Dagur - 08.08.1998, Blaðsíða 6
t
6 -LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aóstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Sfmbréf auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Umbiui
í fyrsta lagi
I lítilli frétt hér í blaðinu í vikunni var greint frá nýjung, sem
verðskuldar meiri athygli. Þetta var frétt um að fjögur sjúkra-
hús hafi fengið sérstaka fjárveitingu upp á eina milljón króna
hvert, sem viðurkenningu fyrir góðan rekstur. Þetta voru
sjúkrahúsin á Isafirði, Sauðárkróki, Siglufirði og Egilstöðum.
I fréttinni er haft eftir heilbrigðisráðherra að þetta sé í fyrsta
sinn sem þetta er gert. Hér eru vissulega ekki háar fjárhæðir á
ferðinni, en það munar um þær hjá ekki stærri stofnunum.
Táknrænt gildi viðurkenningarinnar er ekki síður mikilvægt.
Hún sendir skilaboð til starfsfólksins um að menn kunni að
meta þær fórnir og það álag sem það hefur lagt á sig.
1 öðru lagi
Almennt er það líklegra til árangurs að meta viðleitni fólks og
verðlauna það fyrir að leggja hart að sér, en að refsa því.
Starfsfólk heilbrigðiskerfisins almennt - ekki eingöngu á þess-
um fjórum sjúkrastofnunum - hefur búið við stöðugan niður-
skurð og sparnað um langt árabil. Afköst og skilvirkni í kerfinu
hefur líka aukist með mælanlegum hætti, án þess að hægt sé
að tala um minni gæði. Skrifað stendur að laun heimsins séu
vanþakklæti. Það hefur heilbrigðisstarfsfólk fengið að sann-
reyna, vegna þess að oftar en ekki hefur góður árangur í að-
haldi og sparnaði verið talinn merki um að hægt væri að spara
enn meira.
í þriðja lagi
En vegur vanþakldætis er nú senn á enda gegninn. Það er
nauðsynlegt að innleiða ný vinnubrögð ef árangur á að nást.
Að umbuna stofnunum fyrir góðan árangur er mjög áhugaverð
aðferð, sem unnt væri að útfæra með ýmsun hætti. Það er ljóst
að um ókomin ár munu menn áfram þurfa að sýna aðhald í
heilbrigðiskerfinu. Til slíks verks er mun vænlegra að umbuna
fólki og fá það í lið með sér, en að refsa því með miðstýrðu
handafli. I því ljósi er fréttin áhugaverð. Viðurkenningar vik-
unnar eru vissulega smáar í sniðum, en mjór er mikils vísir.
Birgir Guðmimdsson.
Garrifer
á Stones
Það var Halldór Ásgrímsson
sem sagði Garra að ríkisstjórn
væri engin rokkhljómsveit.
Það var þegar Halldór gekk í
bandið með Davíð og þeir
mynduðu súpergrúppu með
því að sparka Jóni Baldvini út.
Garri er nú ekki frá því
samt að ríkisstjórnin sé eins
og Stones. „Rokksirkus eða
raunveruleiki“
skrifar gagnrýn-
andi Dags frá
hljómleikum
Rolling Stones í
Noregi, en Garri
fór á hljómleika
hinna íslensku
„Steina" í vik-
unni:
„Ogurlegt ösk-
ur markaði upp-
haf stundarinnar og þéttur
gítarhljómur Davíðs sargaði
hlustir landsmanna þegar „I
can get no satisfaction" út af
bankasölumálinu barst á öld-
ur Ijósvakans. Davíð var
greinilega ekki almennilega
kominn í gang en samt búinn
að taka fréttastofu Sjónvarps f
sátt þegar hann æddi fram og
aftur um sviðið.
Ingibjörg Pálma heitir bak-
raddasöngkona Davíðs og
ótrúlega sexý þar sem hún
tekur „Gimme Shelter" fyrir
Kára Stefánsson með nýja
genabankafrumvarpinu.
Dúett hennar og Davíðs var
fullkominn og röddun þeirra í
„Gimme" nánast óaðfinnan-
leg. Því miður fær Ingibjörg
lítið annað að syngja. í klapp-
inu rann Davíð örugglega yfir
í „Saint of me“ meðan risastór
mynd af Kára sveif yfir svið-
inu og Davíð sleikti á honum
tærnar: „Þetta er bara eins og
í Hvíta húsinu“ stundu áhorf-
endur.
Halldór komst ágætlega frá
raggílaginu „Thief in the
night“ sem tileinkað var
sænska Enskildabankanum,
en Finnur var heldur dapur
þar sem hann sló taktinn á
bassann. Sveitin fór beint yfir
í „Dead man walking" þar sem
umhverfisráð-
herra tók frekar
misheppnað
sóló og héldu
hvorki hljóm-
sveitin né
áheyrendur út
Iagið.
„Sympathy
for the devil“
sýndi að
hjómsveitin er
virkilega þétt þegar hún tekur
sig til og stjórnar góðærinu í
vasa réttu aðiljanna. Þor-
steinn er feiknaöruggur í auð-
lindaáslættinum og þótt 80
prósent áheyrenda vildu ekki
heyra lagið keyrðu Steinarnir
í gegn með góðum látum.
Flugeldasjmingin þegar Dabbi
kom inn með „I'm a man of
wealth and taste“ sló allt ann-
að út sem menn hafa séð f
þeim bransa, fyrir utan þegar
hann varð fimmtugur.
Stórbrotnir hljómleikar
hlutu að enda á „It's only rock
and roIl“ fyrir þá sem hafa
áhyggjur af efnahagsstjórn-
inni og gamlar einokunarhetj-
ur og fótafúnir sægreifar
stauluðust ánægðir heim.“
Garri sá ekki eftir að hafa
verið á Kántríhátíðinni á
Skagaströnd um sfðustu
helgi. GARRI
Efnahagur á reiðiskjálfi
Efnahagskerfin sem kapítalistar
og sósíalistar hafa komið sér upp
leika öll á reiðiskjálfi, sum þeirra
eru þegar hrunin og önnur eru
sjúk, jafnvel helsjúk. Þar sem
best gengur byggist hagvöxtur á
meiri eyðslu en vinnandi fólk
hefur efni á. I hinum hagsæiu
Bandaríkjum er farið að vara við
bruðlinu og í góðærinu á Islandi
aukast skuldir heimila mun
hraðar en tekjurnar. Viðskipta-
hallinn er hrikalegur miðað við
æyintýralegar útflutningstekjur.
I þeirri ringulreið sem ríkir í
hnattræna fjármálaheiminum er
peningum dælt inn í ört hrörn-
andi „efnahagsundur" ríkja, sem
ekkert ráða við frjálsan markað
eða opin hagkerfi að hætti Norð-
urálfu. Talið er að farið sé að sjá
í botn á gullkistu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins og fer þá að sneið-
ast um bjargráðin þaðan, og þar
með markaðshyggjuna sem lán-
að er út á.
Þegar ljallað er um hrun gjald-
miðla og verðbréfa er sjaldnast
minnst á annað en ríkisstjórnir
og prósentutölur. Hugurinn er
ekki leiddur að hundruðum
milljóna manna, sem missa at-
vinnu sína og eigur.
Skuldafenið kæfir allar
vonir um betri tíð.
Matador
I því ótrygga ástandi
sem ríkir í alþjóðlegum
efnahagsmálum og völt-
um hlutabréfamörkuðum, eru ís-
lensku viðskipaséníin upptekin
af því að selja og kaupa ríkisfyrir-
tæki, sem oftast fást fyrir slikk.
Nú á að selja bankana með
manni og mús og eru peninga-
og valdafíklar farnir að spila
matador um eignirnar. Ástþór
forsetaframbjóðandi og Wallen-
bergarnir sænsku bjóða í og
Burðarás og aðrir angar kol-
krabbans hrista teningana og
freista þess að komast í góða að-
stöðu til að hreppa fenginn. Og
nú vilja sparisjóðirnir fá að vera
með í leiknum.
í ríkisstjórninni deila Fram-
sókn og íhald hvort við annað
um hvaða banka eigi að sameina
og hveija eigi að selja, og hveij-
um. Innan þingflokk-
anna eru einnig skiptar
skoðanir um bankasöl-
urnar. Stjómarandstað-
an hefur ótilgreindar
skoðanir á málunum,
eins og venjulega.
Glámskyggni
Svo virðist sem bankasameining-
ar og sölur séu eingöngu á dag-
skrá vegna þess að ríkissjóðinn
bráðvantar peninga til að halda
samfélaginu gangandi í sjálfu
góðærinu. Aðrir telja að það sé
ekki annað en að pissa í skóinn
sinn og það muni skammgóður
vermir að selja þrjá öfluga ríkis-
banka á einu bretti. Hvað á þá að
gera næst þegar ríkissjóður á
ekki fyrir útgjöldum?
Hlutabréfaheimurinn er fall-
valtur og eftir að glámskyggnir
hagspekingar og verðbréfabrask-
arar urðu uppvísir að því, að hafa
ekki hugmynd um ástand efna-
hagsmála í ríkjum Asíutígranna
fyrr en það hrundi nær til grun-
na, er varlegt að trúa því sem
áköfustu alþjóðasinnar peninga-
markaðs vilja halda að manni í
tíma og ótíma.
Ekki er langt síðan íslenskir
áhrifamenn sögðu tíðindi að
austan með stjörnur í augum og
reyndu að telja fólki trú um að
þangað væri fyrirmyndir að
sækja. Dellumakarar í stjórn-
málaflokki bjuggu meira að segja
til mikla stefnuskrá um útflutn-
ingsleiðina þegar þeir gáfust upp
á sósíalismanum og tóku upp ný
trúarbrögð að austan.
Nú væri ráð að hætta að spila
matador við Ástþór, Wallenberga
og kolkrabba, auk annarra, og
líta betur í kringum sig áður en
rasað er um ráð fram og íslenska
peningakerfið selt í bráðræði.
ro^ir
Hefurþú virkilega trú á
því að Rolling Stones
komi til íslands næsta
sumar?
Pétui Kristjánsson
poppari.
„Því trúi ég.
Stelpugreyið er
búin að borga
stórfé og mér
finnast það full-
gild rök að ekki
hafi verið hægt
að flytja fragtina
hingað með
flugi, þetta er
svo rosalega mikið umfangs.
Sjálfur sá ég þetta á tónleikum
með þeim sem haldnir voru í
Kaupmannahöfn 1995 og geri
mér því fulla grein fyrir umfang-
inu. Þessi Kaupmannahafnar-
tónleikar með Rollingunum voru
hreint út sagt æðisgengnir."
Andrea Jónsdóttir
poppspekúlant.
„Eg er alveg til í
að láta ljúga því
að mér. Hins-
vegar yrði ég
ekki fyrir nein-
um hræðilegum
vonbrigðum þó
þeir kæmu ekki,
því ég hefði vilj-
að sjá þá miklu
fyrr. Nýjabrumið er fyrir löngu
farið af þeim og síðan finnst
manni líka að þeir séu heldur
ekkert mjög áhugasamir Iengur,
svo margt hefur gengið á aftur-
fótunum hjá þeim að undan-
förnu."
Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður á Isafirði.
„Eftir að Ijóst
varð að Ragn-
heiður Hanson
myndi flytja þá
inn hef ég ekki
efast, hún er
kjarnorkukona
og sýndi hvers
hún er megnug
þegar hún flutti
David Bowie hingað. Eg hef
alltaf haft efasemdir um þær
dagsetningar á fyrirhuguðum
tónleikunum hér á landi eftir að
tónleikaferðalagi Rollinganna
var frestað í vor, til dæmis tón-
leikum sem áttu að vera á Bret-
landseyjum nú í ágúst var
frestað. Ragnheiður gaf aldrei út
neinn einn ákveðinn dag á tón-
leikunum hér á Iandi. Síðan bara
trúi ég því að RoIIing Stones hafi
áhuga á því að spila fyrir Islend-
inga því á síðustu árum hafa þeir
verið að bæta við nýjum við-
komustöðum á tónleikaferðalög-
um sínum."
Rúnar Júlíusson
poppari.
„Þeir gætu kom-
ið á næsta ári,
en ef ekki þá al-
veg örugglega
einhverntímann
á næstu öld.
Rollingarnir eru
í fínu formi um
þessar mundir,
en eiga kannski
misjafna daga einsog til dæmis
fóboltalið.“