið af þessari fersku
og bragðgóðu náttúruafurð sem má matreiða á svo marga
vegu. Þetta á sérstaklega við um yngstu kynslóðina og
íslenska karlmenn.
ÍSLENSK GARÐYRKJA
£<xttu/1xex/ ítáu/ 'teL