Dagur - 06.08.1998, Qupperneq 4
20-FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Eins og kunnugt er ligg-
ur nú til rannsóknar hjá
FBI, Bandarísku alríkis-
lögreglunni, léttur sum-
arkjóll Monicu Lewinsky
sem er grunaður um að
innihalda „lífsýni" úr for-
seta Bandaríkjanna, Bill
Clinton, og geti því
hugsanlega sannað kyn-
ferðissamband þeirra.
Um er að ræða rós-
munstraðan Ijósbláan
ermalausan sumarkjól
frá U.S. Destiny fyrirtækinu, úr blönd-
uðu bómullar- (60%) og polyester- (40%)
efni sem Monica keypti í verslun Bloom-
ingdale’s-keðjunnar á Madison Avenue í
NewYork í febrúar árið 1995. Er gaman
að geta þess að stúlkan keypti kjólinn á
svokallaðri „Presidential Sale“, á „forseta-
útsölu", sem þarlendar verslanir halda
jafnan í kringum afmæli George Was-
hingtons, fyrsta forseta Bandaríkjanna.
Monica mun hafa greitt fyrir dressið 75
dali, en fullt verð var 99 bandaríkjadalir.
Frá því að Monica klæddist honum
einn heitan júlídag sama ár, með hinum
sögulegu afleiðingum, hefur kjóllinn ver-
ið í vörslu móður hennar þar til hann var
í liðinni viku afhentur FBI.
Dr. Herbert Chang starfar á rannsókn-
arstofu FBI í Washington og er einn
fremsti blettarýnir Bandaríkjamanna.
Hann er landflótta Kínveiji sem áður fyrr
starfaði sem sérstakur fóstureyðir (per-
sonal abortionist) fyrir Maó formann, en
sem kunnugt er sængaði fyrrum foringi
heims-sósíalismans að jafnaði hjá 7
hreinum meyjum dag hvern. Dr. Chang
hefur því mikla reynslu af samböndum
ungstúlkna og þjóðarleiðtoga. Að sögn
hans er ekki allt sem sýnist varðandi hinn
svokallaða „sæðiskjól".
„Til eru margskonar sæðisblettir því
sáðlát mannsins er að þvf leyti frábrugðið
sáðláti annarra tegunda að það er mjög
háð mannlegum tilfinningum. Fyrst er
því að ákvarða að um sæði sé að ræða og
því næst að athuga nánar hverskonar
sæði, hvort þar sé um að ræða saklaust
sæði eða saknæmt. Saklaust sæði telst
það sem fellur í hita leiksins, svokallað
„unintentional-do-no-harm-sperm“ sem
vel náttúraðir menn, eins og forsetinn
okkar er, geta jú alltaf misst frá sér, jafn-
vel í saklausum prívat-samræðum. Síðan
er það svo saknæmt sæði, þrungið fýsn og
losta, svokallað „dirty-old-man-sperm“
sem þröngvað er upp á fórnarlambið með
ruddalegum hætti. Slík tegund sæðis er
ákaflega fast fyrir í efnasamsetningu og
ending þess mun betri en saklauss sæðis
sem gufar fyrr upp og eyðist til dæmis
auðveldlega úr fataefni við kemíska
hreinsun. A þessu stigi málsins höfum
við til dæmis enn ekki komist að því hvort
kjóllinn hafi verið settur í hreinsun en ef
svo væri þá gæti forsetinn hugsanlega
andað léttar. Mannorð hans væri þá „dry-
clean“ eins og sagt er,“ segir Dr. Herbert
Chang og hlær sínum nýbúahlátri stoltur
yfir amerískum orðaleik.
Aðspurður, í framhjáhlaupi, um störf
sín fyrir Maó formann segir hann þau að-
allega hafa falist í einföldum og snöggum
fóstureyðingum, allt að þremur til fjórum
á dag, en einnig svokallaðri dauðhreinsun
Iífsýna úr kjólum og undirfötum stúlkn-
anna.
„Maó var ákaflega framsýnn maður og
sá fyrir möguleika einræktunar löngu
áður en orðið varð til. Það sem hann ótt-
aðist hvað mest var að klónuð yrðu eintök
af honum eða hann eignaðist afkvæmi á
hefðbundinn hátt. Þetta kann að koma
mörgum á óvart því einræðisherrar eru jú
þekktir fyrir að vilja lita þjóðarlíkamann
með genum sínum, en formaðurinn sá
þetta öðruvísi. Hann óttaðist samkeppn-
ina. Martröð hans var sú að honum yrði
steypt af stóli af eigin syni eða „nýjum og
betri Maó“ eins og hann kallaði það sjálf-
ur.“
Einrækt hefur einmitt verið nefnd í
sambandi við sæðisbletti Clintons. Dr.
Morgan Atcher-Weiss, einrækturnarsér-
fræðingur hjá Mount Ararat-sjúkrahúsinu
í New York, gefur lítið fyrir aðferðir nú-
tíma blettarýni sem hann segir úreltar nú
þegar.
UMBUDA-
LAUST
Hallgrímup
Helgason
skrifar
Dr. Herbert Chang
starfar á rannsóknar-
stofu FBI í
Washington og er
einn fremsti
blettarýnir Banda-
ríkjamanna. Að sögn
hans er ekki allt sem
sýnist varðandi hinn
svokallaða
„sæðiskjól".
Tékkar
hanná
blettin-
um...
„Eina örugga leiðin til að komast að
hinu sanna í málinu er sú að einrækta
nýjan einstakling út frá sæðissýnum í kjól
Monicu. Það tæki auðvitað lengri tíma en
niðurstaðan yrði óyggjandi. Fg veit til
þess að þeir hjá FBI eru með stand-by
meðgöngumæður í takinu og hafa á und-
anförnum árum verið að koma sér upp
forsetakandídötum framtíðar. Hér þarf
ekki einu sinni sæði til. Það var auðvitað
stórfenglegt tækifæri sem menn fengu
þegar eyrnasnepill Abrahams Lincolns
fannst fyrir tveimur árum í fórum afkom-
enda ástkonu hans. Fg hef fyrir því áreið-
anlegar heimildir að hjá FBI hafa menn
verið að fikra sig áfram með þetta og ver-
ið að leita að réttri blöndu að hinum full-
komna forseta, þar sem sameinaðir verða
helstu kostir þeirra fyrrverandi... réttlæt-
iskennd Lincolns, úrræðagæði Roose-
velts, þrjóska Nixons og manngæska
Carters... og þá væntalega karlmennska
Clintons. Menn eru núna einmitt soldið
að bíða eftir andláti Reagans sem hafði
auðvitað líka sína kosti. Það sem menn
óttast hinsvegar í sambandi við sæði/líf-
sýni Reagans er að alzheimerinn sé orð-
inn það ráðandi í DNA-keðjum hans að
minnisleysíð geti núllað út eiginleika
hinna forsetanna."
Kjólmálið hefur einnig sínar bók-
menntasögulegu hliðar. Eins og fyrr segir
er efni kjólsins með rósamunstri og svo
skemmtilega (eða einkennilega) vill til að
fyrirmynd þess er fengin úr Rósagarðin-
um (The Rose Garden) við Hvíta-húsið.
Bandaríski táknheimspekingurinn Ira
Guiltman, prófessor í samtímalegri end-
urspeglun goðsöguminna við North
Western-háskólann í Chicago, sér í þessu
táknrænar vísanir.
„Hér erum við náttúrulega bara að
horfa á endurtekið efni. Endurtekið efni
sem reyndar er sýnt mjög hægt vegna lög-
fræðilegs eðlis samfélags okkar. Við erum
hér að tala um annarsvegar Þyrnirós á
röngunni þar sem rósamunstrið á kjóln-
um verður að þyrnigerðinu sem hér um-
kringir þá Hvíta húsið/höllina. Riddarinn
opnar sér Ieið að hjarta stúlkunnar með
sverði sínu, skilur eftir blóð-/sæðisbletti á
þyrnirósagerðinu/munstrinu. Ævintýrið
er hinsvegar á röngunni hér því Clinton
er hallarbúinn og Monica stendur lyrir
utan sem er aftur á móti táknrænt fyrir
nútímaþjóðfélag þar sem prinsessan er
orðin fangi eigin frægðar og reynir að
brjótast út úr þyrnigerði hennar, eins og
við sáum með Díönu prinsessu af Wales.
Hinsvegar erum við svo að tala um
Mjallhvíti þar sem Monica er Snow-white
og Linda Tripp er hin (sannarlega) ljóta
norn. Lögfræðingar Monicu eru þar
dvergarnir sjö. Ég er enn að reyna að átta
mig á því hvað eplið sé hér. Ymsir mögu-
Ieikar koma þar til greina. Við getum séð
eplið sem sæðið sem Monica ætlaði að
kyngja eftir hið forsetalega „blow-job“ en
það hafi síðan staðið í henni því vissulega
dó hún í kjölfarið, hún dó svokölluðum
fjölmiðla-dauða (media-death). Um það
leyti sem íjölmiðlarnir bera hana til graf-
ar hrekkur það hinsvegar uppúr henni,
hún fær málið og ber vitni, stígur upp úr
glat-kistu samtímasögunnar.”
I Bandarísku samfélagi markaðslög-
mála eru sannarlega margir sem renna
hýru auga til hins ermalausa sumarkjóls
sem ber í sér örlagabletti amerískrar
sögu, U.S. Destiny. En að sögn Nancy
Goodman hjá Sotheby’s í New York er
ólíklegt að kjóllinn fari á almennan upp-
boðsmarkað.
„I mínum huga á kjóllinn heima á safni
eins og The Smithsonian í Washington.
Það væri synd ef hann myndi enda í
einkaeign þar sem hér er um þjóðarger-
semi (national treasure) að ræða, hluta af
menningararfleifð okkar.“