Dagur - 06.08.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 06.08.1998, Blaðsíða 6
22 - FIMMTUDAGUR 6.ÁGÚST 1998 LÍFIÐ í LANDINU Ttopir Bjömbóndier „svona rollukalT ingu.“ Björn segist líka aðstoða fólk við útvegun veiðileyfa, en hægt er að komast í rjúpur, gæs- ir og silung í nágrenninu. Einnig er hægt að fá geymda hesta hjá honum um lengri eða skemmri tíma eftir atvikum og segir hann það vinsælt. Góður inatiir og dans Þjónusta við ferðamenn er krefj- andi starf og segir Björn ekki mikið um frítíma eigi að sinna því vel. Yfir sumarið eru 10-15 manns í vinnu hjá honum en til að létta aðeins á hefur hann leigt Jóhannesi Stefánssyni í Múlakaffi aðstöðuna í veitinga- salnum. „Með því vinnst líka það að geta boðið upp á fyrsta flokks veitingar og þjónustu sem Jóhannes ræður yfir án þess að ég þurfi að hafa áhyggjur af því,“ segir Björn. Dansleikir eru haldnir öðru hvoru í Réttinni og vekur það ánægju gesta. Þá er gjarnan boðið upp á mat líka og verði mjög í hóf stillt að sögn Björns. Rollukall Björn segist ekki alveg hættur venjulegum búskap. „Eg er svona rollukall," segir hann og hlær. „Mér finnst ég verða að hafa einhverjar skepnur til um- ráða, en þetta hefur breyst mik- ið frá því að ég var með 500 kindur fyrir nokkrum árum. Það var allt skorið niður vegna riðu- veiki og eitthvað þurfti maður þá að finna sér til Iífsviðurvær- is.“ Heita má að orlofshúsabyggð hafi verið óþekkt fyrir 30 árum en á þeim tíma sem liðinn er hefur verið mikil gróska í þess- um geira ferðaþjónustunnar og stéttarfélög ekki látið sitt eftir liggja. „Svæðið hér hentar mjög vel til þessara hluta því það er ekki bara greiðfært hingað, heldur Iiggur þetta við brún há- lendisins," segir Björn. „Þannig að ekki þarf að fara nema nokkra kílómetra til að vera kominn inn á hálendið og í óbyggðir. Snjósleðafólk notfærir sér þetta á vetrum enda af- spyrnu gott snjófæri hér þegar þannig viðrar og gott að ferðast þannig.“ -VS Allir á hestbak. Fanney og íris Þórarinsdætur, Gísli Snæbjörnsson og Guðrún Magnúsdóttir voru á leið á hestbak. Húsið stendur innst af Bunguhúsunum, Alftabungu, Réttarbungu, Breiðubungu og Stórubungu og sést þaðan vítt yfir. I Uthlíð er margt um að vera fyrir utan sundlaugina. Þarna eru frábærar gönguleiðir, hægt að fara á hestbak og stunda golf. „Það er nauðsynlegt að þjónusta allt þetta fólk vel,“ segir Björn. „Hér eru oft um 2000 manns á svæðinu um helgar og þó margir séu á ferð og flugi, þá er alltaf stór hópur sem heldur sig heima við ásamt gestum sínum og gott að geta haft einhverja afþrey- í Úthlíd íBiskups- tungum hefuráfáum árum risið mikil sum- arhúsabyggð með til- heyrandi þjðnustu. Þegar veður ergott eru þama á stundum allt að 2000 manns í einu.Jafnastávið heila borgl Þau sjá um að eiga mat fyrir gesti og gangandi. Kokkurinn Helgi Júlíusson og Birta Ingvadóttir er honum til aðstoðar. Björn bóndi Sigurðsson í Úthlíð er þekktur maður í sinni sveit og þó víðar væri leitað. Hann hefur á sér svipmót stórbónda, er þétt- ur á velli og kvikur á fæti. Björn er fæddur og uppalinn á bænum Úthlíð í Biskupstungum og hef- ur stundað þar búskap alla ævi að heita má. Búskapurinn sá hefur þó ofurlítið verið að breyta um ásjónu hin síðustu ár, því í stað kúa og kinda hefur Björn haldið utan um rekstur mikillar ferðaþjónustu sem hann hefur verið að byggja upp. „1 Úthlíð og nágrenni eru nú rúmlega 300 sumarhús sem mörg hver eru í eigu stéttarfé- laga en önnur í minni umsjón,“ segir Björn þar sem við sitjum í vinalegri stofu Réttarinnar, Björn bóndi við sundlaugina í þjónustumiðstöðinni. , c upiAa Daanv og Viktoria og i sundlauginni voru þær Ev ^ 9 veðrinu. skemmtu sérvepriðaðbuya^gærsiastig^------ en það heitir veitingasalurinn við þjónustumiðstöðina. „Þetta höfum við verið að byggja upp síðustu tíu árin og með tilkomu heita vatnsins á Reykjum hefur öll aðstaða gjör- breyst," segir Björn. „Þar fáum við 50 sekúndulítra af heitu vatni úr borholunni og það þýðir að við getum haft heita potta við húsin og sundlaugina sem fólk kann vel að meta.“ Heita vatnið þýðir líka það að húsin eru upp- hituð og hægt að nota þau allt árið, enda segir Björn það fara sívaxandi að fólk sé í húsunum yfir veturinn. Baxa fyrir tvo Björn byggir ný hús á hverju ári og nú er verið að byggja hús sem kallað verður Astar- bunga. „Þetta hús er að því leyti til sér- stakt," segir Björn, „að það er eingöngu ætlað tveimur. Þarna verður allur Iúxus sem hægt er að hugsa sér fyrir tvo, fallegt útsýni, heit- ur pottur, gott rúm og vart hægt að ímynda sér rómantískari brúðkaupsnótt eða brúðkaups- ferð en svona nokkuð. Þetta er líka fínt fyrir fólk sem vill hafa það notalegt eitt sér þó svo ekki sé um brúðkaup að ræða, alveg friður og ró.“ Guðrún Magnúsdóttir var ekki banginn við hestinn. Þótti hún sýna góða tilburði þrátt fyrir ungan aldur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.