Dagur - 08.08.1998, Blaðsíða 5
LAVGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 - S
Hjgjiinr
FRÉTTIR
Undirbúa framboö
í öllum kiördæmun
Vinna við imdirhiíii
ing að vinstrafram-
boði er í fullion
gangi. Steingrímiir J.
Sigfússon segir stefnt
að framboði í öllum
kjördæmum. Ög-
mundur Jdnasson seg-
ist skipa sér þar í
sveit.
I samtölum Dags við ýmsa „út-
göngumenn" úr Alþýðubanda-
Iaginu á Norðurlandi kom fram
að fátt gæti komið í veg fyrir
stofnun nýs flokks vinstra megin
við sameiginlegt framboð A-
flokkanna. „Það hefur ekkert
sumarleyfi verið hjá okkur, við
höfum verið að hittast og ræða
málin, fólk á svipuðu róli í póli-
tíkinni enda stefnir í að til verði
stjórnmálaflokkur eða hreyfing
sem væntanlega býður fram í
þingkosningum næsta vor. Ég á
von á að svo verði. Síðan hef ég
verið að reyna að halda uppi
stjómarandstöðu og virðist ekki
af veita þar sem aðrir stjórnar-
andstæðingar virðast vera upp-
teknir við eitthvað annað,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon alþing-
ismaður, sem kvaddi Alþýðu-
bandalagið fyrr í sumar.
Ogmundur Jónasson segist
líka sannfærður um að af þessu
framboði verði og bætir við: „Þá
mun ég skipa mér þar í sveit. Ég
held því fram að það sé mikil
geijun í íslenskum stjórnmálum
um þessar mundir. Éólk úr öllum
stjórnmálaflokkum er að ræða
málin og ég er sannfærður um
að vinstraframboð á mikinn
hljómgrunn meðal kjósenda um
þessar mundir. Og í því sam-
bandi vísa ég til umhverfismála
og jafnréttismála," sagði Ög-
Úgmundur Jónasson.
mundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra, í
gær.
Boðið fram í öllum
kjördæmuiii
Steingrímur J. segist vilja nálgast
þetta verkefni með öðrum hætti
en þeim að einn eða tveir menn
rjúki til og fari í framboð. Hann
segir að ákvörðun um framboð
verði endanlega tekin af stórum
hópi fólks og á grundvelli tiltek-
inna málefna. Vinna sé nú í
gangi að skoða þau málefni og
þær áherslur sem vanti málsvara
fyrir og hvaða mannskapur er til-
búinn til að fylkja liði um þær.
Steingrímur segir einnig að verið
sé að skoða hvort stofnaður verð-
ur nýr stjórnmálaflokkur eða
hvort um óformleg samtök verð-
ur að ræða. Hann segir að stefnt
sé að því að bjóða fram í öllum
kjördæmum landsins.
Helstu stefnumál þess vinstra-
framboðs, sem menn eru að
skoða, sagði Steingrímur að
væru róttæk málsvörn vinstri
stefnu, umhverfisverndar, jafn-
réttismála, utanríkis- og þjóð-
frelsismál, með andstöðu við
Evrópumálin efsta á baugi.
Óviss stærðarhlutföll
Ögmundur Jónasson segir að
bæði jafnréttismál og umhverfis-
mál eigi stórvaxandi hljómgrunn
hjá almenningi. Róttækur flokk-
ur sem hefur þessi mál ofarlega
á stefnuskránni muni án vafa fá
umtalsvert fylgi. Hann segist
draga mjög í efa þá fullyrðingu
manna, jafnvel manna á rit-
stjórastólum, sem halda því fram
að eftir að til verði nýr stór
krataflokkur muni verða Iítill
vinstriflokkur þar til hliðar.
„Ég er ekkert viss um að stærð-
arhlutföllinn verði þessi vegna
þess hve ég finn fyrir miklum
áhuga á vinstra framboði," sagði
Ögmundur Jónasson. - S.DÓR
Fram-
kvæmdir
viö Leifs-
stöð
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorg-
un Iagði Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra, fram tillögu
um heimild til stækkunar á flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. I tillög-
unni er gert ráð fyrir 600 millj-
óna króna kostnaðaraukningu
og að verklokum verði seinkað
um eitt ár, þ.e. að þau verði
2001 í stað 2000 áður.
Við hönnun Leifsstöðvar var
gert ráð fyrir að um ein milljón
farþega færi um völlinn á ári
hverju. Nú er hins vegar svo
komið að um 1,3 milljónir fara
þar um og stefnir í að þar verði
ófremdarástand. Árið 2001 má
gera ráð fyrir að farþegaíjöldi
verði kominn í 1,5 milljónir á ári
og að þörf verði á ijórtán flug-
vélastæðum við landganginn en
þau eru sex núna. Eraman-
greindur fjöldi flugvéla kallar því
á breyttar aðferðir við með-
höndlun á tengifarangri, sem
fram að þessu hefur verið af-
greiddur beint á milli véla í
hvaða veðri sem er. Nú er miðað
við að byggður verði kjallari
undir Suðurbygginguna, sem
verður miðstöð fyrir flokkun
tengifarangurs, en hann er
einnig hannaður til að þjóna
sprengjuleit í farangri. Kostnað-
ur við framangreindar viðbætur
og breytingar er um 600 milljón-
ir króna og heildarframkvæmda-
kostnaður því áætlaður 1.000
milljónir króna. - SEG
Svíar hðfðu frumkvæðið
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra
segir algert frjálsræði
rikja á íslenskum
fj ármagnsmarkaði.
Erlent fjármagn muni
iiinau tíðar streyma
inn í landið.
Varðandi viðræður íslenskra
stjórnvalda við SE bankann í Sví-
þjóð staðfestu þeir Éinnur Ing-
ólfsson viðskiptaráðherra og Hall-
dór Ásgrímsson það í samtali við
Dag í gær að frumkvæðið að við-
ræðunum væri komið frá sænska
bankanum. Sögur hafa verið á
kreiki um annað. Eulltrúi frá SE
bankanum kom til íslands í byij-
un júlí og ræddi þá við þá Halldór,
Einn, Davíð Oddsson og Geir H.
Haarde. Ráðherrunum kom sam-
an um eftir þær viðræður að
halda könnunarviðræðum við
sænska bankann áfram.
„I sambandi við hugsanlega
sölu á hlut í Landsbankanum til
erlends aðila mega menn ekki
gleyma því að það ríkir frjálsræði
á íslenskum fjármagnsmarkaði.
Þegar við gengum í evrópska
efnahagssvæðið þá var samþykkt
fijálsræði á sviði vöruviðsldpta,
þjónustu, flutninga á fólki og fjár-
magni á öllu þessu svæði. Þetta
þýðir að erlendum Ijármálastofn-
unum er fijálst að koma inn til Is-
lands og starfa. Að mínu mati
liggur það alveg ljóst fyrir að það
mun gerast fyrr eða síðar og hefur
raunar gerst nú þegar í smærri
stíl,“ sagði Halldór Ásgrímsson
utanrfkisráðherra í samtali við
Dag um þessi mál í gær.
Uppákoman flýtti fyrir
Hann segir að nú þegar endur-
skipuleggja á eignaraðild ríkisins
að bönkunum standi Islendingar
frammi fyrir þeirri spurningu
hvort nota eigi tækifærið til ganga
til samstarfs við einhvern þann
erlendan aðila sem við teljum trú-
verðugan. Hann segir Ijóst að fyrr
eða síðar muni þetta gerast.
„Aðalatriðið er að mínum dómi að
fá sem mest fyrir eignir ríkisins og
að almenningur fái sem ódýrasta
þjónustu í hankakerfinu," sagði
Halldór. - s.DÓR
Engin niðurstaða ennþá
Eigendur eignarinnar við Lækjargötu í Reykja-
vík sem brann fyrir skemmstu, funduðu með
tryggingarfélaginu Sjóvá-Almennum á föstu-
dag. Jón Guðmundsson, annar eigendanna,
sagði að félagið hefði tjáð þeim að mat væri nú
að byrja á húsinu og væri niðurstöðu að vænta
eftir nokkrar vikur. Eyrr en tjónskýrsla liggur
fyrir væri ekki hægt að segja um hver afdrif
hússins yrðu, hvort það yrði rifið eða endur-
byggt. -SEG
Guðbjörg
Jóhannesdóttir.
Færri keyrðu fullir
Eærri voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur um nýliðna verslunar-
mannahelgi en stundum áður um þessa sömu helgi. Nú voru 48 tekn-
ir fyrir ölvunarakstur, en voru 62 um verslunarmannahelgina í fyrra
og nokkru fleiri árið þar á undan. ,/Etla má að nýir möguleikar við
eftirlit með ölvunarakstri hafi þar haft áhrif til góðs, ásamt öflugu
kynningarstarfi," segir í frétt frá Umferðarráði.
Hárvaxið rannsakað
Iimílytjandi segir
engar líkur á að
CREW hárvaxi verði
kippt út af markaði.
HoIIustuvernd ríkisins er nú með
til meðhöndlunar hárvaxið sem
Dagur skýrði frá í gær að hefði
brennt augu manns eftir að það
lak niður í augu hans í rigningu.
Innflytjandi vörunnar segir að
CREW-vörur séu seldar í millj-
ónavís út um allan heim og aldrei
hafi komið fram kvörtun áður um
notkun þessara efna.
„Auðvitað verður skaði ef ýmis-
konar efni komast í augu. Það
verður að skola strax ef slíkt ger-
ist, en í tilfelli drengsins virðist
hafa orðið misbrestur á að hann
skolaði efnið úr nógu fljótt eins
og stendur á krukkunni að eigi að
gera. Þetta er súrt efni en tára-
vökvinn er basískur. Þetta á því
ekki saman og einnig virðist sem
drengurinn hafi sýnt sterk of-
næmisviðbrögð," segir Jakob
Garðarsson hjá heildversluninni
ISON, sem flytur inn CREW. Jak-
ob segir að eins og er muni hann
taka vörurnar til hliðar á meðan
rannsókn fer fram. Hann telur þó
engar líkur á að vörunum verði
kippt út af markaði, enda sé allt í
Iagi með þær. „Það eitt að varan
er seld í Svíþjóð, segir nú heil-
margt um öryggið,11 segir Jakob.
Sigurbjörg Gísladóttir, for-
stöðumaður eiturefnasviðs hjá
HoIIustuvernd ríkisins, segir að
við fyrstu sýn virðist henni sem
engin ólögleg efni séu á inni-
haldslýsingu vörunnar. „Það á þó
eftir að rannsaka bæði vöruna og
málið allt nánar. Við förum í það í
næstu viku,“ segir Sigurbjörg.
Haft var eftir drengnum sem rætt
var við í gær að a.m.k. sex bönnuð
eiturefni hefðu verið í vaxinu.
Virðist vera um misskilning að
ræða. — BÞ
Þrír nýir kvenprestar
Á morgun, sunnudag fer rram prestvígsla í Dómkirkjunni í Reykjavík
þar sem þrjár konur munu vígjast til prests. Þetta eru þær Bára Erið-
riksdóttir sem vígist til Vestmannaeyjaprestakalls, Guðbjörg Jóhann-
esdóttir sem vígist til Sauðárkróksprestakalls og Lára G. Oddsdóttir
sem vígist til Valþjófsstaðaprestakalls. Biskupinn yfir íslandi vígir
guðfræðingana.
Guðmundur
Bjarnason.
Reglur um sundstaði
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra hefur
sett reglugerð um hollustuhætti á sund- og bað-
stöðum þar sem kveðið er á um búnað, hreinlæti
og þrif. Starfsmenn sem sinna laugargæslu skulu
hafa staðið hæfnispróf, hafa hlotið þjálfun í
skyndihjálp og fá reglulega starfsþjálfun. Inn-
streymi í laugar má ekki vera heitara en 5 5 gráð-
ur þegar það er tekið til blöndunar með köldu
vatni og skal það tryggt með segulrofa eða öðrum
viðurkenndum búnaði. Merkja skal greinilega
hitastig í í setlaugum. — BÞ