Dagur - 08.08.1998, Blaðsíða 12

Dagur - 08.08.1998, Blaðsíða 12
12-LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 Dvalarleyfi í Canada Með því að fjárfesta í „Fleet Rent a Car“ sérleyfi (franchise) er þér tryggt dvalarleyfi í Canada, jafnvel þeim sem ekki hafa hreint sakavottorð. Heildarfjárfesting er 50.000 Kanadískir dollarar eða um 30.000 US$. Hægt er að fá frekari upplýsingar með því að skrifa til: 5950 Bathurst Street, Suite 1009, Toronto, Ontario, Canada M2R IY9 eða með því að hringja í síma 416-667-1676 eða með því að senda símbréf í 416-667-1467. Til sölu! Húseignin Grenivík (gamli læknisbústaðurinn) á Grenivík er til sölu. Tilboð í eignina verða opnuð á skrifstofu Grýtubakkahrepps mánudaginn 17. ágúst 1998 kl. 16.00. Sveitarstjórn áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Sveitarstjórn. ^ RARIK Rauðárstíg 10-105 Reykjavík Sími 560-5500 - Bréfasími 560-5600 Rarik óskar eftir tilboðum í: RARIK 98002 66 kV Akraneslína. Niðurrif. Verkið felst í að taka niður línuna, bæði leiðara og staurastæður, þ.m.t. stálmastur í Kollafirði. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu RARIK, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík frá og með mánudeginum 10. ágúst nk. Verð fyrir hvert eintak er kr. 2.000. Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK, á sama stað, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 21. ágúst 1998. Tilboðin verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem óska að vera viðstaddir. Vinsamlega hafið tilboðin í lokuðu umslagi, merktu: RARIK 98002. rr Bciwbic p G I T A L SOUMD S V S T E M ÍÞRÓTTIR Sex smnum holu í höggi Arlegt golfmót Ein- herjaMúbbsins fer fram á Hvaleyrarvelli um helgina. Einherja- klúhhurinn er klúhh- ur þeirra sem hafa farið holu í höggi og er Kjartan L. Pálsson formaður hans. - Hvað hefur formaðurinn oft far- ið holu í höggi á ferlinum? „Eg hef sex sinnum farið holu í höggi á golfferlinum. Við erum tveir snillingarnir sem höfum náð þessu sex sinnum, en það erum við Þorbjöm Kjærbo, meistarinn mikli úr Keflavík.“ - Hvað eru margir félagar í klúhhnum og hvemig er starfsem- inni háttað? „Ef allt er talið, þá eru það um 800 manns frá upphafi. Klúbbur- inn var stofnaður 1967 og varð því 30 ára f fyrra. Starfsemi klúbbsins er mjög einföld í snið- um. Við höldum eitt mót á ári og er það núna um helgina á Hval- eyrinni. Þar er spilað um und- urfagran silfurgrip sem gefinn var af veitinghúsinu Röðli á sínum tíma. Síðan höldum við hóf einu sinni á ári, milli jóla og nýárs, þar sem þeim sem fóru holu í höggi á árinu eru veittar viðurkenningar. Það er ekki hægt að segja ann- að en að þessi ldúbbur sé mjög þægilegur. Eg var skipaður for- maður fyrir mörgum árum af því ég hafði oftast farið holu í höggi. Það eru aldrei haldnir stjórnar- fundir og ég fæ að raða sjálfur í stjórnina, enda klúbburinn meira til skemmtunar og til að halda utan um fyrirbærið." - Nit er golfhakterían ein sú skæðasta sem um getur og gegn henni fást engin meðul. Hvemig smitaðist þú? „Það var á þeim tíma sem ég var íþróttafréttamaður. Það hefur verið í kringum 1970 og verið var að kynna golfið. Við fréttamenn- irnir tókum upp á því að halda Kjartan L. Pálsson, golfáhuga- maður. golfmót og ég man að í byxjun var maður að berja þetta tíu tólf högg inn á grín. Þar með náði bakterí- an tökum á mér. Það var sagt í gríni um okkur sem vorum hvað áhugasamastir í þá daga að við spiluðum átta daga í viku og ég held að nokkuð hafi verið til í því.“ - Það er ekki nóg að þú hafir að- eins spilað golf þú hefur ein- nig n undanfömum árum starfað viðfararstjóm og kynningar á golf- ferðum erlendis. „Já það er rétt, að eftir að ég hætti í blaðamennskunni, hef ég starfað við fararstjórn og þá aðal- lega í Hollandi. Þetta með golf- ferðirnar byrjaði nú leyndar alveg óvart. Menn voru að fara utan í ferðir og tóku þá með sér golfsett- ið, en áttu það til að gleyma ldúbbskírteininu heima og fengu þess vegna ekki að spila á völlun- um. Þá fékk ég hollenskan vin minn til að útbúa sérstök skírteini sem á stóð „member“ og eitthvað slíkt. Síðan fyllti ég þau út með nöfnum og öðru nauðsynlegu og þetta var tekið gilt á völlunum. Upp úr þessu kom svo hugmynd- in um að stofna sérstakan golf- ldúbb, sem er SL-Golfferða- klúbburinn. Þetta hefur fallið í góðan jarðveg og félagar eru orðnir vel á annað þúsundið. Reyndar er verið að gera breyt- ingar á þessu núna í tilefni 20 ára afmælis Samvinnuferða/Landsýn- ar. Frá og með haustferðunum verða gefin út ný skírteini og þeim fylgja ýmis fríðindi, eins og 50 prósenta afsláttur vallargjalda á helstu golfvöllun landsins og ýmislegt annað.“ - Hfl/fl golfferðir klúhhsins verið vinsælar hjá íslenskum golfáhuga- mönnum og hvað verður í boði í haust og vetur? „Ferðirnar eru mjög vinsælar að nú þegar er nær fullbókað í sum- ar þeirra. Við höfum reynt að hafa hópana ekki of stóra og svona fjörtíu manns er mjög heppilegur fjöldi í hverri ferð. Fólki er boðið upp á golfkennslu í þessum ferð- um og mjög góða æfingaaðstöðu. I ferðunum eru haldin mót og leikir og í ferðalok er haldið sér- stakt SL-mót með ýmis konar verðlaunum. Það eru ýmsar ferðir í boði að þessu sinni og má þar nefna helg- arferðir til Bretlands fram í sept- ember. írland er á dagskránni í október og verður haldið þar sér- stakt Samvinn Golf-mót í lyrstu ferðinni. Síðan er það Tæland í nóvember og janúar, Spánn og Mallorca í september að ógleym- dri Kúbu í nóvember og árlegri haustferð til Flórída.'1 ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugardagur 8. ágúst ■ KNATTSPYRNA Landssímadeildin Ki. 14:00 ÍBV - Keflavík Kl. 14:00 Valur - ÍA 1. deild Kl. 14:00 Breiðab. - KVA Sunnudagur 9. ágúst Landssímadeildin Kl. 16:00 Grindavík - KR Kl. 16:00 ÍR - Leiftur ÍÞRÓTTIR Á SKJÁNUM Laugardagur 8. ágúst “EH3Œ32S1” Hestaíþróttir Kl. 13:00 Kappreiðar Fáks Bein útsending frá Víðidal. Golf KI. 14:00 Landsmótið í golfi Bein útsending frá þriðja degi mótsins. Fótbolti Kl. 17:00 Enski boltinn Hnefaleikar KI. 22:30 Box með Bubba Svipmyndir frá sögulegum viðureignum. Sunnudagur 9. ágúst STÖÐ 2 Fótbolti Kl. 12:00 Enska knatt- spyman Bein útsending frá leikArsenal og M. United um góðgerðarskjöldinn. Golf Kl. 12:00 Landsmótið í golfi. Bein útsending frá fjórða degi. Kl. 20:00 Golfmót í Bandaríkjunum. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. á Akureyri óskar eftir að ráða starfsmann Leitað er eftir starfsmanni í deild er fer með gæðamál og felur starfið í sér samskipti við framleiðendur SH og söluskrifstofur fyrirtækisins erlendis. Starfsmaðurinn þarf að hafa góða framkomu og eiga auð- velt með samskipti við annað fólk. Þar sem hluti samskipta er á ensku er nauðsynlegt að viðkomandi geti talað og ritað á enskri tungu. Æskilegt er einnig að viðkomandi hafi einhverja tölvuþekkingu og eigi auðvelt með að tileinka sér ný vinnubrögð. Starfsmaðurinn verður með aðsetur á skrifstofu SH á Akureyri. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Þeir sem áhuga hafa fyrir starfinu eru vinsamlegast beðnir um að senda umsóknir til Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf., Hvannavöllum 14, 600 Akureyri fyrir 11. ágúst nk. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. annast sölu sjávarafurða fyrir yfir 100 innlenda og erlenda framleiðendur. SH hefur frá stofnun, árið 1942, oftast nær veriö stærsti útflytj- andi landsins og selur árlega sjávarafurðir fyrir hartnær 30 milljaröa króna frá íslandi, meira en nokkurt annað fyrirtæki hér á landi. Sölustarfsemi fyrirtækisins fer nær öll fram erlendis og spannar helstu markaði fyrir frosnar sjávarafurðir. SH rekur nú dótturfyrirtæki í 10 löndum í þremur heimsálfum. Á skrifstofum SH í Reykjavík og á Akureyri fer fram samræming sölustarfsins og nauð- synleg upplýsingamiðlun.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.