Dagur - 08.08.1998, Qupperneq 8

Dagur - 08.08.1998, Qupperneq 8
8- LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 Xk^ui- FRÉTTASKÝRING INGIBJÖRG STEFANS- DOTTIR SKRIFAR WaUenbergættin, mesta ættarveldi í Evr- ópu, gæti eignast ítök í íslensku efnahagslíii í gegnum kaup SE- bankans á hlutabréf- um í Landsbankanum. Ættin ræður helmingi veröbréfa á sænska verðbréfamarkaðnum og hefur ótrúleg völd og áhrif. Viðræður hafa verið í gangi milli Landsbanka Islands og SE-bank- ans, um að SE kaupi hlut í Landsbankanum. Samkvæmt nú- gildandi lögum má erlent fyrir- tæki ekki eignast meirihluta í Landsbankanum, þar sem bank- inn á helmingshlut í Vátrygginga- félagi Islands sem aftur á hlut í íslenskum sjávarútvegslyrirtækj- um. FjölskyldubanM Walleiiberganna Ekki er víst að SE-bankinn setji það fyrir sig. Fulltrúi hans hefur þó sagt að það sé skilyrði að bankinn eignist meirihluta hluta- íjár í Landsbankanum eða nægi- lega stóran minnihluta til að ráða bankanum miðað við dreifða eignaraðild. Það væri í stíl Wal- lenbergættarinnar, að taka seinni kostinn, en SE-bankinn er eins konar Ijölskyldubanki þeirra. André Oscari Wallenberg sem lést árið 1886, 70 ára að aldri, stofnaði Enskilda Banken, lyrir 122 árum sfðan. Hann var langa- langafi Jacobs Wallenberg, sem nú er stjórnarformaður bankans. Nú er því fimmti ættliðurinn kominn til valda í bankanum sem lagði grunninn að veldi ættarinn- ar og allar hrakspár um hnign- andi veldi hennar hafa reynst ósannar. Stórfenglegt veldi Veldi sænsku Wallenbergættar- innar er stórfenglegt. I engu Evr- ópuríki hefur ein fjölskylda náð jafn miklum áhrifum og völdum. Ættin stundar ekki aðeins banka- viðskipti. Hún hefur áhrif í sæn- sku atvinnulífi og stjórnmálum og á ítök í fjölmörgum stórfyrirtækj- um víða um heim. Það var einu sinni sagt að kratarnir hefðu stjórnmálavaldið í Svíþjóð, en Wallenbergarnir efnahagsvaldið. David Bartal, höfundur nýrrar bókar um Wallenbergana, segir að veldi þeirra sé sagt komið að fótum fram, á tíu ára fresti. Það hafi aldrei reynst á rökum reist. Þetta sést á áhrifum þeirra í SE- bankanum. Eftir að hafa dregið sig í hlé frá stjórnun og stórri eignarhlutdeild í honum er Wallenbergættin farin að stjórna þar aftur. Eiga mianihluta, en ráða samt Stjórnarformaðurinn er Jacob Jacob Wallenberg, 42ja ára, er stjórnarformaður SE-bankans. Það var langalangafi hans sem stofnaði bankann fyrir 122 árum. Wallenberg og frændi hans og jafnaldri, Marcus Wallenberg sit- ur einnig í stjórn bankans. Hann er aðstoðarframkvæmdastjóri In- vestor AB, sem er eignarhaldsfé- lag Wallenbergættarinnar og hjarta Wallenbergveldisins. Investor á misstóra hluti í flest- um helstu iðnfyrirtækjum Sví- þjóðar. Þeirra á meðal er Saab, bæði flugvélafyrirtækið og bíla- framleiðandinn, Scania, sem framleiðir vöruflutningabíla, Incentive, sem er eignarhaldsfé- lag, símafyrirtækið Ericsson og raftækjafyrirtækið Ericsson, auk hluta í SE-bankanum sem nýlega keypti tryggingafélagið Trygg- Hansa fyrir 16.8 milljarða sænskra króna. Eignarhluti Investors í þessum íyrirtækjum er mjög mismikill, en fyrirtækið hef- ur oft mun meiri völd í fyrirtækj- um, en sem nemur beinum eign- arhluta þess. Wallenbergarnir nýta sér þan- nig Iöggjöf í Svíþjóð sem gerir mönnum kleift að stjórna fyrir- tækjum, hafa völd í þeim, þó að þeir eigi ekki hreinan meirihluta í þeim. Hafa þannig meiri völd en sem nemur hlutafjáreign. Þetta er ástæða þess að Ijölskyldan, eða eignarhaldsfyrirtæki hennar ræð- ur atkvæðum á bak við helming hlutabréfa á sænska verðbréfa- markaðnum, þó að hún eigi ekki helming bréfanna. Percy Barne- vik, þekktasti fyrirtækjaleiðtogi í Evrópu í dag, er nýorðinn stjórn- arformaður Investor, hann var forstjóri ABB, sem er stærsta raf- WaUenbergamir eru engir ævintýramenn, þeir þykja slyngir fjárfestar og hugsa langt fram í tímann. Þeim liggur ekkert á, enda er fimmti ættlið- ur þeirra nú við völd í SE-bankanum. eindafyrirtæki í heiminum með yfir 200.000 starfsmenn. Ráðn- ing hans er þáttur í þróun Wallenbergveldisins, hann þykir mjög fær í sínu starfi og geta átt þátt í þeirri alþjóðavæðingu sem Wallenbergarnir hafa verið að taka þátt í. Af bændum komnir Wallenbergarnir eru ekki af aðals- ættum, heldur komnir af bænda- fólki. Einn forfaðir þeirra var biskup og það var með því að ger- ast þjónar kirkjunnar sem Wal- lenbergarnir náðu að komast ofar í sænska þjóðfélagsstiganum. Jónas Haralz sem var banka- stjóri Landsbankans frá 1969 til 1988 átti töluverð samskipti við SE-bankann. A þeim tíma var að visu aðeins einn Wallenberg í stjórn bankans og ættin tiltölu- lega áhrifalítil í bankanum. Það breyttist fyrst nú í fyrrahaust. Um þetta segir Jónas: „Gamli Skand- inaviskebanken var aðalviðskipta- banki Landsbankans í Svíþjóð, SE-banken og Skandinaviske- banken voru sameinaðir 1971 og Landsbankinn átti hlut í Scand- inavian Bank í London, þar sem SE-banken var stærsti eigandinn, þar til SE-banken keypti alla hluthafana út.“ Jónas segir að veruleg átök hafi verið innan bankans milli arma hluthafa. „Það gerði samstarfið þar örðugt, en þetta voru miklir öndvegis- menn sem voru í forystu og voru Landsbankanum og Islandi mjög hliðhollir," segir Jónas.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.