Dagur - 30.07.1998, Side 6
22-FIMMT UDAGUK 3 0 . JÚLÍ 19 9 8
Xfwytr
im£l
fjör
Fjöskyldudagar í Lónkoti
Á laugardaginn verður ýmislegt um að vera í Lónkoti í Skagafirði. í
tjaldi galdramannsins verður barna- og fjölskylduball kl. 16-18, þar
sem hljómsveitin Fjörkarlar sjá um fjörið. Dagskráin verður sniðin
að fjölskyldufólki og börnum en í boði verða leikir, dans og hreyf-
isöngvar. Um kvöldið verður svo dansleikur þar sem hljómsveitin
Leyniþjónustan leikur fyrir dansi. Á dagskránni verður fjölbreytt
tónlist fyrir alla aldurshópa. Aðgangseyrir verður 600 krónur á
barnaballið og 1500 krónur á seinni dansleikinn. Tilvalin skemmt-
un um verslunarmannahelgina án þess að eyða mánaðarlaunun-
um!
Síðustu Sum-
artónleikarn-
Síðasta tónleikahelgi
Sumartónleika á
Norðurlandi fer nú í
hönd. Að þessu
sinni er það dúóið
Lewark-Portugall frá
Þýskalandi sem
mun halda þrenna
tónleika, í kvöld kl. 21
í Grenivíkurkirkju, ann-
að kvöld kl. 21 í Reykja-
hlíðarkirkju og á sunnu-
daginn kl. 17 í Akureyrar-
kirkju. Dúóið samanstendur af
Egbert Lewark, trompetleikara og
Wolfgang Portugall, orgelleikara. Margrét Bó-
asdóttir, sópran mun syngja með á tveimur fyrstu tónleikunum. Á
efnisskránni verða verk eftir m.a. Bach, Scheidt, Mozart og Jón
Leifs. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir.
Krossgötur í Ketilhúsinu
Á laugardaginn verður myndlistarsýningin „Krossgötur" opnuð í Ket-
ilhúsinu á Akureyri. Myndlistarkonurnar Hrefna Harðardóttir, Sólveig
Baldursdóttir og Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýna þar verk sín.
Hrefna og Sólveig hafa báðar fengist við skúlptúra og höggmyndir
en Guðrún Pálína notar fyrst og fremst pensilinn. Með sýningunni
vilja þær leggja áherslu á þær krossgötur sem hver listamaður á f lífi
sínu. Sýningin stendur til 16. ágúst og er opið kl. 14-18 alla daga.
HVAfl ER Á SEYfll?
Á flakki um verslunarmaimahelgma
Verslunarmanmhelgin erein
mestaferðahelgi ársins á íslandi
og meirihluti landsmanna áfar-
aldsfæti.
Áður en farið er úr borginni er hægt að beygja til
hægri út af Vesturlandsveginum og fara inn að
Reynisvatni þar sem Friður 2000 heldur Kvóta-
dag sinn þann 1. ágúst.
Þegar komið er í utanverðan Hvalfjörðinn
Iiggur vel við að fara afleggjara sem merktur er
Vatnaskógur. Þar fer fram mótið Sæludagar fyrir
ungt fólk á öllum aldri.
Næsta stopp er f Borgarnesi dansleikir verða í
Búðakletti alla dagana og munu þau Ruth Reg-
inalds og Birgir Jóhann skemmta.
Mannræktarmót undir Jökli verður haldið á
Hellnum á Snæfellsnesi og á Staðarfelli í Dölum
halda SÁA menn sfna Mjólkurgleði, vímuefna-
lausa hátíð sem ætluð er allri fjölskyldunni.
Ekki má gleyma Kántrfhátíðinni sem fram fer
á Skagaströnd, en þar stendur Kántríkóngurinn
Hallbjörn Hjartarson fyrir sínu í nýbyggðu húsi
Kántríbæjar.
Skagfirðingar munu ekki láta sitt eftir liggja,
því að Lónkoti verða fjölskyldudagar um helgina
og á Hofsósi Islendingadagur mikill á Iaugardag-
Halló Akureyri
Stórhátíðin Halló Akureyri verður haldin um all-
an Akureyrarbæ og meðal annars má nefna að
allir helstu plötusnúðar landsins ætla að sýna
snilli sína í Renniverkstæðinu þáttakendum til
ánægju og yndisauka.
Þar næst iiggur leiðin til Siglufjarðar, en
Síldarævintýrið þar er orðið landsfrægt. Átti
upphaflega að kynna landsmönnum hið ljúfa og
erfiða líf síldaráranna, en hefur með tímanum
orðið að stórhátíð.
I Mývatnssveit er bryddað upp á því nýmæli að
vera með sérstaka ferðahelgi þar sem gestir og
gangandi geta notið útivistar og fagurs Iands-
lags.
Heldur færist IJör í leikinn þegar komið er á
Neskaupstað, því þar er hvorki meira né minna
en Neistaflug. Fyrir utan hefðbundna skemmti-
dagskrá geta gestir farið í útsýnisflug og fleira.
Á Vopnafirði fer fram árlegt Vopnaskak.
Suðurlandið-Vestmaimaeyjar
Fjölskylduhátíð með tveim dansleikjum og úti-
markaði verður að Kirkjubæjarklaustri, en þar
má Iíka hlusta á sögur og fara í róðrarkeppni.
Ekki er hægt að fara akandi til Vestmannaeyja
enn sem komið er en næst besti kosturinn er að
fara á Bakka og fljúga þaðan. Tekur bara 5 mín.
og er fínt fyrir flughrædda. Mikil hátíðahöld
verða á Þjóðhátíðinni í Eyjum og áreiðanlega
gott veður í þetta sinn.
Eftir útúrdúrinn til Eyja er fínt að koma við í
Múlakoti í Fljótshlíð og fá að skoða flugvélar af
öllum stærðum og gerðum, jafnvel skreppa f út-
sýnisflug á Flughátíðinni sem þar verður.
Þar á eftir má kíkja á Flúðir, en þar verður ým-
islegt til afþreyingar fyrir fjölskyldufólk bæði úti
og inni.
Ein af stærri hátíðunum fer fram í Galtalæk
og rökrétt að stoppa þar. Þetta er hátíð Bindind-
ismanna sem nú er haldin í 31. sinn og fólk á
öllum aldri velkomið til að dansa og skemmta
sér þessa helgi í skóginum.
NORÐURLAND
Rósa Kristín í Gallery ash
Laugardaginn 1. ágúst kl. 14 opnar
Rósa Kristín Júlíusdóttir sýningu sína
á máluðum vattteppum í Gallery ash
Lundi í Varmahlíð í Skagafirði. Verk
Rósu hafa gjarnan fleiri en þrjú lög og
oft má sjá hvað er undir yfirborðinu.
lnnblástur í verkin sækir hún í náttúr-
una og lítur líka undir yfirborðið; t.d.
sólargeislann sem leggst á árbotninn
og má sjá gegnum vatnsborðið. Rósa
Kristín er kennari við myndlistaskól-
ann á Akureyri. OIl verkin á sýning-
unni eru unnin á þessu ári. Sýningin
er opin alla daga kl. 10-18 og stendur
til 21. ágúst.
Gönguferð um Botnaleið
Skíðadeild Leifturs og Ferðamálaráð
Olafsfjarðar standa fyrir gönguferð
laugardaginn 1. ágúst næstkomandi.
Er það önnur ferðin á þessu sumri og
verður gengin svonefnd Botnaleið til
Siglufjarðar. Lagt verður upp frá göml-
um hitaveitumannvirkjum í Skeggja-
brekkudal, gengið íyrir HéðinsQarðar-
botn og komið í Hólsdal í Siglufirði.
Leiðin er greið, en nokkuð löng og má
gera ráð fyrir 7-8 klst. göngu. Þeim
sem verða ekki eftir á Siglufirði verður
ekið til baka til Olafsfjarðar. Þátttöku-
gjald er kr. 3.000. Skráning er í síma
852 0774.
Kiðagil í Bárðardal
Nú stendur yfir myndlistarsýning
Rögnu Hermannsdóttur. Barnadagur
verður í Kiðagili 2. ágúst. Kl. 14.00
verður sílaskoðun í síkjum við Skjálf-
andafljót. Síðan verða brauð bökuð
yfir eldi. A kaffihlaðborðinu verður
lögð áhersla á veitingar fyrir börn.
Guðrún Sveinbjörnsdóttir verður með
tóvinnu sem öllum er velkomið að taka
þátt í. Ólafur Héðinsson leikur á
hljómborð.
Skítamórall um helgina
Hljómsveitin Skítamórall spilar á ár-
Iegu sveitaballi í Miðgarði í Skagafirði
á föstudag. Húsið verður opnað kl.
23.00. Aldurstakmark 16 ár.
A laugardag spilar hljómsveitin á Ráð-
hústorginu áAkureyri kl. 14-15.
Listasumarhelgi á Akureyri
Það verður kraumandi í listalífinu á
Akureyri frá deginum í dag og samfellt
í ellefu daga. Heitur fimmtudagsdjass
verður í Deiglunni og á föstudaginn
hefjast Dagar unga fólksins með
myndlistarsýningu í Deiglunni en við
opnunina kl. 17.30 verður einnig boð-
ið upp á tónlist og breikdans. Dagar
unga fólksins standa til 9. ágúst en þá
um kvöldið hefst nýtt tímabil á Lista-
sumri með Heimi Ijóðsins; ljóðrænu
ferðalagi gegnum aldirnar. Þrennar
myndlistarsýningar verða opnaðar á
laugardag. Það eru Krossgötur í Ketil-
húsi kl. 14.00 sem er samsýning Sól-
veigar Baldursdóttur, Guðrúnar Pálínu
og Hrefnu Harðardóttur en kl. 15.00
opnar Jónas Viðar Sveinsson sýningu í
Gallerí Svartfugli og Guðbrandur Sig-
urlaugsson opnar sýningu í Ljós-
myndakompunni kl. 16.00. Við það
tækifæri leikur Baldur Sigurðsson á
klassískan gítar.
Ferðafélag Akureyrar
Um verslunarmannahelgina er farið í
Fjörður og Látraströnd. Gönguferð
með allan útbúnað. Lagt er af stað kl.
17.00 á föstudag frá skrifstofu Ferða-
félags Akureyrar og ekið í Hvalvatns-
fjörð og gengið þaðan í Þönglabakka. A
laugardag verður gengið í Keflavík og á
sunnudag í Látur. A mánudag verður
gengið frá Látrum inn eftir ströndinni
að Svínárnesi þangað sem bíll mun
koma að sækja þátttakendur. Upplýs-
ingar og skráning er á skrifstofu Ferða-
félags Akureyrar, Strandgötu 23. Skrif-
stofan er opin virka daga kl. 16-19 og
síminn er 462 2720.
Harmoníkuball Fljótamanna
Hið árlega harmoníkuball Fljótamanna
verður haldið að Ketilási í Fljótum
laugardagskvöldið 1. ágúst. Hermann
og Ingi halda uppi fjörinu. Tjaldstæði
á staðnum.
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfr-
um
Fjölbreytt dagskrá verður um helgina.
A laugardag verður gönguferð Vestur-
dalur - Ásbyrgi kl. 13 til 17 eða 18.
Lagt af stað frá húsi landvarða í Vest-
urdal. Barnastund verður í Ásbyrgi kl.
13-14 og verður hist við landvarðahús-
ið. Gönguferð Svínadalur - Kallbjarg
kl. 14-17, lagt af stað frá húsi land-
varða í Vesturdal. Gönguferð Áshöfða-
hringur kl. 14-17, lagt af stað frá
Versluninni Ásbyrgi.
Á sunnudag kl. 13 til 17 eða 18 verður
gönguferð Ásbyrgisbarmur - Kúa-
hvammur - Gilsbakki og lagt af stað frá
þjónustumiðstöð. Barnastund í Ásbyrgi
kl. 14-15, hist verður við bílastæðið í
botni Ásbyrgis.
Dagskráin er öllum opin og þátttak-
endum að kostnaðarlausu.
Söngvaka í Minjasafnskirkjunni
I kvöld, fimmtudaginn 30. júlí, verður
söngvaka í Minjasafnskirkjunni á Ak-
ureyri. Á söngvökum eru flutt sýnis-
horn úr íslenskri tónlistarsögu svo sem
rímur, tvíundarsöngur, sálmar og eldri
og yngri sönglög. Flytjendur eru Kristj-
ana Arngrímsdóttir og Hjörleifur
Hjartarson úr Tjarnarkvartettinum.
Dagskráin hefst kl. 21 og stendur í um
klukkustund. Miðaverð er 700 krónur.
AUSTURLAND
Skítamórall um helgina
Hljómsveitin Skítamórall spilar á
Vopnaskaki á Vopnafirði á Iaugardags-
kvöld og á Neistaflugi í Neskaupstað á
Sunnudag.
Sýning í Skriðuklaustri
Síðastliðinn laugardag var opnuð á
Skriðuklaustri sýning tileinkuð völund-
inum Snorra Gunnarssyni. Snorri var
einstaklega fjölhæfur handsverksmað-
ur, hvort sem hann kom að húsasmíði
eða saumaskap. Hann var einnig lið-
tækur við viðgerðir og sá m.a. um að
halda klukkum og úrverkum nágranna
sinna gangandi. Þekktastur er hann þó
fyrir saumaskap á þjóðbúningum og
eru þær ófáar konurnar sem við hátíð-
leg tækifæri skarta búningum sem
hann saumaði. Á sýninguni gefur að
líta ýmsa gripi sem Snorri saumaði,
smíðaði eða gerði við. Einnig sauma-
vélar sem hann notaði við vinnu sína,
myndir frá ævi hans og starfi og margt
fleira. Sýningin er opin eftir hádegi og
stendur út sumarið.
SUÐURLAND
Þingvallavatnssiglingar
Þeir sem leggja leið sína um Þingvelli
um helgina geta séð Þingvallasvæðið
frá nokkuð öðru sjónarhorni en venju-
lega, með því að bregða sér í útsýnis-
siglingu um Þingvallavatn með
Himbrimanum.
Himbriminn leggur upp frá bryggjunni
á Skálabrekku í Þingvallasveit (um 10
km vestan Þingvalla) kl. 11, 13, 15 og
17 allar helgar í sumar og langt fram á
haust - þegar veður leyfir. Ferðir á öðr-
um tímum eftir samkomulagi við Kol-
bein kaptein Sveinbjörnsson, í síma
482 3610/854 7664.
Hringferð um Þingvallavatn tekur um
eina og hálfa klukkustund og á leiðinni
er spjallað um það helsta sem fyrir
augu ber í landslaginu, svo sem „Ár-
mannsfellið fagurblátt og fannir
Skjaldbreiðar,“ eyjarnar í vatninu og
lífríki vatnsins undir yfirborðinu, að
ógleymdum fyrstu bændunum á svæð-
inu sem höfðu viðurværi sitt af ferða-
mönnum, en það voru tröllkonan Jóra
í Jórukleif, sem rændi ferðalanga og
lagði þá sér jafnvel til munns, og OI-
kofri, sem bruggaði öl íyrir ])ingmenn
til forna.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Skógarganga
I kvöld verður tíunda og síðasta skóg-
arganga sumarsins á höfuðborgarsvæð-
inu á vegum Skógræktarfélags Mos-
fellsbæjar. Mæting er kl. 20.30 við
gróðrastöðina Grásteina í Mosfellsdal.
Gengið verður um gróðrastöðina og
skógrækt Laugarnesskóla í Katlagili,
leiðsögumenn verða Rjörn Sigur-
björnsson garðyrkjumaður og Jón
Freyr Þórarinsson, skólastjóri Laugar-
nesskóla. Að venju er boðið upp á
rútuferð frá Ferðafélagi lslands, Mörk-
inni 6, kl. 20.00 og er gjaldið kr. 500.
Sumarkvöld við orgelið í Hall-
grímskirkju
Laugardaginn 1. ágúst kl, 12 leikur
Svisslendingurinn Ulrich Meldau á
hádegistónleikum í Hallgrímskirkju en
hann er organisti við Enge kirkju í
Zúrich. A efnisskrá hans verða nokkur
þeirra verka sem hann mun síðan leika
á aðaltónleikum helgarinnar í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 2. ágúst kl.
20.30.
A fimmtu tónleikum tónleikaraðarinn-
ar „Sumarkvöld við orgelið 1998“ í
Hallgrímskirkju, 2. ágúst nk. kl. 20.30,
kemur fram svissneski organistinn Ul-
rich Meldau. A efnisskrá hans eru tvö
verk eftir Rach, nt.a. hin þekkta
Prelúdía og fúga í G-dúr, þá leikur
hann fjögur frönsk orgelverk, eftir