Dagur - 08.08.1998, Síða 2

Dagur - 08.08.1998, Síða 2
2 - FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1998 \ FRÉTTIR Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigdisráðherra býr sig undir að gæða sér á stærsta salatrétti sem vitað er til að hafi verið framleiddur. Eiríkur Friöriksson á hugmyndina að tiltækinu sem er í þágu góðs málefnis. Heimsmet handa veikum bömum Heixnsmet var sett á í gær þegar Eiríkur og Albert frá salatbamum Hjá Eika löguðu stærsta salatrétt sem gerður hefur verið. Metið er tH styrktar krabbameinssjúkum böm- um. Að framtakinu stóðu Eiríkur og Albert frá salatbarnum Hjá Eika sem löguðu hálft tonn af salati og rennur ágóðinn óskiptur til styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna. íslenskir garðyrkju- bændur gáfu allt salat í réttinn og allt annað efni var einnig gefið. Góðir gestir Sala salatsins fór fram í Pósthússtræti, fyrir framan Hjá Eika. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, fékk fyrsta skammtinn og lýsti hún ánægju með matinn, það væri ekki á hveijum degi sem sameinað væri gott málefni og hollur matur. Auk Ingibjargar mátti þarna sjá Friðrik Sophusson, Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu gæða sér á salati. Hljómsveit Eyjólfs Krist- jánssonar lék og Magnús Scheving sá um kynningu. Stemmningin var því góð. Allir hjálpsamir Þorsteinn Olafsson, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, sagði hugmyndina alfarið vera Eika. Hann hefði haft samband við samtökin fyrir þrem vikum og lýst hug- myndinni. „Að sjálfsögðu tókum við vel í hana enda allur stuðningur mjög vel þeginn," sagði Þorsteinn. Hann sagði starfsemi félagsins ganga vel enda væri góður hljómgrunnur í samfélaginu fyr- ir að aðstoða sjúk börn. „Við vitum að þegar hjálpar er þörf leggjast allir á eitt í okkar samfélagi, sem betur fer.“ Eiríkur Friðriksson sagðist hafa fengið þessa hugmynd eftir eina and- vökunótt og ákveðið strax að hrinda henni í framkvæmd. „Eg var í sjálfu sér ekkert hissa á þeim góðu móttökum sem ég fékk hjá öllum þeim aðilum sem ég talaði við um að gefa vöru eða þjónustu. Ég hafði góða hugmynd um það fyrirfram að svo yrði,“ sagði hann. Salatskál upp á hálft tonn Salatskálin sjálf tekur 500 lítra, eða um hálft tonn og er stærsta salatskál sem smíðuð hefur verið og mun met þetta fara í Heimsmetabók Guinness. Bergplast sá um hönnun og smíði hennar. Salatið samanstóð af græn- meti, pasta og kjúklingaskinku, borið fram með salatsósu, brauði og Egils Krystal. Eins og áður er frá sagt var allt hráefni og vinna gefins og rennur því öll innkoma beint til Styrktarfélagsins. Fjárgæsluaðili var Búnaðarbankinn og voru fulltrúar hans viðstaddir til að sjá um að allt færi fram sem skyldi. - SEG Baráttan nm yfirráðin yfir ríkisbönkunum heldur áfram og plottið verður dýpra og dýpra. í pottinum sjá menn gjörla hvers vegna Framsóknarflokkurinn vill fá sænska Wallenbergbank- ann til að ráða Landsbank- anum: það sé eina leiðin til að koma í veg fyrir að ís- lenski Kolkrabbinn nái hon- um. Hins vegar liggi meira á bak við: Sænski bankinn hafi engan áhuga á íslenskxrm banka, heldur íslensku tiyggingafé- lagi, scm heitir VtS og er í eigu Landsbankans. Þar liggi hundur grafinn. Sænski bankinn muni skipta á Landsbankabréfum fyrir bréf í VÍS - við leifamar af gamla SÍS (ESSÓ og Sam- vinnusjóðinn), scm eru innanbúðar í trygging- arfélaginu. Fléttan gengi upp: Gamla SÍS væri komið inn í Landsbankann að hluta, en Kol krabbinn hvorki þar né inni í VÍS! Og þá bætir einn pottverji við: Þess vegna vill Davíð fara sér hægt í sölu bankans...! Davíð Oddsson, vill fara sér hægt. Pórgnýr Dýrfjörð. öl. - deildin óæskilegra umsækjenda... Nokkuð hefur verið rætt í pottinum að staða for- stöðumanns Búsetu- og öldrunardeildar á Akureyri var ekki auglýst, heldur var Þórgýr Dýríjörð færður til í starfið. Nú heyrist sú skýr- ing að menn hafi ekki þor- að að auglýsa stjóradjobbið því deildin gangi almennt xmdir styttinguimi „Bús. og sem hefði getað laðað að flokk Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hveijum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Hæg suðlæg eða breytileg átt. Bjart veður norðan og austan til, en dálítil súld við suður- og suðvest- urströndina. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast f innsveit- um norðan- og austanlands. l) c r 3 13 — 14 —' 1b ■' (i u Færö á veguin Allir vegir eru greiðfærir. ■4

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.