Dagur - 18.08.1998, Qupperneq 1

Dagur - 18.08.1998, Qupperneq 1
„Ég hafði ekki fengið úthlutað úr Launasjóði rithöfunda og sendi handritið í keppnina í eins konar örvæntingu til að bjarga fjármálunum, “ segir Bjarni Bjarnason, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. mynd: teitur. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar voru veitt í þriðja sinn á dögunum og þau hreppti Bjami Bjama- sonjyrir skáldsöguna Borgin bak við orðin. Þetta er ekki fyrsta viðurkenningin sem Bjarni hlýtur fyrir ritstörf því skáldsaga hans Endurkoma Maríu sem kom út árið 1996 var tilnefnd til Islensku bókmennta- verðlaunanna. Bjarni segir verðlaunabók- ina hafa verið alllengi í smíðum og í henni séu textar sem séu eldri en Maríusaga hans. Þegar hann lauk við handritið sendi hann það ekki til útgefanda. „Eg var ekki viss um að handritið væri nægilega gott,“ segir hann. „Eg hafði ekki fengið úthlutað úr Launasjóði rithöfunda og sendi hand- ritið í keppnina í eins konar örvæntingu til að bjarga fjármálunum." Handritið vakti hrifningu dómnefndar sem taldi það best þeirra 33 handrita sem bárust í keppnina. I áliti dómnefndar seg- ir: „Hér er um að ræða afar sérstæða sögu sem gerist á mörkum draums, ævintýris og veruleika. Sagan er bæði áleitin og spenn- andi en það sem kannski fyrst og fremst vakti aðdáun dómnefndar var hinn vand- aði, ljóðræni og persónulegi stíll sem ein- kennir alla frásögnina." Höfundurinn seg- ir um bókina sem kemur út á næstunni hjá Vöku Helgafelli: „Mig langaði að búa til persónulega fantasíu. Fantasíubók- menntir sem eru hrein og klár ímyndun verða stundum holar og snerta mann ekki nægilega og ef þær eru of raunsæjar verða þær of bundnar staðháttum. Mig langaði til að finna lausn á þessum vanda og skrifa raunsæja fantasíu sem væri upp- spuni en þó full af sönnum tilfinningum.“ Skrifað við misjðfn skilyrði Bjarni segir þessi verðlaun og tilnefningu til Bókmenntaverðlaunanna vissulega vera mikils virði en koma sér þó ekki úr jafn- vægi. „Viðurkenningar og verðlaun vega upp þau ár sem maður hefur verið að skrifa við misjöfn skilyrði. Ég hef verið að reyna að lifa á ritstörfum allt frá því ég flosnaði upp úr menntaskóla fyrir þrettán árum. Það var nánast útilokað, sama hversu ég lagði mig fram en það var erfið- ara að gera eitthvað annað. Draumurinn hefur alltaf verið sá að geta framfleytt sér á skriftum. Ég legg þó ekki mikið upp úr því að kalla mig rithöfund eða skáld en skriftirnar gefa mér mikið. Þetta er árátta sem ég er haldinn og ég finn ekkert betra til að drepa tímann með. Þegar Bjarni er spurður um áhrifavalda segir hann: „I byijun hafa Laxness, Þórberg- ur og Sigurður Nordal sennilega haft mest áhrif á mig. Annars er erfitt fyrir mig að greina áhrif annarra á skáldskap minn, það væri fróðlegt að sjá hvað öðrum sýnist.“ Þegar Bjarni tók við Bókmenntaverð- launum Tómasar Guðmundssonar fór hann hlýjum orðum um skáldið. Hann segist hafa mikið dálæti á ljóðum Tómas- ar: „íslenska konan er aldrei þokkafyllri en í ljóðum Tómasar. Nálgun hans við ástina er einnig mjög sérstök, í Ijóðum hans er ástin ekki eilíf og ódauðleg heldur hverful. Þannig fá fleiri hlutdeild í henni. í Fögru veröld er hending á þessa leið: Ei þekkti ég ást, sem aldrei dó. En ást sem gerði Itfið bjart um stundarbið, ég þekkti þó. Þetta er eitthvað sem ég gæti skrifað und- ir.“ Verd fiá \ ■■■>.* 8.114,-Ei.-ji.) 8.6S8,' sl;r ) Veið frá 10.430^0 Vcið fiá 9.484,- stgr. ~j 9 æ ð i á frábæru verði! est seldu d e k h á íslandi! UNIRQYAL Sterk og vönduð jeppadekk fyrir íslenskar aðstæður Gúmmívinnustofan ehf. Réttarhálsi 2, sími: 587 5588 Skipholti 35, sími: 553 1055 Þjónustuaðilar um land allt. ngaÍKiógAÓ/' ■;<) ud'fit.c ö.i ' L'.VJLL*. + l

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.