Dagur - 08.08.1998, Page 11

Dagur - 08.08.1998, Page 11
 ERLENDAR FRÉTTIR Óvinarímyiid og bandamaöiir Heimssamfélagið var yfirleitt á móti því að „gamla“ Júgóslavía leystist upp, ekki síst sökum þess að ekki þótti ólíklegt að ýmsir kynnu að líta á það sem eftir- breytnivert fordæmi. Hið sama átti dtjúgan þátt í því að téð sam- félag tók þá afstöðu að lýðveldin, sem „gamla“ Júgóslavía saman- stóð af, skyldu öll með tölu breyt- ast í sjálfstæð ríki, án nokkurra breytinga á landamærunum milli þeirra. Þetta leiddi ásamt með fleiri ástæðum til þess að Bosnía-Her- segóvína var gerð að sjálfstæðu ríki með óbreyttum landamær- um, þótt meirihluta íbúa lands þessa væri það á móti skapi. Kaldhæöni sögimnar Kosovo er í „nýju“ Júgóslavíu, en mikill meirihíuti íbúa þar al- banskur að þjóðerni. Það fólk vill líklega flest að landshluti þessi losni frá Júgóslavíu og verði sjálf- stætt ríki. Því bregður nú svo kaldhæðn- islega við að heimssamfélagið, sem búið er að útnefna Serba og þó sérstaklega leiðtoga þeirra, Slobodan Milosevic sem nú er forseti Júgóslavíu, sem fulltrúa hins illa, hallast á sveif með hon- um í Kosovo-stríðinu, þótt nefnt samfélag sé vandræðalegt yfir því og reyni að Iáta sem minnst á því bera. Margir vestrænir talsmenn og fréttaskýrendur minnast varla á Milosevic án þess að úthúða honum um Ieið, kenna honum (ósjaldan einum, að því er virðist) um hrun „gömlu" Júgóslavíu og allar hörmungarnar og hrylling- inn í Bosníu og Króatíu. Þær for- dæmingar eru orðnar svo reglu- legar að við liggur að þær minni á helgisiði. Athygli vekur að þrátt fyrir þetta taka Bandaríkin, Evrópu- sambandið o.fl. umfangsmiklum aðgerðum júgóslavneska hersins og vopnaðs serbnesks lögreglu- liðs í Kosovo undanfarið af tals- verðri stillingu. Astæðan til þess er að Vesturlönd og margir fleiri aðilar heimssamfélagsins vilja fyrir hvern mun að Kosovo verði áfram í Júgóslavíu. I átökunum í Kosovo er óvinarímyndin Milo- sevic því orðinn að vissu marki bandamaður Vesturlanda o.fl. að- ila heimssamfélagsins, ekki ósvipað því og þeir Izetbegovic Ieiðtogi Bosníumúslíma og Tudjman Króatíuforseti voru í átökunum í Bosníu og Króatiu. Bandaríkjastjórn skilgreinir hinn albanska Frelsisher Kosovo (UCK) sem hryðjuverkalið og breska blaðið Daily Telegraph hefur eftir ónefndum vestrænum stjórnarerindrekum að sókn júgóslavneska hersins gegn UCK undanfarið hafi verið „lögmætar aðgerðir gegn skæruliðum.“ „Stór-Albanla“ í vændum? Eins og fyrr viðvíkjandi „gömlu" Júgóslavíu og Bosníu óttast öfl- ugustu aðilar heimssamfélagsins að sjálfstætt albanskt Kosovo verði afdrifaríkt fordæmi. Fengju Kosovo-Albanir sjálfstæði, myndu Bosníu-Serbar (sem eru nauðugir í Bosníuríkinu og þó Báksvið Vesturlönd vilja ekki sjálfstætt albanskt Kosovo, m.a. af ótta viö að þar meö yrði saga ríkisins Bosníu senn öll. ekki miklu meira en að nafni til) krefjast fulls og viðurkennds sjálfstæðis. Sjálfstætt albanskt Kosovo myndi að miklum líkind- um ekki láta dragast lengi að sameinast Albaníu og hætt er við að Makedóníu-Albönum, sem hafa lengi haft náin samskipti við Kosovo-Albani, myndu þá engin bönd halda. Þeir myndu samein- ast Albaníu-Kosovo og þar með yrði til „Stór-AIbanía," fátæk að vísu en byggð fólki, sem löngum hefur haft orð á sér fyrir að vera herskátt og fjölgar þar að auki hraðar en nokkurri annarri Evr- ópuþjóð. Slíkt ríki vilja Serbar, sem nú hafa einhverja Iægstu fæðingatölu á konu í Evrópu og orðnir eru þreyttir á stríði, efna- hagsörðugleikum og bágum lífs- kjörum, ekki fá við hiið sér og EvrópaAfesturlönd ekki heldur. Hætt er \dð að stofnun „stóral- bansks" ríkis hefði í för sér út- breiðslu Balkanstríðs þessa, þannig t.d. að Búlgarar snerust til liðs við Makedóna, Grikkir vað Serba og Tyrkir við Albani. Og þótt ríkjum EvrópuA'esturlanda þyki ekki tilhlýðilegt að hafa hátt um það má vera að þeim sé ekk- ert um að múslímar færi út yfir- ráðasvæði sín á Balkanskaga. Fé frá Albunum í Vestux- Evrópu Vesturlönd \ilja að Kosovo fái all- mikla sjálfstjórn, og Milosevic hefur lýst sig viljugan til við- ræðna um það. UCK, sem Iengi neitaði algerlega að semja við Júgóslavíustjórn, hefur nú gefið eftir í því efni. Eru erindrekar Vesturlanda því að reyna að berja saman kosovoalbanskri samn- inganefnd, skipaðri fulltrúum allra málsmetandi afla innan ramma þess þjóðarbrots. Það er ekki létt verk, m.a. af því að UCK er dularfullur flokkur og ýmsra mál að þar sé um að ræða marga hópa sem ekki séu undir neinni sameiginlegri yfirstjórn. Grunað er að helstu ráðamenn UCK búi erlendis og stjórni aðgerðum vi'gamanna sinna þaðan - t.d. frá Albaníu, Vestur-Evrópu, Tyrk- landi. Nokkuð víst er að UCK fær mestan hluta vopna sinna frá Al- baníu (sem lýst hefur opinber- Iega yfir stuðningi við sjálfstæðis- sinna í Kosovo) og tilgangur Serba með sóknaraðgerðum þeirra í Kosovo undanfarið mun ekki síst hvað hafa verið að rjúfa þær flutningaleiðir. UCK hefur farið halloka og orðið fyrir mikl- um áföllum í bardögum undan- farið og má vera að sú sé skýring- in á vaxandi samningsvilja flokks þessa. Almannarómur er að UCK fjármagni stríð sitt mikið til með framlögum frá Albönum f Þýska- landi, á Norðurlöndum og ann- ars staðar í Vestur-Evrópu. —I--- LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 - 11 Lewinsky viðurkenndi kynmök með Clinton BANDARÍKIN - Bandarískir fjölmiðlar héldu því fram í gær að Mon- ica Lewinsky hefði fullyrt það fyrir rannsóknarkviðdómi á fímmtudag að hún hefði nokkrum sinnum átt kynmök með Bill Clinton forseta Bandaríkjanna. Atti það að hafa gerst í vinnuherbergi Clintons inn af aðalskrifstofu hans í Hvíta húsinu. Einnig sagði hún að þau hefðu rætt sín á milli hvernig best væri að halda kynnum þeirra leyndum, en hélt fast við það að forsetinn hefði aldrei beðið sig um að Ijúga um samband þeirra fyrir rannsóknarkviðdómi. NATO undirbýr inurás í Kosovo NATO - Undirbúningi fyrir innrás herliðs Nató í Kosovo er nærri Iok- ið. Þykir líklegast, ef af verður, að í fyrstu verði gerðar loftárásir á bækistöðvar serbneska hersins. Sendiherrar Natóríkjanna 16 koma saman á miðvikudag í næstu viku. Sprengjutilræði í Keníu og Tansaníu KENIA, TANSANÍA - Tvær sprengjur sprungu nánast samtímis í gær í Afríkuríkjunum Keníu og Tansaníu. Báðar sprengjurnar sprungu nálægt sendiráði Bandaríkjanna í höfuðborg hvors ríkis um sig. Um fímmtíu manns létust af völdum sprengjutilræðanna og talið er að um 1000 manns hafi særst, þar af allmargir alvarlega og er óttast að tala Iátinna verði mun hærri áður en yfír líkur. I gær var ekkert vitað um hverjir stóðu að verki. Olíuskip strandaði við Smgapúr SINGAPÚR - 7500 tonna olíuflutningaskip strandaði í gær \ið Singapúr og Iáku 400 tonn af dísilolíu úr skipinu. Skipið var á leið til Hongkong. 12.600 tonn af hráolíu eru einnig um borð í skipinu, en ekki var talin hætta á að hún læki út vegna þess að geymarnir sem hún er í voru óskemmdir. HHi HITAVEITA REYKJAVÍKUR NESJAVALLAVIEKJUN Tilkynning frá Hitaveitu Reykjavfkur Á morgun, sunnudaginn 9. ágúst, er virkjunarsvæðið á Nesjavöllum lokað vegna háþrýstiprófana. Þannig er öll umferð á svæðinu stranglega bönnuð. Á það bæði við um vélknúin ökutæki sem og gangandi vegfarendur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.