Dagur - 06.08.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 06.08.1998, Blaðsíða 2
18 - FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 ro^tr LÍFIÐ t LANDINU ■ SMÁTT OG STORT UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Björn Jörundur Friðbjörnsson. „Ég er fullviss um að gagnagrunns- frumvarpið mun fljúga í gegn á Alþingi í vetur“. Kári Stefánsson, forstöðumaður Islenskrar erfðagreiningar. Af drjóla poppara Einkennilegasta stílbrot sem Iengi hefur sést í blaðamennsku birtist í fylgiriti DV, Fókus, í síðustu viku þar sem tekið var viðtal við Björn Jörund Ieiklistarnema og nýdanskan. Viðtalið fer fram á hefðbundinn hátt framan af þangað til blaðamaður spyr allt í einu hvort Björn Jör- undur hyggist nokkuð sýna á sér „drjólann" fyrir fé líkt og íslensku gimbrarnar sýndu lík- ama sinn á dögunum í Playboy. Neitar Björn Jörundur þvi fremur fálega og síðan heldur viðtalið áfram á klassískan hátt. Kurteislegar spurningar og svör. Sá sem hér ritar hefur les- ið margt um dagana og er langt í frá hneyksl- unargjarn maður, en svona gerir maður ekki... Hættulegt tún Prestaskipti urðu í fyrra í Mývatnssveit þegar sr. Örn Friðriksson sóknarprestur til langs tíma hætti störfum vegna aldurs og Örnólfur Ólafsson tók við. Heimamenn hafa almennt tekið nýja prestinum vel en hann hefur lag á að gera grín að sjálfum sér þegar þannig ber við, líkt og forveri hans, húmoristinn séra Örn. Og fleira er líkt með gamla og nýja tímanum auk nafna þeirra sálusorgara. Þannig kom sr. Örn einhleypur maður í sveitina, en náði sér fljótt í frú sem bjó á Skútustöðum. Aftur ber svo þannig við nú að sr. Örnólfur finnur konu- efni sitt og aftur innan Skútustaðajarðarinnar. Arnfríður Jónsdóttir er hin lukkulega og kvæntist Örnólfur henni um sfðustu helgi. Mun hann nýverið hafa Iýst þessu þannig; „Fyrst kom Öm. Fór yfir túnið og náði sér í konu. Svo kem ég. Fer einnig yfir túnið og er nú kvæntur maður. Þetta er auðsjáanlega stór- hættulegt tún!“ Orðspor íslenskra kvenna Hvað sem hver segir þá hefur eitthvað orðið til þess að Kaninn er kominn með kengbrjálaða mynd af íslendingum og þá einkum ljallkonum Fróns til sjávar og sveita. Þannig hitti ofanrit- aður glaðlegan vörubílstjóra frá Ohio í sundi á dögunum. Sá var einhleypur í sumarfríi og ný- kominn til Iandsins og hélt vörubílstjórinn að dvölin á íslandi yrði einn samfelldur nammidagur. Eftir að hafa talað illa um Keikó og Clinton og skimað eftir föngulegum kropp- um, varð honum að orði: „Synda ekki íslenskar konur topplausar í laugunum?" Ekki kannaðist ég mikið við það og Kaninn virtist hissa. Sagði hann kunningja sinn hafa sagt sér að á Islandi væru allar konur meira og minna allsberar á al- mannafæri og flestar til í tuskið þegar Amerík- anar væru annars vegar. Skömmu síðar spurði Kaninn um skilnaðartíðnina á Islandi. Fékk loðið svar, en stökk síðan upp úr pottinum og sagði: „Hi, I’m from Ohio.“ Ljóshærð stúlka sendi honum augnaráð sem sagði allt sem segja þurfti. Hann hafði verið gabbaður. Valur bóndi Lýðs- son á bænum Gýgjarhóli í Bisk- upstungum. Hann er formaður Drauga- og trölla- skoðunarfélags Evrópu. Draugar og annað fólk Drauga- og tröllatrú á sér sterka hefð hér á Iandi og vandfundinn sá maður er ekki hefur einhveija skoðun á því hvort slík fyrirbæri eru til eða ekki. Valur Lýðsson heitir maður sem býr að Gýgjarhóli í Biskups- tungum. Hann er þar bóndi en stundar nokkra félagsstarfsemi meðfram, því hann er formaður Drauga- og tröllaskoðunarfélags Evrópu. „Félagið var nú stofnað hér á bænum,“ segir Valur hæglátlega og horfir um Ieið svolítið kíminn á þessa gesti sem komnir eru úr Reykjavík. Það er ekki alveg á hreinu hvort hann er að gera grín að okkur eða hvort honum er bara skemmt, svona almennt. „Tilgangur félagsins er fyrst og fremst sá að sameina fólk sem hefur skoðun á því hvort tröll og draugar eru til og vísar orðið skoðunarfélag til þess,“ heldur hann áfram. „Ekki til þess að við séum endilega að skoða svo mikið af tröllum og draugum, þó svo við gerum það auðvitað líka.“ Allir hafa inngöngurétt í félagið en þurfa að sækja um inngöngu hjá virtum félaga. Draugar megi líka ganga í félagið, en hafi ekki tillögu- eða atkvæðisrétt á fundum. „Það er svo erfitt að henda reiður á þeim og hvernig þeir greiða atkvæði, sjáðu til og snúið að fylgjast með hversu margir eru á fundinum," segir Valur. Afkvæmi drauga í félaginu sem stofnað var 1994 eru bæði karl- menn og konur og skoðunarstöð hefur verið í bígerð um tíma fyrir austan Bláljöll. „Það er erfitt að komast að þessum stað en við vonumst til að geta tekið hana í notkun um þessar mundir,“ segir Valur. Hann segir það skoðun þeirra sem vit hafa á að draugar séu að jafnaði við Iýði í 300 ár en þar sem á stöku stað, eins og til dæmis í Hvítárnesi þar sem draugagangur er allmikill hefur enginn búið síðan 1104 og styður það kenningu um að draugar geti fjölgað sér. í Hvítámesi eru nú að talið er 4 karlar og ein kona en misjafnt er hvar vart verður við þessa drauga. Draugagestur Valur segist hafa fengið gest með sér einu sinni, en það var þegar Þór Vigfússon hélt fyrirlestur um ákveðinn draug, sem svo flutti fyrir mis- skilning heim með bóndanum á Gýgjarhóli. „Hann var hérna að dunda í vikutíma en fór svo aftur,“ segir Valur og finnst greinilega ekki mik- ið til um að fá draug í heimsókn. „Alveg mein- laus,“ bætir hann við. Arni Björnsson hefur gert vættatal drauga en Valur telur alveg nauðsynlegt að gera tæmandi ættarskrá drauga á íslandi svo hægt sé að henda reiður á þeim. En félagið lifir góðu lífi og þeir sem hafa skoðun á tröllum og draugum vel- komnir mæli virtur félagi með þeim. -VS „Ekki til þess að við séum endilega að skoða svo mikið af tröllum og draugum, þó svo viðgerum það auðvitað líka ef hægter.“ SPJflLL ■ FRÁ DEGI TIL DflGS Hver aldur hefur sína kosti en því mið- ur uppgötva flestir menn það of seint. Pablo Casals. Þetta gerðist 6. ágúst • 1981 var hringt til slökkviliðs Indiana- polis en það reyndist vera gabb. Þegar þeir komu til baka var slökkvistöðin í ljósum Iogum. Einhver hafði gleymt potti með olíu á! • 1945 létust yfir 200.000 manns er En- ola Gay, B-29 sprengiflugvél Amerík- ana, sleppti kjarnorkusprengju yfir Hiroshima í Japan. Þetta var í fyrsta sinn sem slík sprengja var notuð í stríði. • 1945 var skömmtun á áfengi hérlendis hætt og hafði þá staðið í tæp fimm ár. Þau fæddust 6. ágúst • 1976 fæddist Soleil Moon Frye leik- kona er meðal annars lék í Punky Brewster. • 1911 fæddist Lucille Ball, leikkonan fræga sem veitti þúsundum manna gleði og ánægju. Merkisdagurinn 6. ágúst I Japan halda menn upp á það að friður er kominn á og heitir hátíðin Peace Festi- val. Þetta er hátíð sem haldin er í minn- ingu þeirra er fórust í kjarnorkuspreng- ingunni í Hiroshima og kannski í öllum styrjöldum. Víða um heim er þess minnst að sprengjunni ógurlegu var varpað á Hiroshima og fólk fer í friðargöngur um þetta Ieyti enda ekki vanþörf á að minna á frið. Vísa dagsins Þessi vísa er gömul og óvíst hvaðan hún kemur en margir kunna hana. Hvort börn nútímans læra hana veit ég ekki en góð er hún. Hver er sá veggur víður og hár vænum settur röndum, gulur, rauður, grænn og hlár, gjörður afmeistara höndum. Afmælisbam dagsins Djassbassaleikarinn Charlie Haden er afmælisbarn dagsins. Hann fæddist árið 1937. Haden hóf feril sinn á sjötta áratugnum. Haden spilar frídjass, eins og saxófónleik- arinn Ornette Coleman, sem hafði mikil áhrif á hann. Meðal annarra þekktra hljóðfæraleikara sem Haden hefur spilað með er Dexter Gordon, Alice Coltrane, Pat Metheny og píanósnillingurinn Keith Jarrett. Fátækt Eitt sumarið var ég venju, fremur fátækur og reyndi að afla mér skotsilfurs með því að hirða flatir hjá samborgurum minum. I einu húsinu þar sem ég bauð þjónustu mína sagði frúin mér spunastutt að þar á bæ sæi maðurinn hennar um það að slá. En þegar ég gekk með húsinu í átt að hlið- inu heyrði ég bankað á glugga og sá þar fyrir innan mannsandlit. Hann henti til mín miða og á honum stóð: „Sláttuvélin er innst í bílskúrnum. Alla fimmtudaga kl. 1. Peningar verða undir dyramottunni. Ussss." Veffang dagsins Á Netinu er að finna ótal góða uppskrifta- vefi. Áhugafólk um matreiðslu ætti að finna ýmislegt við sitt hæfi á þessari slóð: http://www.ibmpcug.co.uk/~owls/edibil- ia.html/ Þarna má finna uppskriftir alls staðar að úr heiminum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.