Dagur - 18.08.1998, Page 5

Dagur - 18.08.1998, Page 5
 ÞRIDJUDAGVR 18. ÁGÚST 1998 - 21 MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU L Renniverk- Krístján Sverrísson hefur leigt Renniverk- stæðið frá því í vor. Hann rekureinnig BingDao ogsegir reksturínn ólíkan. Hann ætlar sér stóra hluti í leikhúsrekstrín- um. „Það var eiginlega félagi minn, Marínó Sveinsson, sem ýtti mér út í þetta. Við leigðum Renni- verkstæðið í vor og gekk vel. Hann hvatti mig til að halda áfram,“ segir Kristján Sverris- son, eigandi matsölustaðarins Bing Dao á Akureyri og nú einnig leikhússtjóri. Leikhúsið á Akureyri hefur nú alveg sagt skilið við Renniverkstæðið og Kristján hefur leigt það af Gránufélaginu síðan í vor og sýnir nú allra síðustu sýningarn- ar á „A sama tíma að ári.“ Verð samkeppnishæfari Bing Dao og Renniverkstæðið eru í einu og sama húsinu, gamla Gránufélagshúsinu við Strandgötu á Akureyri og því segir Kristján þetta mjög hent- ugt. „Eg hef fengið matargesti út á leikhúsið og þetta samteng- ir staðinn mikið meira. Þetta tryggir mig einnig gagnvart sam- keppninni sem er orðin í veit- ingarekstri hérna á Akureyri. Eg er samkeppnishæfari fyrir vikið ef svo má segja.“ Ohætt er að segja að vel hafi gengið hjá Kristjáni. Ellefu sýningar voru á „A sama tíma að ári“ í vor og var uppselt á þær allar. Vegna fjölda áskorana var ákveðið að bæta við fimm sýningum og eru tvær þær síðustu um næstu helgi. „Þetta er ekki bara upplyfting fyrir mig heldur allt bæjarfélag- ið. Það er að miklu leyti utan- bæjarfólk sem sækir sýningarn- ar. Þetta fólk verslar héma, kaupir þjónustu og gistir á hót- elum. Þetta skilar peningum á alla staði.“ Kristján segist sjálfur ekki vera mikill áhugamaður um leik- Iist. „Eg hef samt gaman af því að sjá létt verk og ég hef tekið eftir því að það eru verkin sem seljast. Hér fyrir norðan verðum við bara að híta í það súra epli að við erum ekki nægjanlega mörg til að setja upp þung verk. Þetta er svo bröneur hópur hérna.“ Eins og Spánn og Grænland Kristján segir tvennt ólíkt að reka veitingastað og leikhús. „Þetta er eins og Spánn og Grænland," segir hann og hlær. „Það er gaman að standa í þessu. Fóíkið sem kemur að þessu er svo skemmtilegt og ég hef átt frábærar stundir með því.“ Þar sem Kristján þekkir lít- ið inn á leikhúsrekstur segir hann samvinnuna sem hann hefur haft við Loftkastalann ómetanlega og þar á bæ hafi menn verið sér innan handar. Kristján segir einhverjar áherslubreytingar verða á Renniverkstæðinu frá því að Leikhúsið var með það. „Ég hef náttúrulega fylgst með því hvernig verk það eru sem ganga. Ég veit það manna best því ég var hérna á barnum og sá hvenær fjöldinn kom og hvenær ekki.“ Að sögn Kristjáns verða tekin fyrir léttari verk en einnig sé húsnæðið notað á annan hátt eins og með tónleikahaldi, böll- um og jafnvel ráðstefnum og fundum. „Ég hef fengið alveg gríðarlega góðar undirtektir hjá fólki og sjálfsagt væri ég ekki í þessu ef ekki væri fyrir þær. Maður tvíeflist í að halda áfram við svona viðtökur.“ Óhemju dýrt Leikhúsreksturinn er óhemju dýr og kostnaður í kringum hvert verk er mikill. I kringum sýningarnar ellefu í vor var kostnaður í kringum 4-5 millj- ónir. „Loftkastalinn væri samt ekki að koma hérna aftur til mín nema þetta hafi farið vel. Það voru bara nokkrar krónur sem við vorum réttu megin við núllið,“ segir Kristján. „Við ger- um þetta í sameiningu, annað væri ekki hægt.“ Að loknum sýningum á „A sama tíma að ári“ hefur Renni- verkstæðið sýningar á „Fjórum hjörtum" sem gerði mikla lukku sunnan heiða. „Við erum ekkert byrjuð að auglýsa en þegar hafa nokkur hundruð manns pantað miða. Svo erum við að spá í nokkur verk.“ -JV Að semja og dansa Níu Islendingar á aldrinum 15-21 árs dvöldust á eyju í sænska skeijagarðinum um tíma í sumar ásamt 50 öðrum ungmennum af hinum Norðurlönd- unum við að semja Ijóð, sögur og annan texta, semja músík og dansa. Hér koma nokkur dæmi um afrakst- urinn. Sæt lyktin af blómunum færir mig á annan stað og annan tíma. Ég heyri löngu gleytnd hljóð og týnd lyktfyllir vit mín. Friðurinn og öryggiskenndin umlykur mig. Ég vildi að svona væri þetta alltaf og ekkert gleymdist. Að ég myndi allt og gleymdi engti. Margrét. MENNINGAR LÍFID Margrét E> Ólafsdóttir Menningí ágúströkkrinu Tvær fyrstu Menning- arnætur Reykjavík- urborgar þóttu takast vel því þær löðuðú Ijölda manns í miðbæinn. Ekki er því ástæða til annars en halda framtakinu áfram og því verður Menningarnótt í þriðja sinn næsta laugardag. Opinber dagskrá lá íyrir á mánudag, og er ekki annað að sjá en allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þátttaka hefur aukist ár frá ári, og því ætti þessi Menningarnótt að verða sú líflegasta frá upphafi. Ljóðskáld munu spretta upp á ólíklegustu stöðum, tónlist- armenn gera innrásir í lista- söfú, sem gagnstætt venju verða opin Iangt fram eftir kvöldi og Landsbankinn opnar almenningi aðgang að lista- verkasafni sínu í aðalbankan- um. Tískuverslanir hleypa listamönnum inn á gafl hjá sér og gallerí bjóða börnum í teiknisamkeppni. Allt lofar þetta íjörugu laugardags- kvöldi, þar sem fjölskyldufólk- ið tekur völdin af næturgöltr- urum á Laugaveginum. Parmaggiaui og ítalskur heimspekmgur Námskeið um sjónlistir á veg- um Háskóla íslands hófst í annað sinn föstudaginn 14. ágúst. Námskeiðið var haldið í fyrsta skipti í fyrrasumar að frumkvæði Hannesar Lárus- sonar, Ólafs Gfslasonar og Helga Þorgils Friðjónssonar. Þeir sjá um að útvega Ieið- beinendur og hefur að þessu sinni tekist að fá hingað þijá listamenn, frá Kanada, Þýska- landi og Ítalíu; frægastur þeirra er án efa Italinn Claudio Parmaggiani. Einnig er von á tveimur þekktum ítölskum fræði- mönnum, sem báðir eru pró- fessorar við háskólann í Tor- ino. Heimspekingurinn Gi- anno Vattimo kennir fagur- fræði og Laborio Termine, sögu kvikmynda og kvik- myndagagnrýni. Báðir eru vel þekktir af störfum sínum í heimalandinu og fýrir að taka þátt í opinberri menningar- umræðu. Laborio er Islend- ingum þegar að góðu kunnur frá í fyrra, er hann kom hing- að sem leiðbeindi á námskeið- ið. Þátttakendur á námskeiðinu fá ekki einir að njóta visku Gi- anno Vattimo því hann mun halda almennan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskól- ans, 26. ágúst næstkomandi. V Linda Vilhjálmsdóttir skáld er höfuðpaur veglegrar Ijóðadag- skrár á Menning- arnótt. Talið að ofan: Þorbjörg, Aldís, Margrét, HHdigunnur, Sigríður, Magnús og Guðmundur. J

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.