Dagur - 21.08.1998, Blaðsíða 1
4—^-
BLAÐ
Teygja, hlaupa, einn, tveirþrír! Alþingis-
menn og borgaifulltrúar taka margirhverj-
irþátt í Reykjavíkurmaraþoninu næst-
komandi sunnudag. Viðforvitnuðumst um
undirbúninginn.
Tækifæri fjölskyldunnar
Steinunn Valdís Oskarsdóttir borgarfulltrúi tekur þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu á sunnudaginn og stefnir á þrjá
til sjö kílómetra. „Ég hef ekkert undirbúið mig sérstak-
lega fyrir keppnina en ég hjóla heilmikið og er því í ágætu
formi,“ segir Steinunn Valdís.
Hún segist frekar líta á Reykjavíkurmaraþonið sem
samveru fyrir fjölskylduna en keppni. „Aðalmálið er að
vera með og hafa gaman af,“ segir hún.
Hálfsvelti mig
Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður tekur þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu. „Það kemur bara í ljós þegar ég
skrái mig, hvort ég fari heilt eða hálft maraþon," segir
Steingrímur.
Hann er jafnan í góðu formi og hleypur reglulega, enda
fór hann létt með 42 kílómetrana í fyrra. Steingrímur
passar mataræðið vel og borðar minna síðustu daga fyrir
keppni.
„Þetta er persónubundið en mér þykir best að hálf-
svelta mig fyrir hlaupið,“ segir Steingrímur.
Sonur Steingríms ætlar að hlaupa 10 kílómetrana og
nú biðja þeir feðgarnir bara fyrir góðu hlaupaveðri.
Aðalatriðið að vera með
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður ætlar að reyna við sjö
kílómetrana en er ekki í jafn góðu formi og hann hefði
kosið þar sem hann er nýkominn úr þriggja vikna fríi frá
Portúgal.
„Ég hef oft verið í betra formi og það er enginn vísinda-
legur undirbúningur hjá mér, segir Lúðvík og bætir við: „En
ég reyni að borða létta fæðu og hreyfa mig aðeins.“
„Markmiðið er að ldára hlaupið og aðalatriðið að vera
með,“ segir hann.
Nýfæddur í fyrsta hlaup
Siv Friðleifsdóttir, þingkona, er mikil íþróttakona og tekur
nú þátt í Reykjavíkurmaraþoninu ásamt fimm ára syni sín-
um, Hákoni, en saman ætla þau að hlaupa þrjá kílómetra.
Hákon er ekki að taka þátt í stóru hlaupi í fyrsta sinn
því nýfæddur fékk hann að vera með í burðarpoka fram-
an á móður sinni í Kvennahlaupinu það árið.
Siv er í ágætisformi og keppti í ýmsum íþróttir hér áður,
en hún bæði hleypur og æfir badminton reglulega. Hún
borðar létt og fer snemma að sofa kvöldið fyrir hlaup.
Reyul að leggja af
Pétur Blöndal, alþingismaður, er mikill hlaupagarpur,
Siv Friðleifsdóttir, fimm ára sonur hennar Hákon, og Steingrímur J. Sigfússon eru meðal þeirra sem taka þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu um helgina. mynd: hilmar þór.
ætlar hálft maraþon en hefur fjórum sinnum hlaupið
heilt og tekur undirbúninginn föstum tökum. „Upp á
síðkastið hef ég verið að æfa og reyna að auka hraðann,
en ég er víst ekki mjög hraðskeiður,11 segir Pétur Blöndal.
Pétur hleypur reglulega og passar mataræðið vel fyrir
hlaup. „Ég hef verið að leggja af núna, því það munar um
hvert kíló á hlaupunum, og þetta gengur bara vel,“ segir
hann.
Kvöldið fyrir hlaup forðast Pétur feitmeti og einblínir á
kolvetni, til dæmis pasta.
Á ekki einu sinni vigt!
Guðlaugur Þór Þórðarsson, borgarfulltrúi, stefnir á að
hlaupa fullt maraþon en lofar engu þar sem gömul fót-
boltameiðsl eru að taka sig upp.
„Ég hef ekki gefið upp alla von. Ég vona bara að ég geti
hlaupið en þetta Iítur ekki vel út,“ segir hann.
Guðlaugur spilar fótbolta af miklum krafti og hleypur
þegar tækifæri gefst, en hefur ekkert undirbúið sig sér-
staklega fyrir hlaupið né passað upp á kílóin. „Það fær mig
ekkert til þess að svelta mig fyrir hlaup og ég á ekki einu
sinni vigt!“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson að lokum.
Skenuntileg áskorun
Arni Mathiesen ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavík-
urmaraþoninu og hefur verið að búa sig undir það síðustu
vikur. Hann hefur lítið hlaupið frá því hann hætti í bolt-
anum en Iítur á hlaupið sem góða æfingu og skemmtilega
áskorun.
„Ég held að ég geti farið tíu kílómetrana án þess að fara
illa með mig,“ segir hann.
Hann ætla að borða orkuríkan og heilnæman mat fyrir
hlaupið. Að öðru leyti ætlar hann að hríla sig. Og þá er
bara maraþonið eftir. -rut/ghs
Þá er bara
eftir
L
. . . gæði á
-mest seldu dekk á íslandi!
m
Sterk og
frábæru verði! I vönduð jeppadekk fyrir
ísienslcar aðstæður
Gúmmívinnustofan ehf.
Réttarhálsi 2, sími: 587 5588
Skipholti 35, sími: 553 1055
Þjónustuaðilar um land allt.
'4-
i
II