Dagur - 08.08.1998, Side 10
10 -LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998
t>gptr
FRÉTTIR
Starfaði 2 mánuði án leyfa
Pétur Snæbjörnsson hótelstjóri í Reynihlíð segist ekki þekkja dæmi þess
fyrr að gistihús hafi fengið að starfa án leyfis.
Hótelstjðri í Reyni-
hlíð gagnrýnir lög-
reglnyfirvöld fyrir að
fylgja ekki eftir regl-
iiin iim að tilskilin
leyfi þurfi til veit-
ingarekstrar.
Lykilhótel Mývatn var starfrækt í
hartnær tvo mánuði í sumar án
þess að hafa til þess tilskilin leyfi
frá sýslumanninum á Húsavík.
Hótelið er í húsnæði sem áður
hýsti Skútustaðaskóla. Halldór
Kristinsson, sýslumaður Þingey-
inga, segir að búið sé nú að upp-
fylla öll skilyrði til reksturs sem
krafist er eftir að jákvæðar um-
sagnir aðila höfðu borist honum
en leyfi hafi nú verið gefið út til
reksturs gististaðar. Umsagnirnar
eru frá sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps, Vinnueftirliti ríkisins,
Heilbrigiðiseftirliti ríkisins og eld-
varnareftirlitinu. Sýslumaður seg-
ist ekki tjá sig um það hvort þarna
hafi verið á ferðinni óvenjuleg
málsmeðferð eða jafnvel lögbrot
en það sé ekki úr lausu lofti gripið
að starfsemi hafi verið hafin áður
en starfsleyfi fékkst.
„Eg vil alls ekki á þessu stigi
segja að það hafi verið framið lög-
brot og mér var ekki kunnugt um
málið fyrr en skömmu áður en
leyfið var gefið út. Ég þekki engin
dæmi þess að starfsemi hafi verið
hafin hér í umdæminu áður en
leyfi hafi verið fengin, en það bár-
ust hingað ábendingar þess efnis,“
segir Halldór Kristinsson sýslu-
maður.
Sveitarstjóm Skútustaðahrepps
hefur ekki afgreitt áfengisveitinga-
leyfi til Lykiíshótels Mývatns, en
frá 1. júlí sl. færðist ákvörðun um
leyfi til áfengisveitinga frá sýslu-
manni til sveitarstjórna með breyt-
ingu á áfengislögum.
Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri
Hótels Reynihlíðar, segir að það sé
undarlegt að Lykilhótel Mývatn
hafi fengið að starfa óáreitt án
starfsleyfis og hann þekki þess
engin dæmi að gistihús hafi feng-
ið að starfa án leyfis.
„Enginn sem ég þekki hefði vog-
að sér að opna gistihús án þess að
hafa til þess a.m.k. bráðabirgða-
leyfi en þama hefur verið tekið á
móti gestum f einn og hálfan mán-
uð. Ég freistast til að álíta að ekki
hafi átt að fara eftir reglum. Þetta
hefur hins vegar ekki bitnað á
okkur," segir Pétur.
„Við fengum á sínum tíma ekki
leyfi til áfengissölu í fjögur ár
meðan reynt var að komast að því
hvort rétt væri að treysta sveita-
mönnum fyrir því að selja áfengi.
Sýslumaður vissi af því að rekstur
var hafinn því það voru sendir
þangað lögreglumenn í heimsókn
í júlíbyrjun en þrátt fyrir það var
ekki talin ástæða til að grípa til
ráðstafana. Ég þarf að endurnýja
mitt leyfi á næsta ári og mér er því
spurn hvað gerist ef ég sæki ekki
um endumýjun á því því það kost-
ar einhveija peninga. Þetta hátta-
lag lögregluyfirvalda er þess ekki
valdandi að maður beri virðingu
fyrir því og hvort þetta sé allt ein-
hver skollaleikur eða hvort sam-
keppnisyfirvöld muni líða þetta
háttalag dómsmálayfirvalda," segir
Pétur Snæbjörnsson í Reynihlíð.
- GG
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf.,
Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG
bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.
Cfrá 2.179.000 kr.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Ertu sammála fagblöðunum?
Suzuki Grand Vitara hefur þú sjaldgœfu eiginleika, aö geta raun-
verulega sameinað í einum bíl hinn hefðbundna liprafjölskyldubíl
í bœjarumferðinni og jeppann dn þess að sprengja kaupgetuna.
Ökuþór
... fœr „ Óskarsverðlaun
Fyrir þœgindi og dnœgjulegan akstur dsamt góðum utanvega-
eiginleikum og lágum rekstrarkostnaði fœr Suzuki Grand Vitara
titilinn „Bestu 4X4 kaupin undir 200.000 SEK"
Motor (Svíþjóð)
Með Grand Vitara hefur Suzuki komið fram með nýja kynslóð
jeppa sem er greinilega „fullorðnari" en sú á undan.
Auto Zeitung (Þýskaland)
2.5 V6 véiin... er áreynslulaus og öflug lágum snúning og hún
feykir Grand áfram á hraða sem kemur á óvart.
Car (Bretland)
Okkurfinnst hann vera réttur kostur fyrir kaupendur sem hugsa
um verð, útlit, og vilja njóta lífsins.
Truckworld online (Bandaríkin)