Dagur - 06.08.1998, Síða 3
FIMMTUDAGUR 6.ÁGÚST 1998 - 19
LÍFIÐ t LANDINU
Afmælisboð í
kartöflugeymslu
ÓlafurÞórarinsson
bóndi íHáfi íRangár-
vallasýslu varð sjötug-
urísíðustu viku. í til-
efni aftnælisins var
ættingjum og vinum
Ólafs boðið til afmæl-
isveislu heima íHáftx
og varhún haldin í
kartöflugeymslunni á
staðnum.
Geymslan hafði verið hreinsuð
út og skreytt á viðeigandi hátt
og mátti rekja niðjatal Olafs og
konu hans Kristínar Karlsdóttur
á veggjunum. Barnabörnin
höfðu hjálpað til við skreyting-
arnar og teiknað myndir af öll-
um einstaklingum í ættartrénu,
sem alls eru orðnir sextíu og
einn frá þeim hjónum. Má ætla
að þessar glæsilegu skreytingar
fái að halda sér á veggjum kart-
öflugeymslunnar til frambúðar,
innan um uppskeruna og kart-
öfluinæður komandi ára.
Hátt í tvö hundruð manns
voru mætt til að samgleðjast af-
mælisbarninu og voru reistar
stórar tjaldbúðir á túninu undir
bæjarhólnum. Margir ættingjar
og vinir Olafs eyddu þar helg-
inni í blíðskaparveðri og höfðu
verið sett upp leiktæki fyrir
börnin, sem voru í meirihluta
afmælisgesta. Eftir kaffisamsæti
um miðjan dag á laugardag var
slegið upp grillveislu um kvöldið
og sá fimm manna harmoníku-
sveit að sunnan um að halda
uppi fjörinu. Fólk dansaði þar
og söng af hjartans list fram eft-
ir kvöldi og ríkti eins konar úti-
hátíðarstemmning í Háfi þá
helgina.
Barnahópur hjónanna í Háfi
er stór, en þau eiga tíu börn.
rennsli Markarfljóts og
Rangánna breyttist, hefur verið
hér einhver bátaútgerð. Það gef-
ur nafnið Bátatangi hér niður
undan til kynna, en eflaust hef-
ur þá verið fiskgengd í ósinn og
veiði stunduð í honum frá Háfi.
Jörðin var einnig kirkjujörð til
skamms tíma.“
- Hefur strandið á Vikartindi
haft einhver dhrifá landgæðin og
hefur hreinsunarstarfið skilað því
sem ætlað var?
Barnahópur hjónanna í Háfi er stór, en þau eiga tíu börn. Barnabörnin eru 34
og barnabarnabörnin 8. Elst systkinanna er Guðbjörg fædd 1951 og síðan
koma Þór Fannar f. ‘53, Hallur Einar f. ‘55, Karl Rúnar f. ‘57, Hólmfríður Helga
f. ‘59, Þorkell Ingvar f. ‘61, Þórarinn Vignir f. ‘64, Sævar Úli f. ‘67, Guðmundur
Páll f. ‘69 og Magnús Már f. ‘72.
Barnabörnin eru orðin þrjátíu
og Ijögur og barnabarnabörnin
átta. Oll eru börnin flutt að
heiman og búa flest með fjöl-
skyldum sínum í Reykjavík.
Ólafur í Háfi er fæddur og
uppalinn vestur f Ólafsvík á
Snæfellsnesi. Sonur hjónanna
Þórarins Guðmundssonar, land-
verkamanns og Fanneyjar Guð-
mundsdóttur, húsmóður. Hann
var yngstur í sex systkina hópi
og er hann einn eftirlifandi af
hópnum.
Stundaði sjóinn í tíu ár
- En hvenær hófÓlafur búsku-p?
,Ariðl949 fór ég suður á ver-
tíð og stundaði sjóinn frá Sand-
gerði. Þar kynntist ég Kristínu
konunni minni sem var ráðs-
kona hjá útgerðinni. Kristín er
frá Hala hér í hreppnum og árið
1951 keyptum við svo jörðina
hér í Háfi og hófum búskap.
Jörðin hafði verið í eyði í mörg
ár og fyrstu árin bjuggum við í
gömlu timburhúsi sem var eini
húsakosturinn á jörðinni. Við
byijuðum á því að byggja fjós og
hlöðu og þegar því var lokið
byggðum við íbúðarhúsið og
fluttum í það árið 1955 og
búum í því enn 43 árum seinna.
Kárl tengdafaðir minn, sem þá
bjó að Hala, aðstoðaði okkur í
upphafi, en við byrjuðum með
átta kýr og um fimmtíu fjár. Bú-
skapurinn dugði okkur engan
veginn í upphafi, svo ég stund-
aði sjóinn frá Keflavík á vetrar-
vertíðum í tíu ár. Árið 1960
hætti ég svo á sjónum, en þá
vorum við komin á kaf í kart-
öfluræktina. Eg átti vörubifreið
á þessum árum og var mikið í
akstri. Segja má, að um tíma
hafi það verið aðalatvinnan hjá
mér með búskapnum. Einnig
vorum við með hænsnarækt og
töluverða eggjaframleiðslu.
Kúabúskapnum hættum við
fyrir um það bil tuttugu árum.
Þá hófum við svínarækt og
stundum hana ennþá. Við erum
með þrjátíu gyltur og er það eini
búskapurinn sem við stundum í
dag, fyrir utan að halda nokkrar
kindur.“
Hjónin í Háfi, Úlafur og Kristín.
Illuimiiidi 1 rekaiiuin
- Hvemig jörð er Háfur?
„Háfur er mjög góð jörð til
ræktunar. Jarðvegurinn er tilval-
inn til kartöfluræktar og svo er
grasspretta hér ágæt. Háfur er
gömul landnámsjörð, en hér
nam land Þorkell bjálfi, fóst-
bróðir Ráðorms, sem nam lönd
austan Rauðalækjar. Þorkell
nam allt svæðið milli Rangár og
Þjórsár og bjó hér í Háfi. Hún
hefur því örugglega talist til
betri bújarða og mikil hlunnindi
legið í rekanum, en Háfsíjaran
sem fræg varð þegar Vikartindur
strandaði hér í vetur, heyrir öll
til jörðinni. I þá daga áður en
Djúpósinn var stíflaður og út-
„Fjaran er nú orðin nokkuð
hrein og því verki er lokið. En
landspjöllin eru þó nokkur og
þau mál er nú verið að skoða.
Allt umstangið í kringum
strandið og flutningana hefur
stórskemmt landið og sárin
blasa víða við. A þeim málum
þarf að taka, svo ekki hljótist
meiri skaði af. Okkur þykir vænt
um landið okkar og grátlegt að
skilja við það í sárum, eftir lang-
an og farsælan búskap á jörð-
inni. Erum við annars ekki gest-
ir á henni „Hótel Jörð“ og ber
okkur ekki að ganga vel um
hana,“ sagði Ólafur Þórarinsson
bóndi í Háfi. -EK
Risareiðhöll í Ölfusi
í Ölfusi erverið að
byggja stóra reiðhöll
þarsem ætlunin erað
vera með reiðskóla og
ýmsar uppakomur í
framtíðinni.
Þegar ekið er í áttina að Selfossi
og komið að bænum Ingólfs-
hvoli blasir við risastór hús-
grind. Dagur átti leið hjá og sá
tvo menn við vinnu utan á
grindinni. Þetta eru þeir Arnar
Bjarnason og Guðmundur Jón-
asson smiðir sem ætla sér það
að loka húsinu fyrir 1. október.
Reiðhöllin tilvonandi er engin smá-
smíði en erfitt er að gera sér grein
fyrir stærðinni fyrr en komið er að
grindinni.
„Við verðum nú sjálfsagt eitt-
hvað fleiri við verkið,“ sögðu
þeir þegar blaðamaður Iýsti van-
trú sinni á að þeir gætu unnið
þetta verk á svo stuttum tíma.
Húsið er 27x80 metrar að stærð
og fer ekki mikið fyrir manni
innan í þvf, en auk salarins
verða þarna búningsldefar og
fleira er tilheyrir slíkum rekstri.
Örn heitir sá er að framtakinu
stendur, en þarna á vera reiðhöll
f stærri kantinum. Einnig stend-
ur til að reka reiðskóla og við
hlið reiðhallarinnar er verið að
byggja hesthús fyrir hesta reið-
skólans og þeirra sem sækja
uppákomur í reiðhöllinni.
Húsið verður svokallað fjöl-
notahús og ekki að efa að ásókn
verður í að nota hús af slíkri
stærð í nágrenni höfuðborgar-
innar. Það kemur til með að
bera nafnið Ölfushöllin. Skóla-
stjóri reiðskólans verður Hafliði
Halldórsson.
Boðið verður upp á fjögur tíu
vikna námskeið í hestamennsku
ÞeirArnar Bjarnason og Guðmundur Jónasson eru að vinna að því að loka
grindinni. Áætlað er að því verði lokið fyrir 1. október.
fyrir fólk, 16 ára og eldri verður
farið í alla þætti hestamennsk-
unnar. Hver þátttakandi mun fá
þijá hesta til umráða og býr fólk
á staðnum á meðan á námskeið-
inu stendur. Þetta er nýjung f
hestakennslu og segja aðstand-
endur að s a m n i n ga vi ð r æ ð u r
standi yfir við félag tamninga-
manna þess efnis að námið skili
einhverjum réttindum.